Þjóðviljinn - 28.08.1981, Side 7

Þjóðviljinn - 28.08.1981, Side 7
Þjónustumiðstöð aldraðra Föstudagur 28. ágdst 1981 ÞjöÐVILJINN — StÐA 7 Aðstoð við þá sem vilja hluta- störf Könnun á þörf slíkra starfa fyrir aldraða Meöal þjónustustarfa sem Samtök aldraðra hafa sett sér að sinna er aðstoð við þá, félags- menn og aðra, sem óska cftir og hafa heilsu til að sinna hlutadags- störfum. Er mælst til þess að allir lifeyrisþegar á Reykjavikur- svæðinu, sem áhuga hafa, láti vita, bæði til að hægt sé að reyna að aðstoða þá og eins til að kanna hver raunveruleg staða þessa máls er á svæðinu. Þjónustumiðstöð samtakanna er nýflutt af Skólavörðustignum i hús Brunabótafélags Islands á Laugavegi 103, 4. hæð, en siminn er 26410. Skrifstofaner opin kl. 10- 12 og 13 - 15 virka daga og tekið skal fram, að góð lyfta er i hús- inu. Starfræksla þjónustumið- stöðvarinnar hefur gert mögulegt að sinna margvislegum og tima- frekum verkefnum vegna bygg- ingaframkvæmda samtakanna svo og upplýsinga- og þjónustu- störfum við aldraða. Sjötugs- afmæli A morgun, laugardaginn 29. ágúst verður Guðriður Kristjánsdóttir, Markaflöt 1, Garðabæ sjötug. Hún tekur á móti gestum á hcimili sinu eftir kl. 4 siðdegis. Ensk mál- fræði og æfingar tJt er komin á vegum IÐUNN- AR Ensk málfræði og æfingar eft- ir Sævar Hilbertsson kennara. Bókin er ætluð byrjendum og sniðin við hæfi nemenda I efstu bekkjum grunnskóla og neðstu bckkjum framhaldsskóla. — llöf- undur er enskukennari við Kvennaskólann i Reykjavík. Bók- in hefur að geyma fjölmargar æf- ingar fyrir nemendur og prýdd er hún mörgum myndum sem Berg- Ijót Jakobsdóttir hefur gert. Aft- ast er skrá um heimildir og atrið- isorðaskrá. 136 blaðsiður, Oddi prcntaði. 1 Tökum þetta aftur. Ljósm: — Keth Hinn hreini tónn fæst ekki átakalaust. í fimmta sinn: Tónleikar að loknu Zukofsky-námskeiði Að undanförnu hefur staðið yfirsérstakt námskeið á vegum Tónlistarskólans i Reykjabik. Tilgangur þess er að stefna saman i ár eins og undanfarin fjögur ár ungum tónlistar- mönnum, er kynnast vilja tækni og túlkun samtimatónlistar undir leiðsögn reyndra og viður- kenndra kcnnara. Bandariski fiðlusnillingurinn Paul Zukovsky hefur verið aðalleið- beinandi á námskeiðunum frá þvi þau fyrst hófust, en til liös við hann hafa komið aðrir mikilhæfir kennarar, á siðasta ári t.d. hinn heimsfrægi kana- diski flautusnillingur, Robert Aitken. Er námskeiðin hófust um sumarmál fyrir fjórum árum siðan, skráðust 12-14 tónlistar- menn til þátttöku, að þessu sinni voru þeir u.þ.b. 100 flestir is- lenskir þó margir útlendingar, Evrópubúar og Bandarikja- menn, hafi nú sem endranær slegist i hópinn. „Þessi stórmerka sumar- starfsemi i islensku tónlistarlifi er tveggja vikna þjálíunarnám- skeið i hljómsveitaleik og hafa margiraf okkar efnilegustu tón- listarmönnum tekiö þátt i þvi. 1 gær voru kammer-tónleikar i iþróttasal Hagaskólans á vegum námskeiðsins og á laugardag veröa svo lokatón- leikar námskeiðsins kl. 14:00 i Háskólabió. Eftir viku veröa einnig tónleikar i Háskólabió. Þá leika margir al' þátttak- endum námskeiðsins meö Sin- fóniuhljómsveit islands undir stjórn Zukovskys”, sagði Jón Nordal i viðtali við Þjóðviljann i gær. A dagskrá íyrri tónleikanna, laugardaginn 29. ágúst verða verk eftir Anton Bruckner (1824-1896), Anton Webern (1883-1945) og Paul Hindemith (1895-1963). Á seinni tón- leikunum laugardaginn 5. september verða svo leikin verk eftir Arnold Schönberg (1874- 1951) og Gustav Mahler (1860- 1911). Kringum 100 tónlistarmenn sóttu Zukofskynámskeiöiö. Ljósm: Keth i£U

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.