Þjóðviljinn - 08.10.1981, Side 7
Fimmtudagur 8. október 1981; ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
væri eina vonin til aö bjarga land-
búnaðinum og bæta úr matar-
skortinum. Þá voru nefnd dæmi
um alranga stefnu i fjárfestingu.
Kerfið hefur lagt kapp á stórar
einingar, svo að i dag eru færri
smáfyrirtæki i Póllandi en jafnvel
i V-Þýskalandi. Menn leggja
mikla áherslu á að fyrirtækin fái
aukna sjálfstjórn og að þau fái
sjálf að gera sina viðskipta-
samninga. Þá var og lögð áhersla
á nauðsyn þess að endurskoða
alla viðskiptasamninga landsins.
En það sem allir voru sammála
um er að Pólland verður að fá
stórt erlent lán til að koma fram-
leiðslunni af stað þvi eins og einn
hagfræðiprófessor orðaði það:
Við verðum að framleiða okkur
útúr kreppunni.
— Attu von á þvi aö betur gangi
hjá Samstööu aö ná sinu fram eft-
ir þetta þing en fyrir þaö?
— Um það þori ég ekkert að
segja, en hitt er ljóst að aðstaða
Samstöðu er erfið. Samtökin eru
að semja við stjórnvöld, sem ekki
þurfa að standa ábyrg gerða
sinna og þurfa þvi ekki að standa
fyrir sinu máli i frjálsum
kosningum. Þessir aðilar hafa
ekki einu sinni fólkið i landinu á
bak við sig, en stjórna i skjóli her-
valds og erlends risaveldis. Ég
varð var við það að Samstöðu-
mönnum er það mikið i mun að
þjóðir heims þrýsti á pólsk og
sovésk stjórnvöld til stuðnings
pólskri alþýðu i baráttu hennar
fyrir auknu lýðræði i Póllandi.
Þetta er án efa ástæða þess að
okkur var boðið ásamt f jölda ann-
ara erlendra gesta til þinghalds-
ins i Gdansk.
—S.dór
Gerið hagstæð
innkaup
Munið 10% afsláttarkortin:
Nýir félagsmenn fá afsiáttarkort
á skrifstofu KRON, Laugavegi 91,
kl. 9-12 og 12.30-16 mánudaga
til föstudaga
Opið til kl. 22 á föstudag og
til hádegis á laugardag
STÓRMARKADURINN
Skemmuvegi 4 A,
Kópavogi
— Það er alveg greinilegt að
áhugi, alla vega i Gdansk, þar
sem samtökin voru stofnuð og
þingið haldið, er griðarlega mik-
ill. Þingið er haldið i stórri
iþróttahöll og fyrir utan húsið
hefur verið komið fyrir sjón-
varpsskermum og hátölurum,
svo allir geti fylgst með þvi sem
er að gerast á þinginu. Mikill
mannfjöldi var að jafnaði þarna
saman kominn til að fylgjast
með. Aftyr á móti er ekki hægt að
dæma eftir öðru en þessu, þar
sem við áttum aðeins 4ra daga
stans i landinu og litill timi gafst
til að ræða við annað fólk en það
sem á þinginu var.
Viðtœkur
stuðningur
— Eitt af þvi sem kom okkur
þægilega á óvart, var að mennta-
menn i opinberum stöðum styðja
samtökin opinberlega og á þing-
inu töluðu ýmsir kunnir hagfræði-
prófessorar, sem fengnir höfðu
verið til að flytja ræður. Það er
þvi greinilegt að Samstaða nýtur
stuðnings menntamanna sem eru
tilbúnir að láta i té aðstoð, þegar
þess gerist þörf.
— Hver var niðurstaða þessara
hagfræöinga um ástandiö?
— t fáum orðum sagt virtist
niðurstaða þeirra vera sú að hið
miðstýrða kerfi ætti sök á ástand-
inu. Nefnt var sem dæmi að
rekstur samyrkju og rikisbúa
hefði algerlega misheppnast.
Samt sem áður njóta þessi bú for-
gangs, svo sem með áburð og
fleira. Efla þyrfti einkabúin, það
Þróun sjávarútvegs:
Spáð harðnandi sam-
keppni á markaðnum
Spáö er mjög harönandi
samkeppni á fiskmörkuöum
næstu ár, bæöi vestrænum og
þeim soveska, en hvorki meira né
minna en 95—97% útflutnings
okkar á frystum fiskafuröum fara
á markaö i Bretlandi, Bandarikj-
unum og Sovétrikjunum, þaraf
3/4 hlutar á Bandarikjamarkaö.
í álitsgerö samstarfshópsins á
vegum Rannsóknaráðs rikisins
um stööu og horfur i sjávarútvegi
kemur fram, aö á vestrænum
mörkuðum má búast við auknu
framboði á tegundum sem þegar
hafa unniö sér sess á markaön-
um, og jafnframt, að takist
Rússum og öðrum fisk-
veiðiþjóöum, sem stundaö hafa
fjarlæg mið, að bæta sér upp tapið
af útfærslu fiskveiöilögsögu
annarra þjóða meö auknum
veiðum á öörum svæðum er ekki
aö vænta verulega aukinnar eftir-
spurnar af þeirra hálfu.
Þannig má búast við, aö tals-
verö andstaða veröi gegn hækk-
un raunverðs og kemur þaö ekki
sist við Islendinga, sem búið hafa
við forskot i krafti meiri gæöa.
Aörar þjóðir einsog t.d.
Kanadamenn hafa gert sér þetta
Kanadamenn
reyna að komast
inná saltfisk-
markaðinn og
auka
gæði freðfisks
ljóst og vinna markvisst að aukn-
um gæðum framleiðslu sinnar
Verði raunverðshækkun er þvi
liklegra, aö hún skili sér frekar til
þessara þjóða og þær færist nær
okkur i verði, spáir hópurinn.
1 heild er markaðshlutdeild
okkar á fiski og fiskafuröum á
bandariska markaðnum um
fjórðungur.Hvaö þorskinn varðar
er hún rúm 34%, en ekki nema um
16% að þvi er varðar aörar teg-
undir. Eitthvert svigrúm ætti að
vera til aukningar varöandi ein-
stakartegundir, telur hópurinn,
en er ekki bjartsýnn. Talsverð
aukning hefur oröið i útflutningi
til V-Evrópu og þar er enn vænst
aukningar, þótt þessi markaður
sé erfiðari en sá bandariski vegna
neysluheföa og litt þróaðs
markaðskerfis. En fyrir utan
Bretland er þarna um aö ræða
stóran markað sem næsta litiö
hefur verið sinnt af okkar hálfu.
Spáð er hagstæöum mörkuðum
fyrir saltfisk vegna minnkandi
heimsframboðs og samdráttar i
afla keppinautanna, annarra en
Kanadamanna sem kunna að
auka framboö takist þeim að
tileinka sér réttar framleiðslu-
aðferöir, en á þaö leggja þeir nú
mikla áherslu.
Skreiðarmarkaðir kunna áfram
að reynast sveiflukenndir vegna
jafnvægisleysis i efnahags- og
stjórnmálum viðskipta vina
okkar, einsog við höfum fengið að
reyna i Nigeriu. Gert er ráð fyrir,
aö mjöl- og lýsismarkaðir verði
með svipuöu móti og verið hefur
og áfram erfiðleikar i framleiðslu
og sölu lagmetis, en þar er langt
frá aö eðlilegt jafnvægi hafi náðst
i sölu og hafa mistök i innra
gæðaeftirliti ma. átt sinn þátt i
þvi.
— vh.
SVINAKJOT
NAUTAKJÖT
Nauta- og svinakjöt í heilum og hálfum skrokkum
o • •
1. Svíri
2. Framhryggur
3. Hryggur
4. Skanki
5. Miöiacri
6. Lcnd
7. Huppur
8. Síða
9. Bringaogskanki
10. Bógstykki
Verð á nautakjöti: með skurði,
Wwa AQ cn pökkun °s
lYl ■ 40fUU frystingu
Verð á svínakjöti: með skurði,
IX^ J|Q QR pökkun og
lYl. "40,00 frystingu
M • 0 O O
1. Kambur 6. Siða
2. Hryggur 7. Bringa
i Læri 8. Bögur
4. Huppur 9. Bógteggur
5. Lundir
GÓÐ KJÖR —
BETRI KJÖR
• •
KJARAKJOR
KÁRSNESBRAUT 93, KÓP. — SÍMI 41920