Þjóðviljinn - 16.04.1981, Blaðsíða 14
Veröurhonuniekid
til þin?
Hvaða Visis-áskrifandi fær
Visis-bústaðinn 29. maí?
Verðmæti yfir 200.000 kr.
(yfir 20 millj. gkr.)
Vertu Vísis-áskrífandi
sími 86611
Ath._____—
-----rrJbástaðinn a
Skodadu bu .
bátasynnng „
náturogbuna
„ verdur oP«» *'1
S^ntnÍ páskodaaf___
UMSÓKNARFRESTUR
UMSÓKNARFRESTUR um skólavjst
_____________________ VJÍ
NÆSTA SKÓLAÁR ER TIL10.JÚNÍ
$ Samvinnuskólinn Bifröst 1
311 Borgarnes 93-7500
/
Attræður 18. april
Guðmimdur Þorsteinsson
frá Lundi
Hann er bróöir Erlu skáldkonu
og ólst upp i Borgarfiröi eystra,
Hjaltastaöaþinghá og Vopnafiröi
fram til 25 ára aldurs. Engu aö
siöur kennir hann sig viö Lund i
Lundarreykjadal i Stóra Borgar-
firöi, en þar var hann ráösmaöur
allmörg ár. Svo mun standa á þvi,
aö um þetta leyti tók hann aö
skrifa i blöö og vildi þá ekki láta
ruela sér saman viö neina
alnafna sina. Siðustu áratugina
hefur Guömundur átt heima i
Sandvik viö Leirhöfn á Melrakka-
sléttu.
Guömundi er margt til lista lagt
og m.a. er hann þjóöhagasmiöur.
Af þeim sökum vann hann árum
saman á útmánuöum aö
viðgeröum gamalla muna á
Þjóöminjasafninu. Þvf segja
tilfyndnar tungur, aö ýmsir forn-
gripir safnsins séu smlöaöir af
Guömundi, enda vissi hann
manna best, hvernig slikir hlutir
heföu eöa hlytu aö hafa verið.
Þegar Guömundur hætti þeirri
iöju og var aö rýma til á verk-
stæöinu, kom m.a. i ljós
málningardós, sem á var skrifað:
elligrátt.
Af kynnum viö Guömund hefur
mér virst sem honum þætti
höfuöskaðvaldar Islenskrar
þjóömenningar á þessari öld vera
fjórir, þ.e. Sigurður Nordal,
Halldór Laxness, Þórhallur
Vilmundarson og minkurinn. Þrir
hinir fyrrnefndu hafa unnið sér
þaö til óhelgi aö draga sanngildi
fornsagnanna i efa, en sá fjóröi
spillir dýrallfi landsins. Hefur
Guömundur veriö ódeigur aö láta
þetta álit sitt i ljós opinberlega.
Hér skulu einungis nefnd tvö áöur
óbirt dæmi um afstööu hans til
hins frægasta þeirra.
Guömundi finnst þaö lýsa mik-
illi vanþekkingu Halldórs Lax-
ness aö efast um aö fornir kappar
hafi getað sniöiö menn sundur i
miöju eöa klofiö I heröar niöur
meö þátima vopnum. Þetta veltur
á því, hvort þyngdarpunkturinn
er á réttum staö i vopninu. En þaö
skilur Halldór ekki. Gurkha-þjóö-
flokkurinn i Himalajafjöllum var
frægur fyrir hreysti og hörku i
bardögum. Guömundur kvaöst
eitt sinn hafa fengið aö handleika
sveöjur þeirra i British Museum.
Þar var þyngdarpunkturinn á
réttum staö. „Og meö sliku vopni
skyldi ég treysta mér til aö sniöa
Halldór Laxness sundur i miöju.
Og jafnvel I sjónvarpi.”
Halldór hefur sjálfur sagt nokk-
uö frá sögu og flækingi brons-
myndar þeirrar, sem nýlega var
sett upp I Þjóöleikhúsinu. Viö
hana má bæta a.m.k. einni visu.
Myndin var upphaflega I vax-
myndasafni Óskars
Halldórssonar Islandsbersa i húsi
Þjóöminjasafnsins. Eftir lát
Óskars haföi Halldór samband
við Kristján Eldjárn þjóðminja-
vörð og bað hann fjarlægja
myndina. Þaö kom i hlut
Kristjáns og Guömundar aö taka
hana úr vaxmyndasafninu og
bera inn i aöra lokaöa geymslu.
Þar reyndust m.a. vera fyrir aör-
ir hausar, svosem af Hitler og
Stalln. Vitaskuld var þaö svo
skráö i bækur safnsins, aö
tiltekinn hlutur heföi veriö fluttur
úr þessum staö á hinn. Nú sagöi
Kristján viö Guömund, aö vel
mundi fara á þvl aö yrkja visu um
þennan atburö. Og Guömundur
var ekki lengi aö:
Ofan tekinn argur fðli,
eg þaö rita I safnsins bók.
Fölsku goöi steypt af stóli,
stungiö inn I skammarkrók.
Guömundi likaöi ekki vel,
þegarsystursonurhans Þorsteinn
Valdimarsson leyföi sér stöku
sinnum aö yrkja órimað. Hann
sagðist ekki hafa þekkt mann,
sem var eins vel af guöi gerður til
aö vera skáid. Og maöur næstum
heyröi hiö ósagöa: ,,en svona fór
þaö.”
Litlu þótti okkureitt sinn muna,
aö einn höfuöandstæöingurinn,
minkurinn, bæri sigurorö af
Guömundi En það bar viö fyrir
nokkrum árum, aö Guðmundur
fékk hjartaáfall I stiga Þjóðminja
safnsins og var fluttur á gjör-
gæsludeild á Landakoti. Eins og
venja er viö slikar kring-
umstæöur voru allir varaöir
strengilega viö aö koma
sjúklingnum I nokkra geöshrær-
ingu. Nú vildi svo bölvanlega til,
aö einmitt sömu daga lögöu ein-
hverjir angurgapar fram á
Alþingi frumvarp um rýmkaðar
heimildir til minkaeldis. Var nú
kappkostaö aö Guömundi bærist
ekki njósn af þessu hervirki, en
tókst miður. „Minkurinn sleppur
alltaf i gegn”, sagöi Guömundur.
„Hann sleppur lika gegnum
Alþingi.” Þeir sem heimsóttu
Guömund á Landakot, reyndu
hvaö af tðk aö leiöa taliö aö ööru,
þvi það hefði þótt sorglegur endir
á hetjulegri baráttu, aö minkur-
inn gengi af Guömundi dauöum.
En hverju sem það er aö þakka,
lifir Guömundur enn og smiöar nú
upp forngripi á sumrum fyrir
Minjasafn Austurlands.
Guömundur hefur oft flutt
erindi i útvarp og gefið út nokkrar
bækur bæöi I bundnu og óbundnu
máli. Þeirra þekktust mun vera
bókin Horfnir starfshættir, en um
þau málefni er Guömundur sjó-
fróöur. Ætlunin meö þessu skrifi
er hinsvegar aö bregöa dálitlu
ljósi á einn drátt i fari afmælis-
barnsins, sem hætt er viö aö falli
frekar i gleymsku. Menn geta
veriö skemmtilegir á svo
margvislegan hátt, en þaö er of
sjaldan tiundaö á bókum. Ég vil
um leið þakka Guömundi fyrir
uppbyggileg áhrif þann rúma
áratug, sem viö höfum þekkst.
Arni Björnsson.1
Mjólkur-
samlögin
ná trauðla
grundvallar-
verði
Vist má telja að fæst mjólkur-
samlög geti greitt bændum
grundvallarverö fyrir mjólkina
sl. ár. Kemur þar til, að fyrstu 5
mánuöi ársins voru 16 kr. teknar
af hverjum mjólkurlitra og næstu
3 mánuði 28 kr. Er þessu fé ætlað
að mæta halla af útfiutningi
mjólkurafuröa.
Auk þessa frádráttar mun svo
trúlega vanta upp á mjólkurverð-
ið vegna þess, að færri litrar
koma til vinnslu isamlögunum,en
kostnaður þeirra breytist ekki
þótt mjólkin sé minni; deilist að-
eins á færri litra en áður.
—mhg
Hljómflutningstækin þín njóta
sín vel í Ríval sterióeining-
unum. Hér getur þú örugglega
fundið einingar við þitt hæfi.
Tilvalin fermingargjöf
Sogavegi 188 - Simi 37210 - Reykjavl