Þjóðviljinn - 28.08.1981, Side 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 28. ágúst 1981
DJOÐVIUINN
Málgagn sósfalisma, verkalýds-
hreyffingar og þjóðfrelsis
Otgefandi: Utgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann.
Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan
Ólafsson.
Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir
Umsjónarmaöur sunnudagsblaös: Þórunn Siguröardóttir
Afgreiðslustjóri: Valþór Hlööversson
Blaöamenn: Álfheiöur Ingadóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir,
Kristin Ástgeirsdóttir, Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórs-
son.Jón Guöni Kristjánsson.
tþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson.
Otlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Björn Br. Björnsson .
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Eliasson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar.
Auglýsingar: Unnur Kristjánsdóttir
Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir, Jóhannes Harðarson.
Afgrciðsla: Kristin Pétursdóttir, Bára Sigurðardóttir.
Simavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir.
Bilstjóri: Sigrún Bárðardóttir.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns-
dóttir.
Útkeyrsla, afgreiösla og auglýsingar: Sföumúla 6,
Keykjavik, simi 8 13 33.
Prentun: Blaöaprent hf..
Gjörbreytt
stefna
• ( upphafi þessa árs var horf ið frá þeirri gengissigs-
stefnu sem á árinu 1980 leiddi til um 54% hækkunar á
meðalgengi erlendra gjaldmiðla gagnvart íslensku krón-
unni. Auðvitað var öllum Ijóstað genginu yrði ekki haldið
óbreyttu út árið meðan áætlað var að verðgildi krón-
unnar rýrnaði um 40% á árinu af völdum verðbólgu. En
eftir að nærri átta mánuðir voru liðnir af árinu var
meðalgengi krónunnar aðeins 3.85% lægra en það var í
upphafi árs að því er Seðlabankinn upplýsir. Gengis-
breytingin nú er aðeins smávægileg, um 5% og Seðla-
bankinn hyggst halda því stöðugu út árið. Allir mega því
sjá að hér hafa orðið snögg umskipti í gengisstefnunni.
0 Einn af sérfræðingum Þjóðhagsstofnunar lýsir
áhrifum gengisbreytingarinnar með þessum orðum í
Tímanum: „Þessi gengislækkun kemur mjög seint á ár-
inu, og þaö líða alltaf nokkrir mánuðir áður en öll áhrif
hennar á verðlagið verða komin fram. Þó verður lang-
stærstur hluti áhrifanna kominn fram fyrir áramót. En
þetta er þaö litil lækkun aö áhrifin á framfærsluvísitöl-
una verða ekki umtalsverð. Miðað við óbreyttar horfur
þá verður verðbólgan á bilinu 40% fyrir þetta ár í heild".
• Þröstur Ólafsson hagfræðingur ritaði grein í Þjóð-
viljann fyrir nokkru þar sem hann lýsti þeirri grund-
vallarbreytingu sem átt hef ur sér stað í þessum ef num.
Hann sagði m.a. að eftir að gengissig- og hrun var
stöðvað hafi batnandi ytri skilyrði skilað sér sem aukin
hagsæld til þjóðarinnar, i stað þess að valda efnahags-
legum glundroða eins og reyndin var áður.
• Hinsvegar lýsir Þröstur reynslu síðustu tveggja ára-
tuga, sem hagfræði Sjálfstæðisflokksins og Alþýðu-
flokksins, mótaði m.a. með þessum orðum:
„ Eftir að islenskt hagkerf i var opnað upp á gátt af við-
reisnarstjórninni 1959/60 og gengisbreyting íslensku
krónunnar orðin aö einni allsherjar patentlausn allra
efnahagslegra umsvifa, fór að halla verulega undan fæti
i allri efnahagslegri stjórnun, þrátt fyrir góð ytri skil-
yrði. Mannlegri hugsun og skipulegu aðhaldi var fórnað
á altari skefjalausra markaðsafla.
• Ef litið var til verðbólgunnar, þá,skípti það engu
máli, hvort ytri skilyrði voru hagstæð eða ekki. Þegar
aukning varð á útf lutningstekjum jókst peningamagn og
tekjur sem leiddi til enn meiri þenslu og spennu í hag-
kerfinu. Þegar samdráttur átti sér stað, var gengið fellt
og sömu þensluáhrif f ramkölluð á þann hátt. Með nokk-
urri einföldun má því segja að alltaf hafi árað illa undir
slíkri efnahagsstjórn, hvort sem ytri skilyrði voru okkur
hagstæð eða ekki. Búið var að eyðileggja stýrisbúnaðinn
og skútuna rak stjórnlaus undan veðri og vindum".
• Vilmundur Gylfason alþingismaður hefur löngum
vitnaðtil viðreisnaráranna sem hinnar gullnu aldar í ís-
lenskum stjórnmálum, og Alþýðuflokkurinn hefur undir
stjórn nýkrata verið á langri leið í íhaldsfaðminn á ný.
Það heyrir því til tíðinda þegar dr. Kjartan Jóhannsson
oddviti nýkrata gefur gengisfellingarstefnu viðreisnar-
áranna hina verstu einkunn í einu af málgögnum Al-
þýðuf lokksins. Hann virðist vera komin á sömu skoðun
og Þröstur Ólafsson þó að það haf i verið ein helsta krafa
Alþýðuf lokksins í stjórnarmyndunarviðræðum 1978 að
gengið yrði rækilega fellt. Á því strönduðu viðræður
undir forystu Benedikts Gröndals á sínum tíma. En nú er
komið annað hljóð í strokkinn. Heyr boðskap dr. Kjart-
ans:
• „Gengisfelling flokkast auðvitað ekki undir neins
konar efnahagsaögerð. Hún er einfaldlega og eingöngu
afleiöing af þvi, aö ríkisstjórnin hefur ekkert aðhafst i
tæka tið til þess að hafa stjórn á efnahagsmálunum".
Þetta eru verðug eftirmæli um stefnu Alþýðuf lokks og
Sjálfstæðisf lokks í nær 12 ára samstarf i. Stefnan var að
mati dr. Kjartans að aðhafast ekkert f yrr en of seint.
— ekh
klippt
Vor á hausti
Anders Hansen annar tveggja
höfunda Valdatafls í Valhöll rit-
ar hástemmda grein um veöur-
fræöi i Sjálfstæöisflokknum i
Morgunblaöiö I gær. Þaö er eftir
ööru aö árstiöarsveiflur þar i
sveit fylgja ekki venjulegu is-
lensku veöurfari heldur lúta
ókennilegum lögmálum. „Þaö
vorar f Sjálfstæöisfiokknum”
rétt i þann mund þegar nú er
komiö hrimkalt haust, og horfin
sumarbliöa i náttúrunni. Raun-
ar er þetta vor upprunniö i
Heimdalli og á þaöan aö breiöa
birtu og yl og bræöa kaldan
klaka um allan Sjálfstæöis-
flokkinn. Niöurstaöa þessara
vorleysinga á samkvæmt
kokkabókum Anders Hansen aö
leiöa til kjörs Daviös Oddssonar
sem borgarstjóra og Friöriks
Sophussonar sem varafor-
manns Sjálfstæöisflokksins.
Vetur að vori
Vorleysingar geta veriö viö-
sjárveröar. Sérstaklega þegar
þær veröa á haustin. Sumariö
mun þvi væntanlega standa i
Sjálfstæöisflokknum fram undir
jól, en þegar ihaldiö kýs borgar-
stjóra I vor veröur þaö i fimbul-
kulda flokksvetrar og langt til
vors. Þaö munu þvi margir
Sjálfstæöismenn ganga aö þvi
krókloppnir aö kjósa Daviö
Oddsson. En hversu kalnir sem
þeir veröa á hjartanu viö þá at-
höfn mega þeir minnast oröa
Anders Hansen hirösagnfræö-
ings flokksins og trúnaöar-
manns Morgunblaösins: „Þaö
er nánast heilög skylda hvers
Sjálfstæöismanns aö leggja sitt
af mörkum til aö hann (Davib
Oddsson) veröi kjörinn næsti
borgarstjóri Reykjavikur”.
Klappað
á kollinn
Stuttbuxnadeildin á aö hljóta
ýmsa aöra viröing i vorflóöinu.
Anders Hansen segir aö til nýs
varaformanns Sjálfstæöis-
flokksins verði aö gera „meiri
kröfur en nokkru sinni”. Þess-
vegna kemur aö sjálfsögöu ekki
nema einn til greina: Friörik
Sophusson. Þessi ágæti tals-
maöur leiftursóknar gegn lifs-
kjörum, einn fárra sem skildi
boöskap Geirsarmsins fyrir
vetrarkosningarnar 1979, mun
sóma sér vel viö hliö Geirs.
Og hirðsagnfræöingurinn
klappar góölátlega á kollinn á
minni spámönnum eins og
Matthiasi Bjarnasyni,
Matthiasi A. Matthisen, Styrmi
Gunnarssyni, Ellert B. Schram,
Ragnhildi Helgadóttur og Þor-
steini Pálssyni, og segir aö vist
geti þeir oröiö framtiöarfor-
menn þótt Frikka veröi leyft aö
verma varaformannsstólinn.
Ósköp hljóta þeir aö vera fegnir
aö geta tottað þessa dúsu sér til
hugarhægöar.
Varað við
andvaraleysi
í tilefni af veöurfræöi Anders
Hansen hefur klippara borist
haröorö ályktun frá endurkjörs-
nefnd Geirs Hallgrimssonar
innan Alþýöubandalagsins. Seg-
ir þar m.a.:
„Af gefnu tilefni vill endur-
kjörsnefnd Geir Hailgrimssonar
innan Alþýöubandalagsins
gripa Geir i hönd og vara viö
andvaraleysi Anders Hansen.
Hann segir á einum staö i grein
sinni „Þaö vorar i Sjálfstæöis-
flokknum”: „Ekkert getur
komiö i veg fyrir endurkjör
Geirs Hallgrímssonar, og vissu-
lega væri ódrengilegt aö gera þá
kosningu tortryggilega á ein-
hvern hátt eöa aö neita aö
standa aö baki Geirs eftir lands-
fundinn.”Endurkjörsnefndin er
hjartanlega sammála siöari
hluta málsgreinarinnar en telur
fyrri hlutann bera vott um vita-
vert andvaraleysi.
Kratastœlar
á Mogga?
Þaö heföu liklega fáir búist
viö þvi aö óvin okkar sameigin-
lega málstaöar, Anders, væri aö
finna á siðum Morgunblaösins.
Frekar heföi þvi veriö trúað á
Þjóöviljann, sem sjaldan tekur
skynsamlega á málum. En á
þriöju siöu sama tölublaös
Morgunblaösins og grein þin
birtist I, Anders, getur aö lita
óskýra og daufingjalega mynd
af Geir Hallgrimssyni yfir fyrir-
sögninni „Farþegi frá Luxem-
borg handtekinn meö eiturlyf”.
Enda þótt annaö samhengi komi
fram viö lestur fréttaklausunn-
ar er á allra vitoröi hvernig
Morgunblaöiö notar fyrirsagnir
i pólitiskum áróðri. Hverju er
verið aö læöa inn hjá lesendum
blaösins? Aö Geir Hallgrimsson
sé útlent eiturlyf fyrir Sjálf-
®a
stæöisflokkinn. Eöa á að fara aö '
taka upp Alþýðuflokksaöferðir i I
ásökunum á forystumenn?
Harðorð
mótmœli
Endurkjörsnefnd Geirs Hall- j
grimssonar innan Alþýðu- ,
bandalagsins leyfir sér að mót- i
mæla harðlega þessum sviviröi- |
legu vinnubrögðum Morgun- |
blaösins. Hún beinir þvi einnig ,
til stuöningsmanna málstaöar- i
ins um allt land aö sýna ekki af |
sér slikt andvaraleysi sem |
Anders Hansen með þvi aö telja ,
„aö ekkert geti komiö i veg fyrir i
endurkjör Geir Hallgrimsson- |
ar”. Morgunblaöiö getur svo |
sannarlega gert það meö sinum ,
áhrifamætti ef þaö fær að halda i
áfram á sinni braut. Þaö veröur I
aö stööva ósómann.”
Klippari getur tekiö undir efni ,
þessarar skorinoröu ályktunar, i
þvi þaö er þjóðarnauðsyn aö 1
slikar aöferðir i stjórnmálum
veröi ekki alsiöa I flokkum. Af ,
endurkjörsnefndinni innan Al- i
þýöubandalagsins er þaö helst
að frétta að hún mun nú leita |
hófanna um inngöngu i Lands- ,
samband endurkjörsnefndar |
Geirs Hallgrimssonar i öllum
flokkum. Þaö er skipulagt sam- |
kvæmt góöu og gömlu ráöi: «
„Þaö er sama hvaðan gott kem- I
ur”. — ekh
skorrið