Þjóðviljinn - 09.01.1982, Side 22
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 9,—10. janúar 1982
Úr
kýrhausnum
Afsakið... ég var rétt i
þessu að stökkva ofan af
the Empire State Build-
ing
Ungur listamaöur i New
York, auralaus og einmana, á-
kvað að svipta sig lifi á jólunum
1977. Hann tók lyftuna upp á 86.
hæð i Empire State bygging-
unni, þeirri hæstu i heimi.
Náungi þessi hét John Helms
og var 26 ára að aldri. Hann
klifraöi yfir öryggisnetið á út-
sýnissvölunum, baö stutta bæn
og henti sér fram af, niður til
bilanna sem sýndust örsmáir
þarna i meira en 300 metra hæð.
Hálftima siðar vaknaði John
Helms og fann það út að hann lá
á tæplega eins metra breiðri
syllu á 85. hæð en þangað hafði
vindsveipur feykt honum. Hinn
ungi ógæfusami listamaður á-
lyktaði sem svo aö Guð heföi
bænheyrt hann og ákvað að
hætta við sjálfsmorðið.
Hann bankaöi á glugga á sim-
stööá hæöinni og var hleypt inn.
Bill Steckman simastarfsmað-
ur var við vinna sina þegar
þetta gerðist og hann sagði sið-
ar: Ég trúöi ekki minum eigin
augum, menn leggja það jú ekki
i vana sinn að banka á glugga á
85. hæö. Ég hélt aö ég sæi of-
sjónir og min fyrstu viðbrögð
voru að gripa glas og fá mér
vænan slúrk...
Helms fann það hins vegar út
að lifið á jólunum væri ekki eins
óbærilegt og áður leit út fyrir.
Fiskisagan flaug og áður en
varði fékk hann hundruð heim-
boöa frá hræröum borgarafjöl-
skyldum.
Aö kunna sig
Og hér kemur önnur frá
Bandarikjunum. Stuttu eftir að
Calvin Coolidge tók við embætti
forseta bauð hann nokkrum vin-
um utan af landi til málsverðar i
Hvita húsinu. Fólkið var eðli-
lega taugaóstyrkt i svo virðu-
legu umhverfi og var ekki visst
um að kunna sig við borðhaldið
þannig að það apaði allt eftir
forsetanum. Forsetinn hellti
hálfum kaffibolla sinum i undir-
skálina og allir gerðu eins. Sið-
an setti hann rjóma og sykur út i
og allir gerðu eins. Næst tók for-
setinn undirskálina og lagði
hana á gólfið fyrir köttinn sinn.
Fyrsti bilstjórinn
Nicholas Cugnot, franskur
stórskotaliðsforingi, varð fyrst-
ur til að gera þrjá hluti hér I
heimi sem margir hafa siöan
leikið eftir. Hann varð fyrsti bil-
stjórinn er hann vann það afrek
að finna upp gufuknúinn bil árið
1769. Fáum minútum eftir að
billinn var settur i gang varð
hann svo fyrsta fórnarlamb bil-
slyss. Hann ók beint á múrvegg.
Uppfinningamaðurinn náði sér
þó fíj'ótt eftir slysið og var hreint
ekki af baki dottinn. Hann lag-
færði stýris- og hemlabúnað
bilsins þar til hann var fær um
að bera 4 persónur og aka á
þriggja kilómetra hraða á
klukkustund. Hann gerði samn-
ing við franska hermálaráðu-
neytið um að smiða miklu stærri
herbil.
Tilraunir Cugnots á bilum
reyndust hins vegar svo hættu-
legar lifi og limum manna, að
eftir nokkur bilslys varð hann
fyrstur allra manna i heimi hér
— til að verða settur inn fyrir ó-
gætilegan akstur.
Herbill hans var aldrei tekinn
i notkun og árið 1804 dó Cugnot
— algjörlega gleymdur öllum.
Þorgeir Pálsson:
Góð jassvaka
JASSVAKA
(Jtgefcndur: Jassvakning
Flytjendur:
Bob Magnússon bassa,
Guðmundur Ingólfsson píanó.
Guðmundur Steingrimsson
trommur,
Viðar Alfrcðsson trompet
og flygilhorn,
Rúnar Georgsson
tenórsa xafón,
Innihald :
Scvcn Special
l’m getting sentimental
over you
Þrir húsgangar
Móðir min i kvi kvi
You’d be so nicc to come horne
to
Fyrir nokkru, reyndar all-
nokkru, kom út á vegum Jass-
vakningar hljómplatan Jass-
vaka. Þessi ágæta jassplata
hefur að geyma upptökurfrá af-
mælistónleikum Jassvakningar
iseptember á siöasta ári. Til að
leika á þessum tónleikum var
myndað jassband með okkar
efnilegustu jassleikurum, en
eins og islenskir jassunnendur
vita, hefur sárlega vantað
kontrabassista til að fullkomna
sveifluna þegar islenskir jass-
spilarar koma saman, en allt
bendir til þess að úr þvi sé að
rætast. „Allt frá upphafi hefui’
það verið höfuðmarkmið
klúbbsinsað efla islenska djass-
sköpun og þvi þótti viö hæfi að
bjóöa erlendum djassleikara til
afmælisveislunnar svo hann
mætti leika með islenskum.
Fljótlega var ákveðið að bjóða
bandariska bassaleikaranum
Bob Magnússon og kom tvennt
til: hann er efnilegur bassaleik-
ari og bassaleikara þurfti til að
styrkja afmælishljómsveitina
og svo var hann af islenskum
ættum”, segir hinn góðkunni
jassskriíient Vernharður Linnet
1 spjalli si'nu á plötuumslaginu.
íslenskur jass
A margumræddum tónleikum
voru m.a. spiluð nokkur i'slensk
þjóðlög sem Gunnar Reynir
Sveinsson útsetti fyrir hljóm-
sveitina. Aplötunnierutværút-
setningar: Þrir húsgangar
(Fagurt galaði fuglinn sá,
Kindur jarma i kofanum og
Austankaldinn á oss blés) og
< Móðir mi'n i kvi kvi. Sjálfur
; Guðmundur Ingólfsson á einn
; ópus á plötunni, Seven Special
sem er tileinkað hinum marg-
rómaða Khib Syv i Osló, en þar
var hann pianisti á árum áður.
Loks eru tvö stykki af, þvi
sem gáfumenn i jassi nefna,
standardá, gamalkunnug lög úr
jassheiminum, You’d be so nice
to come home to eftir Cole
Porterog I’m getting sentimen-
tal over you. Sem sagt hefð-
bundin uppsetning á jassplötu.
Mögnuð sveifla
Platan hefst á hinu kröftuga
og fjöruga lagi Seven Speical.
Þar stendur ryþmabandið sig
með glæsibrag. Skemmtilegt
dúo þeirra Guðmundar Ingólfs-
sonar og Bob Magnússonar þar
sem bassinn fylgir pianóinu
eftir f upphafi lagsins. Guð-
mundur Steingrimsson kemur
siðan með sinn þétta sveiflu-
takt, lemur húðir og diska af
krafti og sýnir hérlendum
hvernig á að nota trommusett i
góðri sveiflu. Guðmundur hefur
einnig getið sér orð fyrir að
komast af með eins lítið
trommusett (þ.e. trommu) og
hægteren hafa samtsveifluna á
sinum stað, en heldur kýs ég nú
það fyrrnefnda.
Liflegur blástur þeirra Rún-
ars Georgssonar og Viðar Al-
freðssonar rekur sveifluna
áfram. Rúnar á sérlega frum-
legt og gott sólo og Viðar þeytir
laginu áfram i hröðu sólói.
Undirtökin á þó ryþmabandið
og er nærvera Bob Magnús-
sonar augljós lyftistöng i þvi
sambandi. Að fá loksins góðan
islenskan jass með góðum
kontrabassaleikara er það sem
beðið hefur verið eftir.
Guðmundur Ingólfsson kemur
hér fram i sinu besta formi og er
einhver kyngimagnaður blær
yfir spili hans og er sólóið með
þvi þéttara sem heyrst hefur frá
honum hérlendis. Er ekki laust
við áð einhver Wynton Kelly
still sé i þvi, eða svo finnst mér.
Hinn hugljúfi standard I’m
getting sentimental over you er
ekki tekin neinum viðvanings-
tökum hjá ryþmabandinu, þaí
þarf ekki að vera betra. Guð-
mundur Ingólfsson með tóna
slaghörpunnar, svo lipurt og
létt, á réttum stað og nafni hans
Steingrimsson með nett „fúmp-
damp” á drumbumar. En allt
slær þó út bassaleikur Bob
Magnússonar. Hér er greinilega
enginnamatör á ferðinni iþess-
um bransa. Það er varla að mig
minni til fágaðri bassaleiks hér
á landi, að sjálfsögðu ef undan
er skilinn NHÖP, enda kominn
hátt á lista hjá jassblaðinu
Down Beat og stefnir vafalaust
hærra.
Þjóðlagadjass
Samleiksfléttan Þrir hús-
gangar er létt og hressileg út-
setning á þessu gömlu söng-
lögum. Þó bera þær sterk ein-
kenni klassiskrar tónlistar eins
og islenskir hafa skrifað hana á
sin nótublöð. Má segja að hér sé
kammerjassinn enn á ferðinni.
Hnyttilegur endir er einna
markverðastur.
Móðir mín i kvi kvi er áber-
andi betri útsetning, hér hefur
mikil radctverið lögð iað ná upp
andanum sem fylgir sam-
nefndri sögu. Draugalegt og
seiðandi inngangsspil er strax
visbending um hvert stefnir.
Það staðfestist með sólói Við-
ars Alfreðssonar, tónarnir æpa
á mann eins og útburðurinn, það
er því stutt i gæsahúðina. Ein-
faldur og dulúðugur pianóleikur
Guðmundar Ingólfssonar æsir
leikinn enn frekar. Bassastrok-
urnar einstaklega áheyrilegar
og sóló Bob rennur i gegn. Akaf-
lega hugljúfur leikur það. Út-
koman verður góður islenskur
jass.
Þessari jassvöku lýkur með
You’d be so nice to come home
to. Vel leikið og liður áfram. Þó
saknaég blásarana í þessu lagi,
þeir koma ætið vel út i þessum
standard.
Loksins loksins
Þessi jassplata er kærkomin
sending til eflingar jassinum
hér á okkar litla skeri. Allir
skila sínu vel með þéttri sveiflu
og öruggri keyrslu en að sjálf-
sögðu veitir maður bassa-
leiknum meiri eftirtekt, svona i
heildina, af augljósum ástæð-
um. Jassvakningá þakkir skilið
fyrir útgáfuna. Þó er þetta
greinarkorn sé nokkuð á eftir
tímanum er þó réttað koma þvi
til skila sökum ágætis plöt-
unnar.
Élli'i
Mogens Camre
Forystumaður danskra krata
í heimsókn:
Mogens Camre
heldur fyrirlestur
Danski þingmaðurinn og
sósialdemókratinn Mogens
Camre var væntanlegur i heim
sókn fimmtudaginn 7. jan og
dvelurhér á landi til mánudags-
morguns.
Mogens Camre hefur i mörg
ár staðið framarlega i dönskum
stjórnmálum. Hann hefur verið
lengi þingmaður sósialdemó-
krata, og i siðustu rikisstjórn
var hann pólitiskur talsmaður
flokksins á þingi. Þvi embætti
gegnir hann nú einnig i hinni ný-
mynduðu minnihlutastjórn
sósialdemókrata.
Mogens Camre er þekktur
fyrir einarðar skoðanir og er
óhræddur við að halda þeim
fram, enda þótt þær séu af
mörgum taldar umdeilanlegar.
Mogens Camre heldur fyrir-
lestur i Norræna húsinu sunnu-
daginn 10. jan. kl. 14:00 og ræðir
um nýjustu þróun i dönskum
stjórnmálum og á eftir mun
hann svara fyrirspurnum
áheyrenda.