Þjóðviljinn - 12.06.1981, Blaðsíða 5
Föstudagur 12. júnl 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
IÞað er mikið talað um að gervihnattasjónvarp, sem
neytendur geta tekið beint við með svonef ndum para-
bólloftnetum sé á næsta leyti. Á Norðurlöndum er vís-
■ aðtil áforma Lúxemborgara um að koma á loft sjón-
Ivarpshnetti 1985 og að Frakkar og Þjóðverjar muni
koma skömmu seinna. Og þessi tíðindi hafa mjög ver-
. ið höfð á oddinum til að flýta fyrir samþykkt
Inorrænnar áætlunar um sjónvarp um gervihnött#
Nordsat.
IFulltrúar helstu sósialdemú-
krataflokka i Vestur-Evrópu
sátu i fyrri viku á fundi um þessi
■ mál i Bonn. Og þar kom ýmis-
Ilegt þaö fram sem bendir til
þess, að almenn og bein mót-
taka sjónvarpsefnis frá gervi-
• hnöttum sé hvergi nærri eins
| nálæg í tima og menn nú halda.
■ Svipuð rök
Iog hér
Sænskur fulltrúi á þeim fundi,
ar i sænskt sjónvarp. Hann er
notaður af forsvarsmönnum
sænsks sjónvarps, sem röksemd
fyrir þvi að þeir fái meiri pen-
inga til innlendrar dagskrár-
gerðar. Og i öllu þessu sam-
hengi hefur það verið þulið, að
bráðum þurfi Sviar ekki annað
en útvega sér nauðsynleg loft-
net, þá geti þeir valið úrmörg-
um dagskrám, og „einokun”
sænska sjónvarpsins veröi úr
sögunni.
Át*n>tsind«ting
Seinkar gervihnattasjón-
varpi fram yfir aldamót?
Stig Hadenius, gerir grein fyrir
Iþessu máli i DN. Hann minnir á
gervihnattaumræðuna i Svi-
þjóð, sem hefur verið furðu
svipuð og hér. Hnöttur Lúxem-
Iborgara hefur verið hafður sem
röksemd fyrir Nordsat: við
Norðurlandamenn verðum að
finna eigið svar viö afþrey-
Iingarinnrás að sunnan, segja
menn. Hann verður rekinn fyrir
auglýsingafé og er þvi notaður
af þeim sem vilja fá auglýsing-
Ný pólitísk
staða
En, segir Hedenius, á fundin-
um i Bonn komu fram sterkar
efasemdir um beint sjónvarp
um gervihnetti á næstunni. Það
kom m.a. fram að þaö er enn
ekki búið aö ganga endanlega
frá samningum um Lúxem-
borgarahnöttinn, og eru þó
margir fjársterkir aðilar aö
baki honum. 1 annan stað hafa
forsendur fyrir gervihnattaút-
sendingum gerst öllu erfiðari og
tvisýnni upp á siðkastið en áður
var ráð fyrir gert. Nokkur
dæmi:
Ný pólitisk staða er komin
upp. Sjónvarpshnettirnir hafa
verið eftirlæti hægriflokka, en
sósialdemókrataflokkurinn vill
halda sem mest óbreyttu þvi
sjónvarps- og útvarpskerfi sem
nú er við lýði i landinu og flokk-
urinn skoðar sem mótvægi við
yfirráðum borgaralegra afla yf-
ir flestum blöðum. Hin nýja
stjórn Frakklands hefur allt
aðra fjölmiðlastefnu en Giscard
— hún vill sjálfstætt sjónvarp og
staðbundið útvarp. Hinir áhrifa-
miklu sósialdemókrataflokkar
Evrópu gerðu á fundinum i
Bonn samþykkt, sem gengur
gegn öllu þvi, sem truflar þau
kerfi sem hvert riki hefur komið
sér upp. M.ö.o. samþykkt sem
stefnt er gert áætlun 'eins og
Sósíaldemókratar
í Evrópu gera
strik í reikninga.
— Svíar hafa
ekki efni á
Nordsat, segir
einn sérfróður
alþjóðlegu auglýsingasjónvarpi
Lúxemborgara.
Kostnaður
1 öðru lagi, segir greinarhöf-
undur, gripur kreppan i taum-
ana. Kostnaður vib uppskot og
rekstur gervihnatta hefur vax-
ið. Loftnetin eru ekki eins ódýr
og spáð hafði verið. Menn gerðu
þá ráð fyrir þvi, að úr þeim
kostnaði yrði dregið verulega
með þvi aö taka við sendingum
um sameiginleg loftnet, og
dreifa siðan eftir þræði um
stærri eöa smærri einingar
(hliðstæða viö húskerfin sem
hér eru höfð við notkun mynd-
segulbanda). En einnig á sviði
þráðlagninga hafa verið dregin
strik yfir fyrri útreikninga.
Þjóðverjar og Frakkar hafa
dregiö saman seglin (Belgar
einir hafa i sinu þéttbýla landi
byggt upp þráðkerfi i stórum
stil). Ástæðan fyrir þvi er sú, aö
beöið er eftir betra efni i leiðsl-
urnar.
Greinarhöfundur kemst að
þeirri niðurstöðu að lokum, að
Sviar, sem búa of dreift til aö
reiða sig á þráðanet, hafi hvorki
efni á sjónvarpshnetti (m.ö.o.
Nordsat), né heldur á dýrum og
viðkvæmum loftnetum á hvern
húskofa. En hann vill að menn
fylgist sem best með þróuninni.
áb tók saman.
Ungir skærulibar i Morazánhéraði: Þeir fara um „tiltölulega frjálsir”, segir Time.
Skœruliöarnir
eru komnir aftur
Styrjöldin í
E1 Salvador:
Skömmu eftir áramót
hófu skæruliðar vinstri-
fy Ikingarinnar i El
Salvador mikla sókn sem
þeir vonuðust til að leiddi
til allsherjar uppreisnar
gegn leppstjórn herfor-
ingja og landeigenda. I það
skipti tókst ekki sú sam-
ræming á hernaði og
pólitískri skipulagningu
sem byltingarhreyfingar i
Rómönsku Ameríku þurfa
sér til sigurs. Stjórnarher-
inn gaf út grobbnar yfir-
lýsingar um mikla sigra.
En skæruherinn hefur ekki
gefist upp — öðru nær —
hann er aftur í sókn.
Bandariska vikuritið Time gef-
ur fyrir skemmstu lýsingu af
þessum hernaði, sem bendir til að
vinstrihernum hafi aftur vaxiö
ásmegin (og yröi það rit allra sist
til að fagna þeirri þróun). Blaðið
gefur lýsingu á vel heppnuöum
„klassiskum” skæruhernaði, sem
miði að þvi að þreyta stjórnar-
herinn, sem verði fyrir miklum
skakkaföllum meöan skæruher-
inn sleppur litt sár frá vopnavið-
skiptum.
Velhepnnuð
barátta
Time segir, að skæruliöar geti
farið um mörg héruð landsins
„tiltölulega frjálsir”, rofið sam-
göngur, truflaö birgðaflutninga
tilhersins.Hóparþeirra taki þorp
og bæi og haldi þeim nokkra daga
i einu. Þeir halda undan þegar
meiriháttar liðsafla er stefnt
gegn þeim, en koma aftur jafn-
skjótt og stjórnarherinn er
kvaddur annað. 1 Chalatenango-
héraði neyðir þessi baráttuaðferö
stjórnarliða til að hlma sem mest
innan herbúöa sinna. 1 Morazán-
héraði ráða skæruliöar flestum
sveitum. Þangað hefur stjórnar-
herinn sent 2000 manna liö, sem
hefur til umráða bandariskar
þyrlur og brynvagna. Fréttaritari
Time segir að sú „sókn” gangi
mjög erfiölega og ekki veröi betur
séö en stjórnarherinn veröi fyrir
miklum skakkaföllum.
Eins og jafnan i fregnum frá
Rómönsku Ameriku er ekki alltaf
ljóst hver greinarmunur er gerö-
ur á „her” og „öryggissveitum”
— en i þeirri frásögn hins
bandariska vikublaðs sem hér er
stuðst við, segir aö i „öryggis-
sveitum” stjórnarinnar séu 15
þúsundir manna og sé þaö ekki
nóg til aö standast skæruliðum
snúning.
Aðferðir
frá Víetnam
1 viötali sem Dagens Nyheter
birti i vikunni staöfestir einn af
foringjum skæruliða, Victor
Guerrero, að vinstriherinn forðist
nú „stöðustrið”, en beiti einmitt
skyndiáhlaupum og öörum sígild-
um skæruhernaöaraðferöum meö
góöum árangri. Guerrero heldur
þvi fram, að stjórnarliöar gripi
nú I vaxandi mæli til sömu aö-
ferða og Bandarikjamenn og liö
Saigonstjórnarinnar notuðu i
sveitum Vietnam. 1 fjallahérað-
inu Chincpontepec, sem er
skammt austur af höfuðborginni
San Salvador sé reynt að gera allt
i senn: flæma uppreisnarherinn á
brott, eyðileggja pólitisk samtök
alþýðu, flytja ibúanna inn i vig-
girt þorp og bæi og eyðileggja
gróður og matvæli til að skærulið-
ar geti ekki björg sér veitt.
Fréttaflóð
og þögn
Eitt af þvl sem vekur mikla
undrun þeirra sem fylgjast með
túlkun atburða I E1 Salvador er
þaö, hve miklar sveiflur veröa á
meöferö fjölmiðla, sérstaklega
bandariskra, á tiöindum þaöan.
Stundum er allt yfirfullt af efni
um þetta litla Mið-Amerlkurlki,
stundum er eins og blöð hafi hlýtt
á kvartanir eins af embættis-
mönnum Reagans, sem taldi að
alltof mikiö væri úr borgara-
FRÉTTA-
SKÝRING
styrjöldinni I E1 Salvador gjört.
Liklega endurspeglar þetta að
nokkru þær áherslur sem stjórn
Reagans leggur á E1 Salvador.
Fyrst eftir aö Reagan tók viö
völdum vildu hann og ráðunautar
hans bersýnilega gera þetta land
aö sýnisdæmi um að þeir tækju
hart á hverri þeirri hreyfingu
sem Rússum kæmi vel, uppreisn
gegn kúgun og misrétti I þessu
litla landi átti að gera aö vett-
vangi uppgjörs milli risavelda.
En Reagan og Haig ráku sig fljót-
lega á það, aö evrópskir áhrifa-
menn, og þá einkum
sósialdemókratar, voru litt hrifn-
ir af þessari túlkun og af sivax-
andi hernaöarafskiptum Banda-
rikjanna af borgarastyrjöld I
landinu. Þvi hefur yfirlýsingum
um E1 Salvador fækkað mjög upp
á siðkastið, þótt vafalaust verði
áfram haldiö við aö reyna aö
lengja liftóruna I þeirri stjórn,
sem allir sæmilegir menn hafa
yfirgefiö — annaöhvort meö þvi
að flyja land eða með þvi að
ganga I vinstrifylkingu þá sem
hefur pólitiska stjórn yfir skæru-
liðasveitum.
— AB.
KENNARAR Grunnskólann á Grenivik vantar 3 kenn- ara. 011 almenn kennsla i 1.-7. bekk. Nýtt skólahús verður tekið i notkun i haust. Gott húsnæði fyrir kennara. Upplýsingar gefa Björn Ingólfsson skóla- stjóri sima 33131 eða Pétur Axelsson form. skólanefndar sima 33115. Skólanefnd Grýtubakkaskólahverfis.