Þjóðviljinn - 06.01.1982, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 06.01.1982, Blaðsíða 11
Mi&vikudagur 6. janúar 1982. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 iþróttir(7H íþróttir Borötennis: Landsliðið til Færeyja Evrópukeppnin á Jersey 6-7. febrúar Enska knattspyman islenskir bor&tennismenn halda til Færeyja um helgina og leika þar landsleiki I A-flokki og ung- lingaflokki karla. Leikiö ver&ur á sunnudag, 10. janúar, en lands- li&smennirnir eru þó ekki væntanlegir heim fyrr en þann 13. Islendingar og Færeyingar hafa leikiö 8 A-landsleiki i borö- tennis. Þar af hafa Islendingar unnið 7, eini sigur Færeyinga vannst áriö 1973 en samskipti þjóöanna i þessari iþrótt hófust 1971. Siðast mættust þær á Evrópumeistaramótinu i Bern 1980 og vann tsland þá 6-2. 1 unglingaílokki er hætt við þungum róöri hjá islensku piltun- um þarsem þeir færeysku virðast i nokkurri sókn. Skemmst er að minnast siðustu viðureignar ung- lingaliðanna i Mosfellssveit 1979 þar sem Færeyingar sigruðu 6-3. Leikmenn islenska liðsins eru þessir: A-landsleikir og Ul-lands- leikir i svigum: A-landsliö: Bjarni Kristjánsson UMFK (7-7), Tómas Sölvason KR (1-5) og Kristján Jónasson Vik- ingi (0-5). Ul-landsliö: Björgvin Björgvins- son KR (1-4), Friðrik Berndsen Vikingi (0-0) og Kristján Viðar Haraldsson HSÞ (0-0). Ýmis gamalkunnug nöfn vant- ar i hópinn en nokkrir af sterk- ustu borðtennismönnum iandsins gáfu ekki kost á sér vegna prófa. Leikurinn fer fram i nýju og glæsilegu iþróttahúsi á Tvöreyri á Suðurey. Fararstjóri er Birkir Þór Gunnarsson. Helgina 6.-7. febrúar nk. tekur islenska landsliðið þátt i 3. deild Evrópukeppninnar og verður leikið á Ermarsundseynni Jersey. VS ÓLAFUR H. JÓNSSON skorar eitt fjögurra marka sinna gegn Val f gærkvöldi. Mynd: — gel. MÖRK VILLA NOTTINGHAM Ipswich á toppinn og West Ham steinlá á Anfield Englandsmeistarar Aston Villa rifu sig heldur betur upp úr meö- almennskunni sem hefur ein- kennt li&iö i vetur þegar liöiö sigr- a&i Notts County meö 6 mörkum gegn engu i bikarkeppninni og þaö i Nottingham. Notts County vann Aston Villa á Viila Park fyrsta leikdag 1. deildarinnar i haust svo þessi sigur varö enn sætari fyrir vikiö. David Geddis, sem fá tækifæri hefur fengiö i framlinu Villa, siöan hann var keyptur frá Ipswich, geröi sér lit- X staöan iö fyrir og skora&i þrjú mark- anna. Villa mætir sigurvegaran- um úr leik Peterborough og Bristol City i 4. umferö bikar- keppninnar. Úrslit leikja i gærkvöldi: Enski bikarinn Notts C-Aston Villa 0:6 Brighton-Barnet 3:1 Shrewsbury-Port Vale 1:0 Millwall-Grimsby 1:6 Gillingham-Oldham 2:1 Barnsley-Blackpool 0:2 1. deild Ipswich-Birmingham 3:2 Liverpool-WestHam 3:0 Ipswich komst i hann krappan á heimavelli gegn Birmingham eft- ir að hafa komist i 3:0 með mörk- um frá Paul Mariner 2 og Alan Brazil. Tony Van Mierlo og Kevan Broadhurst minnkuöu muninn i siðari hálfleiknum og 10 min, fyrir leikslok varði mark- vöröur Ipswich, Paul Cooper, glæsilega frá Frank Worthington. Liverpool vann loks á heima- velli og þá steinlá West Ham. Terry McDermott og Ron Whelan skoruðu i fyrri hálfleik og Kenny Daglish bætti þvi þriöja viö i þeim siöari. VS ISLAND VANN tsland vann Portúgal i lands- leik i körfuknattleik i gærkvöldi 73:71. Leikiö var I Borgarnesi og tókst ekki aö fá frekari upplýsing- ar áöur en blaöiö fór i prentun I gærkvöldi en greinilegt er aö Borgarnes er rétti staöurinn til aö leika landsleiki i körfuknattleik. ALAN BRAZIL skoraöi eitt marka lpswich i gærkvöldi en þá vann liö hans Birmingham i annaö sinn meö sömu marka- tölu, 3:2, á fjórum dögum. Handbolti: Staöan i 1. deild karla á Is- landsmótinu i handknattleik er nú þessi: FH 7 6 0 1 181:159 12 Vikingur 7 5 0 2 153:126 10 KR 7 5 0 2 152:142 10 Þróttur 7 5 0 2 155:147 10 Valur 7 3 0 4 124:121 6 HK 6 1 0 5 109:130 2 KA 7 1 0 6 137:163 2 Fram 6 1 0 5 126:155 2 Þrefalt hjá Fylki Um helgina fór fram i Laugardalshöllinni Reykja- vikurmót i innanhússknatt- spyrnu og var leikið i öilum flokkum. Sigurvegari i meistaraflokki var Valur, eftir sigur á Víkingi i úrslita- leik, 6-5. Fylkir vann 2. og 3. flokk, Valur 4. flokk, Fram 5. flokk og Fylkir 6. flokk. Ar- bæjarliöiö var þvl sigursæl- ast á mótinu, sigraöi i þrem- ur flokkum. Skipbrot hjá Val! Þróttur skoraði sjö gegn einu lokamínúturnar og vann örugglega Siggi Sveins og félagar i Þrótti fóru illa meö Valsmenn siöustu 13 minúturnar i leik li&anna i 1. deild Islandsmótsins i handknattleik i gærkvöldi. Brynjar Har&arson jafna&i fyrir Val, 17:17, 13. min. fyrir leikslok og allt stefndi i spennandi lokakafla. Þróttarar voru þó á ööru máli og skoruðu næstu 6 mörkin, Valsmenn skor- uðu hins vegar ekki sitt 18 mark fyrr en minútu fyrir leikslok. Fjórða tap þeirra í sjö leikjum á islandsmótinu og óliklegt aö HIiö- arendaliöiö blandi sér i baráttuna um tslandsmeistaratitilinn i ár. Lengi vel benti fátt til þess að slikur munur skildi liöin i leiks- lok. Valur náöi strax forystunni, komst i 3:1 og 6:3og Þróttur náði ekki að jafna fyrr en á 22. min., 7:7 með þrumufleyg Sigurðar. Siöan náöi Þróttur aö komast yfir og leiddi i hálfleik 12:10. Siguröur Sveins kom Þrótti i 13:10 i upphafi siðari hálfleiks en siban jafnaðist leikurinn á ný. Þróttur leiddi jafnan meö einu til Þróttur-Valur 24:18 tveimur mörkum þar til Brynjar jafnaði 17:17. A lokakaflanum hrundi allt hjá Val og Þróttarar gengu á lagið eins og áður er lýst. Þungavigtarskytturnar voru farnar að lýjast og vörn Þróttar varöi hvaö eftir annaö skot þeirra. Hraöaupphlaup fylgdu yf- irleitt i kjölfariö og Jón Gunnars- son i Valsmarkinu átti þá viö of- urefli aö etja. Lokatölurnar siöan 24:18. Leikur Þróttar var langt frá þvi aö vera gallalaus og framan af voru sóknaraðgerðir liösins frem- ur fálmkenndar. Greinilegt aö fjarvera Páls Ólafssonar háöi þvi. Siguröur Sveins tviefldist viö mótlætið og skoraöi hvaö eftir annaö með þrumuskotum eins og honum einum er lagiö. Virtist þá sama hvaöa Valsmaöur gætti hans, Siggi reif sig ávallt lausan Ólafur H. Jónsson og Gunnar Gunnarsson léku einnig vel, Gunnar einkum i fyrri hálfleik en siöan dró af honum. Hjá Val vantar meiri lipurö og fjölbreytni i sóknarleikinn. Ab- eins Brynjar er i réttum þyngdar- flokki af skyttunum og Þróttarar gættu Steindórs og Theódórs svo vel að þeir nánast hurfu i leikn- um. Mörk Þróttar: Siguröur 9, Gunnar 6, Ólafur 4, Jón Viöar Sig- urðsson 3, Jens Jensson og Lárus Lárusson 1 hvor. Mörk Vals: Brynjar 5, Þorbjörn 5, Jón Pétur 4, Friörik Jóhannesson 2, Stein- dór Gunnarsson og Gunnar Lúö- viksson 1 hvor. VS I

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.