Þjóðviljinn - 31.12.1981, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 31.12.1981, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 31. desember 1981. ÞJÓÐVILJINN SIÐA 13 hægt aö taka hluta byggingar- innar i notkun á hausti komanda en fullbyggö mun álman rilma 172 langlegusjúklinga. Uppúr áramótum tekur svo til starfa i- Hvitabandinu gamla hjúkrunardeild fyrir heilabilaöa langlegusjúklinga. Spyrjum fatlaða Feröaþjónusta fatlaöra sem borgin yfirtók og jók viö hefur nú fjóra bila til umráöa. bessi þjónusta þykir sjálfsögö í dag enda mikiö notuö en hana verö- ur enn aö efla og leitast viö meö þeim hætti aö rjúfa eins og kost- ur er einangrun faltaðra. A þvi sviöi eru allt of mörg verkefni óunnin. bó hefur nokk- uö fleira veriö aö gert en áöur- nefnd feröaþjónusta. Kjarvalsstaöir hafa veriö gerðir aögengilegir fötluöu fólki og unniö er að breytingum i Laugardalshöllinni. Fláar hafa veriö settar i gangstéttarbrúnir til aö auövelda umferð hjóla- stóla og barnavagna. Biöskýliö nýja á Hlemmi er einnig aö- gengilegt fötluöu fólki. Sundlaug er aö risa viö Grens- ásdeild Borgarspitalans og borgarstjórn hefur ákveöið að gefa öryrkjabandalaginu þrjár miljónir króna til byggingar verndaös vinnustaöar viö Há- tún. Bilastæöi hafa veriö sér- merkt eftir ábendingum frá fulltrúum fatlaöra og bygginga- meistara var úthlutaö lóöum til aö byggja sölufbúðir sem veröa sérstaklega hannaöar meö þarf- ir fatlaöra i huga. Já, það má spyrja alla Man nokkur lengur aö fyrir fjórum árum var enginn úti- markaöur i Reykjavik og Bern- höftstorfan var brunarúst i niö- urniöslu? Gamli miöbærinn var óttalega dauflegur og yfirleitt fátt fólk á ferli utan verslunar- tima. Ellefu reisuleg timburhús viö Hatlærisplan höföu veriö dæmd til niöurrifs eins og svo mörg önnur á undan þeim. Yfirbragö borgarinnar hefur vissulega tekiö stakkaskiptum og þaö á fjölmörgum sviöum. Skiöalandiö I Bláfjöllum hefur veriö bætt verulega og komið þar upp veglegum skála til þæg- inda og öryggis fyrir skiöaiök- endur. Skiöabrekka hefur verið gerð i Vatnsendahæöinni fyrir börn og byrjendur og þar er ó- keypis i lyftu. Ishokkivöllur var malbikaöur á gamla Melavell- inum, glæsileg útisundlaug tek- in I notkun i Breiðholti, Sund- höllinn öll endurbætt og bygging nýrra búningsklefa viö sund- laugina i Laugardal er komin vel af staö. Unniö er aö hönnun skautahallar i Laugardal, og auglýst hefur veriö samkeppni um nýtt iþróttasvæöi f Mjódd- inni i Breiðholti. Starfsmenn fyrirtækja borg- arinnar eiga nú aðild aö stjórn- un þeirra, strætisvagnafloti borgarinnar hefur veriö endur- nýjaöur, tveir nýir togarar hafa veriö keptir til Bæjarútgeröar- innar, aöstaða til frystingar þar stórbætt og skólanemum er tryggö atvinna á sumrum. Sett hafa verið upp gang- brautarljós viða um borgina til öryggis gangandi vegfarendum og gerð undirganga undir Breið- holtsbraut er aö ljúka. Reyk- viskur listamaöur hlýtur nú ár- lega starfslaun, bygging Borg- arleikhúss er loks komin af staö og settar hafa verið reglur um úthlutun lóöa þannig aö Reyk- vikingar þurfa nú engum að knékrjúpa til aö njóta þeirra eðlilegu réttinda aö fá bygging- arlóö. Þó fjögur ár séu ekki langur timi i' mótun byggðar þá hafa undanfarin ár vissulega breytt miklu I Reykjavik. Þaö er gam- an aö horfa yfir liöin ár og full á- stæöa til aö horfa með bjartsýni til komandi tima. Með ánægju þakka ég Reyk- vikingum öllum samstarfiö á liönum árum og óska þeim vel- farnaöar á hinu nýja ári. Og vissulega vænti ég öflugs stuðn- ings þeirra viö aö halda áfram þvi starfi og þeirri uppbyggingu sem verið hefur I gangi á þessu kjörtímabili. Þaö skiptir máli hverjir ráöa ferð i Reykjavik. Sigurjón Pétursson Útisundlaugin viö Fjölbrautaskólann I Breiðholti, 577 ný dagvistunarpláss hafa bæst viö I Reykjavlk.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.