Þjóðviljinn - 09.01.1982, Síða 9

Þjóðviljinn - 09.01.1982, Síða 9
Helgin 9.—10. janúar 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Vita Andersen Mitt framlag til kvennabaráttunnar er að skrifa — Ég byrjaöi aö skrifa meö leynd þegar ég var 19 ára og hélt þvi áfram meö leynd i 10 ár án þess aö nokkuð af þvi birtist opin- berlega, sagöi danski rithöfund- urinn Vita Andersen i viötali viö Þjóðviljann I gær, en hún er nú stödd hér á landi ásamt manni sinum, þingmanninum Mogens Camre i boöi Norræna hússins, Alþýöuleikhússins, Lystræningj- ans og Dans-islenska félagsins. — Þetta voru athugasemdir og smámyndir sem ég hripaði upp á blaösnepla. Þaö var ungur rithöf- undur sem ég kynntist, sem sagöi mér aö þetta væri ekki svo slæmt hjá mér og hvatti mig til þess aö koma verkum minum á framfæri. Ég heföi sjálfsagt veriö reiöubúin til þess aö greiöa einhverjum út- gefanda fyrir aö koma fyrstu ljóöabókinni minni á prent, og var þvi himinglöð, þegar hún var gefin út i 600 eintökum. Þetta var ljóðabókin Tryghedsnarkomaner, og þaö óvænta geröist, aö hún seldist upp áhálftima. Siðan hafa útgefendur ólmir viljaö gefa út allt þaö sem ég læt frá mér fara, og þótt þaö sé mikil breyting til hins betra þá hefur það lika þann vankant aö sumt af þvi er kannski ekki eins gott og skjldi. Ég haföi i mörg ár þjáöst af vanmetakennd og þjáöst. af þeirri tilfinningu aö ég væri einskis nýt. Ég kem frá lágstéttarumhverfi og get varla sagt aö ég hafi þekkt foreldra mina. Ég var að mestu alin upp á barnaheimilum i æsku. — Hvaö var það sem fékk þig til aö skrifa? — A uppvaxtarárum minum haföi þaö áhrif á mig hvilikt djúp v^ir á milli minnar eigin reynslu og þess lifs sem ég sá og imyndaöi níér aö væri lifaö úti i þjóöfélag- inu. Þegar ég fór aö vinna flæktist ég viöa. Vann i verksmiðjum, sem þjónustustúlka á veitinga- húsum, á feröaskrifstofu, ég réöi mig einnig til vinnu á Grænlandi og þaö var erfið reynsla sem fékk mikiö á mig. Ég hef frá þvi ég man eftir mér veriö sólgin i sögur af fólki, og allir þeir vinnustaðir og allt þaö fólk og umhverfi sem ég hef kynnst sem verkakona hef- ur m.a. orðið mér efni i þaö sem ég hef skrifað. Þaö koma myndir upp i hugann á mér, ég veit ekki hvers vegna, og ég skrifa þær nið- ur. Það hefur háö mér sem rithöf- undur, aö ég hef ekkert lært til verksins. Ég var lélegt i mál- fræöi, og bókmenntafræöingar, .sem ég ber mikla viröingu fyrir, hafa fundiö þaö út, aö oröaforöinn i bókum minum sé ekki nema um 800 orð, sem mér skilst aö sé á mörkum þess aö vera oröaforöi vangefinna... ég fær oft þá tilfinn- ingu, aö nú veröi ég aö setjast niö- ur og læra einhver ný orð. — Er sú dapra mynd, sem dreg- in er upp i sögum þinum af tilfinn- ingakuida og afskiptaleysi i mannlegum samskiptum byggö á þinni eigin reynslu? — Nei, þaö er mikill en ótrúlega útbreiddur misskilningur aö þetta séu minar lifsreynslusögur, þetta eru sögur og myndir, sem mér hefur dottiö i hug. Einu sinni stoppaöi kona mig á götu, og spuröi hvort það væri ekki hræöi- leg reynsla aö hafa gengiö i gegn- um þær nauöganir og misþyrm- ingar, sem sagt er frá i sumum sögum minum, en mér hefur aldrei verið nauðgað... — Hefur þú einhverja skýringu á þvi hvers vegna bókum þinum hefur veriö tekið jafn vei og raun ber vitni? — í raun og veru ekki. Þaö hef- ur á vissan hátt veriö dekraö viö mig. Mér hefur verið hampaö i dagblööunum og vikublööunum og þaö hefur mikii áhrif. Margar konur hafa sagt aö þær sjái sjálf- ar sig i sögum minum, og bók- menntagagnrýnendur hafa sagt að i bókum minum sé aö finna nýjan reynsluheim, reynsluheim kvenna. I þeirriumræðu sem fariö hefur fram undanfarið um kvennabók- menntir hafa sumir karlar haldiö þvi fram, aö konur skrifuöu bara eina bók á ævinni, eins konar móðurlifsreynslusögu. Það var lika sagt eftir aö Tryghedsnar- komaner kom út. Þaö varö mér hvatning til þess aö halda áfram og sýna þeim, aö ég gæti meira. — 1 sögum þinum dregur þú upp næsta óvægilega mynd af karl- manninum, mennirnir I sögum þinum eru yfirleitt tilfinningalega bældir og haldnir kynferöisiegri ofbeidishneigö. Er þetta reynsla þin af karlmönnum? — Nei, þaö vil ég ekki segja. Menn hafa sagt aö ég væri karla- hatari, en það er ekki satt. En þeir eru oft kúgaöir af samkeppn- inni á vinnumarkaönum, þeir þola verr aö verða undir I sam- keppninni en konur, og þessi kúg- un á karlmönnum gerir þá stund- um aö kúgurum gagnvart konum. — Konurnar i sögum þinum eiga oft i baráttu viö þær kröfur og þau mynstur, sem sett eru fram i tiskuheiminum og svoköll- uðum kvennablööum. Er þaö skoöun þin aö „kvennabiööin” séu skaöieg? — Þær fyrirmyndir sem konum eru gefnar i kvennablööunum eru skaðlegar. Þær ala á stööugri óánægju og ófullnægju, og marg- ar konur nota allt sitt lif til þess að reyna aö uppfylla þau mynst- ur, sem sett eru fram i þessum blööum. — Hefur þú veriö virk í dönsku kvennahreyfingunni? — Mitt framlag til kvennabar- áttunnar hefur falist I þvi að skrifa. Ég er ekki virk i þeirri baráttu aö ööru leyti. — llvaöa verkefni ert þú aö vinna aö um þessar mundir? — Ég hef verið aö skrifa leik- húsverk fyrir leikhúsiö i Arósum og ég lauk eiginlega viö þaö dag- inn áöur en ég kom hingaö til Is- lands. Þetta er leikrit sem fjallar m.a. um fikniefnaneyslu, of- neyslu á eiturlyfjum og ofneyslu á kökum. Kökur geta nefnilega lika veriö fikniefni. Ég veit ekki hvernig þaö.er hér hjá ykkur, en i Danmörku eigum viö við alvarleg eiturlyfjavandamál aö striða. Þau tengjast m.a. atvinnuleys- inu, en þaö eru 9% atvinnufærra manna atvinnulausir, og þar af eru 100 þúsund undir 25 ára'aldri. Atvinnuleysiö er hræöilegt böl sem gerir lif fólks tilgangslaust og elur á vanmetakennd. Þaö verkar þannig mjög hvetjandi á hvers konar fikniefnaneyslu, hvort sem þaö er i formi haröra eiturlyfja eöa annarrar meira heföbundinnar ofneyslu. — Hefur atvinnuieysiö ekki orö- iö til þess aö breyta lestrarvcnj- um fóiksins. Lesa Danir ekki meira nú en áöur? — Nei, þvert á móti. Sá sem lifir i þeirri tilgangsleysistilfinningu, sem atvinnuleysiö skapar leitar fyrst og fremst eftir einhverju til aö gleyma sinum ömurlegu aö- stæöum. Fyrir utan eiturlyfin er það „kvennablööin” og einhverj- ar sögur sem fá fólk til aö gleyma raunveruleikanum. Og svo er þaö Dallas i sjónvarpinu, ég veit ekki hvort þiö hafið fengiö það hingað. Þaö þarf forvitni til þess aö lesa bókmenntir, og atvinnuleysiö verkar lamandi á hana þegar þvi er þvingaö á mann. En fari maö- ur sjálfviljugur i fri frá vinnunni gegnir öðru máli. Þaö getur virk- aö mjög örvandi. i,_ s/nn/ / r » a ar/ opnum viö lagerinn hjá okkur og höldum verksmiðjuútsö/u Þar seljum viðgallaðar vörur og ýmsa afganga á hlægilegu verði Viðbjóðum viðskiptavinum okkar frá liðnum árum velkomna aftur og lofum þeimekki síðri V>s kaupum en i fyrra. j w Þið hin ættuð lika að kíkja inn þó ekki ^ væri nema til að sjá hvernig R_>^_ ^ raunveruleg verksmiðjuútsala á aö vera ^ Opið iaugardag kl. 10-19 Verksmiðjuútsalan Grensásvegi22 (á bak viögamla Litavershúsið)

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.