Þjóðviljinn - 05.02.1982, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 05.02.1982, Qupperneq 16
DJOÐVILIINN Föstudagur 5. febrúar 1982., Aöalslmi Þjúöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfsmenn hlaösins I þessum simum: Ritstjórn 81382,81482 og 81527, umbrot 8iz85, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aö ná i af- greiöslu blaösins i sima 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími Kvöldsími 81333 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 Hjúkrunarfræðingar boða verkfaU og ihuga uppsagnir / Oánægja með laun og vinnuálag Hjúkrunarfræðingar, sem ráðnir eru hjá Reykjavíkurborg hafa boðað verkfall frá 20. febrúar næstkomandi. Eftir að þeir felldu að- alkjarasamning sem gerður var við Reykja- víkurborg hafa verið haldnir tveir árangurs- lausir samningaf und- ir. Sigrún Öskarsdóttir vara- formaður Hjúkrunarfélags- ins sagöi i samtali viö Þjóö- viljann aö um 220 hjúkrunar- I fræðingar væru i störfum hjá | borginni, en ef til verkfalls ■ kæmi myndi verða haldið Iuppi þeirri þjónustu, sem ekki væri hægt að leggja niður og nefndi sem dæmi ■ gjörgæsludeild. Ekki sagði Ihún að enn væri ljóst hve margir hjúkrunarfræðingar myndu halda áfram störfum ■ i verkfalli, en sameiginleg Inefnd hjúkrunarfræðinga hjá borginni og stjórnar Hjúkrunarfélagsins ynni að ■ skrá um þá. ISamkvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna skal sáttasemj- ari rikisins leggja fram sáttatillögu innan tiu daga . frá boðun verkfalls. Sátta- | semjari getur frestað verk- falli um hálfan mánuð og verði sáttatillaga samþykkt gildir hún sem aðalkjara- samningur, en sé hún felld kemur til boðaðs verkfalls. Sigrún sagði að i aðal- kjarasamningi væri gerö sú krafa að náð yrði sama kaupmætti og samningarnir frá 1977 gáfu, en sú heföi verið hin upphaflega krafa BSRB i haust. 1 sérkjara- samningi væri krafa um hækkun byrjendaflokks hjúkrunarfræöinga úr 11. i 16. flokk. Hún sagöi að hjúkrunarfræðingar væru flestir i 11. til 13. flokki, en 14. flokkur væri hæsti flokkur almennra hjúkrunarfræð- inga. Hjúkrunarforstjórar og deildarstjórar væru i hærri flokkum. Aðspurð sagði Sigrún að hjúkrunarfræðingar á rikis- spitölunum ihuguðu alvar- lega að segja upp störfum sinum um miðjan þennan mánuðog værióánægja með laun og vinnuálag vegna skorts á hjúkrunarfræðing- um ástæðurnar. Svkr Frá blaöamannafundi Skáksambandsins I gær fv. Guömundur Arnlaugsson yfirdómari mótsins, Þor- steinn Þorsteinsson, Ingimar Jónsson forseti Sl, húsvöröur Kjarvalsstaða, Friörik ólafsson stórmeist- ari og forseti FIDE og llelgi Samúelsson. (Ljósm. eik—) 10. alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið: Sterkasta skákmót sem hér hefur farlð fram Þriðjudaginn 9. febrúar n.k. hefst að Kjarvals- stöðum X. Alþjóðlega Reykjavikurskákmótið. Fyrsta mótið var haldið i samkomuhúsinu Lidó 1964 og hafa mótin síðan verið haldin annað hvert ár. Mótið aö þessu sinni er hið fjöl- mennasta og sterkasta sem nokkru sinni hefur verið haldiö hér á landi, enda i fyrsta sinn, sem alþjóðlegt opið skákmót er haldið hér á landi. Alls hafa 22 stórmeistarar tilkynnt þátttöku i mótinu, þar af tveir islenskir og 20 alþjóðlegir meistarar, en alls hafa 72 skákmenn tilkynnt þátt- töku, 25 islenskir og 45 erlendir. Teflt verður frá kl. 16.30 til 21.30 á virkum dögum og munu bið- skákir verða tefldar sama dag frá kl. 23.00 til 01.00. A laugardögum og sunnudögum verður teflt frá Flakið fannst á Grænlands- jökli Flak flugvélar þeirrar i eigu Saudi-Araba, sem tindist á dög- unum milli Islands og Grænlands, fannst i gær á Grænlandsjökli um það bil 100 km. fyrir N-A Narsa- suak. Með vélinni fórust tveir menn. 72 skákmeist- arar hafa til- kynnt um þátttöku í mótinu sem hefst á þridjudaginn kl. 14.00 til 19.00 en biðskákir samdægurs frá kl. 20.30 til 22.30. Teflt verður eftir svissneska kerfinu, alla 11 umferðir. Fri- dagar á mótinu verða föstudag- urinn 12. febrúar og miðvikudag- urinn 17. febrúar. Verðlaun á mótinu nema sam- tals 16.000 Bandarikjadollurum. bau eru 5 og skiptast þannig: 1. verölaun 6.000 $ 2. verðlaun 4.000 $ 3. verölaun 3.000 6 4. verðlaun 2.000 $ 5. verðlaun 1.000 $ Rétt til þátttöku höfðu allir erlendir skákmenn með 2300 ELO-stig eða meira og innlendir skákmenn með 2200 ELO-stig eða meira. —S.dór UTIFUNDUR kl. 6 í dag: Til stuðnings alþýðu E1 Salvador í dag gengst stuðnings- hópur við mið-Ameriku- rikinu E1 Salvador, fyrir úti- fundi fyrir framan banda- riska scndiráðið við Laufas- veg. Fundurinn hefst kl. 6 siðdegis og verða ræðumenn Hrafn E. Jónsson og Tómas R. Einarsson. Fundarstjóri verður Sigurbjörg Árnad- ottir. Allir sem fylgjast með erlendum fréttum vita að i E1 Salvador rikir nú hin mesta harðræðisstjórn i skjóli stuðnings frá Banda- rikjunum. Er skemmst að minnast 55 miljóna dollara hernaðaraðstoðar frá Reag- an forseta, sem hann veitir án þess að fá til þess sam- þykki bandariska þingsins. 1 mótmælaskyni við þessi afskipti af E1 Salvador, er fundurinn haldinn og er ætlunin að beina þeirri kröfu til islenskra stjórnvalda að þau viðurkenni rikisstjórn Byltingarsinnuðu lýðræðis- fylkingarinnar (FDR), sem einu lögmætu stjórnina i E1 Salvador. Fundurinn hefst sem áður sagði kl. 6 i dag fyrir utan bandariska sendiráðið við Laufásveg. —v. Ný bók: Úttekt gerð á „frjálshyggju” Bók er komin út eftir ungan hagfræðing og ber hún nafnið „Frjálshyggjan”. Höfundurinn heitir Birgir Björn Sigurjónsson. Er bókin fræöileg úttekt á frjáls- hyggjunni og leitast höfundur hennar við að draga smiðagalla hennar fram i dagsljósið. Höfundur bregður rikisbákninu undir smásjá, auk þess sem hann hugar aö framtið fiskveiða hér viö land. Fjallað er rækilega um álversmálið og á sú umfjöllun örugglega eftir að vekja athygli. Þykir bókin mikil nýjung hvað hagfræðileg atriði snertir, þar sem hún uppfyllir visindalegar kröfur en er þó engu að siður að- gengileg hinum almenna lesanda. Höfundur ritsins vinnur nú að doktorsritgerð i þjóðhagsfræði I Stokkhólmi og fjallar hún um verðbólguna á tslandi. Bókin er tæplega 300 bls. að stærð. Útgefandi er Svart á hvitu. Utanrikis- og sjálfstæðisnefnd Alþýðubandalagsins Pólland—Tyrkland Ástand mála undir herf oring j ast j órn austur og vestur Evrópu rætt á Hótel Sögu n.k. þriðjudagskvöld : ■ $ Einar Karl Utanrikis- og sjálfstæðisnefnd AB efnir til kvöldfundar að Hótel Esju þriðjudags- kvöld 9. íeb. n.k. Fjallað verður um þjóð- málaástandið undir herforingjastjórn i Póllandi og Tyrklandi og afskipti alþjóða- samtaka og rikisstjórna af gangi mála. Fundurinn hefst með ávarpi Einars Karls Haraldssonar form. utanrikis- og sjálf- stæðisnefndar. Ræðumaður kvöldsins er Ólafur Ragnar Grimsson alþm., sem greinir m.a. frá þeirri umfjöllun sem átt hefur sér stað i Evrópuráðinu um málefni Póllands og Tyrklands og svarar fyrir- spurnum. Fundurinn hefst kl. 18.30 og er stefnt að þvi að ljúka honum eigi siðar en 21. Meðan á fundi stendur verður borin fram létt máltið. Vegna takmarkaðs rýmis eru þátttakendur beðnir að skrá sig hjá flokksskrifstofunni að Grettisgötu 3. Simi 17500 fyrir kl. 17 mánud. 8. feb. ölafur Ragnar

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.