Þjóðviljinn - 04.07.1981, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 04.07.1981, Blaðsíða 7
Helgin 4.-5. júll 1981 bókmenn«ir Ástin er dópið Stefán Snævarrr Sjálfssalinn Mál og menning 1981 Aftast i þessari ljóöabók Stefáns Snævars eru afórismar eða spekimál sem skáld tiðkuðu á ýmsum timum hérna áður fyrr, og það er ekki verra fyrir það. Þar stendur m.a. að það sé hlut- verk listanna að skapa nýjan heim, og má sjálfsagt túlka þau ummæli á ýmsa vegu ekki siður en guöspjöllin. En vist er það að Stefán gerir sér far um að útmála tilveruna frá sjónarhorni sinnar kynslóöar og með reynslu hennar i huga. Hann birtir okkur býsna nöturlegt tilverusvið diskókyn- slóðarinnar, rótlaust, eirðarlaust og fullt af ónæði og skarkala og óhugnaði. Náðarmeðulin eru ást og dóp. Atrúnaðargoðin fallvölt: Kina, Rolling Stones og arftakar þeirra, diskóland. Nú þegar partiið er búið og morgunninn dettur um lfkin inni i stofu skulum við halda liveshow fyrir umkomuleysi þitt og eirðarleysi mitt meöan æla næturinnar rennur til sjávar gegnum klóökin (Upphaf ljóðsins „Þegar partiið er búið” bls.8). Mörg ijóðanna fjalla um lifsvið- horf, þjóðfélagsleg efni og heim- spekilegar athugasemdir. Eitt þeirra, „Viö Spegilgötu”, er stytt og breytt gerð ljóðs sem birtist i fyrri ljóðabók Stefáns. Þessi ljóð eru annars á margan hátt sund- urleit, misjafnlega timabær og misjafnlega gömul* sum eru per- sónulegt uppgjör og önnur ein- hvers konar æfingar i heimspeki- legum vangaveltum. A bls.36 er ljóð sem heitir „Ef..”: Ef Mengistú breyttist I rjúpu sem vappaði um kjarrið við Þingvöli og Pinochet yrði að blesönd sem fyndi sér varpland við Mývatn myndi ég læra að skjóta. Þetta er óbjörguleg hugmynd ef menn eiga að taka hana alvar- lega. Hvers á rjúpan að gjalda eða öndin? Þetta eru friðsæl kvik- indi. Hvaða gagn er að skyttu sem ekki þorir til atlögu nema á griða- stöðum og i varpíöndum? Kannski er skáldiö i þessu ljóöi aö skopast aö eigin hugleysi og ann- arra, en þá missa myndirnar marks vegna þess að friðhelgi þessara staða er rofin með öörum hætti en að skjóta eins og allir is- lendingar vita. Betur falla mér ljóðin um mannleg samskipti og um ástina sem hér er alls ekki tilfinninga- söm fremur en hjá flestum öðrum ungum skáldum nú á dögum. Leitin að ást og félagsskap birtist i þessum ljóðum, en þessi verö- mæti eru fallvölt eins og annað. 1 ljóöinu „1 nótt” (bls.12) er skáldið að yrkja eitt á báti og ástkonan hlaupin til annars manns: t nótt eru atlot þin annars Ég sit hérna og yrki i kappi við faðmiög ykkar og kossa eina hendingu fyrir hvern Ég færist i aukana gýs táknum hvildarlitið skrifa útfrikað ljóð með ofsafengnum takti Það er ekki við hæfi að sýta eða syrgja ástina sém hvarf. Menn verða að mæta sliku með jafnaö- argeði og herða hugann. Þaö kemur fram i næsta ljóði sem heitir „t engrakvennalandi”: Ég fylli verk min dögum sting lifi minu i umslag ÞJÓDVILJINN — StÐA 7 og reyni svo að gleyma að konur hafa þýðgenga vél milli fótanna Og timinn er mér eimlest sem flytur mig frá þér. (13) Þessu litla ljóði er þvi miöur spillt meö of mörgum ósamræm- um myndum, þó aö þær séu allar snjallar hver um sig. Aö visu hélt ég aö dagar gufuvélarinnar væru taldir, a.m.k. i skáldskap um lif nútimafólks. Af öðrum ljóðum úr þessum flokki mætti nefna ljóöið um dansarann sem kom út úr diskó- hitanum i leit að losta og fjöri i skattholum borgarinnar en varð að láta sér nægja aö drekka skál húmsins i botn. Og að lokum „Astin er dópiö” (bls. 10-11), sem byrjar svona: Dilerinn minn sem ekur um innsta hringveginn maria — Kali - Astarte! ...og endar á þessa leið: Brjóst þin einsog Z hárið cinsog X augun einsog Y ég einsog djönki ég einsog spidfrik þvi ástin er dópið ástin er dópið ástin er dópið sem við leitum að! EyÞ. „og lífið heldur áfram” Þetta lifsplan er ráðvillt og firrt a.m.k. i augum gamla fólksins, og ljóðin sýna okkur það án þess að fara nokkru sinni út af sporinu og veröa tilfinningaleg eða gamal- dags. Eitt af tækjum Stefáns i þessari sköpun er djarfleg og stundum frumleg notkun máls og mynda. Diskóveröldin á auövitaö sinar myndir sem eiga sinn rétt á að komast inn i likingamál nú- timaskáldskapar. Hætt er þó við að slangið falli i misjafnan jarð- veg. Kaldhæönin er annað stil- bragð i þessari viðleitni. Skáldið sjálft er djúkbox, sjónvarp, git- ar, flugvél, tölva, sjálfssali, o.fl. Ýmis fleiri minni og tákn hins ópersónulega og vélræna nútima- lifs eru tið i þessum ljóðum. Stefán er að visu mistækur i sköp- un myndmáls en tekst oftar vel en miöur, t.d. i ljóðinu „Morgunn i Osló” Morgunninn kemur öskrandi eftir hraðbrautinni og myrkrið leitar skjóls á bak við hurðir og inni skápum (bls.30) Aðalsteinn Asberg Sigurðsson: Gálgafrestur Fjölvaútgáfan 1980 Fremst i þessari ljóðabók slanda einkunnarorð hennar: Er lif okkar þrotlaust þrælafár, þjáning og pina, blóð, sviti, tár? Þau hæfa vel ljóöum bókarinn- ar sem flest eru uppfull af heims- hryggð og bölmóöi. Þessi harma- slagur er ólikur þeim viöhorfum sem rikja i ljóöum flestra ann- arra ungra skálda nú á dögum og einkennist af æöruleysi og kald- hæðni þó að oft sé þar skörp ádeila á ferðinni. Þaö hefur vissu- lega boriö við á öllum timum að ung skáld (og stundum hin eldri lika) klifuðu á dapurleika og von- deyfö. En slikur söngur veröur hjáróma ef ekki eru ærnar og sannar forsendur að baki. Og ég finn ekki i ljóöum Aöalsteins As- bergs þann lifsháska sem gefur tilefni til svo þjáningarfullra yrk- inga sem hér eru á feröinni. Fyrir Þuriður Guðmundsdóttir: Og það var vor. Skákprent 1980. Það er svo sannarlega vor i þessum ljóðum. Vor og börn. Þetta eru áleitnustu yrkisefnin, en hóglát tjáning ástar og tilfinn- ingalegra samskipta mannfólks- ins er lika á dagskrá. Það rikir friður og jafnvægi i heimi þessara ljóða, og hófstilltur söknuður er sleginn á nokkra strengi. Styrkur ljóðanna felst i heil- steyptum tilfinningum og fáguðu orðfæri i félagsskap skýrra, ein- faldra mynda. Slik hrósyrði koma þeim ekki á óvart sem þekkja fyrri ljóð Þuriðar Guðmundsdótt- ur, en mig langar aö finna þeim staö með dæmum. Fallegasta barnamótifið finnst mér vera „Skólataskan”: Svartur morgunn Klukkan er hálf átta Litið barn leggur af stað út i vetrarkuldann með vor i augum vettlinga á höndum og visku mannanna á veikum herðum (60) mig er þetta a.m.k. of stór skammtur af blóði, svita og tár- um án þess að votti fyrir kankvisu brosi i augum tilverunnar eða sýn til sólar. Nú skal ég játa aö ég er alls ekki alltaf viss um aö ég skilji hvert feröinni er heitiö i sumum ljóöanna. Mér finnst máikennd skáldsins vera ábótavant á stund- um, og sums staðar er bruölað með orð svo að innistæða þeirra tapast. Þá er myndmálið viða óheilt og ruglingslegt, og allt veldur þetta þvi aö hugsunin fer á sveim. 1 ljóðinu „Hér og riú” (bls.139) stendur m.a.: Einmana jarmur útburðar hermir þar annarleg vein. Þegar jarmur hermir vein, er eitthvað bogiö við tengsl máis og hugsunar. Sóun orða á óljósa hugsun er þvi miöur of tið, t.d. i „Heimspeki” (bls.66)t Heimurinn er ekki bók og ekki orð i tima töluð. Vorið og vonin eru jafnan tengd börnunum eins og sjá má af þessu dæmi. Einnig i „Litill drengur” sem endar svona: Ég horfði undrandi á drenginn Hjarta hans var svo heitt að mér fannst hjarnið bráðna og að heimurinn ætti sér von (32) Sum ljóöin eru haglega ofin úr minnum ástar, tilfinningamála og blóma. Myndirnar ljá þeim aukið seiðmagn meö þvi að lýsa út fyrir knappt formiö. Dæmi um það er „Brot”: Hugsun þin brotnar i orðum af vörum þér Varlega tini ég brotin raða saman, sker mig og bý til nýja hugsun sem er min (56) Einfaldari myndir spegla til- finningu tregans I ljóði sem heitir „Timinn”: Nei, heimurinn cr aöeins sú firð, sem vitund okkar veitir skjói. Og i ljóöinu „Takið eftir!” (bls.68): 1 dag verður innreið hins óvissa tima mæld og yður sett til höfuölausnar. Lái mér hver sem vill, en mér er ógerningur aö sjá hvaö á aö búa að baki orðanna hér, og hér vaknar heldur enginn spennandi grunur um torræöni, þó að ljóöin séu skoöuð í heild. Myndmál, einkum likingar, er vandasamt tæki til tjáningar. Sé þvi ekki beitt af nákvæmni og hyggindum, er úti um ljóöið. Brotalamir af þessu tagi eru hér sorglega margar. í ljóði sem heit- ir „Gálgafrestur (meðvitaður draumur)” (bls.29-33) skiptast frásagnir og likingamál sem ég fæ ekki botn i: Þuriöur Guömundsdóttir. Við báöum þessa stund að nema staðar Við köstuöum blómum í fljótið stór og blá bárust þau með straumnum lengra og lengra burt Við horfðum á iif okkar speglast i fljótinu og berast burt eins og blómin bláu Þú ferðast lengra og finnst sem um þig Ijúkist lifandi blóm, sundurtætt, Það er gálginn, sem þú reistir þér og öðrum, óvitri maður. Þetta eiga augljóslega aö vera myndhverfingar, en blómiö lif- andi sem er gálgi, er mér óráðin gáta, þó að prédikunarávarpiö i lokin nái aö sjálfsögöu til min. Þú tókst i hönd mér og sagðir timinn er miskunnarlaus (10-11) Það er hvergi hrópað eða skip- að fyrir i þessum ljóðum. En þau geyma vekjandi áminningar og ihuganir og þau eru runnin úr uppsprettulindum mannlegra til- finninga. En ekkert stoðaði það ef þau bærust okkur ekki i eftir- minnilegum búningi svo sem i ljóðinu „Framandi blóm”: Þegar eitthvað deyr i brjósti þér lifnar það aidrei aftur En annað blóm undarlcgt og framandi festir þar rætur brosir hikandi og biður um vatn og undarlegt framandi blóm drekkur tárin sem dauðanum voru ætluð (36) EyÞ Viölikingin á bls.31 i sama ljóöi er lika óklár: Annarleg rödd æpir i myrkrinu, likt og örmjór strengur skeri þverhnipt björg.... Ef myndliöur likingarinnar bregður ekki upp skýrri mynd, þá missir likingin marks. Algengur galli á þessum ljóðum er slappur endir. Sum þeirra væru heilsteyptari og áhrifameiri ef skorið væri aftan af þeim, t.d. „Saga”, „Barnsvit”, „Heim- speki”. Þó að hér hafi verið drepiö á bresti i ljóðum Gálgafrests, eru nokkur ljóö I bókinni sem gefa til kynna að þetta unga skáld geti tamið skáldfákinn betur en orðiö er. Einkum eru þaö ljóð þar sem skáldiö ætlar sér ekki um of og fer gætilegar en annars staðar með orö og myndir, s.s. I ljóðunum „Aðgát” (bls.9), „Hugarflug” (bls. 59-60) og „Hægt kemur ljós- ið” (bls.23) sem er á þessa leið: Hægt kemur ljósið, ljúflingur minn, að bræða skammdegið úr hjörtum okkar. Hægt kemur ljósiö i hug mannsins. EyÞ. „Grátvinur blæs”

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.