Þjóðviljinn - 08.10.1981, Side 3
Fimmtudagur 8. október 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Forseti íslands heldur utan:
Opinber heimsókn til
Noregs og Svíþjóðar
Ahrif gengisbreytinga EBE:
Dýrara að kaupa
íslenska fiskinn
Vigdis Fiimbogadóttír, forseti
islands fer i opinbera heimsókn
til Noregs og Sviþjóöar ilok þessa
mánaðar en opinberri heimsókn
forsetans til Finnlands hefur ver-
ið frestað vegna veikinda Kekk-
onens Finnlandsforseta. Til Nor-
egs heldur forseti miðvikudaginn
21. október og dvelur þar i boði
Ólafs Noregskonungs til föstu-
dagskvölds 23. október. Til Stokk-
hólms heldur forseti siðan að
morgni mánudagsins 26. október
og dvelst þar í boði Karls Svia-
konungs til fimmtudagsins 29.
október. 1 fylgdarliði forseta
verða m.a. Ólafur Jóhannesson
utanrikisráðherra og Hörður
Iiclgason ráðuneytisstjóri i utan-
rikisráðuneytinu og mun ólafur
ræða við utanrikisráðherra Nor-
egs 22. október og utanrikisráð-
herra Svía 27. október.
Þetta er i þriðja sinn sem for-
seti tslands fer i opinbera heim-
sókn til Noregs og Sviþjóðar. As-
geir Asgeirsson þáði boð Noregs-
konungs i jiini 1955 og Sviakon-
ungs i apri'l 1955 og dr. Kristján
Eldjárn fór i opinbera heimsókn
til Noregs og Sviþjóðar imai 1971.
1 fylgdarliði forseta verða Ólaf-
ur Jóhannesson, utanrikisráð-
herra, Dóra Guðbjartsdóttir,
Hörður Helgason, ráðuneytis-
stjóri, Sarah Helgason, Halldór
Reynisson, forsetaritari, Guðrún
Björnsdóttir og Vigdis Bjarna-
dóttir, fulltrúi á forseta skrifstof-
unni. Dagskrá heimsóknanna er
sem hér segir:
Noregur 21. - 23. október
Miðvikudaginn 21. október
kemur forseti og fylgdarlið til
Oslóborgar með Flugleiðavél og
Finnlandsför
frestað um sinn
taka Ólafur Noregskonungur,
Haraldur krónprins og Sonja
krónprinsessa á móti þeim á
Fornebu flugvelli. Þaðan verður
ekið tíl konungshallarinnar þar
sem forseti mun búa meðan á
'heimsókninni stendur. Eftir há-
degisverð þar leggur forseti
blómsveig að minnisvarða um
Norðmenn sem féllu i siðari
heimsstyrjöldinni. Sfðdegis tekur
forseti á móti forstööumönnum
sendiráða ikonungshöllinni i Osló
og um kvöldið heldur Noregskon-
ungur veislu i höllinni til heiðurs
fcrseta tslands.
A fimmtudaginn mun forseti
m.a. skoða Vikingaskipasafnið á
Bygdö og Heine-Onstad listasafn-
ið á Hövikodden, þiggja hádegis-
verðarboð Oslóborgar i' ráðhúsi
borgarinnar og taka á móti Is-
lendingum búsettum i Noregi.
Um kvöldið heldur rikisstjórn
Noregs veislu til heiðurs forseta
Islands i Akerhus kastala.
Föstudaginn 23. október mun
forseti m.a. heimsækja Hade-
lands glerverksmiðjuna utan við
Osló, sækja leiksýningu fatlaðra
barna á Kardimommubænum
eftir Thorbjörn Egner og um
kvöldið heldur Vigdis siðan veislu
Noregskonungi til heiðurs á
Grand Hotel og lýkur þar með
hinni opinberu heimsókn til Nor-
egs.
Sviþjóð 26. - 29. október
Flugvél Flugleiða flytur forseta
ásamt fylgdarliði frá Osló til Ar-
landa flugvallar i Stokkhólmi ár-
degis á mánudagsmorgni 26.
október. Þar munu ýmsir em-
bættismenn taka á móti gestun-
um og fylgja þeim til Artiller-
garden þar sem sænsku konungs-
hjónin taka á móti forseta. Þaðan
verður siðan ekið i opnum skraut-
vögnum til konungshallarinnar
þar sem fram fer móttökuathöfn
og snæddur verður hádegisverö-
ur. Siðdegis mun forseti m.a.
skoða vikingasýninguna i Histor-
iska Museet, taka á móti for-
stöðumönnum sendiráða i' Stokk-
hólmi og um kvöldiö sitja veislu
sænsku konungshjónanna i kon-
ungshöllinni.
A þriðjudeginum mun forseti
m.a. heimsækja þinghúsið i
Stokkhólmi og Konunglega bóka-
safnið, snæða hádegisverö i boöi
Stokkhólmsborgar og skoða
Vasaskipið. Siödegis tekur forseti
siðan á móti Islendingum búsett-
um i Sviþjóð og um kvöldið heldur
hún veislu til heiðurs konungs-
hjónunum á Grand Hotel.
A miðvikudeginum heimsækir
forseti Uppsali, skoðar háskól-
ann, og dómkirkjuna og hittir ís-
lendinga sem búsettir eru i borg-
inni. Hádegisverður verður
snæddur í Uppsalahöll og um
kvöldið býður sænska rikisstjórn-
in forseta Islands á leiksýningu á
tveimur einþáttungum eftir
Strindberg i Kungliga Drama-
tiska Teatern.
Opinberri heimsókn forsetans
til Sviþjóðar lýkur svo árla næsta
morgun og verður þá haldið
heimleiðis um Kaupmannahöfn.
— AI
Nýveriö var gengi gjaldmiðla I
Efnahagsbandalagslöndunum
breytt þanuig að þýska markið og
hollenska gyllinið hækkuðu. Sam-
timis lækkaði franski frankinn,
italska liran, portiigalska escotið
og fleiri gjaldmiðlar. Sigurður
Haraldsson hjá Sölusambaudi
fiskframlciðenda sagði að þessar
breytingar gætu haft talsverð
áhrif fyrir sölusambandið. Mikiö
er selt af saltfiski til ttaliu og
Portúgals en sölusamningar eru
gerðir idollurum viö kaupendur i
þessum löndum. Hins vegar eru
söltuð ufsaflök seld til Þýska-
lands og eru þeir samningar
gerðir I þýskum mörkunt.
Umþað bil98% af þvi'sem Sölu-
sambandið semur um söluá er
greitt i dollurum. Þróunin undan-
farið hefur verið sú að gjaldmiðl-
ar viöskiptamanna okkar hafa
orðið undan aö láta i viðskiptum
við dollarann sem hefur styrkst
jafnt og þétt. Þeir verða væntan-
lega að velta meiri fjármagns-
kostnaði yfir á vöruveröiö, svo
hætt er viö aö fiskurinn hækki i
verði fyrir neytendur i þessum
löndum, sagöi Sigurður Haralds-
son hjá Sölusambandi fiskfram-
leiðenda.
— óg.
NÁMSKEIÐ
Framhaldsmenntun — Símenntun
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur hefur gert samkomulag viö Stjórnunarfélag íslands um námskeiöahald fyrir félagsmenn VR.
Markmið námskeiöanna er aö miöla þekkingu á nýjum og heföbundnum aöferöum viö störf í verzlunum og á skrifstofum.
Þátttakendur eiga kost á aukinni menntun og geta aflað sér fræöslu um tæknilegar framfarir á sviöum verzlunar og viðskipta.
Fræöslusjóöur VR mun greiöa þátttökugjald félagsmanna sinna, og skal sækja um þaö á skrifstofu VR. Þátttöku í námskeiöunum
skal tilkynna til skrifstofu Stjórnunarfélags íslands
EFTIRFARANDI NÁMSKEIÐ HAFA VERIÐ ÁKVEÐIN:
1. Afgreiðslustörf og
þjónustustörf:
Þetta námskeið býður upp á yfirferö
yfir ýmsa hagnýta þætti afgreiðslu-
starfa, s.s. kassastörf, verömerk-
ingar, vörutalningu, vöruþekkingu,
ný tækni o.fl.
Tími: 22., 23. og 26. okt. 1981 kl.
14.00-18.00.
2. Bókfærsla I:
Hér er um að ræða kennslu í undir-
stöðuatriöum bókhalds og hvernig
megi nota bókhaldsniöurstööur
sem eitt af tækjum í heilbrigðum
rekstri.
Tímí: 10.—13. nóv. 1981, kl.
13.30—18.30.
3. Bókfærsla II:
Framhald af Bókfærslu I. Megin-
áherzla lögö á rekstraruppgjör eg
verklegar æfingar.
Tími 30. mars — 2. apríl 1982, kl.
13.30—19.00.
4. Ritaranámskeiö:
Markmiðiö er aö auka hæfni ritara
viö skipulagningu, bréfaskriftir,
skjalavörzlu og almenn skrifstofu-
störf.
Tími: 22.-24. febrúar 1982, kl.
14.00—18.00.
5. Símanámskeið:
Hér er um mikilvægan þátt aö ræöa
í mannlegum samskiptum svo og
vérður hér fjallaö um ýmsa þætti
nýrrar tækni í símamálum.
Tími 13.—15. okt. 1981,
kl. 9.00—12.00.
6. Sölumennskunámskeið:
Á þessu námskeiði veröa kennd
ýmis þau atriði, sem sölumenn
þurfa aö tileinka sér til aö ná sem
beztum árangri í starfi.
Tími 2.-4. nóv. 1981,
kl. 14.00—18.00.
7. Tollskjöl og
verðútreikningar:
Markmiðið er aö auka þekkingu
þeirra, er vinna viö innflutning. i því
skyni stuöla aö bættum vinnu-
brögöum við veröútreikninga og
frágang tollskjala.
Tími 10.—13. nóv. 1981,
kl. 9.00-12.00.
8. Útflutningsverzlun:
Hér er fjallaö um gerö og frágang
útflutningsskjala, svo og innlend
ákvæöi og erlend um vöruflutninga
milli landa.
Tími: 3.-5. des. 1981,
kl. 15.00—19.00.
9. Skrifstofuhald og
skrifstofuhagræðing:
Námskeiöið veitir fræðslu um
skipulag og hagræðingu á skrifstof-
um, einnig um nýja skrifstofutækni,-
sem veriö er aö taka í notkun.
Tími: 26.-28. okt. 1981,
kl. 14.00—18.00.
10 ■ Vinnuvistfræði:
Hér verður fjallað um vinnuum-
hverfi, vinnuaðstæöur og öryggis-
mál á vinnustöðum. .
Tími: 16.—18. marz 1982,
kl. 14.00—18.00.
Námskeiðin verða öll haldin í fyrirlestrasal Stjórnunarfélags íslands, Síðumúla 23, 3. hæð.
Námsgögn eru lögð fram í upphafi námskeiðs af Stjórnunarfélagi íslands.
Námskeiðunum lýkur með afhendingu viðurkenningarskjala.
Nánari upplýsingar er aö fá á skrifstofu Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, Hagamel 4,
síma 26344 og skrifstofu Stjórnunarfélags íslands, Síöumúla 23, í síma 82930.
VERIÐ VIRK
iVR
W