Þjóðviljinn - 03.10.1981, Blaðsíða 4
J » * I t
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 3. — 4. október 1981
stjórnmál á sunnudegi
Árni Bergmann
Þvi er eldflaugastefnan stundum
túlkuö sumpart sem slóttugheit:
að Frakkar friöi hægraliðiö i
Washington með þessu máli, til
aö geta farið sinni róttækni fram i
friöi á öörum sviöum.
Austrið
og Suðrið
Hér er þó fleira aö skoða. André
Fontaine var i Le Monde á dögun-
um aö velta þessu dæmi fyrir sér:
stjórn Giscards D’Estaings var
eins og mild og hikandi andspænis
Sovétmönnum i Evrópu, en
stundaði heimsvaldasinnaævin-
týri i fyrrverandi frönskum ný-
lendum i Afriku (Tsjad og viöar),
eða þá i Zaire (Kolwesi-leiö-
angurinn). Mitterrand aftur á
móti er hinn grimmasti viö
Rússa. En hann hefur aftur á
móti breytt um stefnu t.d. i Afriku
— hann hefur þegar sýnt að hann
vill ekki láta franskar hersveitir
gegna þar lögregluhlutverki.
Stjórn hans hefur leyft þjóð-
ernissinnum i Namibiu aö opna
skrifstofu i Paris, hann hefur
boöið heim höföingjum róttækra
Afrikustjórna eins og Nyerere i
Tansaniu og Dos Santos frá
Angólu. Og i Rómönsku Ameriku
hefur Mitterrand tekið upp marg-
visleg samskipti viö vinstrihreyf-
ingar,einnigþærsem eðli málsins
samkvæmt hata Bandarikin feins
og pestina — eöa eins og sardin-
Þegar viösjár aukast í
heimi þykir risaveldunum
enn meiri ástæða en ella að
hata aga í sínu liði, breiða
yfir allt það sem vísar á
bresti í samstöðu og heil-
indum í valdablökkunum.
Og þetta gerist vitanlega
einnig á þessum misserum
kaldastríðsláta, eldflauga-
smíða og heiftyrða.
Dasaðir risar
Þó eru risarnir báöir dasaöir
orðnir: þaö er ljóst aö þeir eru
óralangt frá þvi hvor um sig aö
hafa þau tök á „sinum" heims-
hlutum sem þeir höföu upp úr 1950
þegar tviskipting heimsins var
sem mögnuðust.
Sovétrikin eru sem fyrr mikiö
herveldi, en aörir þeir þættir sem
gera mikiö riki aö heimsveldi
hafa rýrnaö stórum. Hiö pólitiska
aödráttarafl þeirra er stórum
minna en fyrr. Þróun sjálf-
stæðrar verkalýöshreyfingar i
Póllandi minnir rækilegar en
nokkuð annað, sem þar i blökk
hefur gerst, á hið mikla djúp sem
staöfest er á milli veruleika og
yfirskinsi flokksræöisrikjum :
við fyrsta tækifæri sem gefst hafa
einmitt verkamennirnir hafnaö
forsjá þeirra sem segjast hafa
byggt upp verkalýösriki. Þessi
Brésjnéf hér og Reagan þar
— en hvar er Mitterrand?
þróun hefur enn aukiö á biliö milli
sovéska kommúnistaflokksins og
ýmissa þeirra hreyfinga sem
hafa viljað reyna aö halda viö þá
„friðsamlegri sambúö” — og er
þá helst aö nefna Kommúnista-
flokk Italiu. Hinn langvinni ófara-
hernaður i Afganistan hefur spillt
stórlega þeirri velvild sem Sovét-
ríkin nutu i verulegum hluta
þriðja heimsins — af þeirri ein-
földu ástæðu, aö þau höfðu veitt
ýmisiegan stuöning þeim hreyf-
ingum og rikjum sem áttu i höggi
við Vesturveldin i sjálfstæðismál-
um sinum.
Og hér viö bætist, aö hjól
sovéskrar efnahagslegrar upp-
byggingar snúa hægar en áöur og
uppskeruhorfur eru ekki betri en
svo, að flokksmenn i Sovétrikjun-
um fá nú að heyra strangan lestur
um ýtrustu nýtni i meöferö mat-
væla.
Óvinur míns
óvinar
Eins og einatt áöur, þá er þaö
ekki hugvit Sovétmanna i þvi aö
koma ár sinni fyrir borö sem
tryggir þeim vini og bandamenn,
heldur kannski fyrst og fremst
heimska bándariskra ráöamanna
eöa þjösnaskapur. Vietnam
veröur áreiöanlega tryggastur
bandamaöur Sovétrikjanna
.meöan Bandarikin halda til
streitu undarlegum stuöningi sin-
um viö leifarnar af stjórn Pols
Pots i Kampútseu. Eins og menn
vita höfðu Bandarikjamenn
manna hæst um þaö, aö einmitt
sú stjórn heföi veriö hin morðóö-
asta i sögunni; samt skal hún sitja
áfram meö umboö Kampútseu
hjá SÞ og viðar, vegna þess aö
þeir i Washington vilja endilega
refsa Vietnömum fyrir ófarir liö-
innar styrjaldar. Annaö dæmi:
Bandarikin stórauka hernaöaraö-
stoö viö Pakistan, meö þeim
óhjákvæmilegu afleiöingum aö
Indverjar leita nánara hernaöar-
Isamstarfs viö Sovétrikin. Þriöja
dæmi: viss velvild Reagan-
stjórnarinnar i garö kynþátta-
kúgarastjórnar Suöur-Afriku
magnar ráöamenn þar syöra upp
til innrásar i Angólu — meö þeim
afleiöingum aö sovésk aöstoð á
ýmsum sviðum veröur enn æski-
legri i Angólu en ella og almenn-
ingsálit i mörgum afriskum
höfuöborgum skemist gegn
Bandarikjunum. Fjóröa dæmi:
eindregnir andstæöingar
Kaddafis i Libýu veröa manna
fyrstir til aö meta opinskáar ýf-
ingar Reagans viö hann á þá leið,
aö þar meö sé verið að kasta hon-
um i faðm Sovétmanna „eins og
Eisenhower fór aö fyrrum viö
Fidel Castro” (Le Monde).
Að tryggja
sér óvini
Þaö er reyndar meö ólikindum
hve lagin Reaganstjórnin hefur
veriö viö þaö, aö koma sér i vand-
ræöi i þriöja heiminum þann tima
sem hún hefur setiö aö völdum.
Eins og oft hefur veriö rakiö hér i
blaöinu hefur þaö veriö meginviö-
horf Haigs utanrikisráöherra og
liösmanna hans, aö öll þau tiðindi
úr þriöja heimi sem koma Banda-
rikjamönnum illa séu runnin
undan rifjum Rússa eða þá Kúbu-
manna — og eftir þvi hafa þeir
vanrækt aö skoöa þau vandamál
á hverjum staö sem hafa gert
haröstjóra, vinveitta Bandarikja-
mönnum, valta i sessi. Þegar svo
reynt er aö fylgja þessum heims-
skilningi eftir meö hörku og
mannalátum, sem eiga aö hressa
viö álit Bandarfkjanna, veröur
árangurinn þveröfugur. Kristnir
mannréttindavinir f Rómönsku
Ameriku veröa ekki sérlega
hrifnir þegar Haig byrjar á ný
vopnasölur til Argentinu með
þeirri réttlætingu, aö hinir ill-
ræmdu stjórnendur landsins
„trú.L á guö”! Þaö er afar hæpinn
ávinningur fyrir lýöræöisoröstir
Bandarikjanna þegar Bush vara-
forseti hrósar spilltum einræöis-
herra Filipsseyja, Marcos forseta
með þvi aö segja „viö metum
mikils viröingu yöar fyrir lýö-
ræöislegum grundvallarreglum
og aöferöum”. Þaö er afar
kyndug aöferö til vinsælda i
Arabaheiminum aö láta jafn
háskalegan ævintýramann og
Begin, forsætisráöherra tsraels,
komast upp meö hvaö sem vera
skal i samskiptum við nágrann-
ana.
Allt í rúst
Newsweek, bandariska viku-
ritiö, stundi mæöulega yfir þessu
öllu á dögunum: blaöið tók
Miö-Ameriku sem dæmi, og sagöi
aö þar væri bandarisk stefna i
rústum. Tilraunir til aö setja
jfnahagslegar þumalskrúfur á
hina róttæku stjórn Nicaragua
leiöa eins og vænta mátti ekki til
annars en þess, að hún færist
lengra til vinstri. I Guatemala vill
stjórn Reagans gjarna hjálpa
stjórn Romeos Lucas García til
aö berja niöur róttækar skæru-
liöahreyfingar, en neyðist til aö
fara meö veggjum nokkuö i þvi
efni, þvi einmitt stjórn
Guatemala er illræmdari flestum
öörum fyrir morö og misþyrm-
ingar á andstæöingum af öllu
tagi. Reaganstjórnin byrjaöi á
þvi aö gera borgarastriöiö i E1
Sajvador aö vettvangi fyrir upp-
gjör viö heimskommúnismann:
vaxandi hernaöaraöstoö viö
stjórnina þar hefur ekki boriö til-
ætlaöan árangur, skæruliöafylk-
ingunni hefur vaxiö ásmegin — og
þaö sem allmiklu skiptir i viöara
samhengi: ýmsir þeirra sem eru
bandamenn Bandarikjanna and-
spænis hinum risanum hafa gert
sér E1 Salvador aö tilefni til aö
andæfa stefnu þeirra i Washing-
ton i þriöja heimi. Stjórnir
Mexikó og Frakklands, hafa
gengiö fram fyrir skjöldu og
viðurkennt hina róttæku and-
stööufylkingu i E1 Salvador sem
pólitiskt afl meö viötæku umboði.
Newsweek hefur þaö fyrir satt aö
embættismenn i Washington séu
firnareiöir Frökkum og Mexikön-
um fyrir þessa óæskilegu af-
skiptasemi.
Og svo eru þaö innanlandsmál-
in sem ekki bæta stöðuna: at-
vinnuleysið er yfir 7%, verka-
menn marséra um Washington i
hundruð þúsunda tali til aö mót-
mæla niöurskuröarstefnu Reag-
ans, fjármálamenn eru heldur
ekki hressir meö peningastefnu
Reagans. Og siöast en ekki sist
höfum viö i huga, þegar dregiö er
saman yfirlit um stööu risanna,
hinn mikla urg sem er i Evrópu-
búum yfir áframhaldandi upp-
byggingu eldflaugakerfa: um þaö
mál hefur margt komiö fram hér i
blaöinu aö undanförnu.
Frakkar og
eldflaugar
Þegar reikningar risanna
ganga ekki upp er þeim mun
meiri ástæöa til aö skoöa fram-
göngu þeirra stjórna sem reyna
aö skapa sér nokkra sérstööu á
milli þeirra — og eölilegt aö menn
spyrji fyrst og fremst um Frakk-
land. Frakkland Mitterrands,
sem styöur uppreisnarfylkingu i
Miö-Amerikuriki (og er fátt um
þaö sagt i Morgunblöðum) og fer
á hinn bóginn mjög haröri gagn-
rýni um sovéskar eldflaugar
meöaldrægar (og veröur af mikill
fögnuður í Morgunblööum).
Hvernig á aö skilgreina utan-
rikisstefnu sem einkennist af
þessum dæmum tveim, sem nú
voru nefnd?
Til munu þeir, sem minna á, aö
þegar Mitterrand og Cheysson
utanrikisráöherra hans, tala
svipuöu máli um eldflaugabúnað
Sovétmanna i Evrópu og þeir
Reagan og Helmut Schmidt, þá
kosti þaö Frakka sjálfa svo sem
ekki neitt. Þeir eru utan viö hern-
aðarsamstarf Nató, þaö eru ekki
þeir sem ætla aö taka viö
Pershingeldflaugum á frönsku
landi, það er alls ekki á dagskrá.
urnar hata hákarlinn. Þessar
áþreifingar ná einnig til Fidels
Castro, þess manns sem Alex-
ander Haig hatar eins og pestina.
Slökun
Greinarhöfundur Le Monde
segir á þá leiö, aö meö þvi aö sýna
vinskap ýmsum þeim I þriöja
heiminum sem hafa i ýmsum
greinum átt samleið meö Sovét-
rikjunum (ekki sist vegna
árekstra viö Bandarikin) vilji
hann „slá grasiö undan fótum”
Sovétmanna, og um leið skora á
hólm heimsmynd manna eins og
Reagans. Sú áhersla sem stjórn
Mitterrands leggi á möguleika
„Subursins” til sjálfstæörar þró-
unar sé bæöi eðlilegt framhald af
þeim samstööukröfum með fá-
tækum þjóöum, sem hafa verið
sterkar meöal sósialista, og svo
viðurkenning á þvi, aö hér sé um
aö ræöa eina grundvallarfor-
sendu fyrir þvi, aö hægt sé að
koma á slökunarstefnu sem risi
undir nafni. Meö öörum orðum:
aö samskipti „Noröurs og Suö-
urs”, viöskipti öflugra iönrikja
við þriöja heiminn, einkennist af
öðru en þvi, aö stórveldi I leit aö
stuöningi og bandamönnum séu á
vixl aö dreifa eldspýtum I heimi
fullum meö sprengiefni.
Hér mætti og bæta viö athuga-
semd sem lýtur aö haröri gagn-
rýni Mitterrands á Sovétríkin i
Evrópu: þarer einnig um ab ræöa
viðleitni til aö tryggja aöra mögu-
leika i þróun samfélaga en þa
sem ákveöst af samspili risanna
tveggja. Fyrrnefnd gagnrýni er
ekki sist tengd áhyggjum af Pól-
landi, af hugsanlegri ihlutun Sov-
étmanna þar. Franskir vinstri-
sinnar vita, aö möguleikar þeirra
á sókn á brautum „fransks sósial-
isma” eru mjög tengdir viö þaö,
hversu þaö gengur aö fylgja eftir
„ööruvisi” þróun i þýðingarmiklu
riki i austurblökkinni. Hvenær
sem risarnir beita hervaldi sinu,
hvort sem væri i Vietnam eöa Af-
ganistan, Mið-Ameriku eöa Pól-
landi, þá er veriö aö frysta vonir
um tilraunir, umbætur, framfarir
og lýöréttindi á stórum svæöum
— og þoka svo okkur öllum nær
hengiflugi gjöreyðingarstiös.