Þjóðviljinn - 12.09.1981, Page 14

Þjóðviljinn - 12.09.1981, Page 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 12.—13. september 1981 Fullorðinsfrœðsla í öldungadeildunum: Litiö inn i kennslustund I spænsku. Ljósm. — eik —. Heimsókn í Hamrahlíðarskólann: Ingigeröur Guöbjörnsdóttir Ljósm. — eik —. „Allt er fertugum fært”(?) „Öldungar” teknir tali Ljósmyndari og blaöa- maður Þjóðviljans undu sér að nemendum öld- ungadeildar þar sem þeir sátu í anddyri Hamra- hlíðarskólans og biðu þess, að fyrstu kennslustundir skólaársins hæfust. Við spurðum þær stöllur Lilju Schopka 51 ars og Guðrúnu jvars 25 ára fyrst að því, hvað hefði att þeim út í f ramha Idsskólanám, komnum á fullorðins ald- urinn. Lilja: — Ég er einstæö húsmóö- ir meö þrjú börn og þvi er þaö ekki fyrr en nú, þegar þau eru oröin uppkomin, aö ég hef nægar tómstundir til þess aö huga aö framhaldsmenntun. Reyndar byrjaöi ég fyrir löngu slöan i menntaskóla, en varö aö hætta. Guörún: — Ég hætti skólagöngu eftir Gagnfræöapróf og slöan langaöi mig til þess aö mennta- mig meira. Blm.:— Og hvernig gengur námiö, er þaö erfitt? Lilja: — Mér finnst ég vera vel undir þetta nám búin, þó aö ég sé kannski eitthvaö seinni aö fram- kvæma hlutina nú en áöur fyrr. Að ööru leyti finnst mér námiö ekki erfitt þó ég vinni fulla vinnu meö þvl. Mér hefur tekist aö ljúka 77 punktum á tveimur árum. Guörún: — Nei, mér finnst námiö ekki erfitt. Þetta er aöal- lega heimavinna. Þar til fyrir skemmstu vann ég llka með nám- inu, en nú er ég meö nýfætt barn svo ég á síður heimangengt. Mér finnst skipulag námsins við öldungadeildina gott, punkta- kerfið er sniöugt. Þaö er sjö ára tlmatakmark til þess aö ljúka náminu. Blm.í— Hyggiö þiö á háskóla- nám? Lilja: — Ég hef ekkert ákveöið um áframhaldandi nám og læt hverjum degi nægja sina þján- ingu. Guörún: — Ég hef ekkert ákveðiö I þeim efnum. Maöur sér til, annars er ég mest aö þessu að gamni minu. Eftír að hafa tekið tali mæöurn- ar tvær tókum viö aö skima eftir öldungadeildar-karlpening i vlö- áttumiklu anddyrinu en þar voru konur i yfirgnæfandi meirhluta. En leit okkar bar árangur aö lok- um og viö vikumokkur aö Siguröi Ingvarssyni 46 ára og Þorvaldi Halldórssyni 36 ára og spuröum enp, hvaö blési mönnum I brjóst löngun til framhaldsnáms á full- orðinsaldri. Siguröur: — Ég stunda nú reyndar mina vinnu eins og geng- ur og þetta er meira áhugi á aö eyða tlmanum I eitthvaö gagnlegt og ef um áframhaldandi nám viö Háskólann veröur aö ræöa þá veröur þaö ekki til þess aö leita mér aö nýju starfi. Þorvaldur: — Þaö sem beindi mér á þessa braut var Kristin- dómurinn. Ég er nefnilega frels- aöur og huga á nám i guðfræöi viö Háskóiann. Viö njálpumst aö ég og konan mln til þess aö gera mér þetta kleift og vinnum bæði I hálfu starfi. Blm: — A hvaða sérsviði eruö þiö? Finnst ykkur námiö erfitt? Siguröur: — Ég myndi segja, að maður væri seinni aö taka viö sér en venjulegir menntaskóla- krakkar, en þess i mót er maður óneitanlega þroskaöri. Ég er á náttúrufræöi sviöi meö sérstakan áhuga á jaröfræði og lífeölisfræði. 23 punktum er lokiö svo ég er að hefja annan áfanga. Þorvaldur: — Ég finn aö við- horf min hafa breyst og þvi liggur námiö betur viö mér nú en þegar ég var unglingur. Nú hef ég lokiö 22 punktum og legg sérstaka áherslu á tungumálin. Að lokum ónáðuöum viö Ingi- gerði Guöbjörnsdóttur, 30 ára, eitt augnablik þó hún væri orðin of sein i tima, og spuröum hana hvaö fyrir henni vekti meö nám- inu. Ingigerður: — Ég kom frá Kanada i fyrra eftir 12 ára fjar- veru og ætlaöi I ljósmæöraskóla og komst þá að þvi, aö til þess þarf oröið menntun I hjúkrunar- fræöum og hjúkrunarfræöi eru kennd viöHáskólann. Annars má segja, aö þaö sé nokkurn veginn sama hvaö maöur hyggst taka sér fyrir hendur nú til dags, alls staö- ar er krafist stúdentsprófs; — aö lokinni þeirri yfirlýsingu storm- aöi Ingigerður I burt . Ú,r skólaslitarœðu Guðmundar Arnlaugssonar, rektors MH vorið 1972: Stundum er um að ræða gamlan draum „Frá þvl er skólinn hóf starf hef ég orðið fyrir þvi oftsinnis á hverju ári, aö fólk hefur hringt til mln eða komið á skrifstofuna til viötals, þeirra erinda aö spyrjast fyrir um möguleika á þvl aö ljúka stúdentsprófi án regluíegrar setu I menntaskóla. Stundum er um aö ræða gamlan draum, sem ekki gat ræst á sfnum tíma,en hefur orðið áleitnari meö aldrinum, stundum hafa menn rekiö sig á menntunarskortinn sem þröskuld gegn frama I starfi og þar meö bættum lífskjörum, stundum hefur hægt um vik: börnin komin á legg, jafnvel að heiman, ekki þarf lengur aö leggja nótt viö dag til aö koma sér þaki yfir höfuö, tómstundir eru fleiri en fyrr og þá vaknar sú þrá til mennta að nýju er áöur haföi verið kæfö I annrlki. Mig sár- langaöi til aö veröa þessu fólki aö einhverju liöi, þvl aö þaö sjá væntanlega allir, aömeira en litiö átak þarf til þess aö rifa sig upp Guömundur Arnlaugsson. og stunda jafn erfitt nám og menntaskólanám þó er, meö ein- hverri von um árangur — I tóm- stundum og einn, á eigin spýtur. Er ég kynnti mér skólamál vestanhafs fyrir nokkrum árum hreif þaö mig hvaö mest aö sjá hvað þar var gert til þess aö auö- velda fullorönu fólki aö afla sér frekari menntunar. Mér er fátt minnisstæöara frá þessari för en heimsókn i kennslustund hjá þessu fólki, áhugi þess og dugn- aður, en þaö var I reglulegu háskólanámi, gekkst undir sömu kröfur og aðrir, aöeins tók námiö lengri tima eins og eölilegt var. Og ekki aöeins yfirvöld, heldur einnig þau fyrirtæki sem þetta fólk starfaði hjá, styrktu þaö til námsins.”

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.