Þjóðviljinn - 06.01.1982, Qupperneq 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 6. janúar 1982.
DJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-
hreyfingar og þjódfrelsis
Ctgefandi: Otgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan
Olafsson.
Fréttastjóri: Álfheiöur Ingadóttir.
Umsjónarmaöur sunnudagsblaös: Guöjón Friöriksson.
Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir.
Afgreiðslustjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaöamenn: Auöur Styrkársdóttir, Magnús H. Gislason, Oskar
Guömundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Sveinn Kristinsson.
tþrótta- og skákfréttamaöur: Helgi Ólafsson.
Útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir-Guöjón Sveinbjörnsson.
I.jósmyndir :Einar Karlsson, Gunnar Elisson.
Handrita- og prófarkalestur: Elias Mar, Trausti Einarsson.
Auglýsingar: Hildur Ragnars, Sigriöur Hanna Sigurbjörns-
dóttir.
Skrifstofa: Guörún Guovaröardóttir, Jóhannes Haröarson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristin Pétursdóttir.
Simavarsla: Olöf Halldórsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guöjónsdóttir.
Bflstjóri: Sigrún Báröardóttir.
innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmunds-
son.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns-
dóttir.
Útkeyrsla, afgreiösia og auglýsingar: Sföumúla 6,
Keykjavik, simi 81333
Prentun: Blaöaprent hf.
Reykjavík 1982
• Það skiptir máli hverjir ráða ferðinni i
Reykjavik. Fjögur ár eru ekki langur timi i mót-
un byggðar, en engu að siður kemst Sigurjón
Pétursson forseti borgarstjórnar að þeirri niður-
stöðu i áramótagrein i Þjóðviljanum að Reykja-
vik ársins 1982 sé verulega breytt frá þeirri
Reykjavik sem heilsaði nýjum meirihluta 1978.
Mikilvægar umbætur hafa orðið á fjölmörgum
sviðum, einkum i félags- og heilbrigðismálum.
• Á timabili hins nýja meirihluta hafa bæst við
rými fyrir 577 börn á dagvistarheimilum i borg-
inni og unnið er eftir áætlun um að fullngæja þörf-
inni á þessum áratug. Dagvistarheimilin voru
opnuð fyrir þroskaheft börn i upphafi kjörtima-
bils og hefur þetta brautryðjendastarf Reykja-
vikurborgar nú verið leitt i landslög. Dagmæðra-
kerfið hefur verið sameinað dagheimilakerfinu
og þessa dagana er verið að taka gæsluvallakerf-
ið undir sömu stjórn. Innra starf dagvistarheim-
ilanna hefur og tekið miklum stakkaskiptum og
þau hafa nú á að skipa sérhæfðu starfsliði, tal-
kennurum og sálfræðingum.
• í tið nýja meirihlutans hafa verið teknar i
notkun þrjár glæsilegar æskulýðsmiðstöðvar, og
samvinna skóla- og æskulýðsráðs um tómstunda-
störf fyrir skólanema verið efld með góðum á-
rangri.
• 1 málum aldraðra hafa orðið veruleg um-
skipti til hins betra. Tvö dvalarheimili hafa verið
tekin i notkun á timabilinu og á vori komanda
bætist hið þriðja við með sérstakri hjúkrunar-
deild. Á þessu ári verður hafin bygging á dvalar-
og hjúkrunarheimili i Seljahverfi. Tómstunda-
starf aldraðra hefur verið eflt og dagvistun verið
tekin upp við Dalbrautarheimilið. Bygging B-
álmu Borgarspitalans er þó stærsta verkefnið og
er stefnt að þvi að taka hluta byggingarinnar i
notkun næsta haust. Á næstunni tekur svo til
starfa hjúkrunardeild fyrir heilaskaðaða lang-
legusjúklinga i Hvitabandinu gamla.
• Á ári fatlaðra hefur Reykjavikurborg verið
athafnasöm og á vegum Alfa-nefndar borgar-
innar er unnið merkt starf undir ötulli forystu
Egils Skúla Ingibergssonar borgarstjóra eins og
fram kemur i áramótaviðtali i Þjóðviljanum.
Hæst ber þar sú ferðaþjónusta við fatlaða sem
borgin yfirtók og er enn verið að efla. Fjölmörg
dæmi mætti nefna um árangur af samvinnu
borgar og samtaka fatlaðra og þó að hægt miði
eins og t.d. i atvinnumálum má ráða af samtalinu
við borgarstjóra að markvisst er unnið að hinum
fjölmörgu úrlausnarefnum.
• Yfirbragð borgarinnar hefur tekið stakka-
skiptum á kjörtimabilinu. Bernhöftstorfan var
brunarúst ’78 og ellefu reisuleg timburhús við
Hallærisplan biðu niðurrifs eins og svo mörg önn-
ur á undan þeim. Ný vinnubrögð og breyttar á-
herslur i skipulagsmálum hafa skilað sér i bætt-
um miðbæjarbrag, þróttmeira borgarlifi og þétt-
ingu byggðar. Fjölmargt fleira mætti nefna af
verkefnum siðustu ára i Reykjavik svo sem um-
bætur á skiðalandi og aðstöðu i Bláfjöllum,
endurbætur á Sundhöllinni og hönnun skauta-
hallar i Laugardal. Strætisvagnafloti borgar-
innar hefur verið endurnýjaður og Bæjarútgerð-
in byggð upp. Bygging Borgarleikhúss er loks
komin á fullan skrið og þannig mætti lengi áfram
telja. Það er þvi full ástæða til að taka undir með
Sigurjóni Péturssyni er hann segir: „Þó fjögur ár
séu ekki langur timi i mótun byggðar þá hafa
undanfarin ár vissulega breytt miklu i Reykja-
vik. Það er gaman að horfa yfir liðin ár og full á-
stæða til að horfa með bjartsýni til komandi
tima.” —ekh
Marc Leland abstoöarfjár-
málaráöherra Bandaríkj-
Útlent
kapítal
í gvuðseigin...
„Marc Leland lét m.a. I
ljós þaö álit sitt aö lykillinn
aö efnahagslegri velmegun
allra landa væri hinn frjálsi
markaöur og erlend fjárfest-
ing væri hverju landi aö
vissu marki nauösynlegur
vaxtarbroddur.
— Ef viö tökum Banda-
rikin sem dæmi hér voru þau
byggö upp meö erlendri fjár-
festingu.”
(Marc Leland aöstoöar-
fjármálaráöherra
Bandarikjanna
I viötali viö D og V).
Klofinn
hvar?
Er Framsóknarflokkurinn
) klofinn um flugstööina?
Agreiningur vex milli Ólafs
Jóhannessonar og Stein-
grims Hermannssonar.
(Fyrirsögn I
Mogganum i gær).
Voru
j þeir að
klœmast?
V
I
„tslendingar ótrúlega
grófir” segja dönsku blööin
eftir stórskellinn. ■
(Fyrirsögn IMogganum). |
Ungur og
\ glœsilegur í
ofanálag
Einstaklingsfrelsi er jafn-
rétti i reynd eins og forystu-
menn Sjálfstæöiskvenna
hafa bentá. Sjálfstæöismenn
hafa valiö ungan og glæsileg-
an mann, Daviö Oddsson til
þess aö skipa fyrsta sæti
framboöslistans og meö
honum veröur úrval fram-
bjóöenda, sem borgarbúar
geta treyst og fylkt sér um,
svo aö nýtt framfaraskeiö
hefjist i höfuöborg landsins
og kommúnistar fái sann-
gjörn málagjöld fyrir svikin ,
kosningaloforö bæöi i
borgarstjórn og rlkisstjórn.
(Geir Hallgrimsson
I áramótaboöskap ,
sinum i Mogganum).
klippt
Sú var áður
önnur tíðin
Helgarpósturinn spuröi
nokkra valinkunna krata fyrir
jól, hvaöa jólagjöf þeir vildu
helstóska sér aö þessu sinni. Jó-
hanna Egilsdóttir var sjálfri sér
samkvæm einsog vænta mátti.
Hún segir aö hún óski ekki eftir
sérstakri jólagjöf. „Þaö er ekki
beint jólagjöf, en tryggingarnar
eru besta gjöfin sem gamla
fólkiö hefur fengiö”, sagöi Jó-
hanna Egilsdóttir.
Arni Gunnarsson er ekki
alveg eins litillátur i svörum
sinum: „Nei, þaö held ég ekki.
Ekki nema þú gætir gefiö mér
Saab Turbo”. Svona riöur
sænska velferöin krötum á slig.
Stétt með stétt
Verkalýösmálaráö Sjálf-
stæöisflokksins varö þritugt 4.
nóvember siöastliöinn. Af þvi
tilefni gaf ráöiö út bækling meö
ávörpum og ágripi af sögu Sjálf-
stæöismanna i verkalýöshreyf-
ingunni á glanspappir. Bækling-
urinn ber heitiö Stétt meö stétt
og kápumynd er marglit of-
skynjunarmynd, eins konar
performance, út frá heiti bókar-
innar. Aöalhöfundur bókarinnar
er sjálfur hirösagnfræöingur
Flokksins Hannes H. Gissurar-
son. Þaö þarf heldur ekki lengi
aö leita blárra blóma I þvisa
riti.
Engir verka-
lýðsflokkar
Á einum staö fjallar Hannes
um fylgi stjórnmálaflokkanna
og segir aö aflokinni prósentu-
þulu: „Þessar tölur eru aö visu
óáreiöanlegar, en sýna þaö, sem
reyndar allir vita, aö flokkurinn
(Sjálfstæöisflokkurinn) sótti
mikiö fylgi til verkamanna. Þaö
er þvi vegna staöreynda sem
fyrir liggja og ekki veröur um
deild, fullkomin fjarstæöa aö
skipta islensku stjórnmála-
flokkunum I „verkalýösflokka,
Alþýöuflokkinn og Sósialista-
flokkin (og á undan honum
Kommúnistaflokkinn) og borg-
araflokka, Sjálfstæöisflokkinn
og Framsóknarflokkinn.” Segir
sagnfræöingurinn aö Alþýöu-
flokkurinn og Sósialistaflokkir-
inn hafi veriö menntamanna-
flokkar. Og annaö er eftir þessu
hjá honum blessuöum.
Berufsverbot
hjá borginni
Hannes þenur skrif sin aö
miklu leyti meö túlkunum og
rangtúlkunum á ritum Svans
Kristjánssonar um islenska
verkalýöshreyfingu og Sjálf-
stæöisflokkinn. Þaö fer til aö
mynda mjög fyrir brjóstiö á
Hannesi aö Svanur segir frá þvi
aö flestir i stjórn óöins á árun-
um 1938 til 1958 hafi veriö verk-
stjórar og bifreiöastjórar. Svan-
ur skýrir verkamannafylgi
Sjálfstæöisflokksins á þessum
árum m.a. meö afstööu til hug-
myndafræöi, stéttarstööu, efna-
hagslegri umbun og refsingum.
Þetta þykir Hannesi ekki góö
latina. Um „efnahagslega
umbun og refsingar” segir hann
aö séu ekki til neinar heimildir.
En samt segir hann „aö sjálf-
sögöu kann þaö aö hafa breytt
einhverju um mannaráöningar
hvaöa stjórnmálaskoöanir
menn höföu”. Þetta staöfesta
lika skoöanabræöur Hannesar i
bókinni um 30. mars 1949, þar-
sem segir frá þvi aö margir
hvitliöa hafi veriö verkstjórar
og verkamenn hjá borginni.
Stalin kallinn gleymdist ekki i
baráttusögu Sjálfstæöismanna I
verkalýöshreyfingunni: Stétt
meö stétt.
Ráðist
á leiðtoga
flokksins
Skrif Hannesar I Stétt meö
stéttgeta skoöast sem samfelld
árás á foringja flokksins I
verkalýöshreyfingunni. Hannes
segir aö sókn Sjálfstæöisflokks-
ins I verkalýöshreyfingunni hafi
lokiö áriö 1942, þegar Hermann
Guömundsson fór úr flokknum.
„Þaö sem skipti sköpum, var þó
aö foringja vantaöi, eftir aö
Hermann Guömundsson fór úr
flokknum..” Kallar hirösagn-
fræöingurinn fernt til hjálpar úr
ógöngunum: 1. „hugmynda-
fræöi”, þ.e. einhverjar hug-
myndir, sem sameina menn. 2.
fylgi, 3. foringja og 4. skipulag.
Frjálslyndið
þróast best...
Hannes H. segir aö Sjálf-
stæöismenn vilji fiokk allra
stétta og hafi þvi valiö sér kjör-
oröiö Stétt meö stétt. „Flokka-
skiptingin ræöst aö dómi þeirra
ekki af stéttaskiptingunni,
heldur umfram allt af skoöun-
um manna”, segir Hannes. Hins
vegar er hann nægilega mikill
klaufi til aö ómerkja orö sin meö
þvi aö vitna til hins látna leiö-
toga Jóns Þorlákssonar
„Frjálslyndiö þróast eölilega
best meöal þeirra stétta, sem
hafa best tækifæri til þess dag-
lega aö sjá og sannfærast um aö
einstaklingsfrelsiö er þeim mik-
ils viröi, aö frelsiö veitir þeim
möguleika til aö auka velgengni
sina, sinna nánustu og félags-
heildarinnar...”
Sovétríkin í
stétt með stétt
1 ritinu er svo langur kafli um
Sovétrikin og ófrelsiö þar
eystra. Þar segir frá Gulaginu
öllu: Solsénitsyn, Búkofski og
Hlébanof. En hvaö hafa þeir aö
gera i sögu Sjálfstæöismanna I
verkalýöshreyfingunni á Is-
landi?
-ög
•a skorrið