Þjóðviljinn - 09.01.1982, Side 8

Þjóðviljinn - 09.01.1982, Side 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 9.—10. janúar 1982 mér er spurn Guöni Guðmundsson rektor svarar Andreu Jónsdóttur blaðamanni: Hafa menntskælingar minni máltilfinningu nú en fyrir 10 árum? Spurning Andreu var svohl jóðandi: „Hafa menntskælingar minni máltilfinningu og mál- fræðiþekkingu nú en t.d. fyrir 10 árum? Ef svo er, hver heldur þú að ástæðan sé?" Kæra Andrea. Það er orðiö æðilangt siöan leiöir okkar lágu saman i Menntaskólanum i Reykjavik, og svosé ég af tilskrifi þinu til Ellas- ar að þú hafir verið hippi. Já, það er margt skrýtiö i kýrhausnum. Og svo virðistu vera allaballi, en um þann kýrhaus ætla ég ekkert aö tala. En meö þessu sannar þú lika, aö þaö aö hafa lært málfræöi kemur ekki i veg fyrir, aö maður geti oröiö hippi og allaballi, og þar meö ertu lifandi tákn um, aö málfræöiiökan hefur ekki nei- kvæö áhrif á ideólógiska þróun ungmenna. En sjálf spurning þin vekur meö mér grunsemdir um, aö þú sért ekki haldin þvi „frjáls- lyndi i menntamálum” sem mér hefur fundizt afar margir trú- bræöur þinir haldnir hin siöari ár, og er þaö vel. Aö þessum formála loknum er best aö snúa sér aö spurningu þinni, sem þú oröar svo: Hafa menntskælingar minni máltil- finningu og málfræöiþekkingu nú en t.d. fyrir 10 árum? Ef svo er, hver heldur þú aö ástæöan sé? Um máltilfinningu, eins og aör- ar tilfinningar, er erfitt aö full- yrða nokkuö, sizt af öllu, hvort hún er meiri eöa minni en var ein- hvern tima i fortiöinni. Þaö væri auöveldara aö tala um, hvort hún sé betri eöa verri en æskilegt væri frá sjónarmiöi einhvers einstakl- ings. Um málfræöikunnáttuna er auöveldara að dæma, þvi aö hún er meira konkret, og þvi held ég, aö ég byrji á henni. Þaö fer ekki á milli mála, aö kunnátta I málfræöi er stórum minni hjá nemendum nú en var fyrir lOárum eöa enn lengri tima. Þessa skoðun byggi ég á eigin reynslu og samtölum viö kenn- ara. Ég þykist geta merkt þaö, barnakarlinn, aö miklu minni á- herzla hefur veriö lögö á aö kenna yngri börnum minum málfræöi i barnaskóla en hinum eldri, og jafnvel hinum eldri minna en mér, en þá erum viö komin út i sagnfræöi og rétt aö láta staðar numiö. Nú á dögum viröist raunar ekki lengur mega tala um málfræöi i grunnskóla, heldur skal barniö heita málvlsi, hver fjandinn sem þaö nú er. Þessi fjandskapur út i — eöa hræösla viö — málfræöi er svo sem ekki nýtilkomin, þvi aö „bókmenntalega sinnaðir” menn allt frá Halldóri Laxness til nú- timans hafa verið óþreytandi viö aö fordæma þessa fræöigrein, a.m.k. sem kennslugrein I skól- um, og árum saman hefur Mogg- inn meira aö segja ekki kallaö hana annað en „málfræöistagl.” Þaö er hins vegar bjargföst skoöun min, aö án þekkingar á málfræöi og uppbyggingu eöa „strúktúr” máls veröi aldrei til nema vond máltilfinning eöa málkennd. Maöur, sem ekki þekkir oröflokka, kann ekki beyg- ingar og hneigingar orða, skilur ekki mun á frumlagi og andlagi, getur aldrei greint á milli góös máls og vonds, hvaö þá rétts máls og rangs, og getur þvi aldrei af neinu viti ræktað meö sér mál- kennd, þvi aö málkennd er ekki aöeins fólgin i þvi aö kunna mikiö af oröum, heldur ekki sföur i þvi aö kunna aö fara rétt meö orö, bæöi merkingarlega og málfræöi- lega. Þaö má skjóta þvi inn hérna, aö allur sá aragrúi spurninga, sem útvarpsþáttum um islenzkt mál berst, er um þessi atriði: a) merkingu oröa og b) beygingar- og setningafræöi. Hann beinist ekki aö fögru oröavali eöa skáld- legu innsæi eöa þess háttar bók- menntalegu rövli. „Fólkiö i land- inu”, sem þiö allaballar viröizt telja ykkur hafa einkarétt á, hef- ur áhuga á málfræöi, ekki estetik, enda mun sú tik vera töluvert ein- staklingsbundin og duga illa sem undirstööumatur, en hins vegar Guöní Guömundsson ágæt sem ofanálegg á staögóöa málfræöikunnáttu. Ég verö lika aö koma hér að ööru innskoti, sem er kannski öllu: alvarlegra, en þaö er, aö nú oröiö skilst mér, aö menn geti tekiö lokapróf i Islenzku viö Háskóla Is- lands án þess aö hafa tekiö svo mikiö sem einn kúrsus sem varö- ar forsögu islenzks máls eöa tengsl þess viö önnur mál. Sic transit gloria mundi. Nú reikna ég meö þvl sem Ólafur Gunnarsson Þjóðviljinn spyr Ólaf Gunnarsson framkvæmdastjóra i Neskaupstað: Hvers vegna er ekki stofnuð fiskrétta - verksmiðja á íslandi þar sem fullunnir eru ýmis konar fisk- réttir úr frosnum sjávarafurðum, likt og Norðmenn gera og selja á Evrópu- markað? gefnu, aö þú hafir beint til min of- angreindri spurningu sem ensku- og frönskukennara, þvi aö viö þær iökanir lágu vegir okkar saman. Ég gef mér lika aö þú hafir áhuga á aö vita, hvort þessi stórminnk- aöa málfræöikunnátta nemenda i framhaldsskólum geri kennur- um, er kenna erlend tungumál, starfiö erfiöara. — Ég held, aö ég geti fullyrt, aö svo sé, þó aö ég kynnist þvl miöur ekki eins mörg- um nemendum i kennslustund nú og þegar ég kenndi allt að 40 stundum á viku. En þeir kennar- ar, sem ég hef rætt þetta við, virðast sammála um, aö minni þekking nemenda i málfræöi geri starfiö érfiöara, einkum i málum, þar sem málfræöi er snúin, eins og t.d. i þýzku og sjálfsagt frönsku lika. Min reynsla er lika sú, aö i jafn málfræöi-litlu máli og ensku er maöur að kljást viö mál- fræöivillur upp eftir öllum bekkj- um, sem I gamla daga höföu veriö aö mestu upprættar i þriöja bekk. En hér komum viö aö ööru atriöi, sem vert er aö gefa gaum: Allar nýjungar i kennslu erlendra tungumála á slöustu áratugum hafa beinzt aö þvl aö gera menn talandi á málinu á sem allra skemmstum tima, og ekki talandi um hvaö sem er, heldur um hversdagslega hluti. Aöferöirnar beindust aö þvi td. aö kenna her- mönnum nægilega mikiö til aö þeir gætu verzlaö og spurt til veg- ar I hernumdum löndum, farand- verkamönnum nægilegt til aö geta lifaö i framandi löndum eða fólki úr þriöja heiminum, sem hljóta átti tækniþjálfun I iönrikj- unum, nægilega mikiö til aö geta lifaö og starfaö og lært á tæki og tól. — Þetta er i sjálfu sér veröug- ur tilgangur og góöra gjalda veröur og hefur boriö töluveröan árangur. En þá vaknar spurning- in hvort þetta sé nægjanlegt fyrir islenzka framhaldsskólanemend- ur. tslendingar hafa þá sérstööu aö vera mjög fáir, tala sérstakt tungumál og búa langt frá öðrum. Viö getum ekki gengið út i bilinn og ekiö á nokkrum mlnútum eöa klukkutímum inn á annaö mál- svæöi. Viö getum ekki, vegna fæöar, þýtt öll þau rit, sem nota þarf viö kennslu og nám á íslandi. Fyrir meginlandsbúana kann aö vera nóg aö kenna hrafl I erlend- um málum, þannig aö menn geti lifaö af I nálægum löndum, þvi aö þar er markaöurinn svo stór, aö hægt er aö þýöa öll meiriháttar rit á móöurmálið vegna kennslu og náms. Um íslendinga gegnir allt ööru máli. Vegna fæöar okkar og smæöar veröum viö alltaf háöir þvi i kennslu og námi aö þurfa aö nota mikiö af erlendum bókum.. Þaö er okkur þvi nauösynlegra en öörum aö hafa mjög staðgóöa tungumálakunnáttu. Okkur nægir ekki, a.m.k. ekki þeim, sem framhaldsnám stunda, aö kunna nokkra hentuga „frasa” til aö nota á Costa del Sol eöa hjá Marks & Spencer. Þaö stoöar lika litt aö hafa gullfallegan framburö á erlendu máli, ef maöur getur ekki rætt neitt merkilegra en veöriö. — Þaö, sem leggja veröur þvi áherzlu á I Islenzkum skólum er aö kenna mönnum málfræði, ekki bara móöurmálsins, heldur lika erlendra mála, og auka oröa- foröa bæöi móöurmáls og er- lendra mála. Þaö er nokkurn veginn sama, hvaöa nám menn leggja fyrir sig aö loknum menntaskóla, þeir þurfa að lesa mjög verulegan fjölda bóka á erlendum tungu- málum, og allir, sem ætla sér i sérfræöinám, þurfa aö fara utan og læra á erlendum málum. Fyrir þetta fólk geta skólar á tslandi ekki betra gert en einbeita sér aö: a) staögóöri málfræðikennslu i öllum tungumálum, og b) aukn- ingu oröaforðans, eins og frekast er unnt, þvi aö sá timi, sem fer i aö fletta upp i orðabókum i fram- haldsnámi, þarf aö vera sem allra skemmstur. Nú finnst þér sjálfsgt mál aö linni, og ég er þér sammála um þaö, þó aö margt sé enn ósagt. En að iokum vil ég segja þetta: Ná- kvæmni i vinnubrögöum er öllum mönnum nauösyn, en ekki sizt þeim, sem fræöi hyggjast stunda. Þaö þarf aö aga hugann, og sú ög- un, sem málfræöin veitir þanka mannsins, er öllum holl. Það þýö- ir ekkert aö ætla sér aö hlaupa, áöur en maöur getur gengiö. Vitur maöur vildi fyrir nokkr- um árum stofna félag, er heita skyldi „Látiö menninguna i friöi”. Ég heföi gjarna viljaö ganga i þann félagsskap, kannski helzt til aö verja okkur saklausa fyrir þessu endalausa rausi um bókmenntir, sérstaklega „bók- mennta-krufningu”,sem er eitt- hvert tilgangslausasta pex, sem ég get hugsað mér, og algjörlega óagaö. Ég væri tilbúinn aö ganga i félag, sem heföi aö markmiöi aö auka málfræöikennslu, auk mál- fræöi-krufningu, auka þá nauö- synlegu ögun hugans, sem „þjóö- inni okkar” veitir svo sannarlega ekki af. Vertu svo kært kvödd, Andrea min. Guöni Guömundsson ritstiornararci n Kjartan ] ísland i - Danmörk, ] Bretland Ólafsson skrifar Deilan um fiskverðiö ásamt kjaradeilu sjómanna og útgerö- arbanna hefur nú leitt til þess, aö hér ganga um 13.000 manns atvinnulausir. Þetta eru sjó- menn og fiskvinnslufólk um land allt. öllum landsmönnum er væntanlega ljóst hversu hrikalegt slikt ástand er, ef þaö varir til lengdar, og þarf ekki mörg orö þar um aö hafa. I forystugrein Morgunblaös- ins I gær er réttilega vakin at- hygli á þvi aö tala 13.000 at- vinnuleysingja hér samsvari 300.000 atvinnuleysingjum i Danmörku og 3.000.000 atvinnu- lausra i' Bretlandi. Sem betur fer þá er þaö at- vinnuleysi, sem við búum við þessa dagana timabundiö og eingöngu tengt ákveönu deilu- máli, sem auövitaö veröur að leysa á næstu dögum. Aö ööru leyti þá erhérog hefur veriö um langt skeiö full atvinna, og reyndar margfalt meira um yf- irvinnu heldur en atvinnuskort. Þessu er ólfkt farið f Dan- mörku og Bretlandi. Morgun- blaöiö benti á þaö, aö þegar allir islenskir sjómenn á fiskveiði- flotanum og allt fiskverkunar- fólk hringinn i kringum landiö gengur atvinnulaust vegna verkfalls þá samsvarar allur þessi fjöldi þrjúhundruö þúsund manns i Danmörku og þremur miijónum i Bretlandi og er þá miöaö viö ibúatölur rikjanna. En hver skyldi svo vera opin- ber tala atvinnuleysingja i Bret- landi og Danmörku? — Um það segir ekkert i forystugrein Morgunblaðsins. Svo undarlega vill hins vegar til aö tala atvinnuleysingja i Danmörku er einmitt rösklega 300.000 og tala atvinnulausra i Bretlandi nú um þessi áramót er um 3.000.000 manna. — Mun- urinn á tslandi annars vegar og Bretlandi og Danmörku hins vegar er bara sá, aö hér er at- vinnuleysið timabundið, og or- sakast eingöngu af ákveöinni kjaradeilu, sem engum dettur I hug að geti staöið mánuöum saman, en i Danmörku og Bret- landi hefur álika fjöldaatvinnu- leysi veriö varanlegt ástand nú um langt skeiö. A þessu tvennu er nú aldeilis munur! Eöa hvernig litist mönnum á, ef hér kæmi upp breskt eða danskt ástand i at- vinnumálum? — Með öörum orðum: Hvernig litist mönnum 1 á, ef fjöldi sem samsvaraöi öll- um okkar fiskimönnum og öllu okkar fiskvinnslufólkibyggi hér við varanlegt atvinnuleysi? Stjórnarandstæöingar á Is- landi bæöi úr Sjálfstæöisflokkn- um og Alþýöuflokknum iöka það aö kenna islensku rikisstjórn- inni um alltsem miöur fer iokk- ar atvinnu- og efnahagsmálum. Látum svo vera. En eru þaö ekki flokksbræöur þeirra Geirs Hallgrimssonar og Kjartans Jóhannssonar, sem fara meö völd I Danmörku og Bretlandi? Sjaldan hafa sést likari kosningastefnuskrár aö öllu eöli og inntaki heldur en leiftursóknarboöskapur Geirs Hallgrímssonar og félaga fyrir alþingiskosningarnar 1979 og kosningastefnuskrá sú, sem Margareth Thatcher, formaöur breska íhaldsflokksins flaggaði meö nokkrum mánuöum fyrr og hefurstjórnaöeftir siöan. Verk- in sýna merkin. Breski ihalds- flokkurinn vann kosningasigur og járnfrúin hóf leiftursóknina gegn lifskjörum breskrar al- þýðu. Fljótlega hafði atvinnu- leysiö tvöfaldast i Bretlandi og samsvarar nú þvi, að allir Is- lenskir sjómenn á fiskveiðiflot- anum og allt fiskverkunarfólk i landi væri hér varanlega at- vinnulaust. petta ættu allir þeir sem ’heyra og sjá áróöursbrögð flokkseigendafélagsins i Sjálf- stæöisflokknum aö hafa rikt i huga. Vilja menn skipta? Viö viljum ekKi varpa allri sök af hörmulegu ástandi at- vinnumála i Danmörku á stjórn Anker Jörgensens þar. Orsak- irnareru margþættar, og stjórn Ankers aöeins minnihluta- stjóm. Hitt erum við sannfærö um, aö svo illa sem dönskum krötum hefur gengiö aö ráöa við vanda atvinnumálanna þar, þá er sú sérkennilega útgáfa af só- sialdemökrötum, sem hér skip- ar forystusveit Alþýöuflokksins ekki liklegri til heilla I atvinnu- málum væri þeim fengin völd I hendur. Og i Danmörku er nú fjöldaatvinnuleysi meö þeim hætti eins og I Bretlandi, aö paö samsvarar þvi að hér væru þrettánþúsund manns varan- lega atvinnulausir eöa allt okk- ar starfsfólk i sjávarútvegi, bæöi á landi og sjó. Það er sagt að reiðuíé atvinnu- leysistryggingasjóös gangi til þurrðar á fáum dögum nú. Ætli þeir sem atvinnu héldu, fengju ekki fljótlega nóg að borga i at- vinnuleysisbætur, ef danskt eða breskt ástand yröi hér varan- legt I atvinnumálum? Viö skulum muna þaö vel Is- lendingar, aö þött hjá okkur gangi sitthvað úrskeiöis, þá er- um viö um margt betur settir en flestar okkar nágrannaþjóðir, og við höfum margt aö verja. Meðan allir hafa fulla atvinnu finnst mörgum slikt sjálfsagt mál. En viö erum ekki ein i heiminum. Og viö skulum horfa á löndin I kringum okkur I þeim sökum. Og viö skulum taka höndum saman um að verja þaö háa atvinnustig, sem hér hefur tekist aö halda uppi síðustu ár, — þótt sumir mættu vinna meira en aörir minna. k.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.