Þjóðviljinn - 08.10.1981, Side 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 8. október 1981
Rœtt við Ásmund Stefánsson,
forseta ASÍ, nýkominn af
þingi Samstöðu i Póllandi
Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambands
tslands er nýkominn heim frá Póllandi, þar sem
hann og Björn Þórhallsson, varaforseti ASt voru
boðsgestir á þingi Samstöðu, hinna óháðu verka-
lýðssamtaka Póllands. Þeir félagar sátu þingið i 3
daga og flutti Ásmundur þar ávarp. Þeir áttu þvi
kost á því að hlýða á ræður þingfulltrúa og eins hinu
að ræða við foringja samtakanna, Lech Walesa.
Þjóðviljinn átti viðtal við Ásmund um þessa ferð og
bað hann segja frá þvi sem honum þótti athyglis-
verðast og hvernig þing Samstöðu kom honum fyrir
sjónir.
— Það sem mér þótti mest
áberandi, þessa 3 daga sem við
sátum þingiö, var hve mikill
kraftur er i fólkinu og hve þörf
þess til að tjá sig og koma sjónar-
miöum sinum á framfæri var
orðin brýn. Þetta fólk hefur ekki
fyrr átt þess kost að segja hug
sinn allan opinberlega og senni-
mönnum á viðskiptasamninga
Póllands og Sovétrikjanna, þeir
samningar væru Pólverjum dýr-
ari en flest annað. Bentu menn á
að Pólverjar fengju allt of litið
fyrir þá vöru sem þeir flytja til
Sovétrikjanna, vörur þær sem
þeir fengju i staðinn væru alltaf
minna virði en þær sem Pólverjar
Asmundur Stefánsson forseti ASI ávarpar þing Samstöðu i Gdansk.
Fólk óttast meira hungur-
vofuna en innrás Sovétmanna
flyttu til Sovétrikjanna. Þá var
einnig á það bent, aö mikið af
þeim erlendu lánum sem Pólverj-
ar neyddust til að taka, væri
notað til þess að framleiða vörur
sem siðan væru fluttar beint til
Sovétrikjanna og skiluðu ekki
arði. Maður varð var við þunga
undiröldu óánægju gagnvart
Sovétrikjunum, sem við myndum
einfaldlega kalla þjóðfrelsisbar-
áttu.
fólk mætti ekki vanmeta and-
stæðinginn, hann gæti hæglega
komið á neyðarástandi, eins og
stendur i enska textanum i
þýðingu ræðunnar, en þegar þetta
var túlkað fyrir okkur á þinginu,
var sagt hungur. Það er sem sé
greinilegt að fólk óttast að vera
svelt til hlýðni við stjórnvöldin.
— Uröuö þið varir við vöru-
skortinn, þessa 4 daga sem þiö
dvölduð i Póllandi?
Agreiningur
— Fréttir hafa borist af þingi
Samstöðu um að ail mikill ágrein-
ingur sé milli aðal manna sam-
takanna, uröuð þið varir við
þennan ágreining á þinginu?
— Já, við urðum það, enda er
hann afar áberandi. Lech Walesa
er úr hópi hinna hófsömu, en
margir aðrir af toppmönnunum
Lech Walesa á þingi Samstöðu á dögunum, oröinn örþreyttur að sögn Ásmundar Stefánssonar.
lega vegna þess áttu sér stað um-
ræður á ákaflega breiðum grund-
velli. Eins var áberandi hve
margir fundu þörf hjá sér að taka
til máls. Einmitt þess vegna hef-
ur þinghaldið tekið svo langan
tima, sem raun ber vitni. Þó er
ræðutimi manna takmarkaður
viö 5 minútur, en takist mönnum
ekki að ljúka máli sinu á þeim
tima, er það borið undir þing-
heim,hvortleyfa eigi viðkomandi
að halda áfram og oft er það leyft,
en ekki alltaf.
Lýðræði og
valddreifing
— Hvað var mest áberandi i
málflutningi manna sem þið
hlustuðuö á?
— Það sem mér þótti mest
áberandi i málflutningi manna
var umræðan um lýðræði i land-
inu og dreifingu valdsins. L jóst er
að fólk rekur sig á vegg flokksins i
öllum málum og þvi er mikið um
þessi mál rætt, jafnvel meira en
um kaup og kjör. Krafan um lýð-
ræðislegar kosningar i landinu er
einnig mjög hávær, sem vonlegt
er.
— Virtist þér sem menn hefðu
áhuga fyrir þvi aö gera Samstöðu
að pólitiskum flokki, ef kosningar
yrðu leyfðar?
— Nei, alls ekki. Samstaða
ætlar sér sama hlutverk og sam-
tökin hafa nú, að vera samtök
verkalýðsins i landinu.
Vonlaus
miðstýring
— Nú berast fréttir um að
skortur á öllum vörum hafi aldrei
veriö meiri I Póllandi en um þess-
ar mundir, var ekki mikiö rætt
um þau mál?
— Vissulega var mikið um þessi
mál rætt og menn virtust á einu
máli um að hann stafaði af von-
lausri miðstýringu, sem væri i
höndum manna sem ekki ráða við
miöstýringuna. Skipulag allt
virðist vera i molum og heyrði
maður margar sögur þvi til stað-
festingar. Nú er til aö mynda
skortur á sigarettum og sögðu
menn að nóg væri til af tóbaki, en
þá vantar pappirinn utan um það
til að búa sigarettur til. Varahluti
vantar i vélar sem bila og öll
framleiðsla i viðkomandi verk-
smiöju stöðvast fyrir bragðið.
Menn sögðu að öll framleiðsla i
landinu truflaðist meira og minna
vegna skipulagsleysis á öllum
sviöum.
— Hörð gagnrýni kom fram hjá
Óttast
hungursneyð
meira en innrás
— Allt frá þvi að Samstaöa var
mynduö og fór að iáta til sin taka
hefur veriö mikið rætt um hætt-
una á sovéskri innrás i Pólland,
virtist þér sem fóik óttaðist mikið
að til slikrar innrásar kynni að
koma?
— Já, maður varð var við
þann ótta hjá fólki, en hinsvegar
virtist mér sem fólk liti á þann
möguleika sem svo ægilegan að
það þyrði ekki að hugsa þá
hugsun til enda. Aftur á móti virt-
ist mér sem óttinn við þrenging-
ar, hreina hungursneyð, skipu-
lagða af pólskum og sovéskum
stjórnvöldum á komandi vetri
væri ofar i hugum fólks en óttinn
við innrás. Það kom fram hjá for-
manni Samstöðu, Lech Walesa, i
ræðu sem hann flutti á þinginu að
— Við urðum bæði varir við
hann sjálfir og sáum þær löngu
biðraðir sem mynduðust strax á
morgnana við allar verslanir og
töluðu sinu máli.
Kjöt er skammtað, vin,
lóbak, fólk fær aðeins 12
pakka af sigarettum á mánuði og
það sem verst er af þessu öllu
saman er sá mikli lyfjaskortur
sem'orðinn er á sjúkrahúsum. Þá
óttast fólk mjög um heilsu barna
vegna einhæfrar fæðu. Ekki
kannski nú á haustdögum þar
sem fólk hefur getað ræktað eitt-
hvað grænmeti sjálft i sumar, en
þegar liða tekur á veturinn.
Svartamarkaðsbrask með gjald-
eyri er meira i Póllandi nú en
nokkru sinni fyrr. Fólk borgar 380
zloty fyrir 1 dollar, en opinber
skráning hans er 33 zloty. Þetta
gjaldeyrisbrask kemur til af þvi
að i Póllandi eins og öðrum A-
Evrópulöndum, eru svo kallaðar
gjaldeyrisverslanir, þar.sem
vöruúrvaliðer meira og betra en i
öðrum verslunum.
vilja ganga miklu lengra en gert
hefur verið i baráttunni við pólsk
stjórnvöld. Sumir sögðu okkur að
yfirgnæfandi meirihluti innan
samtakanna vildi ganga lengra
en gert hefur verið. Fólk sé orðið
þreytt og sárt yfir þvi hvað allt
gengur seint. Samt virðist mér að
fólk geri sér grein fyrir að ekki er
hægt að ganga lengra en gert hef-
ur verið, það veit það innst inni,
þótt það tali öðru visi og þess
vegna var Walesa endurkjörinn
formaður samtakanna. Allir
viðurkenna hæfni hans og þó al-
veg sérstaklega hæfni hans til að
meta stöðuna rétt á hverjum
tima. Um það eru allir sammála,
jafnvel þeir sem harðast gagn-
rýna hann fyrir hófsemina.
Lech Walesa
— Þið áttuö viöræður við Lech
VValesa, hvernig kom hann þér
fyrir sjónir?
— Hann er ákaflega traustvekj-
andi maður, sem meinar það sem
hann er að segja. Hann virðist
vera fljótur að átta sig á þvi hvað
hægt er að gera og hvað ekki.
Annars var maðurinn svo ör-
þreyttur þegar við hittum hann,
að erfitt er að dæma hann eftir
þeim fundi. Hann sagði okkur að
ef hann hefði komið fram af meiri
hörku á þinginu en hann gerði,
hefði hann án vafa náð betri kosn-
ingu en raun varð á. Aftur á móti
sagðist hann ekki sjá neinn til-
gang i þvi að vera að setja fram
óraunhæfar tillögur, tillögur sem
fyrirfram væri vitað að næðu ekki
fram að ganga. Við heyrðum
hannflytja ræðu og hann var ekki
geislandi ræðumaður kannski
vegna þess hve þreyttur hann
var. Ýmsir þeir sem buðu sig
fram á móti honum voru margfalt
glæsilegriræðumenn.en sem fyrr
segir er hann afar traustvekj-
andi, greinilega bráð glöggur og
fljótur að átta sig á hlutunum.
— Walesa fékk harða gagnrýni
á þinginu fyrir það að baða sig i
sviðsljósinu og það er alveg
greinilegt að hann kann að koma
sér i sviðsljósið. Hann hefur mik-
ið gert af þvi að láta mynda sig
við messur og einn ræðumanna á
þinginu minnti hann á að fram til
þessa hefði Jesús. verið talinn
aðal maðurinn við messur, en það
virtist vera að breytast.
Þungur róður
— Siðan Samstaða var mynduð
hefur VValesa haft mikil völd og
fengið að ráða ferðinni að mestu
einn, áttu von á þvi aö svo veröi
áfram?
— Eg hygg að breyting verði
þar á eftir kjör nýrrar miðstjórn-
ar. Menn töldu engan vafa leika á
þvi að hin nýja miðstjórn verði
honum erfið. Menn eru eins og
fyrr segir orðnir þreyttir á si-
felldum málamiðlunum við
stjórnvöld og ég á von á þvi að
nýja miðstjórnin sýni meiri hörku
I samskiptum við pólsk stjórnvöld
en verið hefur. Lech Walesa var
gagnrýndur á þinginu fyrir það að
hafa oft á tiðum unnið gegn vilja
meirihlutans og flestir voru á þvi
að hann fengi ekki að spila eins
fritt spil og hann hefur fengið til
þessa, eftir að miðstjórn hefur
verið kjörin.
— Vissuiega má segja að á 900
manna þingi sé almenningur
saman kominn, en uröuð þiö varir
við mikinn áhuga fólks á þing-
haldinu?