Þjóðviljinn - 23.04.1981, Page 5
Fimmtudagur 2:!. april 1981 Þ.IODVILJINN — SÍÐA 5
Astandið á Norður-Irlandi:
Bobby Sands verður ein-
hver sérstæðasta persóna
breskrar þingsögu. Hann
er meðlimur í IRA< írska
lýðveldishernum/ og hann
situr í fangelsi. Meira en
svo: hann er að bana kom-
inn eftir langvarandi
hungurverkfall. Það hefur
til þessa ekki breytt neinu í
máli hans/ að fyrir nokkr-
um vikum var hann i auka-
kosningum kosinn á þing í
Fermanagh á Norður-ir-
landi.
FRÉTTASKÝRING
Brrskur hennaAur í fangaklefa f IMaze: Fyrst smurftu fangarnir klefa
sina meft saur, siftan efndu þeir til hungurverkfalls.
Þingmaður IRA er
að bana kominn
Þingmenn frá Irska lýðveldinu
hafa heimsótt Bobby Sands i
fangelsið til að fá hann til að
hætta við hungurverkfallið, sem
hefur staðið i meira en fimmtiu
daga. Félagar hans úr Irska lýð-
veldishernum hafa varað við þvi,
að ef Bobby Sands deyr, þá muni
hans geypilega hefnt. Enginn ef-
ast um að þá fer ný sprenginga-
alda um Noröur-lrland.
En breska stjórnin ætlar ekki
að brjóta odd af oflætisinu i þessu
máli. Margaret Thatcher lýstiþvi
yfir i fyrradag, þar sem hún var
stödd suður d Arabiuskaga, að
aldrei skyldi stjórnin fallast á þær
kröfur f anga úr IRA i Maze-f ang-
elsinu við Belfast, að með þá
verði farið sem pólitiska fanga.
Þeir sóu glæpamenn og glæpa-
menn skuli þeir heita.
Framhald.
Hungurverkfallið sem er að
leiöa Robert Sands þingmann
IRA til bana.er framhald af öðru.
Það hafði staðið i 53 daga, og einn
þátttakenda, Sean McKenna, var
i andarslitrum, þegar bresk
stjórnvöld létu undan og sýndu
föngunum mikið umbótaskjal,
þar sem i stórum dráttum var
gengið að kröfum þeirra. Ýmis
atriði voru þó eftir skilin sem
óljós voru. En lif McKenna var i
bráðri hættu og mikið sýndist
hafa unnist og þvi féllust IRA-
fangarnir á að hætta hungurverk-
falli. Þetta gerðist 18. desember i
fyrra.
En ekki leið á löngu þar til i ljós
kom, að ágreiningsefni voru
áfram uppi um fatnað fanganna,
um vinnu þeirra i fangelsinu og
fleira. Sé það rakið nákvæmlega
sýnist um smámuni að ræða. En i
raun þykir báðum málsaðilum,
bresku herstjórninni og rikis-
stjórninni og irskum lýðveldis-
sinnum, mikið i húfi: séu fangar
úr IRA í raun meðhöndlaðir sem
pólitiskir fangar hefur staða
þeirra og samtaka þeirra breyst
að mun. Um málið stendur mikið
áróðursstrið: talsmenn Sinn
Fein, sem eru hin pólitisku sam-
tök þeirra sem krefjast samein-
ingar Ulster (Norður-lrlands) og
lýðveldisins, segja, að Bretar vilji
nú ekki viðurkenna neitt annað en
að fangarnir hafi i desember leið
fallistd að hætta hungurverkfalli
gegn almennum fyrirheitum um
að umbætur i fangelsunum fylgdu
i kjölfarið.
Stærðar hnútur.
Bresk stjórnvöld eru i tvöfaldri
klípu í þessu máli. Kröfur fang-
anna eiga mikinn hljómgrunn i
báðum hlutum trlands og á al-
þjóðlegum vettvangi: A hinn bóg-
inn fara þeir, sem undir forystu
séra lans Paislyes og DUP (Lýð-
ræðisflokks Ulsters) telja, að sér-
hver tilslökun við fangana sé liður
i makki stjórnanna i London og
Dublin um að lauma Ulster inn i
trska lýðveldið. Og Paisley og
hans menn draga ekki dul á það
að þeir muni mæta sérhverri til-
slökun sem „svikum” sem refsað
verði fyrir með hermdarverkum.
Afbrot mörg og stór.
AfbrotBretaá lrlandi eru mörg
og stór i rás sögunnar. Og þeir
hafa oft beitt fyrir sig skosk-
ættuðum mótmælendum, sem
settir voru niður á Norður-lrlandi
á sautjándu og átjándu öld, fyrir
sig til að skapa þá stöðu sem tor-
veldaði írska sjálfstæðis- og
mannréttindabaráttu. Hinu er
svo ekki að neita, að jafnvel sú
stjórn, sem væri öll af vilja gerð
til að bæta fyrir misgerðir for-
tiðarinnar á ekki neina auðvelda
leiki. Ef að Ulster væri sameinað
Irska lýðveldinu þvert ofan i vilja
meirihluta ibúa landshlutans
(þar eru tveir mótmælendur á
hvern kaþólika) — þd mundu
vopnaðar sveitir Paislymanna og
annarra herskárra mótmælenda
margfalda sin hermdarverk. Sé
ekkert gert heldur áfram strið
IRA við breska setuliðið i Ulster
eins lengi og verkast vill, þvi IRA
F'ramhald á bls. 21
FJÖLEIGN HF.
Ur stefnuskrá
Fjöleignar hf. varðandi
málefni Flugleiða hf.
1. AðvinnaaðviðgangiFlugleiðah.f.ogbeitaáhrifum sinum til
þess að hef ja félagiö úr þeim öldudal, sem það velkist nú i —
til þess vegs sem þaö á skilið og þjóðarnauðsyn krefur.
2. Að vinna að gagngerum breytingum á stjórn Flugleiða, en
það er mat Fjöleignar að til núverandi stjórnar Flugleiöa
megi rekja stóran hlut þess ófarnaðar, sem félagið hefur
ratað i.
3. Að stuðla að skynsamiegri og ábyrgri fjárfestingarstefnu
Flugleiða, en reynslan sýnir, að hér hafa dýrkeypt mistök átt
sér stað, sem hafa nær riðið félaginu að fullu. Ytri áhrif svo
og vaíasöm rekstrar- og fjárfestingarstefna hefur stuðlað að
geigvænlegum taprekstri svo við borð liggur að rekstrar-
stöðvun blasi við hinu févana og trausti rúna fyrirtæki. Ein-
vörðungu sjálfsábyrgð sameigmiegs sjóðs landsmanna hefur
varið lélagið lalli og aigeru hruni.
4. Að vinna að endurnýjun flmgvélakosts félagsins með lang-
timasjónarmið i huga, en oumdeilanlega eru Flugleiðir hér
komnar hættulega langt aftur ur nágrannaþjóðunum og á
hraðrileið meö aö veröa ósamkeppnisfærar við önnur félög.
5. Að tryggja landsmönnum áreiðanlegar og tiðar samgöngur
innanlands og viö nágrannalöndin og gera stórátak til að
auka ferðamannastrauminn til íslands, sem hefur farið dvin-
andi hin siöari ár, og aö stuðla að þvi að tslendingar eigi kost
á jafn hagstæðum orlofsflugferðum og hinar Norðurlanda-
þjóðirnar.
6. Að i'lytja viðhald flugvélakosts Flugleiða úr höndum útlend-
inga i hendur Islendinga eftir þvi sem við á.
7. Að auka hlut starfslölks i ákvarðanatekt félagsins og stuðla
að bættum starfsanda meö samvinnu og samstarfi við hið
vinnandi fólk — i stað þeirrar úlfúðar og geðþóttaákvarðana,
sem einkennt hefur afstöðu stjórnenda Flugleiða til starfs-
fólks íélagsins og komiö hefur starísmannamálum félagsins i
óleysanlegan hnut.
8. Að stuðla að þvi aö Eimskipafélag Islands selji hlutabréf sin i
Flugleiðum þar sem Fjöleign telur að núverandi tengsl Eim-
skips og Flugleiöa séu báöum íélögunum óheppileg og óeðli-
leg.
9. Að gera hlutlausa sérlræðilega úttekt á arðbærni Atlants-
hafsflugsins i slaö þess að liða það i sundur með geðþótta-
ákvörðunum eins og gert hefur verið.
10. Fjöleign h.f. hyggst na fram a.m.k. áfanga að þessum mark-
miðum með þvi aö slyöja nýtt fólk til stjórnarkjörs á næsta
aðalíundi Flugleiöa 24. april n.k., þ.ám. Kristjönu Millu
Thorsteinsson, sem barist helur jákvæðri og skeleggri bar-
áttu mörg undanfarin ár fyrir bættum stjórnarhattum i Flug-
leiðum. Fjöleign hyggst beita vökulli og jákvæðri gagnrýni
að stjórn Flugleiöa i þvi skyni að efla félagið til þess að vinna
farsællega aö endurreisn islenskra flugmála.
Hjúkrunarfræðingar
óskast
til sumaraíleysinga á Heilsuhæli N.L.F.t.
HveragerðiUpplýsingar gefur hjúkrunar-
forstjóri i sima 99-4202 og framkvæmda-
stjóri i sima 99-4203.
.-aO .rVZP ,XV> oXN ^ criS'
yP' 0» 0»
áíS ^ ^ V" A
, cý-” Óv'. tíS"r
. 0°> . c,#' ^ ‘ -
.v<?■" -jí® .e'"'1. °i '
HAGPRENT H/F
'