Þjóðviljinn - 12.06.1981, Blaðsíða 1
ÞJuÐVIUINN
Föstudagur 12. júni — 131. tbl. 46. árg.
Þj óðhagsstofnun:
Þaö er gaman I sveitinni, ekki sist á vorin. Hér má sjá krakkana i Geirakoti I Flóa en þau voru aö bera
túnþökur i traktorsgrindina. Ljósm —gel.
I sveitinni,
I sveitinni .
jEL...
Minni verðbólga
Sami kaupmáttur
Samkvæmt skýrslu sem
Þjóðhagsstofnun sendi frá
sér í gær um framvindu
efnahagsmála á fyrstu
fjórum mánuðum þessa
árs, þá var kaupmáttur
kauptaxta alls launafólks
að kalla sá sami á fyrsta
ársfjórðungi þessa árs og
hann var til jafnaðar á síð-
asta ári. Aukning kaup-
máttar er talin haf a numið
0,2%.
Hækkun framfærsluvisitölu frá
1. febrúar — 1. mai á þessu ári um
8% samsvarar 36% hækkun fram-
færsluvisitölu á heilu ári. í
skýrslu Þjóöhagsstofnunar kem-
ur fram að mánuðina febrúar til
mai á fyrra ári var árshraði verð-
bólgunnar hins vegar nær helm-
ingi meiri eða 64%. — Sé litið yfir
12 mánaða timabil lita veröbólgu-
málin svona út: Frá 1. mai 1979 —
1. mai 1980 hækkaði framfærslu-
kostnaður um 63%. Frá 1. mai
1980 — 1. mai 1981 hækkaði fram-
færslukostnaður hins vegar um
51%. Auövitað segja tölurnar,
sem ná yfir 12 mánaða timabil
meira en þær sem ná aðeins til
þriggja mánaða, en samkvæmt 12
mánaöa tölunum hefur dregiö úr
hraöa verðbólguhjólsins um nær
20%.
Samkvæmt þessari skýrslu
Þjóöhagsstofnunar voru viö-
skiptakjör okkar út á við 2,8%
lakari á fyrsta ársfjórðungi þessa
árs en þau voru að jafnaði á sið-
asta ári, en séu álviöskiptin ekki
talin með, þá voru viðskiptakjör-
in fyrstu þrjá mánuði þessa árs
1% skárri en þau voru að jafnaði
árið 1980. k
Meginniðurstaða Orkuþings 1981
Samningar tókust við Belga:
Bairnað að landa
nema 1 Belgíu
Veiðamar hefjast 15. júlí
Rikisstjórnin staöfesti i gær
nýjan samning um veiöiheimildir
Beiga hér viö land en veiöileyfi
belgisku skipanna voru afturköll-
uö 1. júni s.l. þar sem Belgarnir
höföu veitt allmiklu meira af
þorski en heimilaö var. Hins veg-
ar höföu þeir ekki veitt nema um
þaö bil helming af leyföum heild-
arafla á árinu.
Samkvæmt nýja samningnum
veröa veiðileyfin endurnýjuð frá
15. júli n.k. og er Belgum bannaö
að landa afla af tslandsmiðum
utan Belgiu. Frá 15. júli til ára-
móta fá Belgar að veiða allt að 2
þúsund lestir en þorskafli á þvi
timabili má ekki verða meiri en
10% af afla hvers skip i hverri
veiðiferö.
Frá 1. janúar 1982 lækkar árs-
kvóti belgiskra togara úr 5 þús-
und tonnum i gildandi samningi i
4.400 tonn. Hlutfall þorsks má
aldrei fara fram úr 25% af heild-
arafla hvers skips i hverri veiði-
ferð og verður eftirlit með þorsk-
afla Belga mun auðveldara með
þeirri tilhögun.
Viðræöur Islendinga og Belga
sem leiddu til ofangreinds sam-
komulags fóru fram i Reykjavik
10. júni s.l. en islensku samn-
inganefndina skipuðu Hannes
Hafstein, skrifstofustjóri, for-
maður, Jón Arnalds, ráðuneytis-
stjóri, Guðmundur Eiriksson,
þjóðréttarfræðingur, og Jón B.
Jónasson, deildarstjóri. Enn-
fremur Kristján Ragnarsson frá
L.t.O. og Benedikt Guðmundsson
frá Landhelgisgæslunni.
1 samninganefnd Belga voru
Jacques Vermer, sendiherra,
formaður, Van de Walle, skrif-
stofustjóri landbúnaðarráðu-
neytisins, Maertens, yfirmaður
sjávarútvegsdeildar landbún-
aðarráöuneytisins og W. Collins,
deildarstjóri i utanrikisráðuneyt-
inu. Ennfremur þrir fulltrúar út-
gerðarmanna i Ostende.
—AI.
Flak TF-ROM fannst við Þverárvötn:
Oljóst um til-
drög slyssins
Fjórir ungir menn
Ekki er ljóst hvaö olli flugslys-
inu þegar TF-ROM hrapaöi en
fullvist er taliö aö mennirnir fjór-
ir sem i flugvélinni voru hafi lát-
ist samstundis. Flak flugvélar-
innar, sem leitaö hefur veriö siö-
an 27. mai s.l. fannst á fimmtu-
dagskvötd viö Þverárvötn á Tvi-
dægru. Þaö var þyrla Landhelgis-
gæslunnar sem fann flakiö, en
hún var þá aö koma suöur úr leit-
arflugi. Rannsókn slyssins er
skammt á veg komin og endanleg
niöurstaöa um orsakir þess er
vart væntanleg fyrr en eftir
nokkrar vikur.
Þeirsem meö flugvélinni fórust
voru: Magnús Indriðason, 32ja
ára, sem lætur eftir sig eiginkonu
og þrjú börn, Hjörleifur Einars-
son, 25 ára, sem lætur einnig eftir
sig eiginkonu og þrjú börn, Jó-
hann Kr. Briem, 22ja ára,
-------------------------------I
■
fórust með vélmm
ókvæntur og barnlaus og Rafn
Haraldsson, 33ja ára sem lætur
eftir sig eiginkonu og barn.
Staðurinn, sem flugvélin fórst
á, er allmiklu sunnar en liklegast
var taliö, en þar hafði þó veriö
leitað itarlega en leitin að
TF-ROM er sú umfangsmesta
sem hér hefur farið fram. Rann-
sóknamenn, sem fóru norður á
slysstaðinn aöfararnótt fimmtu-
dags segja það sist að undra þótt
leitarflokkar og leitarflugvélar
fyndu ekki flugvélina, þvi flakið
var sundurtætt og dreift yfir is,
snjó og auöa jörö á vatnsbakkan-
um. Flugvélin var hvit á lit.
Neyöarsendir flugvélarinnar
sem fór ekki i gang fannst á þurru
landi og er hann nú til rannsóknar
á radióverkstæöi flugmálastjórn-
ar. Gagnasöfnun er ekki lqkið en
rannsókn slyssins anna.st rann-
sóknanefnd flugslysa i samráði
við loftferðaeftirlit og flugmála-
stjórn. Formaður nefndarinnar
er Karl Eiriksson, forstjóri.
—A1
Islenskt forræði í orkufrek-
um iðnaði
Orkuþingi 1981 lauk í gær.
Fram kom í yfirliti því um þingstörfin, sem Vil-
hjálmur Lúðviksson, framkvæmdastjóri Rannsóknar-
ráös ríkisins, flutti, að ein merkasta niðurstaða þings-
ins væri sú, að (slendingar ættu sjálf ir að hafa f rum-
kvæði um nýtingu íslenskra orkulinda og uppbyggingu
orkufreks iðnaðar. Taldi Vilhjálmur það almenna
samkomulag, sem myndast hefði um þessa stefnu-
mörkun á orkuþinginu vera einn mikilvægasta ár-
angur þess.
A sfðasta degi orkuþings i gær
var, fyrir hádegi, fjaliað um
stefnumörkun i orkumálum.
Fluttu þeir Jakob Björnsson
orkumálastjóri og Tryggvi Sig-
urbjarnarson verkfræðingur er-
indi um þetta efni. Siðan kynntu
fulltrúar stjórnmálaflokkanna
viðhorf sin til þessara mála.
Þátttakendur i þeirri umræöu
voru: Kjartan ólafsson fyrir
Alþýðubandalagið, Kjartan
Jóhannsson fyrir Alþýðuflokk-
inn, Þorvaldur Garöar Krist-
jánsson fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn og Guðmundur Þórarinsson
fyrir Framsóknarflokkinn. Eft-
ir hádegi fóru siöan fram pall-
borðsumræður og Vilhjálmur
Lúöviksson flutti yfirlit yfir
markverðustu atriðin, sem
fram komu á ráðstefnunni. Páll
Flygering ráðneytisstjóri i
Iðnaðarráðuneytinu flutti siðan
lokaávarp fyrir hönd aðstand-
enda Orkuþings 1981.
Þaö sem hvaö mesta athygli
vakti á ráðstefnunni var hin al-
Frá pallborösumræöum á orkuþingi.
menna áhersla, sem flutnings-
menn erinda og þátttakendur i
umræöum lögðu á það, aö Is-
lendingar bæði gætu og ættu aö
hafa forræöi um nýtingu
islenskra orkulinda. A það var
bent af mörgum ræðumönnum,
að meö eigin forræöi i iönaði
byggðum á islenskum orkulind-
um gætu íslendingar haft marg-
faldan arð af þessum orkulind
um, miðað viö það að selja er-
lendum fyrirtækjum notkunar-
réttinn. Með islensku forræði
fyrir orkufrekum iðnaöi væri að
auki hægt að tryggja þaö, aö
fyrirtækin i greininni væru
hverju sinni skipulögö og rekin i
samræmi við islenska hags-
muni. Þar sem Islendingar
heföu nú þegar bæði fjárhags-
legt og tæknilegt bolmagn til að
annast forræöi stóriöjufyrir-
tækja væri sáralitil ástæöa til aö
fylgja orkusölustefnunni lengur.
Svo sem fyrr segir varð al-
nvennt samkomulag um þetta
viöhorf á þinginu, bæði meðal
stjórnmálamanna og sérfræö-
inga, enda var það tekið upp af
Vilhjálmi Lúövikssyni, i yfirliti
sem ein merkasta niöurstaöa
þingsins.
Læknadeilan;
Viðræðum
fram
haldið í dag
Þaö varö niöurstaöa fundarins i
Læknafélagi tslands i fyrrakvöld
aö óska eftir frekari viöræöum
viö rikisvaldiö þar sem ýmis
atriöiværu litt rædd eöa órædd og
fullnægjandi árangur hafi ekki
fengist. Hins vegar var þeim
árangri fagnaö sem þegar heföi
náöst. 170 nianns voru á fundinum
og var ályktunin samþykkt nær
einróma.
Þorsteinn Geirsson fulltrúi i
fjármálaráðuneytinu sagði að
ekki fælist i þessari ályktun
hvaða atriði það væru sem ætti
eftir aö ræða en hins vegar kæmi
fram i henni að sinu mati, stuðn-
ingur við þá yfirlýsingu sem
Læknafélagið og ráðuneytið
komu sér saman um i upphafi. I
ljósi þess hefði ráðuneytið að
sjálfsögðu fallist á að halda
áfram viðræöum og verður hafist
handa að nýju þegar i dag.
-j