Þjóðviljinn - 23.04.1981, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 23. april 1981
DJOBVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-
hreyfingar og þjódfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: E öur Bergmann.
Kitstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan
Ölafsson.
Auglýsingastjóri: Þorgeir Olafsson.
Umsjónarmaöur sunnudagsblaðs: Guöjón Friðriksson.
Afgreiöslustjóri: Valþor Hlööversson
Klaöanienn: Allheiöur Ingadóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir,
Kristin Astgeirsdóttir, Magnus H. Gislason, Sigurdór Sigurdórs-
son.
lþróttafrétlamaöur: lngollur Hannesson.
Þingfréttaritari: Þorsteinn Magnússon.
útlit og hönnun: Guöjon Sveinbjörnsson, Sævar Guðbjörnsson.
l.jósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Eliasson.
Ilandrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar.
Auglýsingar : Svanhildur Bjarnadóttir.
Skrifstofa: Guörún Gúðvarðardóttir, Jóhannes Haröarfon.
Afgreiösla: Kristin Fétursdóttir, Bára Siguröardóttir.
Simavarsla: ölöf Halldórsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir.
Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir.
Fökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns-
dóttir.
Útkeyrslæ, afgreiösla og auglýsingar: Siöumúla 6,
Iteykjavik, simi 8 13 33.
Prentun: Blaöaprent hf..
Þróunarsam vinnu-
r
stofnun Islands
• Langt er nú um liðið síðan Sameinuðu þjóðirnar
mörkuðu þá stefnu að þróuðum ríkjum bæri að leggja
fram að minnsta kosti 1% þjóðartekna sinna til aðstoðar
við fátækari ríki í því skyni að jafna að einhverju leyti
þann gífurlega mun sem er á kjörum ríkra þjóða og
fátækra. Þrátt fyrir þessa stef nuyf irlýsingu er enn mjög
langt frá því að henni hafi verið fylgt fram. Helst eru
það grannar okkar á Norðurlöndum sem nálgast þetta
mark.
• islendingar hafa iðulega á hátíðastundum gefið góð
og fögur fyrirheit i þessu efni. Engu að síður er hlutur
okkar í þróunaraðstoð til háborinnar skammar. Á f jár-
lögum ársins í ár kemur fram að aðeins 0.049% þjóðar-
tekna okkar eru ætlaðar til aðstoðar við þjóðir þriðja
heimsins, og er þá allt með talið; einnig framlög til
stofnana Sameinuðu þjóðanna og annarra alþjóðasam-
taka sem viðtengjumst.
• Fyrir 10 árum samþykkti Alþingi lög um aðstoð
íslands við þróunarlöndin og kjörin var sérstök nefnd
sem um þessi mál skyldi fjalla. En þessari nefnd hefur
verið svo naumt skammtað að hún hefur varla getað
haldið uppi starfi sem nafni tekur að nefna. Utan-
ríkisþjónustan hefur talið sig hafa þarfari hnöppum að
hneppa, fyrir Nato og aðra slíka, en verja sínum dýr-
mætu starfskröftum í snatt f yrir aðila sem eiga að vinna
að jöf nun lífskjara á jörðinni.
• Það er því mjög góðra gjalda vert að utanríkis-
ráðherra hefur nú lagt fram frumvarp til laga um þró-
unarsamvinnustofnun islands. Er stofnuninni ætlað að
vinna að samstarfi Islands við þróunarlöndin. Markmið
starfsins skal vera að stuðla að bættum efnahag þró-
unarlandanna og á þann veg taka þátt í að tryggja
félagslegar framfarir og stjórnmálalegt sjálfstæði
viðkomandi landa.
• Stofnuninni er ætlað að gera tillögur um verkefni í
þróunarlöndunum, skipuleggja þau og annast fram-
kvæmdir. Að sjá um verkef ni, sem okkur kunna að verða
falin af Sameinuðu þjóðunum, kynna þróunarlöndin og
málefni þeirra og gangast fyrir samstarf i aðila hérlend-
issem láta þróunarstarf til sín taka. Auk þess skal stofn-
unin vinna að því að framlög islendinga til aðstoðar við
þróunarlöndin nái sem fyrst því marki að nema 1% af
þjóðartekjum.
• En það er ekki nóg að leggja niður nefnd og setja á
fót stofnun í staðinn, ef ekki fylgja fjárframlög og
framkvæmdavilji. Helsti galli frumvarpsins er að það
tryggir í engu það f jármagn sem til starfseminnar þarf.
Þess vegna getur stofnunin dagað uppi sem nátttröll ef
hugur fylgirekki máli.
• En vandamál þróunarríkjanna verða hvergi nærri
leyst með því að nokkrir molar falli af allsnægtarborði
auðugra þjóða. Islendingar geta veitt þessum ríkjum
margháttaðan og mikilvægan styrk með samstöðu og
stuðningi á alþjóðavettvangi. Við skulum vera minnug
þessað öf lugur stuðningur ríkja þriðja heimsins átti sinn
þátt í að færa íslendingum alþjóðaviðurkenningu á fisk-
veiðilandhelgi okkar. Við getum á sama hátt lagt okkar
lóð á vogarskálarnar til að framleiðsla þróunarrtk janna
sé keypt á eðlilegu verði og auðlindir þeirra séu ekki rán-
yrktar af erlendum risaveldum. Engum stendur það nær
en l'slendingum aðstyðja fátækar og nýfrjálsar þjóðir til
sjálfsbjargar og sjálfstæðis.
Fögnum sumri
• Langt er síðan íslendingar hafa þráð vorið með sama
hætti og nú, enda hefur veturinn verið landmönnum
erf iður á ýmsa lund. Nægir í því sambandi að nefna hin
tíðuog alvarlegu sjóslys og margháttaðan skaða af völd-
um fárveðurs. Við höfum enn einu sinni verið minnt á
hvar við búum og að náttúran getur leikið okkur grátt.
• En sól og ylur síðustudaga hef ur brætt ísinn í hjörtum
mannanna og ef It von og trú á góða og gjöf ula tíð.
• Gleðilegtsumar! Bó.
klrippt
Viö erum bestir
IÞegar Bandarikjamönnum
tdkst á dögunum að heimta
heila til jarðar geimferju sina
IKölumbiu og geimflugmennina
Young og Ctippen, þá klöppuðu
menn hugviti og tæknifullkomn-
un lof i lófa, sem vonlegt var.
IReagan forseti tókst allur á loft
rétt eins og væri hann Krúsjof
að hylla Gagarin og aðra úr hópi
framkvæmanleg, þegar Banda-
rikjamenn höfðu vit á þvi, að
gefast upp fyrirfram á þvi að
smiða hljóðfráa farþegaþotu.
Og geimferjan lendir rakleitt i
flokki þeirra appirata sem
vekja upp blendnar tilfinningar.
Astæðan er sU, að ferjan er
einkar likleg til að verða áfangi
i vígbúnaöarkapphlaupi i
geimnum. Sænska stórblaðið
Dagens Nyheter segir á þessa
leið:
„Bæði risaveldin sýnast nU á
leið frá samningsbundum
áformum sinum um að hafna
kjarnorkustriðsrekstri Uti i
landinu, hverju héraðinu, á
fætur öðru, að iðnrikin hafa
komið á vettvang með sina stór-
virku tækni, sem hefur verið
tekin upp i nokkrum arðvænustu
greinum, t.d. landbUnaðar-
framleiðslu. A meðan hafa hefð-
bundin verkfæri horfið eða
skapast firnalegt bil á milli
likamlegs erfiðis og háþróaðrar
tækni. Eða það sem enn verra
var: stórvirk tækni skapaði
aðeins fáum störf, en gerði
miljónir að þurfalingum.
Smátt og fallegt
| fyrstu geimferðamanna. Hann
■ sagði meðal annars:
I,,Okkur liður nU aftur sem við
risar værum. Enn einu sinni
finnum við til þess stolts sem til
i verður sakir þess að við erum
Ifyrstir og við erum bestir og að
við erum það af þvi að við erum
frjálsir”.
, Eða eins og MUhammed Ali
■ boxari sagði: Ég er mestur.
! Fleiri spurningar
IEn það er eftirtektarvert, að
menn eru ekki lengur reiðu-
bUnirtilað klappa hverju tækni-
I’ ævintýri lof i lófa. Við höfum
verið að lifa þá merkilegu
breytingu á undanförnum ár-
um, að menn spyrja þegar
I’ bryddað er upp á einhverjum
nýjum möguleikum á sviði
tæknilegra framfara: til hvers?
hvaöa afleiðingar hafa nýjung-
I* arnar i för með sér? svarar
þetta kostnaði — ef ekki fjár-
hagslegum, þá i öðrum verð-
mætum reiknað? Einna fyrst
! kom fram þessi afstaða — að
stöðva tækniævintýri sem voru
geimnum. Manni finnst sU
stutta stund fjarri þegar Banda-
rikin og Sovétríkin prófuðu i
fyrsta sinn að eiga með sér
samstarf i geimnum. Þau hafa
valið sér mismunandi leiðir i
áframhaldandi geimrannsókn-
um. En hernaðarleg markmið
og hreinræktuð barátta um
áróðursstöðu hefur náð yfir-
höndinni”.
Annar straumur
En þegar klappaö er eða
býsnast er yfir geimferjum,
hæpinni notkun þeirra eða þeim
býsnum af fé sem metnaðar-
kápphlaup stórveldanna á þessu
sviði kostar, þá gleyma menn
þvi einatt, að til er annar
straumur i timanum. Hér er átt
við viðleitni til að vekja til nýs
lifs eða bUa til ýmislegan tækni-
bUnað.sem ekki er flókinn, ekki
stórvirkur, en getur komið að
miklu haldi, ekki sist i þriðja
heiminum.
Þar hefur það gerst i hverju
----------09
Sá maður sem af mestri al- ■
vöru hefur leitaö leiða Ut Ur 1
þeim vitahring, að viða er I
annaðhvort að hafa rándýra
tækni og stórvirka, sem helst ■
þarf innflutt og mjög sérhæft I
vinnuafl til að reka — eða þá alls
enga, hét Eugen Schumacher. |
Það var hann sem á sjöunda ■
áratugnum birti bók sem hét 1
„Small is beautiful”, „Smátt er
fagurt”, sem hefur orðið eins- |
konar biblia fyrir alla þá, sem ,
hafa reynt að komast Ut Ur ■
vandanum með þvi að bUa til
einföld verkfæri og vélar, sem |
auðvelt er að kenna fólki á ,
hverjum stað að fara með og ■
gera við. Það var hann sem
sagði:
„Hingað til hefur manneskjan ,
verið löguð að vélinni eða véla- ■
kerfinu. Framleiðslan hefur
verið það sem máli skiptir og |
manneskjan hefur skroppið ,
saman i að vera hlekkur i fram- ■
leiðslukeðjunni. En þetta
gengur ekki lengur. Náttúran
fellst ekki á þetta. Auðlindir ,
jarðar þola það ekki og mann-
eskjan ekki heldur:
Möguleiki
Og siðan hafa stærri og 1
smærri hópar um allan heim I
(einnig i þróuðum rikjum) |
unnið með hugmyndir .
Schumachers leitað ráða 1
þeirrar stofnunar sem hann lét I
eftir sig. Menn hafa bUið til ein- |
föld kerfi til vatnsdreifingar, ■
betrumbætt þrihjólið til meiri I
flutningaafkasta, gert einfaldan I
bUnað til að nýta gas Ur mykju |
til eldunar, vindmyllukunnátta ■
hefur verið breidd Ut og þar I
fram eftir götum. Sérstök I
áhersla hefur verið lögð á að |
bæta tækni við að nýta það ■
byggingarefni og aöferðir sem I
til eru á hverjum stað.
En þvi miður: á þetta er |
sjaldan minnst. Og þó er þetta ■
kannski margfalt merkilegra I
starf sem unnið er i Sojúsum og
geimskutlum. Þeir sem eru for- |
vitnir ættu að kikja i nýlega bók ■
sem komin er Ut i London til I
heiðurs Schumacher, sem lést
fyrir fjórum árum. HUn heitir |
„Small is possible”eftir George «
McRobie, og lýsir þvi starfi sem I
unnið hefur verið i anda |
meistarans. — áb.
skorrið
r
Franskar Islandsvísur
Það eru ekki miklar likur til
þess að erlent ljóðskáld hef ji feril
sinn með þvi að kveða ljóðaflokk
um Island. Þó hefur þetta gerst.
FRANSKAR ISLANDSVISUR
(Poésies d’Islande) erflokkur sjö
ljóða um Island, sem ÞÝÐINGA-
ÚTGAFAN er að gefa Ut á frum-
málinu (frönsku) ásamt islenskri
þýðingu allra ljóðanna.
Þetta er fyrsta bók höfundarins
GERARD LEMARQUIS sem er
ParisrbUi að uppruna, fæddur
árið 1948, en flutti árið 1973 til
Reykjavikur þar sem hann nU býr
og kennir frönsku auk þess að
vera hér fréttaritari stórblaðsins
Le Monde og fréttastofunnar
AFP.
Enda þótt ljóðasafnið
FRANSKAR ISLANDSVISUR sé
fyrsta bók höfundarins hafa
nokkur ljóðanna áður birst i hinu
virta franska timariti CRÉAT-
ION sem eingöngu er helgað
nUtimaljóðagerð.
ÞÝÐINGAÚTGAFUNNI er
heiður að þvi að mega hefja starf-
semi sina með Utgáfu á ljóðum
þessa bráðefnilega skálds.
Islensk þýðing ljóðanna er gerð af
Þorgeiri Þorgeirssyni. Bókin er
þannig prentuð að vinstramegin á
opnu stendur franski textinn, en
islenska þýðingin hægramegin.
Slikar tvimála Utgáfur hafa ekki
verið mjög algengar hérlendis,en
þykja viða hið mesta þing, eink-
um er þessi Utgáfumáti algengur
með ljóðaþýðingar. Ýmislegt
Gerard Lemarquis
fleira hefur Utgáfan á prjónunum
sem of snemmt er að greina frá
fyrr en séð verður hvernig
áhuginnverðurá þessari tilraun.