Þjóðviljinn - 29.07.1981, Side 14

Þjóðviljinn - 29.07.1981, Side 14
HSÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 29. júll 1981 ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið i Kópavogi. fer sina árlegu sumarferö dagana 14.-16. ágúst. Lagt verður af stað kl. 19 stundvislega föstudaginn 14. Ekið verður aö Heklu við Selsund, farið hjá Næfurholti, Rangárbotnum og Tröllkonuhlaupi, austur með Skjólkvium og gist i tjöldum við Landmannahelli. A laugardeginum kl. 9 verður lagt af stað i Hrafntinnusker, þar sem jarðhitinn bræðir jökui- isinn. Þaðan verður svo haldið aftur á Dómadalsleið, hjá Frostastaða- vatni i Landmannalaugar þar sem gerður verður stuttur stans. Siðan verður ekið austur yfir Jökulgilskvisl, hjá Kýlingum um Jökuldali að Herðubreið við Eldgjá. Hjá Ljónstindi verður Ófærufoss i Eldgjá skoö- aður.Tjaldað verður i efstu grösum austan Grænafjallgarðs. A sunnu- deginum kl. 9 verður siðan lagt af stað á Sveinstind sem ris 1090 m hár við suðvesturenda Langasjávar og Fögrufjalla. Um hádegið verður haldið heimleiðis um Landmannalaugar, Sigöldu og Þjórsárdal en þar verður ekið hjá Gjánni og komið við i Stöng. Litið verður á Hjálp og siðan farið niður Gnúpverjahrepp og Skeið og áætluð heimkoma um kí. 21. Upplýsingar og miðar fást hjá Lovisu Hannesdóttur i sima 41279 og Gisla Ól. Péturssyni i sima 42462. Ferðafólk! Þetta er sannkölluð draumaferð! Látið ekki happ úr hendi sleppa. -------------— ............ ...........................1--- Alþýðubandalagiö á Suðurnesjum — FJÖLSKYLDUFERÐ verður farin á Krókavelliá Reykjanesi laugardaginn 8. ágúst ef veöur leyfir. Lagt verður af stað kl. 10 um morguninn, unað við náttúruskoðun og leiki um daginn og endað á þvi að grilla sameiginlega og syngja yfir glóðunum svo lengi sem fjörið endist. — Fólk á öllum aldri á að gefa haft þarna nokkra skemmtan. Þátttakendur láti skrá sig hjá Sigriði i sima 2349 eða Jóni i sima 7647. Blikkiðjan Ásgaröi 7, Garöabæ Onnumst þakrennusmiöi og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíöi. Gerum föst verötilboö SÍMI53468 Húsf riðunarnef nd: Harmar að ekk! var haft samráð um taflið A borgarráðsfundi í gær var lagt fram bréf frá húsafriðunar- nefnd undirritað af Þór Magnús- syni þjóðminjaverði, þar sem harmað er að ekki var haft sam- ráð við nefndina um framkvæmd- irnar framan við Bernhöftstorfu. í bréfinu segir: 1 tilefni þeirra stórfelldu framkvæmda, sem nú eiga sér staö á grasflötinni neðan við húsin á Bernhöftstorfunni svonefndu, þar sem verið er að setja niður útitafl, vill húsafrið- unarnefnd lýsa furðu sinni á þvi hvernig staðið er að framkvæmd- um þessum. Hér er um aö ræða nánasta umhverfi friðaðra bygg- inga sem mjög mikil áhersla hef- ur verið lögð á að varðveita, ekki sist vegna gildis sins fyrir um- hverfið og yfirbragð hins gamia borgarhluta. Þess vegna hefði verið æskilegt að bera hugmynd- ina um þessa framkvæmd undir húsafriðunarnefnd þar sem öllum átti að geta verið ljóst að útitaflið og breytingin á svæðinu framan við hin friðuðu hús hlytu að breyta mjög heildarsvip þeirra og yfirbragði umhverfisins. 1 þessu sambandi vill nefndin visa til samþykktar alþjóðaráðstefnu um varðveislu bygginga, sem haldin var i Feneyjum 1964. Þar segir að „mannvirki er ekki einvörðungu byggingin sjálf heldur einnig um- hverfi það sem hún er i. Bygging er óaðskiljanlegur hluti af um- hverfi sinu og þeirri sögu sem hún vitnar um.” Sumarferð Alþýðubandalagsins á Norðurlandi vestra 15. til 16. ágúst: Flateyjardalur við Skjálfanda Einn fegursti staðurinn á Noröurlandi er Flateyjardalur viö Skjálfanda. Dalurinn er í eyði og þangaö hafa heldur fáir komið. Flateyjardalur er girtur hömrum og háum fjöllum og gengur i norður út frá Fnjóskadal og Flateyjardalsheiði. Þar er gróður mikill og kjarr fagurt, en úti fyrir liggur Flatey. Vegna fjölbreytileika i landslagi og gróðri er dalurinn á náttúruminjaskrá Náttúru- verndarráðs. Þangað liggur leiðin heigina 15.—16. ágúst n.k. og veröur lagt upp frá Varmahlið kl. 10.00 á laugardagsmorguninn. Ferðir verða skipulagðar til Varmahlíðar frá öllum þétt- býlisstöðum á Norðurlandi vestra. Ekið verður á fjallabilum um Akureyri og Svalbarðsströnd til Grenivikur, en siðan haldið um Dalsmynni yfir Flateyjardalsheiði A Flateyjardal: Fr.v. Selfjall, Hánefur og Mosahnjúkur. — Ljósm.: Asg. Asg. og niður i dalinn. Tjaldað verður á fögrum stað og efnt til kvöldvöku viö varðeld. Frá Varmahlið á áfangastaö eru aðeins tæpir 200 km og þótt leiðin sé torsótt seinasta spölinn ætti góður timi að gefast til skoðunarferða. Aö sjálf- sögðu þarf fólk að hafa viðlegubúnað með sér. Eftir hádegi á sunnudag verður haldið heim á leiö meö viðkomu i Vaglaskógi. Þátttökugjald verður 200 kr. — Börn innan 14 ára aldurs greiða hálft gjald. Þátttaka tiikynnist eftirtöldum, sem jafn- framt veita nánari upplýsingar: Elisabet Bjarnadóttir, Asbraut 6, Hvammstanga, simi 95-1435 Sturla Þórðarson, Blönduósi, simi 95-4356 og 4357. Eðvarð Hallgrimsson, Skagaströnd, simi 95-4685. Hallveig Thorlacius, Varmahlíð, simi 95-6128. Rúnar Bachmann, Sauðárkróki, simi 95-5684. Sigurður Hlöðversson, Siglufirði, simi 96-71161 (vinnusimi). Gunnar Rafn Sigurbjörnsson, Siglufirði, simi 96-71310. Gisli Kristjánsson, Hofsósi, simi 95-6341. Rut Konráðsdóttir, Þórunnarstræti 83, Akureyri, simi 96-24987. Þáttaka er öllum heimil. Undirbúningsnefnd. Sumarferð Alþýðubandalagsins í Vesturlandskjördæmi: í Kerlingarfjöll 7. tíl 9. ágúst Sumarferð Alþýðubandalagsins verður að þessu sinni í Kerlingar- fjöll 7. til 9. ágúst. Fariö verður frá Borgarnesi föstudaginn 7. ágúst kl. 15 og ekið um Uxahryggi og Þing- völl, eða um „linuveginn” norðan Skjald- beiöar ef aðstæöur leyfa. Ekið verður beint i Kerlingarfjöll og gist- ing tekin i húsum Skiðaskólans eða tjöldum ef menn vilja. A laugardag verður setið um kyrrt og um- hverfið skoöað, en á sunnudag haldið heim á leið með þeim krókum og útúrdúrum sem veður og timi gefa tilefni til. Þátttöku þarf að tilkynna i siöasta lagi miðvikudagskvöldið 5. dgúst, til einhvers neðangreindra. Akranes: Jóna Kr. ólafsdóttir, simi 1894, Jón Hjartarson, simi 2175 og 2675, Hvanneyri: Rikharð Brynjólfsson, 7013, Borgarnes: Halldór Brynjólfsson, 7355, Hellissandur: Svanbjörn Stefánsson, 6688, Ólafsvik: Kjartan Þorsteinsson, 6330, Grundarfjörður: Kristberg Jónsson, 8798, Stykkishólmur: Einar Karlsson, 8239, Dala- sýsla: Kristjón Sigurðsson, 4175. Húsafriðunarnefnd fer þvi ein- dregið þess á leit að samráð sé haft við nefndina framvegis þeg- ar fyrirhugaöar eru framkvæmd- ir af þessu tagi i næsta nágrenni friðaðra húsa i borginni.” Hellnanes Stokksnes Friðarganga Stokksnes-Höfn 9. ágúst Friðargangan Stokksnes — Höfn verður farin sunnudaginn 9. ágúst 1981. Samtök herstöðvaandstæðinga á Austuriandi efna til göngunnar. Kl. 9.30 að morgni 9. ágúst verður lagt upp frá Stokksnesi að loknu ávarpi Sævars Kristins Jónssonar, Rauðabergi, Mýrum i Alftaveri. A hinn tæplega 20 km göngu til Hafnar verður að einu sinni við Hellnanes. Þar talar Sigurður Ó. Pálsson á Eiðum. Göngunni lýkur við Fiskhól með útifundLÞar munu Torfi Stein- þórsson, Hala i Suðursveit, og Pétur Gunnarsson rithöfundur ávarpa fundarmenn. Laugardaginn 8. ágúst, daginn fyrir friðargönguna, efna her- stöðvaandstæðingar til kvöldvöku i Mánagarði i Nesjum. Þar verður fjallað um stöðina i Stokksnesi, tækjabúnað hennar og hlutverk. Frummælendur verða Ólafur Ragnar Grimsson al- þingism., Guömundur Georgsson læknir og Jón Asgeir Sigurös- son blaðamaður. A kvöldvöku verður einnig flutt ýmislegt skemmtiefni af heimamönnum. í tengslum við göngunafrá Stokksnesi 9. ágúst verða skipulagð- ar ferðir frá Austfjörðum og Reykjavik. Er stefnt að þvi að vænt- anlegir þátttakendur verði komnir til Hafnar siðla dags laugar- daginn 8. ágúst. Eru allir hvattir til að koma með nesti og góða skó ásamt svefnpokum. Svefnpokapláss verður i Mánagarði, Nesjum, en þeir sem þess óska geta komið meö tjöld og gist á tjaidsvæði. Frá Reykjavik veröur farið kl. 8 árdegis laugardaginn 8. ágúst. Ferð til baka verður frá Höfn kl. 15.30 á sunnudag 9. ágúst. Þeir sem vilja komast með i ferðina frá Reykjavik eru hvattir til þess að skrá sig timanlega i síma 17966 alla virka daga milli 17 og 19, kl. 5 - 7 e.h. Samtök herstöðvaandstæðinga á Austuriandi. GONGUM MEÐ FRIÐI GEGN ATÓMVOPNUM Áskrift- kynning x i'ti \3' J vió bjóóum nýjum lesendum okkar ÓKEYPIS ÁSKRIFT til næstu mánaóamóta. Kynnist blaóinu af eigin raun, látió ekki aóra segja ykkur hvaó stendur í Þjóóviljanum. sími 81333 DJÚÐVIUINN

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.