Þjóðviljinn - 04.07.1981, Blaðsíða 26

Þjóðviljinn - 04.07.1981, Blaðsíða 26
26 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 4.-5. júli 1981 Kjamorka Framhald af bls. 4 hafiö og atómvopnaumsvif stór- veldanna þar inn i kjarnorku- vopnalaust svæöi á Norður- löndum, amk. ekki til að byrja með. Astæða er fyrir Islendinga að gefa gaum að þessum rök- sendum. bórarinn Þórarinsson vakti máls á þvi i Timanum fyrir nokkru að hugmyndir væru uppi i Bandarikjunum um að setja hiö svokallað MX-eldflaugakerfi á kafbáta i stað þess að koma þvi fyrir i Utah-fylki. A svipuðum hugmyndum er bryddað viða i Vestur-Evrópu, þar sem stjórn- völd eru i vanda stödd vegna and- stöðu við hin nýju Evrópu-kjarn- orkuvopn, sem á að byrja á að koma fyrir i Bretlandi, Vestur- -Þýskalandi, Hollandi og Belgiu 1983samkvæmt ákvörðun NATÓ i desember 1979. Vikuritið Spiegel skýrði frá þvi nýverið að Helmut Schmidt hefði kallsað þá hug- mynd við Bandarikjamenn hvort ekki mætti koma nýju Evrópu- vopnunum fyrir á kafbátum i Norður-Atlantshafi. lslendingum mun að sjálfsögðu veröa um megn að stöðva slíka þróun. En þeir geta neitað að Ijá land sitt undir stjórnstöðvar i atómstriöi. Það er óverjandi sið- leysi af vopnlausri og friösamri þjóð aö taka með þeim hætti sem nú viðgengst þátt i áætlunum um atómvopnaárás. Það er einnig óverjandi ábyrgðarleysi af þeim sem telja sig vilja verja menn- ingu og framtið islensku þjóðar- innar aö leyfa hér búnað sem kallar á kjarnorkuvopnaárás. —Einar Karl Ljúfur Framhald af '8. siðu. um árum. Um tima vorum við i Hjálparsveitinni i Hafnarfiröi þeir einu sem leituðum á suövest- urhorninu að týndu fólki, milli 15 og 20 manns, en nú skipta þeir hundruðum og hjálparsveitir eru til staðar út um allt land. — Hvaö eru margir i Hjálpar- sveitinm hér? Skráðir félagar eru nálægt 300, margir þeirra gamlir félagar, en um 50 eru virkir. — fcg sé hérna i bókinni þinni, þar sem þú skráir öll útköll að þau eru mjög mismunandi. Oft eruð þið rétt að komast af stað þegar fólkiö finnst, stundum er leitaö lengi án árangurs, en segðu mér hver er erfiðasta leit sem þú hefur lent i? Það var i mai 1974. Viö íengum þrjú útköll i röð. Fyrst týndis frönsk flugvél. Viö vorum kallaö- ir út kl. 6 að kvöldi, en þá var niöaþoka. Leit var hætt um mið- nættið og ég var rétt að festa blund þegar hringt var og beðið um leit að einum leitarmanna sem hafði villst. Hundurinn fann hann heilan á húfi kl. 7 að morgni. Aftur var ég rétt aö sofna þegar enn var hringt. Þá hafði flugvélin fundist, en enginn maður. Við vorum rétt á hælunum á honum þegar hann rakst á leitarflokk, svo allt fór vel um siðir. — Að lokum Snorri, hvernig eru blóðhundar að eðlisfari? Þeir eru sérstaklega ljúfir i skapi. —ká J.M. Roberts: An lllustrat- ed World History 5—8. Penguin Books 1981. Fyrstu fjögur bindin komu út fyrir skömmu og með þessum fjórum er rit Roberts komið út i endurprenti Penguin-útgáfunnar. Höfundurinn skiptir þessum bindum i fjóra hluta. Sá fyrsti spannar timann frá 15. öld og fram á þá 18. Annar hlutinn nær frá Iðnbyltingu fram undir siö- ustu aldamót, þar er einkum rætt um nýlendustefnu og iðnþróun. Þriðji hluti er framhald annars hluta og þar lögð áhersla á sam- félagsþróun og breytingar og loks fjóröi hluti þ.e. áttunda bindið, með þvi lýkur ritinu á 20. öld. Myndefniö er fjölbreytilegt, bæöi I svart/hvitu og litum. Rit þetta er eölilega úrdráttur ver- aldarsögunnar, höfundurinn leggur áherslu á þá þætti sem nú þykja markverðastir, og honum hefur tekist aö skrifa stutta og greinagóöa yfirlitssögu. Tima- talsskrár fylgja hverju bindi og registur. FERÐAFÓLK NJOTIÐ COÐRA OG ODÝRRA VEITINCA í FÖCRU UMHVERFI BORCARFJARÐAR. VEITINGASALURINN ÖLLUM OPINN FRÁ MORGNI TIL KVÖLDS. Bifröst BORGARFIRÐI Askrift - kynning wT„ YEIrlVANWIR laiUINAFOLILS við bjódum nýjum lesendum okkar ÓKEYPIS ÁSKRIFT til næstu mánaóamóta. Kynnist blaóinu af eigin raun, látió ekki aóra segja ykkur hvaó stendur í Þjóóviljanum. sími 81333 DJOÐVUJINN Félagsstarf aldraðra: Kynnisfundur um sólarlandaferðir Kynnisfundur vegna sólar- landaferða fyrir aldraða á vegum Félagsmálastofnunar Reykjavik- urborgar verður haldinn að Norð- urbrún 1 mánudaginn 6. júli kl. 16,30. Höfuðstöðvar félagsstarfsins fyrir aldraða er að Norðurbrún 1 og er þar hægt að fá allar upplýs- ingarum sumardagskrána ásamt kynningarbæklingi. Starfsemin hófst um miðjan júni og hófust þá bæði dagsferðir og sumarorlof að Löngumýri i Skagafirði ásamt með opnu húsi i húskynnum félagsstarfsins að Norðurbrún, Lönguhlið og i Furgeröi. Þá var einnig bryddað upp á þeim nýj- ungum að efna til tveggja daga ferðar til Akureyrar og Mývatns þar sem flogið verður báðar leið- ir. Vorferð til sólarlanda hefur þegar verið farin og dvaldist um 90manna hópur aldraðra á hinum fallega stað Marbella á Suður- Spáni og var ferðin skipulögð i samvinnu við Ferðaskrifstofuna Útsýn. Akveðið er að efna einnig til tveggja ferða siðla sumars, þeirrar fyrri til Júgóslaviu 28. ágúst og hinnar siðari 9. sept. til Mallorca. EYJAFLUG Brekkugötu 1 — Slmi 98-1534 A flugvelli 98-1464 Blaðberabló Sex svartir gæðingar. Skemmtileg mynd fyrir fólk á öllum aldri. Sýnd i Regnboganum sal A, laugardag kl. 1 DJOÐVIUINN Siðumúla 6 s. 81333. Skjót viðbrögð Þaö er hvimleitt aö þurfa aö bíöa iengi meö bilaö rafkerli, leiöslur eöa tæki. Eöa ný heimilistæki sem þarf aö leggja fyrir. Þess vegna settum viö upp neytendaþjónustuna - meö harösnúnu liöi sem bregöur skjótt viö. 'RAFAFL Smiðshöfða 6 ATH. Nýtt símanúmer: 85955 Hásumarferð 11. og 12. júlí . m 'F- Frá Sæbóli i Aöalvik. — myndina tók Hjálmar R. Báröarson áriÖ 1939. Um eydibyggdir í Aðalvík Alþýöubandalagiö á Vestfjörðum efnir tils sumarferðar helgina 11. og 12. júli n.k. Farið verður með Djúpbátnum Fagranesinu í Aðalvík. Lagt verður af stað frá Isafirði klukkan 8 að morgni iaugardagsins 11. julí. Komið verður við á Bæjum á Snæf jailaströnd en síðan siglt beint i Aðalvík. • Aöalbækistöö ferðarinnar verður aö Sæ- bóli i Aðalvik. — Þar verður kvöldvaka laug- ardagskvöldið^og siðan dansað við undirleik harmóniku fram á nótt. • Siglt verður norður fyrir Straumnes og fariði gönguferðir um eyðibyggðirnar i Aðal- vik. Einnig verður stuðst viö hraðbáta. Kom- jð ú* Isafjarðar sunnudagskvöld. • Sérfróöir menn um staðhætti, sagnafróð- leik og náttúrufar Aöalvikur verða meö i feröinni. • I Aöalvik var áöur blómleg byggð. Þar bjuggu nær 300 manns fyrir 50 árum, en nú er um þriðjungur aldar siöan byggöin lagðist i eyöi. • Þátttakendur i ferðinni hafi með sér við- leguútbúnaö, góðan klæðnað og nesti. Þátt- tökugjald kr. 250,- fyrir fullorðna og kr. 100,- fyrir börn 12 ára og yngri. Innifalinn er flutn- ingur til ísafjaröar frá öörum stöðum á Vest- fjöröum. — Fararstjórn Aage Steinsson, Isa- firði, Guðvarður Kjartansson, Flateyri Kjartan ólafsson, ritstjóri og Tryggvi Guö- mundsson, Isafirði. Þátttaka tilkynnist sem fyrst einhverjum eftirtalinna manna: isafjörður: — Aage Steinsson, simi 3680 eða Margrét óskarsdóttir, simi 3809. Bolungavik: — Kristinn H. Gunnarsson, simi 7437. Súgandafjörður: — Þóra Þórðardóttir, simi 6167. önundarfjörður: — Guðvaröur Kjartansson, Flateyri, simi 7653. Dýrafjörður: — Daviö H. Kristjánsson, Þing- eyri, simi 8117. Arnarfjörður: — Halldór Jónsson, Bildudal, simi 2212. Tálknafjöröur: — Lúðvfg Th. Helgason, simi 2587. Patreksfjöröur: — Bolli Ólafssqn, simar 1433 oe 1477. B Reykhólasveit: — Jón Snæbjörnsson, Mýrar- tunau. Ilrútafjörður: — Rósa Jensdóttir, Fjaröarhorni Ilólmavík: — Þorkell Jóhannsson, slmi 3191 óg’ Höröur Asgeirsson, simi 3123. Kaldrananeshreppur: — Pálmi Sigurösson Klúku Arneshreppur: — Jóhanna Thorarensen, Gjögri. Inn-Djúpið: — Astþór Agústsson, Múla. Súðavik: — Ingibjörg Björnsdóttir, simi 6957. Reykjavik: Guðrún Guövaröardóttir, simar 81333 og 20679.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.