Þjóðviljinn - 16.04.1981, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJJNN Fimmtudagur 16. apríl 1981.
KÆRLEIKSHEIMILIÐ
Lilli tæmdi öll veskin sem eru á rúminu þínu.
Kemur til greina
Gisli Björgvinsson, Þrastahlíð í Breiðdal eystra
sendi okkur nýlega eftirfarandi vísu og segir hana
hafa orðið„til út af tillögu Jóhönnu Sigurðardóttur
um jafnréttismál":
Við járnsmíðar konum eg jafnréttis ann
og jarðýtustörf inþeim síst vil eg meina.
Ef sveitina vantaði sæðingamann
sýnist mér Jóhanna koma til greina. — mhg
Manuela byrjaði — og endar lika vinsæl kiassisk kvöld f veit-
ingahúsinu Hliðarenda.
Helgi
gegn
lesendum
Jæja, lesendur góðir, þá eru
páskarnir gengnir i garð, og
ættuð þiö að hafa góðan tima til
að skoða stöðuna.
Meirihlutinn valdi 7... —d7-d6
og Helgi svarar með 8. g2-g3og
þá er staðan svona:
■■UMI ■
111 |i|l
Þiðhringið svo á þriðjudaginn
eftir páska milli kl. 9 og 18.
—eik—
Hhðarendi:
Síðasta
klassíska
kvöldið
Sfðasta klassiska tónlistar-
kvöldið að sinni veröur á
Hliöarenda á annan i páskum og
lýkur þá þessari vetrardagskrá:
sá listamaður sem byrjaði,
Manuela Wiesler.
Næsta vetur hyggjast svo
forráðamenn Hliðarenda taka
upp þráðinn að nýju.
Þessi böm.....
Kennarinn kemur inn i stof-
una og spyr:
— A einhver hér þennan
vettling?
Palli: Hann er einsog minn,
en það getur ekki verö hann, þvi
ég er biiinn að týna honum.
vSdtalSd
Spjallað við ungan
mann um fyrstu
ljóðabókina
Maður á
ekki að
vantreysta
andanum
Sigmundur Ernir Rúnarsson
kom frá Menntaskólanum á
Akureyri hingað á blaðið I
starfskynningu og svo kom það
á daginn að hann er skáld,
mannskrattinn. 1 fyrra gaf hann
sjálfur út Ijóðabók sem heitir
Kringumstæöur og félagi hans,
Kristinn Eirikur Ilrafnsson jók
hana myndum.
Það hefur veriö sagt að um
flest hafi verið ort og um margt
vel. Hvað kemur til aö enn risa
upp ungir menn, hver um annan
þveran og smiöa lýóð og kæra
sig kollótta um það farg sem á
þeim hvilir frá feðrunum?
— Ég veit það ekki. Ég er að
reyna að gera mér grein fyrir
kringumstæðum mannlifsins,
fyrir hlutskipti mannsins. Og
þegar ég get stuðst viö hugdettu
um einhverja likingu sem er
áreiðanlega frá mér sjálfum, þá
finnst mér ekki hvila á mér neitt
farg þegar ég skrifa.
Stundum hefi ég sagt fólki
sem hefur ekki mikla reynslu i
nútímaljóðum aö skoöa óljóð
Jóhannesar úr Kötlum. Ég hefi
lesið þau oft, og ég get ekki
neitað þvi, að stundum finnast
mér þau svo snjöll, að ekki verði
um bætt og kannski óþarft að
vera að sýsla þetta. En sem
betur fer verður ljóðalindin
aldrei þurrausin.
Þegar ég var að þessu bardúsi
minu las ég mér til skemmtunar
Orðabók Menningarsjóðs og
hafði m ikið gott af, þvi málforöi
minnar kynslóðar er kannski
ekki beysinn. Þarna var ég
Sigmundur Ernir: Það var hollt að lesa orðabókina...
minntur á mörg ágæt en sjald-
heyrð orð, gagnsæ og skemmti-
leg. Hitt getur svo verið vanda-
samt að nota þau rétt núna.
— Mér hefur sýnst að þln kyn-
sldö ljóðasmiða sé sú fyrsta sem
ekkistundar hreinlifi i málfari?
— Ég er ekki með á þeim báti.
Mér finnst það skylda hvers
manns sem er að gaufa við
þetta, aö gera þaö upp við sig
hvort hann er að yrkja islensk
ljðð eður ei. Þetta er eins og i
tónlist: það er hollast að fylgja
eftirþeirri stefnu sem var tekin
en ekki setja allt i einn graut.
Ég sé engan tilgang með að
blanda erlendu slangi inn i is-
lensk ljóö. Við eigum orð yfir
þetta allt.
' — Hvernig undirtektir fær nú
fyrsta ljóðakver nitján ára
manns?
— Þær komu mér á óvart.
Bókin seldist vel. Hún var gefin
út I 500 eintökum, og fyrstu vik-
una fóru 200. Nú á ég bara 30—40
eftir. Svo hefur bókin verið
skoðuö i kennslu á Samvinnu-
skólanum i Bifröst...
Allt fram streymir. Sig-
mundur Ernir sagðist hafa
verið nokkuö skammaður fyrir
æfingar meö orðaleiki sem eru
alláberandi i bókinni og væri
hann nú hættur þeim. Ef ég,
sagöi hann, ætti að nefna ljóö i
bókinni sem ég er tiltölulega
sáttur viö miðað við það sem ég
er að gera núna, þá væru það
helst tvö; annað heitir I nætur-
hclunni, hitt heitir Hugmynd.
Það ber nafn með rentu, sagði
hann, ég fékk hana skyndilega
og kom henni á blað um leið, og
hún breyttist ekki upp frá þvi.
Kannski fer best á þvi að maður
sé ekki að tortryggja andann,
þegar hann kemur i heimsókn
með þessum hætti. Hugmynd er
svona:
segjum sem svo
að þú sért skrúfa
sem þú og kannski ert
hefurðu þá aldrei hugleitt
hve illa þú ert snittaður
og skrúfgangurinn
illa tilhafður
(ég tala nú ekki um
forskrúfaður)
og
hversu skrýtið það sé
að skrúfjárn
skuli yfirleitt
vera til.... /
áb.
Mvndir frá Kúbu
1 Ásmundarsal
I Asmundarsal við Freyjugötu stendur nú yfir sýning á ljósmynd-
um, veggspjöldum og eftirprentunum frá Kúbu. Vináttufélag
Islands og Kúbu stendur að sýningunni, en hún er hingað komin fyr-
ir tilstilli kúbönsku stofnunarinnar ICAP, sem sér um vináttutengsl
Kúbumanna viö aðrar þjóðir.
Sýningin er qpin kl. 16—22 daglega til 20. april, að undanskildum
föstudeginum langa og páskadegi.
Alltaf er sagan að endurtaka
sig: Aður en haninn hafði
galað þrisvar hafði Albert af-
neitað flugstöövarbyggingunni
sinni tvisvar...
✓ v
M álshátturinn í dag
kemur frá
Bandaríkjunum:
Traust á guöi —
staðgreiðsia fyrir
alla aðra.
<
Q
o
Ph
Þér hafið lika verið
barn, herra dómari,
og ættuð að vitaað þvi
nær skólanum sem
maður kemur þvi C
[þyngri veröa skrefin.J
----£)
i (
Skórnir verða í
þungir sem blý,
herra dómari. J\
©
f Þessvegna varpaði
ég sprengjunni á
hann. Ég þoli ekki
við.
En hann getur veriö
rólegur — ég þori
aldrei að gera það.
TS~
O