Þjóðviljinn - 29.07.1981, Síða 5

Þjóðviljinn - 29.07.1981, Síða 5
Miftvikudagur 29. júli 1981 ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 5 þær, aö koma i veg fyrir mögu- legar nálganir palestinumanna og Reaganstjórnarinnar, eyði- leggja það jafnvægi sem komið var á i Libanon og sýna auk þess þeim trúarlegu smáflokkum israelskum sem hann var að makka við um stjórnarþátttöku framá einurð sina gegn óvinum rikisins. Hið siðastnefnda hefur Begin nú heppnast, en aðgerðirnar verða að öðru leyti að teljast mjög óheppilegar fyrir Beginstjórnina og pólitiskan stuðning við Israelsriki. Af þeim hefur leitt tilhlaup til samstöðu striðandi afla i Libanon, og þær hafa ekki sist vakið megna óánægju i helsta, og næstum eina, stuðningsriki tsraelsmanna, Bandarikjunum, bæði meðal almennings og i rikisstjórninni. Talsmenn bandariskra gyðinga hafa harmað striðs- aðgerðir Israela og bandariska stjórnin viðhefur enga tilburöi i þá átt að afhenda Begin þær tiu F—16 þotur, sem frestáð var að senda vegna Beirútárásanna. Leikur aðeldi Leiðarahöfundur stórblaðsins bandariska, Washington Post, segir boRann nú i höndum Reagans. Arásirnar séu gerðar með bandariskum vopnum, og Bandarikjamenn beri þess- vegna sinn part ábyrgðar. Þeir séu eini aðilinn, sem Begin- stjórnin taki mark á, nauðug viljug, og þvi sé brýnt, aö Reaganmenn móti stefnu fyrir botni Miðausturlanda. Pólitik Bandarikjanna hefur t lengi verið sú að halda áhrifum ■ sinum og hagsmunum á I svæðinu tryggum með aðstoð I bæði tsraelsmanna og svo- , kallaðra hægfara arabarikja, ■ svosem Saudi-Arabiu. Griðar- I legar vopnasendingar til I þessara aðilja hafa verið liður i , þessari pólitik auk þess að ■ fjörga blessaðan vopnaiðnaðinn I heimafyrir. Hér séu I Bandarikjamenn að leika sér að , eldinum, segir WP, sem litur á ■ Miðausturlönd, sem helstu I heimsstyrjaldarhættu vorra I tima. Ljóster, heldur WP áfram, að ■ sæmilegur friður fæst ekki I nema að leystum vanda I Pelestinumanna, og nú sé það , Reagans að leggjast undir feld. ■ Væri þá ver af stað farið, en I heima setið fyrir Begin, ef I styrjöld hans i Libanon leiddi að , lokum til sögulegra tengsla ■ þeirra Arafats og Reagans, en I Reaganstjórnin tók sem I kunnugt er fyrir leynilegar , tilraunir Cartermanna að ■ slikum samskiptum. FRÉTTASKÝRING Eftir vopnahlé í Líbanon: Reagan hefur boltann Fyrir tilstilli Habibs, | sendimanns Bandríkja- stjórnar í Miðausturlönd- I um, og með stuðningi SÞ ! tókst á f östudag að stöðva vopnaviðskiptin í Líbanon I milli ísraela og ■ Palestínumanna. Þau | höfðu þá staðið í hálfan ■ mánuð og náðu hámarki I sínu með loftárásum israelskra flugvéla á . Beirút, höfuðborg Líban- I on, en þær árásir voru samhljóða fordæmdar [ utan landamæra (sra- j elsríkis. Vopnahléð hefur hingað til J verið haldið þokkalega, þó um ■ það sé ekki full eining innan I PLO, en ein aðildarsamtök I PLO, studd af Libiumönnum, J hafa neitað að hlýða Arafat, Ileiðtoga palestinumanna. Boðaður hefur verið fundur arabaleiðtoga til að móta sam- , eiginlega stefnu eftir þessi átök, ■ sem kostuðu um 450 araba lifiö, I flest almenna borgara. Sex I munu hafa farist Israelsmegin. Ennfremur hefur Sarkis. • Libanonforseti boðað til hring- I borðsumræðna allra pólitiskra I hópa i Libanon, en verstu hindr- J uninni fyrir slikum fundi var • rutt úr vegi með nýlegri yfirlýs- I ingu kristinna hægrimanna um I slit samvinnu þeirra við tsrael. , Gæti sá fundur oröið i byrjun • september. Móftir grætur fall sonar sins i bænum Tyrus I Suftur-Libanon i fyrri viku, eftir loftárasir Begins. Begin gagnrýndur harðlega Það hefur hallað mjög á israelsmenn og forsætis- ráðherra þeirra, Menachem Begin, i umræðum um þessi átök utan Israel. Begin þykir hafa verið herskár úr hófi fram, og séfstaklega mæltust loft- árásir hans á Beirútborgara illa fyrir. Astæöur hans eru nefndar Tíðindi af sj ónvarpsfrelsinu: Japanskt sjónvarp er fullkominn hórdómur Japanir geta horft á sjónvarp í 18—20 tíma á dag. Þeir hafa tvær ríkis- reknar rásir og fimm rásir, sem auglýsendur reka, um að velja. Þeir horfa meira á sjónvarp en nokkur önnur þjóð og rann- sóknir munu benda til þess að hvergi hafi sjónvarps- gláp haft eins róttæk áhrif á daglegt líf hverrar f jöl- skyldu og þar, hvergi eigi menn eins erfitt með að sætfa sig við þau ósköp að sjónvarpið hefur bilað. Þetta hefur m.a. leitt til þess að i Japan hefur risið hreyfing um að „draga sjónvarpið til ábyrgðar”. Hreyfing er komin á ýmsa sem krefjast styttri útsendingartima, að alls ekki sé sent út ákveðinn tima — og jafnvel er farið fram á að vissir dagar séu án sjónvarps. Ólikt höfumst við að: hér á ts- landi er barist fyrir þvi að sjón- varpið sé á hverju kvöldi árið um kring. Fátækt Þeir róttæku segja að litasjón- varpið, sem er komið i hvert hús i Japan, sé ekki tákn og imynd vel- megunar heldur fátæktar. Sjón- varpsglápið þar i landi sé ekki sist staðfesting á efnahagslegu misrétti i landinu. Það kemur i staðinn fyrir þá skemmtun og þá hvild sem menn hafa ekki ráð á. Verkamenn koma heim, þreyttir eftir hinn stranga vinnudag jap- anskra fyrirtækja og þvæling i miklu umferðaröngþveiti — og hann ver meira en hálfum fritima sinum fyrir framan kassann. Hann á ekki um neitt að velja. Skermurinn verður að ávanalyfi, sem býður upp á drauma um það lif sem hann þekkir ekki. Frelsistalið er bull En það þarf ekki róttæklinga til að gagnrýna harðlega það, fram- boð á sjónvarpsefni, sem Japanir fá. Þar er úr sjö rásum að velja, en þvi fer viðs fjarri að hægt sé að tala um valfrelsi. Það tal er bull, segja reiðir talsmenn neytenda. Þetta er m.a. tengt þvi, að aug- lýsingarásirnar fimm eru i eigu fimm stærstu dagblaöa landsins. Þvi er ekki að undra þótt dagblöð- in geri litið til að gagnrýna dag- skrárnar. Og þar eð bæði blöðin og fimm rásir ganga fyrir fé sem rennur i gegnum hendur á stórum auglýsingastofum, hafa stofur þessar firnamarga möguleika til að „vernda” viðskiptavini sina fyrir óæskilegum dagskrám og fréttum. Rikissjónvarpið er undir mikl- um pólitiskum þrýstingi frá ráða- mönnum sem hafa áratugum saman tilheyrt sama hægriflokki. Og eins og að likum lætur mun fátt þar sjást sem komi „atvinnu- Lifsþreytuhringur frá færibandi til sjónvarpsins... lifinu” illa — m.ö.o. japönskum iöjuhöldum og umsvifum þeirra. Þjáningaklám Fréttaþjónusta er fremur léleg og myndin sem fæst af umheim- inum næsta fátækleg. Um 70% efnis er afþreying „eitthvað létt” eins og sagt er. A daginn er haft ofan af fyrir húsmæðrum með þvi sem gagnrýnendur kalla „þjáningaklám". Þar eru ógæfu- samar manneskjur og sundraðar fjölskyldur dregnar fram á skerminn og lif þeirra krufið með ágengum fyrirspurnum þekktra sjónvarpsmanna. Þá er áhorf- endum boðið upp á að taka þátt i leit að horfnum eiginmönnum eða eiginkonum og þegar viðkomandi er fundinn er boðið upp á ekta grátsenur og rifrildissenur — allt beint úr sjónvarpssal. A milli eru svo trúðalæti og auglýsingar um þvottaefni, snyrtivörur og lyf. Rennur blóð eftir slóð A kvöldin fer mest fyrir glæpa- myndum eða myndum um sam- úraja, sem eru firnasterkir og réttlátir og vaða um i styrjöldum og hörmungum fyrri tima, höggv- andi tugum saman þá sem rétt- læti þeirra vill úr vegi. Barnadag- skrár. i Japan þykja skelfilega herfilegar. Mönnum telst svo til að 14 ára japanskt barn hafi séð þrettán þúsund manns deyja á skerminum—i nærmynd. Nú gengur yfir börnin mikil bylgja mynda um utanaðkomandi djöfla, mönnum svipaða, sem reyna að tortima jörðinni. og garpa úr stáli sem verja hana. Hver hetja i myndaflokki er um leið stóriðja i fatnaði, leikföngum og myndabókum. Ýmislegt undarlegt tiðkast I japönsku barnaefni — m.a. að sýna vam- pýra hressa sig á blóði ungbarna, sem eru bundin niður á meðan roði hverfur úr kinnum þeirra. Japanskt sjónvarp er fullkom- inn hórdómur, segir Kioshi Nishi- kata, forystumaður hreyfingar i Tokio sem reynir að andæfa harð- stjórn sjónvarpsins yfir ungum og gömlum. áb byggfti á Information

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.