Þjóðviljinn - 28.08.1981, Qupperneq 3
Fimmtudagur 27. ágdst 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Bókaforlag Iðunnar gefur út í haust
5 frumsamdar barnabækur
Myndir Pilkingtons njóta sln ekki I svart-hvftri prentun en hér má sjá tröllskessuna Flumbru með sinn
friða flokk.
Litprentuð
tröllasaga á 6—8
tungumálum
„Ef bókakaupendur taka ekki
við sér i vetur og láta af þeirri
kröfu sinni að barnabækur verði
að vera ódýrari en minnsti plast-
bill þá er ég ansi hræddur um að
það verði ekki mikið um útgáfu á
frumsömdum islenskum barna-
bókum á næsta ári. En þá er ekki
viö útgefendur að sakast”. Það er
Jóhann Páll Valdimarsson i lð-
unni, sem þetta segir, en i haust
gefur Iðunn út fimm frumsamdár
og myndskreyttar barnabækur
eftir fslenska höfunda.
Og Jóhann Páll heldur áfram:
„Eftir allar þær umræður sem
orðið hafa um stöðu Islensku
barnabókarinnar og samkeppn-
ina við innfluttar myndabækur
sýndi þaö sig i fyrra að islenskir
útgefendur hafa fullan vilja til
þess að gefa út góöar islenskar
barnabækur. Þá kom út meira af
slikum bókum en nokkru sinni
fyrr en hins vegar kom i ljós að
fólk sem kaupir barnabækur er
ekki tilbúið til þess að borga fyrir
frumsamið islenskt efni. Það
kaupir heldur ódýrar teikni-
myndasögur. Þetta er sorgleg
staðreynd og ef fólk tekur ekki viö
sér i ár verður ekki framhald á
þessari útgáfu er ég hræddur
um”.
Fimm frumsamdar bækur
Barnabækur Iðunnar i ár eru
„Ástarsaga úr fjöllunum” eftir
Guðrúnu Helgadóttur, teikningar
eftir Brian Pilkington, „Eins og I
sögu” texti og teikningar eftir
Sigrúnu Eldjárn, „Lamba-
drengur” eftir Pál H. Jónsson,
teikningar eftir Sigrid
Valtingojer, „Tvær sögur um
tunglið” eftir Vilborgu Dag-
bjartsdóttur, teikningar eftir
Gylfa Gislason, og Gleymmérei"
texti i bundnu máli eftir Þórarin
Eldjárn og teikningar eftir
Sigrúnu Eldjárn. Að auki kemur
út þýðing dr. Kristjáns Eldjárns á
þulunni um Max und Moritz eftir
Wilhelm Bush sem talinn hefur
verið höfundur teiknimyndasög-
unnar.
Heyrst hefur að „Astarsaga úr
lslenskir útgefendur hafa fullan
vilja til að gefa út góðar frum-
samdar barnabækur, segir Jó-
hann Páll. Ljósm. —gel.
fjöllunum” sé dýrasta barnabók
sem gefin hefur verið út á Islandi
en allt sem Jóhann Páll vildi
segja var aö hún væri óhemju
dýr. Bókin er sett, litgreind og
filmuunnin hér á landi, en
prentuð og bundin i Belgiu og
sagði Jóhann Páll ástæðuna þá aö
það hefði munað helmingi á verði.
„En ég er mjög stoltur af þessari
bók” sagði hann.
„Við leyfum okkur annars ekki
þann munað að litmyndskreyta
bækur, þegar við eigum kost á er-
lendum myndabókum þar sem
ekki þarf að borga fyrir teikn-
ingar og litgreiningu. Iðunn gaf
siðast út litmyndskreytta barna-
bók 1977, Helgi skoðar heiminn”
eftir Njörö P. Njarðvik með
teikningum Halldór Pétursson.
Barnabækur eru venjulega
gefnar út i 3—4 þúsund eintökum
en ég verð að vera bjartsýnni á
sölu á þessari bók enda er hún það
dýr i vinnslu að ég verða að láta
prenta hana i ansi stóru upplagi,
til að halda verðinu niðri”, sagði
hann.
Nútíma tröllasaga
— En um hvað fjallar svo þessi
saga?
Framhald á bls. 13
Örn Hjaltalín forstjóri:
„Þeir stela
frá okkur”
Ragnar Birgisson og Páll Jónsson. Þeir þola illa aukna samkeppni.
,V ið hlógum dátt’
— segir Pétur Björnsson hjá Kók
/,Þeir stela. frá okkur",
sagði Örn Hjaltalin, for-
stjóri ölgerðarinnar, sem
svar við áburði Sanitas um
þjófnað Ölgerðarinnar á
glerjum frá Sanitas.
örn sagði að þeir frá
ölgerðinni biðu rólegir eft-
ir úrskurði Samkeppnis-
nefndar út af kærum i gos-
stríðinu. „Við höfum
haldið því fram að Sanitas
hafi stolið okkar glerjum, í
,gegn um árin. Ég talaði við
forstjóra Sanitas í sl. viku.
Hann sagði mér að þegar
þeir hefðu byrjað með
„diet pepsi" (sykursnautt
kóla) þá hefðu þeir pantað
aðeins 100 þúsund flöskur,
sem er ekki neitt, neitt.
Þetta var flöskustærð sem
við erum lika með. Þannig
að þeir hafa orðið að fá
verulegt magn glerja frá
okkur", sagði örn.
Þá sagði hann að i siðustu viku
hefði ölgerðin sentbil til að sækja
300 plastkassa í Sanitas. í þeim
hefði ekki verið éin einasta
flaska, þannig að auðsætt væri
hverjir fengju gler frá hverjum.
Sanitas notar sams konar gler og
ölgerðin bæði undir öl og gos -
drykki.
örn Hjaltalin sagöi að auglýs-
ingakostnaður hjá ölgerðinni
væri svona tvö til þrjú prósent af
söluverði drykkja. „Ég gæti trúað
aö kostnaðurinn væri svona á
milli 15 og 20% hjá þeim”.
Vaninn er sá að móðurfyr-
irtækin erlendis borgi fyrir
auglýsingar i hinum ýmsu lönd-
um. „Það er lika skitt”, sagöi örn
„að viö þurfum aö standa undir
öllum kostnaði við gerð auglýs-
ingamynda á meöan að hinir fá
myndir innfluttar á engu verði,
svo aðstöðumunurinn er gifur-
legur”.
örn sagði að lokum, aö öl-
geröin héldi sinum velli á öl- og
gosdrykkjamarkaðnum, og væri
framleiðslan frekar að aukast en
hitt.
— óg.
Hjá gosdrykkjaframleiöendum
er allt við sama heygarðshorniö.
Klögumálin ganga á vixl. Nú hef-
ur Sanitas kært ölgerðina og
Vifilfell fyrir atvinnuróg.
1 fréttatilkynningu, sem
Sanitas afhenti á blaöamanna-
fundi i fyrradag, segir að sam-
keppnisaðiljarnir hafi sent frá sér
„niðrandi auglýsingar um
Sanitas, vegna
Þjóöhátiðarinnar”. Enn fremur
að ölgerðin hafi hafiö
„ófrægingarherferð á hendur
Sanitas á heldur ósmekklegan
hátt i öllum fjölmiðlum”. A
blaðamannafundinum sögðu for-
stjórar Sanitas, þeir Ragnar
Birgisson og Páll Jónsson, aö
þessu hefðu fylgt gróusögur og
kjaftasögur jafnvel af persónu-
legu tagi.
Pétur Björnsson, forstjóri
Vifilfells, sagði aö þeir hefðu
einfaldlega hlegið hjá Vifilfelli,
þegar þeir lásu blööin i gærmorg-
un, þvi fréttirnar um njósnir væru
svo fjarstæðukenndar. Pétur
sagði að slikt væri einfaldlega
alltof dýrt — þó ekki kæmi annaö
til. Sagði Pétur aö þeir hjá
Sanitas væru að þyrla upp mold-
viðri sennilega til þess aö auglýsa
betur upp framleiðslu sina. Þá
sagði Pétur, að Sanitas þekkti
ekki muninn á einokun og sam-
keppni, en meö einokun næði einn
markaðsaöili undir sig markaðin-
um og ýtti samkeppnisaöiljum
sinum út af honum. Það væri
Sanitas aö reyna að gera.
Að lokum sagði Pétur, aö
Kóka-kóla menn hefðu ekki oröið
varir við samdrátt i sölu á sinni
framieiöslu. Að visu væru ekki öll
kurl komin til grafar enn i þeim
efnum, þvi skýrslur um fram-
leiðslu og sölu gosdrykkja og öis
liggja ekki fyrir.
— óg.