Þjóðviljinn - 28.08.1981, Síða 11
Föstudagur 28. ágúst 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
3 íþróttir (3 íþróttir (3 íþróttir [J
NM í
badminton
haldið hér
1 nýjasta hefti TBR-frétta-
blaösins kemur fram, aö Noröur-
landamótiö i badminton veröur
hér á landi aö þessu sinni. Nánar
tiltekiö 21-22. nóvember nk. Veröa
þar aö sjálfsögöu margir af bestu
badmintonleikurum Noröurlanda
meöal keppenda.
Ekki er vitaö hvort Morten
Frost og Lene Köppen frá Dan-
mörku, núverandi Noröurlanda-
meistarar, veröi meöal
keppenda. Er þaö einkum vegna
þess, aö hér er um áhugamót aö
ræöa.
A öörum staö i áöurnefndu blaöi
segir frá komu kinversks
badmintonleikmanns, sem koma
mun i september, og starfa viö
þjálfun á vegum BSl næstu sex
mánuöi. Náungi þessi heitir You
Zuorong, og er 31 árs gamall.
You þessi ku vera mjög góöur i
sinni grein, og varö hann m.a.
Kinameistari i tviliöaleik 1978. Nú
er hann þjálfari liös, sem er
margfaldur Kinameistari. Aö
vonum eru badmintonmenn ákaf-
lega ánægöir meö gest þennan, og
ekki siöur aö samstarf hafi tekist
milli þessarra tveggja þjóöa.
Ný 01-
ympiunefnd
Á vorfundi Sambandsráös
Iþróttasambands Islands 1981,
var gengiö frá skipan nýrrar
Ólympiunefndar Islands, er
undirbúa skal og sjá um þátttöku
tslendinga i næstu Ólympiuleik-
um, sem veröa áriö 1984.
A fyrsta fundi hinnar nýskipuöu
Ólympiunefndar var Gisli
Halldórsson kosinn formaöur,
Sveinn Björnsson varaformaöur,
Bragi Kristjánsson ritari, Gunn-
laugur J. Briem gjaldkeri og örn
Eiösson, fundarritari. — Þessir
fimm menn mynda fram-
kvæmdanefnd Olympiunefndar
tslands.
•
Enn eitt met
Guðrúnar
A kastmóti sl. þriöjudag setti
Guörún Ingólfsdóttir enn eitt met
i kúluvarpi. Kastaöi hún kúlunni
14,21 m. og bætti eigiö met um 10
cm.
Ovett með
heimsmet
A frjálsiþróttamóti i V-Þýska-
landi i fyrradag bætti breski
hlauparinn Steve Ovett heims-
metiö i miluhlaupi um þrettán
hundruðustu úr sekúndu. Fyrra
metið átti landi hans Sebastian
Coe. Sá siðarnefndi sagöist ætla
aö bæta heimsmetiö strax i næstu
viku, þegar hann frétti af meti
Ovetts.
Heimsmetstimi Ovetts var
3:48,40 min.
Þorsteinn
heiðurs-
gestur
Þorsteinn Einarsson, sem
nýlega lét af störfum sem iþrótta-
fulltrúi rikisins i fjöldamörg ár,
veröurheiöursgestur á úrslitaleik
Fram og IBV i Bikarkeppni KSl á
sunnudaginn.
KR stendur I mikilli þakkarskuid viö þessa ungu stúlku, en hún hefur veriö á viö margar I Bikarkeppninni undanfarin ár, og safnaö fjöl-
mörgum stigum i sarpinn fyrir féiag sitt. Hér er aö sjálfsögöu átt viö Helgu Halldórsdóttur, sem hér sést i 100 m grindarhlaupi I keppni fyrir
Island.
/
Bikarkeppni FRl um helgina:
Nú verður hún spennandi
NU um helgina veröur Bikar-
keppni FRl 1. deild háö I Reykja-
vik. Keppni hefst á laugardag kl.
14.00 og veröur framhaldiö á
sunnudag kl. 10.00. Bikarkeppni
FRI er nú háð í 15. skipti, en hún
var fyrst haldin 1965. IR-ingar,
núverandi Bikarmeistarar, hafa
oftastoröiö Bikarmeistarar eöa 9
sinnum.KR hefur unniö 4 sinnum
og UMSK einu sinni.
t ár veröa þaö liö fra 1R, KR,
UMSB, FH, KA og Ármanni sem
leiða saman hesta sina. Búist er
við hörkukeppni, og aö baráttan
um efsta sætiö muni standa á
milli tR og KR, en botnbaráttan
vcrði milli FII, Armanns og KA.
UMSB viröist hins vegar nokkuö
öruggt meö þriöja sætiö.
I þessari keppni veröur saman-
komiö flest af besta frjálsiþrótta-
fólki landsins, og má þvi búast viö
góöum árangri og hörkukeppni
eins og áður segir.
Karlagreinar:
1 spretthlaupunum (100 og
200m) má gera ráð fyrir mikilli
keppni milli þeirra Odds Sigurös-
sonar KR, og Siguröar Sigurös-
sonar Armanni og Þorvaldar
Þórssonar 1R.
1 400 metrunum veröa sömu
menn eflaustieldlinunni en Einar
P. Guðmundsson FH kemur þó
vafah'tiö til meö að blanda sér i
baráttuna.
I 800 og 1500 m hlaupunum
veröur keppnin eflaust ekid slöur
spennandi. Gunnar P. Jóakims-
son, sem ekki hefur tapað keppni
hér á landi í sumar, fær nú
verðugan mótherja, þeas. Jón
Diöriksson UMSB, en hann
kemur hingaö frá æfingum er-
lendis, gagngert til aö vera meö i
keppninni. Magnús Haraldsson
FH mun þó að likum velgja þeim
köppum undir uggum, en þessi
piltur hefur sýnt miklar fram-
farir í sumar.
Jón Diöriksson lætur sér ekki
duga aö keppa i 800 og 1500 metr-
unum, heldur veröur hann meðal
þátttakenda i 400 og 500 m hlaup-
unum og 400 m grindahlaupi.
Hvergi banginn kappinn sá. Sig-
uröur P. Sigmundsson FH mun
sjá til þess, að Jón D. hafi fyrir
sigri i 5000 metrunum, og allt eins
vist aö sá siöarnefndi verði að
sætta sig viö annaö sætið.
110 m og 400 m grindahlaupin
ættu þeir Hjörtur Gislason og
Stefán Hallgrimsson KR að vera
nokkuö öruggir með, og hver veit
nema nýttmetliti dagsins ljós hjá
Hirti i 110 m grindahlaupinu.
KR-ingar virðast nokkuö
öruggir meö sigur i boöhlaupun-
um.
I öörum greinum (þe. stökk og
köst) virðast úrslit hins vegar
nokkuð ráöin, og einstakir menn
nokkuö öruggir um sigur. Má þar
nefna Jón Oddsson KR I lang-
stökki, Guömund R. Guömunds-
son FH i hástökki, þó svo Stefán
Stefánsson IRog Jón Oddsson láti
ekki sinn hlut eftir átakalaust.
1 þristökki mætir gamla brýniö
Friðrik Þór 1R og sigrar ef aö lik-
um lætur, og Siguröur T. Sigurðs-
son ætti að fara létt með stangar-
stökkiö. Kannski fáum viö þar
nýttmet?,en herslumuninn hefur
vantaö upp á aö Siguröur færi 5.30
undanfarið.
Hreinn færvarla mikla keþpni i
kúluvarpinu, og sömu sögu er að
segja um Einar Vilhjálmsson
UMSB i spjótkastinu. Erlendur
Valdimarsson 1R ætti aö sigra i
sieggjukasti og kringlukasti, þó
gæti Guöni Halldórsson KR veitt
honum keppni i siöast nefndu
greininni. Þá má geta þess, aö
Óskar Jakobsson mætir til leiks i
spjótkasti.
Kvennagrcinar:
Þar verður keppni ekki siður
spennandi. ömögulegt er aö spá
fyrir um úrslit i spretthlaupum
frekar en fyrr i sumar. Nýi Is-
landsmethafinn i 100 og 200 m
hlaupi, Oddný Arnadóttir 1R
mætir galvösk til leiks, en Helga
Halldórsdóttir KR, sem virðist
vera að ná sér á strik á nýjan leik,
Geirlaug Geirlaugsdóttir Ar-
manni og Sigurborg Kjartans-
dóttir, koma ekki til með aö gefa
neitt eftir.
I 400 m hlaupi veröa sömu
keppendur i sviösljósinu nema
Geirlaug. 1 staö hennar kemur
Sigurborg Guömundsdót’t ir.
Ögerlegt er aö spá um hver þess-
ara stúlkna muní sigra i hlaupinu.
Helga Halldórsddttir virðist
örugg meö sigur i 100 m grinda-
hlaupi. Sömu sögu er að segja
meö Ragnhildi ólafsdóttur FH I
800 og 1500 m hlaupunum.
Langstökkskeppnin verbur
jöfn, og þar berjast tvær stúlkur
um sigur.Helga Halldórsdóttir og
Svava Grönfeldt UMSB.
Þórdis Gisladóttir gerir sjálf-
sagt haröa hriö aö nýju Islands-
meti i hástökki, og slikt hiö sama
er aö segja um Guörúnu Ingólfs-
dóttur KR i kúluvarpi og kringlu-
kasti. Spjótkastinu lýkur væntan-
lega meö sigri Irisar Grönfeldt
eöa Dýrfinnu Torfadóttur FH.
Aö framansögöu má vera ljóst,
að um hörkukeppni veröur aö
ræöa iflestum greinum, og mörg
Islandsmet i lifshættu. Er þvi
fyllsta ástæöa til aö hvetja fólk til
aö fjölmenna á völlinn og horfa á
flest allt okkar besta frjáls-
iþróttafólk i keppni. Nú er hvert
stig dýrmætt.
K/B
Erlendur Valdimarsson ætiar aö hala inn amk. 17 stig fyrir IR I Bikar-
keppninni. Hann ætti aö vera nokkuö öruggur meö sigur I sleggju- og
kringlukasti, og annaö sæti i kúluvarpi.