Þjóðviljinn - 06.01.1982, Page 7
Miðvikudagur 6. janúar 1982. ÞJÓOVILJINN — StOA 7
komin upp sú staða sem hjálpað
gæti til þess að auðeldara yrði að
breyta saltfisksölunnitilPortúgal
t.d. þannigaðhelmingursölunnar
yrði óverkaður fiskur og hinn
helmingurinn fullverkaður. Og
tækjust þannig samningar þá
væri stórt og heillarikt spor stigið
fyrir framtfðina. Ef verkuð væru
hérinnanlands25þusundtonn af
þeim fiski sem nú er fluttur Ut
óverkaður myndi það þýða at-
vinnuaukningu sem nemur árs-
atvinnu fyrir nokkur hundruð
manns.
Ég tel nauðsynlegt að þessu
marki verði náð svo fljótt sem
hægt er. Þarna eru tvimælalaust
möguleikarfyrirhendi til að auka
atvinnu i landinu á næstu árum,
verði að þvi unnið skipulega. Og
hér er um alislenskt hráefni að
ræða.
Fullvinnsla
frosinna
fiskafurða fyrir
Evrópumarkað
mörku. ÖD þessi fullvinnsla fros-
inna fiskafurða hefur á undan-
förnum árum verið fyrir markaði
i Evrópu. Ég ætla okkur fslend-
inga ekki minni menn heldur en
Norðmenn,og við ættum að geta
eins og þeir fullunnið hér heima
afurðir úr frosnum fiski fyrir
markað i Evrópu. Og þegar flutn-
ingsleiðirhéðan á Evrópumarkað
eru athugaðar annarsvegar og
flutningsleiðir Norðmanna hins-
vegar frá verksmiðjum þeirra,
þar sem þær eru, þá stöndum við
ekki ver að vi'gi með flutning á
slikri vöru. Að þessum upplýsing-
um gefnum þykist ég hafa sýnt
fram á möguleika til atvinnu-
aukningar hér innanlands i' sam-
bandi við fullvinnslu frosinna
fiskafurða.
Bæði hjá Frionor og Findus
hefurverið unniðá tveimur 8 klst
vöktum á sólarhring við full-
vinnslu frosinna fiskafurða árið
um kring. Um 300manns hafa þar
atvinnu samtals. Ef unnin hefði
verið aðeins dagvinna þá hefðu
þarna unniðum 600 manns. Engin
slik starfsemi fer fram hérá landi
tilað auka verðgildi frosinna fisk-
afurða sem seldar eru héðan á er-
lenda markaði.
Hagnýtíng loðnu
og annarra
smáfisktegunda
til manneldis
Hér að framan hef ég sýnt fram
á möguleika til atvinnuaukn-
ingar, bæði viðvikjandi saltfisk-
framleiðslu, svo og framleiðslu
frosinna fiskafurða. Ennþá er þó
ótalinn stærsti möguleikinn, en
hann er sá, að breyta miklu af
loðnuafla okkar íslendinga í
manneldisvöru. Ennfremur kol-
Þá er næst að athuga afurðir is-
lenskra hraðfrystihúsa og sjá
hvort ekki séu möguleikar á ís-
lenskri atvinnuaukningu i sam-
bandi við þær. Ég sleppi hér
Bandaríkjamarkaðnum þar sem
bæði Sölumiðstöðin og Sjávaraf-
urðadeUd Sambandsins eiga sinar
fullkomnu fiskréttaverksmiðjur
sem starfræktar eru þar með
mjög góðum árangri.
Hinsvegar er það Evrópu-
markaðurinn,og þar eru tvi'mæla-
laust fyrir hendi möguleikar
verði að þvi unnið að nota þá.
Frionor,sem er einskonar Sölu-
miðstöð Norðmanna hefur nú hátt
á annan áratug fullunnið fiskrétti
ýmiskonar úr frosnum afurðum
fyrir Evrópumarkað. Þessi starf-
semiferfram i stórri og fullkom-
inni fiskréttaverksmiðju i Þránd-
heimi. Þarna hafa unnið 160
manns á vöktum árið um kring.
Siðast þegar ég kom þama siðari
hluta árs 1978 þá var unnið þarna
á mörjum vinnslurásum.
Samti'mis fer samskonar full-
vinnsla fram i miklum mæli hjá
stórfyrirtækinu Findus i
Hammerfest norður á Finn-
munna og spærlingi. Slik um-
bylting i hagnýtingu þessara fisk-
tegunda mundi veita geysilegum
fjölda fóDis atvirinu. Ef t.d. væri
hafin þurrkun þessara fiskteg-
unda itugþúsunda tonna tali fyrir
markað i Afriku og Asiu sem
óefað er hægt að afla sé eftir
leitað þá gæti sli'k starfsemi orðið
mikil lyftistöng fyrir islenska
þjóðarbúið.
Og það eru fleiri möguleikar i
sambandi við nýtingu á loðnu til
manneldis. heldur en þurrkunin
ein.En liklega engir semhagnýtt
gætu jafnmikið aflamagn.
I sambandi við slika hagnýt-
ingu loðnunnar þyrftu að sjálf-
sögðuaðri'sa afkastamikilfrysti-
hús og frystigeymslur þar sem
hráefnið væri geymt árið um
kring, þvi að sjálfsögðu eiga
slikar fisk-þurrkunarverksmiðj-
ur að vera i gangi allt árið.
Það er sama hvert litið er, at-
vinnumöguleikar i' sambandi við
sjávarútveginn eru siður en svo
fullnýttir. Hverjum manni sem
hefur opin augu, hlýtur að' verða
þetta ljóst.
Matvælaframleiðsla i' heimi
sem skortir mat er að sjálfsögðu
tryggasta framleiðsla sem hugs-
ast getur. A sama tima og stór-
iðnaðarlöndin með þúsundir
málmbræðslna stynja undan at-
vinnuleysinu sem fer vaxandi þá
höfum við íslendingar bUið við
tryggt atvinnuástand fyrst og
fremst vegna þess, að undirstaða
okkar þjóðarbúskapar er mat-
vælaframleiðsla, en hvorki stál
né ál.
Og nú þegar við íslendingar
horfum fram á þetta nýbyrjaða
ár, þá ættu menn að hugleiða
hvernig útlitið væri framundan,
ef hér hefði verið búið að reisa 10
Grundartangaverksmiðjur.
Ef saltfiskur væri fullverkaður hér innanlands I rikari mæli en nú er myndi það þýða ársatvinnu fyrir
nokkur hundruð manns til viðbótar. Kenningin um að fiskvinnsla og fiskiðnaður geti ekki tekiö við fleira
fólki er ein versta falskenning sem fram hefur komiö.
Karl Agúst Úlfsson, Edda Björgvinsdóttir, Kari Guðmundsson, Edda
Hólm og Viðar Eggertsson i hlutverkum sinum i „Þjóðhátið”.
Ljósm.: — eik —
Hernám
hugans
Alþýðuleikhúsið sýnir
ÞJÖÐHATÍÐ
eftir Guðmund Steinsson
Leikstjóri: Kristbjörg Kjeld
Leikmynd: Guðrún Svava
Svavarsdóttir.
Leikhljóð: Gunnar Reynir
Sveinsson.
Þetta leikrit Guðmundar
Steinssonar er vist skrifað fyrir
einum tiu árum eða svo og gerist
snemma á sjötta áratugnum,
skömmu eftir komu bandariska
hersins 1951. Það fjallar um sam-
skipti Islendinga við herinn á
þessum árum, deilir háðskt á ein-
feldningshátt þeirra og sveita-
mennsku i þeim samskiptum og
sýnir þá hugarfarsmengun og
spillingu sem þessum samskipt-
um fylgdu. Viö sjáum hvernig
venjuleg alþýðufjölskylda tekur
hermanni opnum örmum, hvern-
ig hann smám saman nær tökum
á henni og skilur hana loks eftir i
rústum.
Eins og yfirleitt hjá Guðmundi
er verkið einfalt en sterkt i
byggingu, framvinda þess rök-
viss og skýr. Þaö fer rólega af
staö, siöan eykst hraði og spenna
og nær hámarki i þriðja þætti en
dettur siðan niöur i einskonar
antiklimax, fullkomlega viðeig-
andi að visu, i fjórða þætti. Sam-
tölin bera mjög keim af samtöl-
um i öðrum verkum Guðmundar,
fólk talar i innantómum klisjum,
tilbúnum orðaleppum sem þaö
notar I stað þess að hugsa, og
reyndar eru árásir sonarins á for-
eldranna i þriðja þætti fyrst og
fremst fólgnar i þvi að þau hugsi
ekki og séu þess vegna auðveld
bráð.
1 sýningunni tekst afar vel að
skapa andrúmsloft þessara ára
og er það ekki sist að þakka
framúrskarandi leikmynd Guð-
rúnar Svövu, en stofan nær full-
komlega að tjá i senn tiðarandann
,og andlegt ástand fjölskyldunnar
sem i henni býr. Leikhljóð
Gunnars Reynis Sveinssonar
hjálpa einnig mikið til að skapa
hina réttu stemmningu. Við sjá-
um i þessari sýningu þjóð milli
vita, fólk sem er aö baslast upp úr
fátækt og eymd, fólk sem er að
reyna að koma sér upp borgar-
menningu, sveitamenn á mölinni
með sinn fótinn á hvorum stað.
Inn i þetta menningarlega rót-
leysi á herinn greiðan aðgang.
Kristbjörg Kjeld hefur leikstýrt
verkinu af öryggi. Hún dregur
mjög skemmtilega fram fyndnina
i fyrri hluta þess en nær einnig vel
andstæðunni, ógnun og eyðilegg-
ingu seinni hlutans.
Karl Guðmundsson, i hiutverki
heimilisfööurins, sér einkum um
að koma fyndninni til skila. Sam-
ræður hans við hermanninn eru
dýrlegar, einkum nákvæmlega
útfært látbragð og handa-
hreyfingar sem hann notar til
þess að útskýra flatneskjulegar
staðhæfingar sinar og
spurningar. Hann túlkar vel sof-
andahátt húsbóndans, sem liggur
i fornsögum en er gersamlega
blindur fyrir þvi sem gerist i
kringum hann.
Edda Hólm leikur hér af meira
örygg: en hún hefur áður gert.
Hún hefur náð töluverðu valdi á
sterkum tilfinningasveiflum og
tekst aö brúa bilið milli þess
hlægilega og grátlega, þ.e. gera
persónu sina hlægilega og brjóst-
umkennanlega I senn. Karl Agúst
Úlfsson leikur hermanninn af
prýöi og eru atriðin milli hans og
Eddu, fyrst þegar hann veitist að
henni og siðan er hún veitist að
honum best heppnuð i sýningunni.
Viðar Eggertsson leikur soninn,
gáfnaljósið sem liggur i bókum en
virðist algerlega utangátta þar til
loks hann ærist, klæðist blússu
hermannsins og ógnar öllum hin-
um með byssu hans. I þessu atriði
fer Viðar á kostum, nær að tjá
brjálæði drengsins (sem við hljót-
um aö skilja sem eins konar geð-
klofa) af yfirþyrmandi krafti.
Edda Björgvinsdóttir fær hins
vegar litil tækifæri til tilþrifa i
litilvægu hlutverki dótturinnar,
en gervi hennar er með sérstök-
um ágætum.
Þetta er vel heppnuð sýning á
forvitnilegu verki og góð viðbót
viö annars ágætt framboð
Alþýðuleikhússins á leiksýning-
um þessa dagana.
Sverrir Hólmarsson.