Þjóðviljinn - 06.01.1982, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 06.01.1982, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 6. janúar 1982. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Hamast í óperunni Sóngvarar i „Sigaunabaróninum” verOa aö fækka fötum á almannafæri þar sem enn er unnið við breyt- ingar og lagfæringar á Gamlabiói nótt sem nýtan dag fyrir frumsýninguna á laugardaginn. Ljósm. — gel. Vegna ryksins, er ágætt að bregða andlitsgrfmu fyrir vit sér. Ekki vitum við hvað maðurinn bak við grimuna heitir, en viö óskum hon- um og félögum hans góðs gengis I óperunni. Ljósm. — gel. L_ Frumsýning á laugardaginn tslenska óperan mun frum- flytja „Sigaunabaróninn” á laugardaginn kemur, þann 9. janúar. Æfingar fyrir sýning- arnar hafa verið iangar og strangar, auk þess sem unniö er af fullum krafti við viðgeröir og smiði á Gamia biói, en þar er óperan til húsa. Blaðamaður og ljósmyndari gægðust inn á æfingu hjá óper- unni á mánudaginn var, og þar var meðfylgjandi mynd fest á filmu. Smiðirnir eru enn að störfum — þennan daginn voru þeir að hætta þegar okkur bar að garði um sexleytiö, en sögö- ust koma aftur kl. 12 og vinna þá nótt alla. Þannig hefur þetta gengið fyrir sig undanfarið. Allt virðist á rúi og stúi i Gamla biói — plast hér, spýtur þar, smiða- bekkir, málningarfötur, búning- ar á rúi og stúi og ryk vegna smiðanna yfir öllu. Innan um þetta renna siðan æfingarnar i gegn undir styrkri stjórn Þór- hildar Þorleifsdóttur. Skyldu þau ná þvi að vera „búin að öllu” fyrir laugardaginn hugsar maður ósjálfrátt. Já, já, er svarað úr öllum áttum. Viö skulum vona þaö. ast Vmarkvöld með Smfóníunni Margrét Frímannsdóttir Armann Ægir Magnússon Alþýðubandalagið á Selfossi undirbýr kosningar Forvai í februar Margrét Frímannsdóttir efst á lista á Stokkseyri Á félagsfundi Alþýðubandalags Selfoss og nágrennis I desember sl. var ákveðið að viöhafa forval við uppstillingu lista flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningar á Selfossi. Undirbúningur fyrir kosningar er þegar hafinn fyrir allnokkru og er mikill hugur i mönnum að vinna ötullega að góöum árangri I kosningunum. A desemberfundinum varkosin uppstillinganefnd til þess að sjá um forvalið og er Armann Ægir Magnússon formaður hennar, en hann er jafnframt formaður flokksfélagsins á Selfossi. For- vaisreglur höfðu áður verið sam- þykktar og i stórum dráttum er forvalið þannig að kosið verður i tveimur umferöum og mega ekki liða meir en tvær vikur á milli umferða. í fyrri umferð verður svonefnd opin kosning, þannig að allir eru i kjöri, bæöi flokksmenn sem óflokksbundnir, en i siðari umferð aðeins þeir sem hafa hlotið tilnefningu og þo ekki fleiri en 18. I siðari umferðinni verður kosið um röð manna á listanum. Kosningarétt hafa aöeins þeir sem eru félagsmenn i AB á Sel- fossi og eru óflokksbundnir stuðningsmenn AB hvattir til að gerast félagar svo þeir geti haft áhrif á uppstillingu listans við væntanlegar bæjarstjórnarkosn- ingar. Innan skamms verður forvals- reglum dreift til félaga svo þeir geti kynnt sér þær rækilega áður en til forvals kemur, en það mun verða i byrjun febrúar n.k. A Stokkseyri hefur Alþýðu- bandalagið þegar ákveðiö að bjóða fram til sveitarstjómar og er starfið þar komið vel á veg. Efsti maður á lista flokksins á Stokkseyri er Margrét Frimanns- dóttír og má segja að listi flokks- ins sé svo gott sem tilbúinn. Þá er i undirbúningi að hefja útgáfu á bæjarmálablaöi AB á Selfossi og er vonast til aö það hefji göngu sina iþessum mánuði. Mikil fundahöld eru nú fram- undan á Selfossi. Þann 16. þessa mánaðar veröur opiðhús i félags- miðstöðinni að Kirkjuvegi 7. Félagsfundir eru svo ákveðnir 23. janúar, 13. febrúar og 26. febrúar og er hugmyndin að. fá á þessa fundi forseta ASI, Asmund Stefánsson, og þingmann flokks- ins, Garöar Sigurösson, svo og fleiri ef kostur er. —H.S.ó. Attundu áskriftartónleikar Sin- fóniuhljómsveitar Islands verða n. k. fimmtudagskvöld 7. janúar og bera þeir heitið „Vinarkvöld”. A tónleikunum verða eingöngu leikin og sungin létt óperutónlist frá Vin, m.a. eftir Strauss, Lehar o. fl. Stjórnandi er Páll P. Pálsson sem óþarfi er aö kynna islensk- um tónlistarunnendum þó má i þessu tilefni taka fram, að Páll er fæddur Austurrikismaður og er þessi tónlist i blóö borin. Einsöngvarinn Sigrid Martikke, fædd i Magdeburt i Þýskalandi. Hún var fyrst ráðin að „Komische Oper” i Berlin,' óperustjóri, þar var þá Walter Gelsenstein. Siðan er hún i tvö ár óperettu„diva”, iSviss og eftir þaö fimm ár óperu- og óperettusöngkona við óperuhúsið i Graz. Frá 1975 hefur hún verið einaf aðalsöngkonum Volksoper i Vin. Sigrid Martikke hefur sungiö viða sem gestur m.a. viö óperurn- ar i Hamborg (Musetta i Boheme) og Mtinchen (greifynj- an i Brúðkaupi Figarós). Enn- fremur hefur hún farið i tónleika- ferðir til Bandarikjanna, Hol- lands, Belgiu, Englands, Israel, Norðurlanda og Japan. Auk þess hefur hún sungið inn á Nýlega samþykkti utanrikis- nefnd Stúdentaráðs Háskóla tslands svofellda ályktun vegna ástandsins i E1 Salvador: „SHI mótmælir þvi ofbeldi sem herforingjastjórn E1 Salvador hefur i frammi gagnvart E1 Salvador-þjóð. SHI telur að hernaðaraðstoð Bandarikjastjórnar til herfor- hljómplötur og komiö fram i út- varpi og sjónvarpi 1 Austurriki, Þýskalandi og Danmörku. ingjastjórnar E1 Salvador geri illt verra fyrir fólkið i landinu. SHI beinir þeim tilmælum til Bandarikjastjórnar að hún láti þegar af hernaðar- og efnahags- aðstoð til E1 Salvador. Svo auð- veldara reynist aö koma á lýö- ræðislegum stjórnarháttum i landinu.” Vinnmgshafar í „13 gátum”: Þrír fá verðlaun t jólablaði Þjóðviljans birtist verðlaunagetraun fyrir börn og unglinga sem nefndist „13 gátur”. Var veittur frcstur til að svara fram að áramótum. Nú eru þau liðin og viðbúin að pæla 1 gegnum lausnirnar sem bárust. Þær voru margar cn eitthvað virtust gáturnar vefj- ast fyrir þeim scm svöruðu, rétt svör voru mjög fá. Eins og við höföum lofað drógum við þrjú nöfn út úr bunkanum litla með réttum svörum. Eigendur þeirra fá verðlaun. Fyrst kom upp nafnið Hjalti Birgisson, Dúfnahólum 2 4-A, 109 Reykjavik og fær hann bók og hljómplötu að eigin vali. Næst kom upp nafnið Halla Magnúsdóttir, Kringlumýri 14, 600 Akureyriog fær hún að laun- um bók að eigin vali. Þriðju verölaun féllu i hlut Grétars Karlssonar, Dalslandsgade 8, 2300 Köbenhavn S, Danmörku og eru þau hljómplata að eigin vali. Þremenningarnir eru beðnir að skrifa óskir sinar á blað og senda það til okkar með utan- áskriftinni: Þjóöviljinn, c/o Úlfar Þormóðsson, Siðumúla 6, 105 Reykjavik. Verða verð- launin þá send um hæl i pósti. Hér koma lausnirnar: Hvaða stykki passar: nr. 4, Mörg si'mtöl: A talar við G, B við D, C cið F, og E við H, Úr hvaða glugga: nr. 3, Hvað vantar: tvö jólatré, fótspor, dúsk á húfu og eyrnaskjdl, Atta grisir: nr. 6 og 8 eru esns, Fjórir kylfingar: B hittir i holuna, Hver hitti: nr. 2, Svarið með tölum : 1) 50, 2) 5, 3) 1945, 4) 4, 5) 11 og 6) 0,Dyrasimi: antilópa, Við hvaö var hann hræddur: sel, Hver verður i öðru sæti: Sund- maður C, Stúlkan i miðjunni heitir Jóna, Hve miklir peningar: Oliá 85 kr.,Pétur á 80 kr., Eirikur á 65 kr., Birgir á 60 kr.,Haraldur á 55kr. og Lárus á 40 kr. Takk fyrir þátttökuna og gleðilegt nýár. Skákþlng Kópavogs Skákþing Kópavogs hefst n.k. laugardag, 9. janúar kl. 14.00 og verður teflt aö Hamraborg 1, kjallara. Teflt verður i einum flokki, 7 umferðir eftir Monrad- -kerfi. Timamörk verða 2 klukku- stundir á 40 leiki, og siðan 1 kl. á hverja 20 leiki þar eftir. Þátttökugjöld vera kr. 100 fyrir fullorðna, en kr. 50 fyrir unglinga (19 ára og yngri). Sérstakt drengjameistaramót hefst strax að loknu aðalmótinu fyrir 14 ára og yngri. Ollum er heimil þátttaka, en aðeins þeir sem lögheimili eiga i Kópavogi eiga rétt á titlinum „Skákmeistari Kópavogs 1982.” SHÍ mótmælir afskiptum USA í E1 Salvador

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.