Þjóðviljinn - 02.03.1982, Síða 1
Útgáfufélag
Þjóðviljans
i Aðalfundur
I Aðalfundur Ctgáfufélags
Þjóöviljans verður haldinn
fimmtudaginn 11. mars
næstkomandi að Grettisgötu
3 og hefst kl. 20. Nánar
auglýst i blaðinu á morgun.
! Samþykkt !
I Fræðsluráós;
j Vogaskóli
\áfram
óskertur
\grunnskóU
Deilan við Alusuisse:
tslensk stjórnvöld hafa að
undanförnu borið fram við Alu-
suisse tvenns konar kröfur.
Kröfu um skaðabætur fyrir
vanefndir á samningum vegna
yfirverðs á innfluttum aðföngum
Allur réttur
Þriðjudagur 2. mars 1982 —49. tbl. 47. árg.
áskilinn varðandi
skaðabætur
til verksmiðjunnar i Straumsvik.
Og kröfu um heildarendurskoöun
gömlu álsamninganna, m.a. með
stórhækkun orkuverðs að mark-
miði. Alusuisse hefur algerlega
neitað að ræða fyrri kröfuna. 1
þeim efnum höfum við að sjálf-
sögðu áskiliðokkur allan rétt, en
nú reynir á, hvort Alusuisse
ncitar lika að ganga til mark-
tækra samninga um hina
kröfuna, — endurskoðun samn-
inga og stórhækkað orkuverð. Úr
þessu veröur að fást skorið hið
allra fyrsta. Sé svar Alusuisse
aftur NEi, — þá krefst Alþýðu-
bandalagið einhliða aðgerða af
okkar háifu.
A baksiðu Morgunblaðsins s.l.
sunnudag er sagt frá samþykkt
miðstjórnar Alþýðubandalagsins
um viðskiptin við Alusuisse, þar
sem hvatter til einhliða aðgerða
af hálfu okkar íslendinga, fáist
Alusuissemenn ekki nií hið fyrsta
til að koma til móts við sann-
girniskröfur okkar.
Svo er að sjá sem Morgunblaðið
hafi ekki fylgst ýkja vel með
gangi mála i sviptingunum við
Alusuisse upp á siðkastið, þvi i
frásögn þess af samþykkt
Alþýðubandalagsins nú, verður
aðalatriðið það, að i þessari sam-
þykkt sé ekki fjallað um súráls-
málið.
Alþýðubandalagið og einnig
islenska rikisstjórnin hafa áður
gert skýrar samþykktir um súr-
álsmálið, sem standa i fullu gildi.
Hins vegar er ekki nema rétt að
minna Morgunblaðið á það, að á
fundi islensku álviðræðunefndar-
innar með fulltrúum Alusuisse
sem haldinn var i Reykjavik þann
3. og 4. desember s.l. varð sam-
komulag um að leggja hin eldri
deilumál til hliðar ,,i bili”,meðan
reynt yrði að semja um heildar-
endurskoðun gömlu samning-
anna, og þá ekki sist um hækkun
raforkuverðs. Frétt um þetta
birtist i öllum fjölmiölum, þar á
meðal i Morgunblaðinu i byrjun
desember.
1 þessum efnum höfum við
tslendingar að sjálfsögðu ekki
afsalað okkur neinum rétti, en
fyrst Alusuisse þverneitar að
ieiðrétta meiriháttar vanefndir á
samningum varðandi kaup á að-
föngum til verksmiðjunnar hér,
þá er næsta spurning: Neita þeir
lika að fallast á endurskoðun
samninga og verulega hækkun á
hinu smánarlega lága orkuverði.
Það er frá samningum um þetta
sem Alusuisse reynir að hlaupast
nú. Slikt gengur auðvitað ekki, og
biðtíminn er að renna út. Verði
bótagreiðslum fyrir vanefndir á
liðinni tið áfram neitað og einnig
endurskoðun samninga er m.a.
feli i sér meiriháttar hækkun raf-
orkuverðsins, — þá telur Alþýðu-
bandalagið einhliða aðgerðir af
Islands hálfu óhjákvæmilegar, og
yfirtöku verksmiðjunnar, ef á
þarf að halda.
Þessi stefna er skýr. — En hver
er stefna Morgunblaðsins?
k.
Fræðsluráð Reykjavikur
hefur á fundi samþykkt að
fresta fyrirhuguðum breyt-
ingum á skólahverfi Voga-
skóla og mun þar starf-
ræktur óskertur grunnskóli
næsta vetur.
t samþykkt Fræðsluráðs
segir:
„Meðtilliti til eindreginna
óska aðstandenda Vogaskóla
telur fræðsluráð rétt að gerð
verði áætlun um skólahald i
Vogahverfi næsta skólaár,
er miðist við að i Vogaskóla
verði starfræktur óskertur
grunnskóli, enda fari
kostnaður við skólahald ekki
verulega framúr þeim fjár-
veitingum sem skóiinn á rétt
á miðað við nemendaf jölda.”
Að þessari samþykkt stóöu
6 fulltrúar en Bragi Jóseps-
son sat hjá.
Sigurður Tómasson
borgarfulltrúi og fulltrúi Al-
þýðubandalagsins i Fræðslu-
Sigurður G. Tómasson J
borgarfulltrúi hvetur fbúana .
í Vogahverfi til að berjast I
fyrir breytingum á reglum I
um skiptingu kostnaðar milli j
rikis og borgar.
ráði kvað hér komið til móts I
við vilja ibúanna i Voga- I
hverfi, enda heföi aldrei *
verið ætlun borgaryfirvalda I
að þrýsta þessu máli i gegn I
með valdi. Sigurður sagði: I
„Hins vegar mega menn •
ekki gleyma þvi að Lang- I
holtsskólinn er hugsaður i I
upphafi sem skóli fyrir allt I
Langholts- og Vogahverfiö *
og það yrði alls ekki lengra I
fyrir börn að sækja hann en I
marga aöra skóla hér i »
Reykjavik. Tillögur fræðslu- J
ráðs um að færa kennslu I
‘L-C. bekkjar úr Vogaskóla I
yfir i' Langholtsskóla koma «
til vegna þess að reglur um I
skiptingu kostnaðar milli I
rikis og borgar gera litlu I
skólana mjög óhagkvæma. •
Þessum reglum þarf auð- I
vitað að breyta og ég vil ein- I
dregið hvetja foreldra i I
Vogahverfi til að beita sér •
fyrir breytingum á þeim I
reglum. Rikisvaldið neitar I
að borga þann aukakostnað I
sem litlu skólarnir •
óhjákvæmilega hafa i för I
með sér og engin f járveiting
er heldur tilþess arna á fjár- I
hagsáæUun borgarinnar.”. ■
LAUSASÖLUVERÐ 7 KR.
Glæsileg sveitarstjórnarráðstefna Abl.
Eillng sveitarfélaga er
liður í lýðræðisþróun
Rösklega 100 sveitar-
stjórnarmenn Alþýðu-
bandalagsins komu saman
til ráðstefnu um sveitar-
stjórnarmál um helgina og
var hún haldin í Þinghól í
Kópavogi og á Hótel Esju í
Reykjavík. Á ráðstefnunni
gaf Svavar Gestsson fé-
lagsmálaráðherra yfirlýs-
ingu um að hann myndi
beita sér fyrir því að sveit-
arfélögin fengju aukið
fjárhagslegt svigrúm og
kom fram i máli hans að
ýmis verkefni sem nú væru
á vegum rikisins væru bet-
ur komin undir stjórn
sveitarfélaga.
A ráðstefnunni var samþykkt
Kosningaréttur
í vor miðast við
18 ára aldur
ýtarleg ályktun um lýðræöi og
valddreifingu þar sem m.a. kem-
ur fram krafa um aukna sjálf-
stjórn sveitarfélaga og fjárhags-
legt sjálfsforræði þeirra.
A ráöstefnunni var fluttur fjöldi
stuttra yfirlita um reynslu liðinna
fjögurra ára af starfi sveitar-
stjórnarmanna Alþýðubanda-
lagsins og teknar ákvarðanir um
hvernig haga ætti i meginatriðum
vinnubrögðum og almennum
pólitiskum áherslum i kosninga-
baráttunni i vor.
Meðan á ráðstefnunni stóð fór
fram skoðanakönnun um kosn-
ingaaldur, og kom fram þaö ein-
róma álit fundarmanna að kosn-
ingaréttur i bæjar- og sveitar-
stjórnarkosningunum i vor skyldi
miða við 18 ára aldur. Var þing-
mönnum flokksins falið að fylgja
eftir þessari skoðun sveitar-
stjórnarmanna Alþýðubanda-
lagsins á þingi.
Eins og áður sagði voru 108
sveitarstjórnarmenn Alþýðu-
bandalagsins á ráðstefnunni frá
sveitarfélögum hvarvetna að af
landinu, auk starfsmanna og
þingmanna flokksins. Niðurstöð-
ur ráðstefnunnar verða sendar i
fréttabréfi Alþýöubandalagsins
til allra félagsdeilda. Hér var um
að ræða upphafsáfanga kosninga-
baráttu af hálfu Alþýðubanda-
lagsins i sveitarstjórnarkosning-
unum 1982 og var þetta stærsta
sveitarstjórnarráðstefna sem
nokkur flokkur hefur haldiö nú á
þessum vetri. — ekh
: Norðurlönd
I kjarnorku-
j vopnalaust
j svæði
■ Á þingi Norðurlandaráðs i
IHelsingfors i gær ræddu
Svavar Gestsson og Hjörleif-
ur Guttormsson um nauðsyn
■ þess að Norðurlöndin yrðu
Ilýst kjarnorku vopnalaus
svæði. Einnig ræddu þeir um
friðlýsingu Norður-Atlants-
■ hafsins og möguleika á að ís-
Ilendingar lýstu yfir land-
helgi þar sem kjarnorka
væri bönnuð.
• Svavar og Hjörleifur
Iræddu um nauðsyn þess að
Norðurlöndin yrðu lýst
kjarnorkuvopnalaus svæði.
■ Og i sama streng tóku þau
IErlendur Patursson,
Ilkka-Christian Björklund og
Margrét Auken. Enda þótt
■ fjórðungur ræöumanna hafi
Iþannig tekið undir hugmynd-
ina um kjarnorkuvopnalaus
Norðurlönd, létu aðrir ræðu-
• menn gærdagsins ekki í sér
Iheyra um málið. Þvert á
móti kom reyndar fram hjá
nokkrum þeirra, að þessi
■ mál bæri ekki að fjalla um
I nema i almennri umræðu i
I Norðurlandaráði.
| Sjá 6. síðu
Hvað er I belgnum? Það er von að drengurinn sé forvitinn enda ekki á
hverjum degi að blásið er iáekkjarpipur i miðbænum — það var gert I
gær i tilefni skoskrar kynningarviku. (Ljósm/eik)
UOWIUINN
Stórhækkað orkuverð!
Það er fyrsta krafan