Þjóðviljinn - 28.07.1981, Side 12
12 SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Þriðjudagur 28. júli 1981
Borðstofuhúsgögn
Til sölu borðstofuhúsgögn úr álmviði —
borð 6 stólar og skápur. Verð kr. 5.000,-
Ennfremur simastóll og nokkrar Hansa-
hillur.
Upplýsingar i sima 82432 eftir kl. 18 i dag.
NÁM i'STJÓRNUN FYRIR-
TÆKJA í SJÁVARÚTVEGI
VIÐ HÁSKÓLANN í TROMSÖ
Við Sjávarútvegsdeild Háskólans i
Tromsö, Noregi, verður stofnuð ný náms-
braut i haust.
Námið tekur 4 1/2—5 ár og mun að nokkru
leyti byggja á þeim námsgreinum, sem
kenndar eru við sjávarútvegsdeildina, en
meiri áhersla verður nú lögð á rekstrar-
hagfræði og stjórnun.
Inntökuskilyrði eru að mestu leyti þau
sömu og við aðrar deildir Háskólans, en að
auki verða umsækjendur að geta vottað
reynslu við störf i sjávarútvegi. Markmið-
ið er að taka inn allt að 15 stúdenta i haust.
Umsóknarfrestur er til 8. ágúst 1981, og er
þeim, sem áhuga hafa á að hefja námið i
haust, bent á að hafa samband við Háskól-
ann sem fyrst. Nánari upplýsingar gefa:
Odd Handegaard eða Magne Wrengsted, i
sima (083) 70011, Tromsö.
Umsóknareyðublöð fást hjá:
Universitetet i Tromsö
Institutt for Fiskerifag
Postboks 488
9001, Tromsö
Norge
Húsnæði
óskast til kennslu i sérgreinum, helst i ná-
grenni Vesturbæjarskóla við öldugötu.
Tilboð með lýsingu á þvi húsnæði sem i
boði er og leigukröfum, sendist fræðslu-
skrifstofu Reykjavikur, Tjarnargötu 12,
fyrir 8. ágúst n.k.
Fræðslustjóri
Fjármálaráðuneytið,
fjárlaga- og hagsýslustofnun
óskar aö ráða fulltrúa eða skrifstofumann nú þegar. Góðr-
ar islensku og vélritunarkunnáttu er krafist. Nauðsynlegt
er að umsækjandi hafi vald á ensku og einu Norðurlanda-
máli og geti unnið sjálfstætt að verkefnum. Laun skv.
launakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknir ásamt
upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf óskast
sendar fjármálaráðuneytinu, fjárlaga- og hagsýslu-
stofnun, Arnarhvoli.
• Blikkiðjan
Asgaröi 7» Garöabæ
önnumst þakrennusmíöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verötiiboö
SIMI 53468
Kjúklingasláturhúsið ísfugl 2ja ára
Ymsar nýungar á döginni
Alifuglasláturhúsið ís-
fugl hefur nú veriö rekiö i
nær tvö ár eða frá 8. ágúst
1979. Af því tiletni boðuðu
forráðamenn hússins til
fréttamannafundar/ þar
sem greint var m.a. frá
byggingu hússins, tækja-
búnaði og rekstri.
Við uppbyggingu hússins var
stuðst viö ströngustu heilbrigðis-
kröfur, enda hafði slátrun fram
að þeim tima verið framkvæmd
við skilyrði, sem engan veginn
samrýmdust nútima kröfum um
heilbrigði og hollustuhætti. ísfugl
var fyrsta fyrirtæki sinnar teg-
undar á landinu til að hljóta full-
gilt leyfi heilbrigðisyfirvalda til
slátrunar og sölu alifugla.
Fullkominn tækjabúnaður
Fyrirtækið var byggt upp með
fullkomnasta tækjabúnaði, sem
valinn var i samráði við heil-
brigðisyfirvöld innanlands og
sérfræðinga á þessu sviði er-
lendis. Til dæmis má nefna, að
keypt var sjálfvirk þvottavél
fyrir flutningakassa undir lifandi
fugla, þ.e. til að þvo kassana og
sótthreinsa strax eftir notkun.
Sérstakt tæki er notað, sem af-
lifar fuglinn á sekúndubroti, með
raflosti. Nefna má og tæki fyrir
sjálfvirka reitingu, sem heppilegt
var talið miðað við afköst húss-
ins.
Stöðugt er að þvi unnið að bæta
vélakost og auka hagræðingu til
að fá fram meiri hagkvæmni i
vinnslu og aukin vörugæði og má
t.d. benda á, aö nýlega var sett
upp sérstakt kæliker, sem snögg-
kælir og þvær fuglana strax eftir
slátrun. A döfinni eru kaup á
frekari tækjakosti, sem enn eykur
hagræðingu og auðveldar flokkun
fugla, en öll viðbótarfjárfesting i
tækjabúnaði er að sjálfsögðu háð
mati á þvi hvað hentar fyrir þá
stærðareiningu, sem hér er um að
ræða. ,
Forsendur brugðust
Aðalfundur félagsins var hald-
inn i april sl. Samkvæmt reikn-
ingum var reksturinn i jafnvægi.
Hluthafarnir, 50 að tölu, eru
flestir úr hópi alifuglabænda en
alls hafa um 70 aðilar lagt inn af-
urðir sinar eða nýtt sér þjónustu
hússins en séð sjálfir um söluna.
Mikill minnihluti þessara 70 eru
þó kjúklingabændur heldur t.d.
eggja framleiðendur. Þeir sem
Isfugl sér um sölu fyrir, greiða
10% i sölulaun.
Ekki er þvi að neita, að ýmsar
mikilvægar forsendur, sem
gengið var útfrá i upphafi hafa
brugðist, hvað varðar verkefni
fýrir húsið. Gert var ráð fyrir þvi,
þegar á uppbyggingunni stóð, að
til stæði að anna allri slátrun fyrir
Suður- og Vesturland, en nú eru,
eins og kunnugt er, rekin 4 ali-
Ekki stóð á rausnarlegum
veitingum hjá þeim tsfugis
mönnum. Hér er örn Garðarsson hjá Brauðbæ að bera fram hrokaðan
bakka af allskonar lostæti. Mynd: —gel.
Fjölbreytt vöruval
ísfugia selur nú þrjár gerðir
kjúklinga: Glóðarkjúklinga
800—1000 gr. Holdakjúklinga
1000—1200 gr. og Holda-Regin-
kjúklinga 1200—1500 gr. Kjúkl-
ingahlutar hafa einnig reynst
geysivinsælir og eru boðnir fram
fuglasláturhús á þessu svæði.
Sýnist sú þróun ganga i öfuga átt
við það, sem gerist um önnur
siáturhús. I þessu sambandi má
benda á að i mai 1979, skipaði þá-
verandi landbúnaðarráðherra,
Steingrimur Hermannsson, sér-
staka sláturhúsanefnd, sem m.a.
skyldi fjaila um slátrun alifugla.
Niðurstaða nefndarinnar varð sú,
að hagkvæmast yrði að þetta
sláturhús sæi um alla alifugla-
slátrun á Suður- og Vesturlandi.
Stjórnvöld hafa hinsvegar ekki
framfylgt þessari stefnu, enda 4
slik sláturhús starfandi á Suður-
landi, eins og áður sagði. Fyrir-
tækið hefur þvi orðið að haga sér i
samræmi við þessar breyttu að-
stæður. Til dæmis var fram-
kvæmd gagnger endurskoðun á
rekstri þess, sem miðaði að þvi,
að hægt væri að reka það með nær
helmings afköstum.
Brugðist við þrengingum
Ýmsir örðugleikar i alifugla-
rækt, t.d. fóðurbætisskattur og
aukin niðurgreiðsla á öðru kjöti,
ásamt ört hækkandi fóðurverði
erlendis, hafa einnig orsakað, að
margir aðilar hafa. dregið saman
framleiðsluna timabundið eða
hætt. Undirbúningur hefur farið
fram til þess, að aukning verði á
framleiðslu þessara aðila, þannig
að bæta megi afkastanýtinguna
von bráðar. Örðugleikunum hefur
yfirleitt verið mætt með þvi að
stækka einingarnar og auka á
hagkvæmni i rekstrinum.
Strangt gæðaeftirlit er fram-
kvæmt með þeim vörum, sem
seldar eru undir merki Isfugls,
enda nauðsynlegt til að koma i
veg fyrir gæðamismun. A þetta er
lögð rik áhersla enda einn mikil-
vægasti þátturinn i starfsemi
fyrirtækisins.
Framhald á biaðsiðu 14.