Þjóðviljinn - 09.01.1982, Side 31

Þjóðviljinn - 09.01.1982, Side 31
Helgin 9,—10. janúar 1982. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 31 ASÍ krefst lausnar fiskverðsdeilunnar Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fundi miðstjórnar Alþýöusambands Islands fimmtudaginn 7. jan.: „Vegna vinnudeilu útvegs- manna og sjómanna og þess ágreinings sem uppi er um fiskverð hefur nú skapast alvarlegt ástand i atvinnu- málum um land allt. Ljóst er að bæta verður kjör sjó- manna. Miðstjórn Alþýðu- sambands Islands krefst þess að atvinnurekendur og st j)rn- völd komi þegar I stað til móts við kröfur sjómanna svo lausn fáist i deilunni”. VMSÍ lýsir áhyggjum A fundi i' f ramkvæmdast jórn Verka m annasamb ands Islands í gær var gerð ályktun þar sem lýst er þungum áhyggjum af þvi geigvænlega atvinnuleysi sem nú rikir hjá fiskvinnslufólki vegna verk- banns at vinnurekenda og verkfalls sjómanna. 1 ályktun- inni segir: „Fram hefur komið að ákvörðun fiskverðs er helsta hindrunin fyrir lausn á kjara- deilu sjómanna og útvegs- manna. Fundurinn krefst þess að rikisvaldið sinni frum- kvæðisskyldu sinni i Verðlags- ráði, en raunin hefur verið sú á undanförnum árum að frumkvæðisskylda rikisvalds- ins hefur verið ótviræð hvað varðar ákvörðun fiskverðs. Atvinnuleysi er böl sem er islensku þjóðfélagi til van- sæmdar og þvi hvetur fram- kvæmdastjórn V.M.S.Í. til skjótrar viðunandi lausnar á yfirstandandi kjaradelu”. Allsherj arskrán- ing á mánudag A mánudag fer fram allsherjar skráning atvinnulausra á landinu en i gær og fyrradag skráöi sig mikill fjöldi sem misst hefur vinnu vegna hráefnisskorts i fiskvinnslunni. Þjóðviljinn haföi i gær samband við nokkra staði úti um land og virðast það einkum vera konur sem oröið hafa fyrir barðinu á uppsögnunum. Þar sem atvinna hefur veriö næg s.l. ár ber á þvi að fólk komi ekki til skráningar en með skráningunni á mánudag á að koma I ljós hversu margir hafa misst atvinnuna. Þingeyri: 36 skráðir Neskaupstaður: atvinnulausir „Það var byrjað að skrá at- vinnulausa hér á þriðjudag og nú hafa 36 manns komið til skráningarinnar”, sagði Guð- mundur FriðgeirMagnússon á Þingeyri í gær. „Þetta fólk sem þegar hefur skráð sig var lausráðið, en kauptrygging hjá fast, ráðningarfólkinu rennur ekki út fyrr en á mánudag. Allri al- mennri fiskvinnu var lokið hér sl. mánudag, en þó eru enn nokkrir sem vinna i hörpu- disk. Svo var verið að vinna við að pakka skreið og salt- fiski. Ég veit að það eru ekki allir búniraðláta skrá sig sem til þess hafa rétt, fólk kann ekki alveg á þetta”, sagði Guðmundur Friðgeir að lok- um. Svkr. Siglufjörður: Öllum kon- um sagt upp „öllum konum, sem unnu hjá ÞormóW ramma og tsa- fokl var sagt upp um áramót og hafa þvi skráð sig snemma i þessari viku”, sagði Kol- beinn Friðbjarnarson f sam- tali við blaðiö i gær. „öll framleiðsla i fiskiðnaði er þvi stöövuð eins og annars staðar ilandinu. Fjöldiþeirra, sem sagt var upp er á milli 120-130 og eru það nær ein- göngu konur. Það er alltaf sama sagan, þaö er lenska á tslandi að láta erfiðleikana fyrst bitna á konunum. Karl- mönnum erekkisagtupp.þeir eru settir i dútl, viðhald og viðgerðir og þessháttar. Ann- ars hefur verið nokkurt at- vinnuleysi frá þvi seinni part- inn i sumar vegna erfiðleika hjá Siglósild. Þar hefur ekki verið unnið nema með köflum og fólk þvi verið annað slagið á bótum. „Við vonumst til að þessu ástandi fari að linna c® allir taki sig saman i andlitinu og gangi i það að leysa þessa deilu”, sagði Kolbeinn Frið- bjarnarson. Svkr Enginn skráður enn „Atvinnuleysisskrámng er ekki hafin hér, enda engum verið sagt upp starfi hjá Sildarvinnslunni hf”, sagði Ami Þórinóðsson á Neskaup- stað i viðtali við blaðið i gær. „Þeir sem unnú i frystihús- inu fara i saltfisk- og skreiðar- vinnu ogreynt verður að halda þvi eitthvað áfram, en það er takmarkað hvað það endist. En fyrirtækið mun leitast við að veita fólki vinnu eftir föng- um, en nú er verið að vinna hráefni, sem búið er að fá út á lán”, sagði Arni. Svkr. Vestmannaeyjar: Um 300 komnir á atvinnu- leysisskrá „Siðustu fréttir af atvinnu- leysisskráningunni hér í Vest- mannaeyjum eru þær, að búiö er að skrá rétt um 300 manns og eru konur þar i mikium meirihluta”, sagði Jón Kjartansson formaður Verka- lýðsfélagsins i gær. „Karlmennirnir eru settir i ýmiss konar vinnu viö stand- setningar, sem konur hafa sloppið við þvi þær hafa kaup- tryggingu, en karlarnir eru flestir lausráðnir og hafa þvi þurft að fara i hvaö sem er. Það er hins vegar ljóst að ef deilan dregst á langinn veröa þeir náttúrulega sendir heim”, sagði Jón. Þá hafði blaðiö samband við Gunnlaugu Einarsdóttur hjá Verkakvennafélaginu Snót i Vestm annaeyjum og sagði hún að i' kringum 300 konum hefði verið sagt upp og hefði uppsagnarfresturinn runnið Ut hjá þeim 5. janúar. Þessar konur væru aö skrá sig nú. Svkr. Tunglið við Esjuna. Þessa fallegu mýnd tók gel um fimmleytiö i gær, en þá var frábært skyggni. Hætt er við, að skyggni verðibágborið til tunglskoðunar Idag, þvi skv. spánni á að vera þungbúiö Idag. Almyrkvi á tungli í dag t dag, laugardaginn 9. janúar 1981, verður almyrkvi á tungli. t Almanaki Hásköla tslands segir, að kl. 17.15 byrji hálfskuggi að færast yfir tunglið, en alskuggi fylgir á eftir kl. 18.14. Miður myrkvinn verður kl. 19.56, en tunglið verður laust við allan skugga kl. 22.37. Meðan á myrkv- anum stendur verður tunglið á austurhimni frá tslandi séð. Þvi miður spáir veðurstofan tungl- skoðurum lélegu skyggni: suð:- austan og heilskýjuðu. Tunglmyrkvar og sólmyrkvar hafa löngum þótt dularfull fyrir- brigði i mannheimum. Þór Jak- ohsson, veðurfræðingur, fræddi okkurá því, að elstu heimildir um tunglmyrkva dagsetji hann 19. mars 721 f. Kr., en sá myrkvi var i Efrat. En þá voru mennirnir komnir það langt i stærðfræðinni, að þessi myrkvi var séður fyrir. Það er þvi langt um liðið siðan mannskepnan fór að grufla i him- intunglunum og nU eru visindin sumsé þannig á vegi stödd, að þessa myrkva má dag- og tima- setja langt fram og aftur i tim- ann. Þór sagði okkur ennfremur, að gangur himintunglanna væri það fyrsta sem mönnunum tókst að fella inn i stærðfræðikerfi —og það er veðurfarið á Jörðinni, sem gerir mönnunum þetta kleift: slikt stærðfræðikerfi yrði t.d. sið- fundið á plánetunni Venus. Þar er nefnilega alltaf skýjað! —ast. Sjómannafundurinn í fyrradag: Mótmælir óbilgjamri afstöðu útvegsmanna og hvetur sjómenn til órofa samstöðu í kjaradeilunni Eias og skýrt var frá i Þjóðvilj- anum i gær, boðaði Sjómanna- sambandið til formanna* og full- trúafundar sjómanna sl. fimmtu- dag. Fundurinn hófst kl. 17.00 og stóð fram á nótt. A fundinum var samþykkt ályktun þar sem segir meðal annars að fundurinn mót- mæli harðlega óbilgjarnri afstöðu Utgerðarm anna og frumkvæðis- leysi rikisstjórnarinnar l yfir- standandi kjaradeilu. Bent er á að síðan ihaust hafi dtvegsmönn- um og stjórnvöldum veriö ljóst að fengist ekki viðunandi lausn á kjaradeilu sjómanna og fiskverði myndi koma til vinnustöðvunar. Þá krafðist fundurinn þess, að útvegsmenn komi til raunhæfra samningaviðræðna við sjömenn og að stjórnvöld tryggi forsendur fyrir nýju fiskverði sem sjómenn geti sætt sig við. Fáist ekki lausn á þessarideilu sem sjómenn geta sætt sig við lýsir fundurinn fullri ábyrgð á hendur rikisvaldinu og atvinnurekendum og loks hvatti fundurinn til órofa samstöðu sjó- manna i kjaradeilunni. Þess má geta að Guðmundur Hallvarðsson formaður Sjó- mannafél. Reykjavikur vildi að inní þessa ályktun yrði tekin klausa um að fundurinn lýsti yfir vantrausti á rikisstjórnina en fundurinn hafnaði þvi alfarið. Miklar umræður urðu á fundin- um og komu fram ýmsar hug- myndir, þ.a.m. að sætta sig ekki við minna en 36% fiskverðshækk- un og niðurfellingu oliugjalds. Niðurstaða þeirra umræðna varð sú að Ingólfi Ingólfssyni fulltrúa sjómanna i yfimefnd var gefið umboð til að leysa málið það fyrir hönd sjómanna án bindandi kvaða. —S.dór Efnahagsmálin ogflskverð; Mikil fundahöld verða um helgina Mikil fundahöld voru í gær i þingflokkum og framkvæmda- stjórnum allra flokkanema Sjálf- stæðisffokksins og var rætt um efnahagsmálin, kjaradeilu sjó- manna og Utvegsmanna og fisk- verösákvörðun. Verðlagsráð sat á þriggja tima löngum fundi sið- degis i gær en hann varð árang- urslaus og er annar fundur boð- aður i dag. ólafur Ragnar Grimsson formaður þingflokks Alþýðu- bandalagsins sagði i gæraö þing- flokkur og framkvæmdastjóm myndu halda annan fund um efnahagsmálin idag kl. 15. Ólafur sagði ekki timabært að greina frá efnisatriöum umræðnanna en þær heföu verði miklar og itarlegar. A hádegi i dag koma til sam- eiginlegs fundar efnahagsmála- nefnd ri'kisstjórnarinnar og þriggja manna ráðherranefnd sem Gunnar Thoroddsen, Stein- grimur Hermannsson og Svavar Gestsson skipa. Kortsnoi kemur ekki á R. víkur- skákmótið NU er Ijóst að stórmeistarinn Viktor Kortsnoi kemur ekki á Reykjavíkurmótiö i skák sem hefst 9. febrúar nk. Honum var boðið til þessa móts sérstaklega sl. vor og þáöihann þá boðið. Nú aftur á mótisegisthann ekki geta komiö nema mótinu sé flýtt um 3 daga, vegna þess að hann ætlar að taka þátt i skákmóti i Róm, sem Banco de Roma heldur. Að sögn Ingimars Jónssonar forseta Skáksambands Islands er útilokað að flýta mótinu af mörg- um ástæðum. Helstar eru þó þær að nímlega 30 erlendir skákmenn hafa tilkynnt þátttökui mótinu og hafa þeir nú þegar pantað far á Ampex-fargjöldum, sem ekki er hægt að breyta. Eins ef islensku skákmennirnir sem nú taka þátt i svæðamótinuí Danmörku komast áfram ná þeir ekki heim i tæka tið ef mótinu verður flýtt. —S.dór

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.