Þjóðviljinn - 02.03.1982, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN ÞriBjudagur 2. mars 1982
viðtalið
/
Asmundur Hilm-
arsson, starfs-
maður Vinnu-
verndarárs Al-
þýðusambandsins:
„Viljum
efla
virðingu
fyrir
vinnu-
staðnum”
Vinnuverndarár Alþýöusam-
bands tslands, sem svo hefur
veriö nefnt, hófst formlega ekki
ails fyrir löngu. Þaö var á Al-
þýöusambandsþingi 1980 sem
samþykkt var aö efna til sér-
staks átaks í vinnuverndarmál-
umogkjörin sérstök nefnd tilað
sjá um framkvæmdina. Starfs-
maöur nefndarinnar er As-
mundur Hilmarsson trésmiöur
og Þjóöviljinn innti hann eftir
upplýsingum um tildrög Vinnu-
verndarárs:
„Þaö var á 34. þingi ASI sem
Ásmundur Hilmarsson
samþykkt var að gera árið 1982
að sérstöku vinnuverndarári.
Tildrögin voru i stuttu máli þau
að Samband byggingamanna
hafði á árinu 1979 staðið fyrir
sérstakri vinnuverndarviku og
haföi gefist vel. Við fórum þá á
vinnustaði i byggingariðnaði,
héidum erindi um öryggi og
hollustuhætti og reyndum að
vekja upp umræöur um eðli
vinnustaðarins. Þetta féll i afar
góðan jarðveg og vakti athygli á
vandamálunum . t framhaldi af
þessu fluttu svo nokkrir fulltrú-
ar byggingamanna tillögu á 34.
þinginu um sérstakt vinnu-
vemdarár og var Tryggvi Þór
Aðalsteinsson flutningsmaður”.
— Og hver er svo tilgangur-
inn?
,,Að vekja athygli á aðbúnaði,
hollustuháttum og öryggi á
vinnustöðunum. Við viljum efla
umræðu um þau mál með kynn-
ingu ogfræðslu. Strax var hafist
handa um skipun framkvæmda-
nefndar til að sjá um þetta og
var ég ráðinn starfsmaður
hennar. t þessari nefnd eiga
sæti tveir fulltrúar ASt og svo
einn fulltrúi frá Verkamanna
sambandinu, Sjómannasam-
bandinu, Rafiðnaðarsamband-
inu, Sambandi bygginganianna,
Málm- og skipasmiðasamband-
inu, Landssambandi isl. versl-
unarmanna, Landssambandi
vörubifreiöastjora, Landssam-
bandi iönverkafólks og svo
Menningar- og fræðslusam-
bandi alþýðu. Við höfum aðset-
ur ihúsnæði ASI að Grensásvegi
16 og siminn er 83044.”
— Og hvernig er gengið til
verka?
„Núna vinnum við fyrst og
fremst að upplýsingaöf lun.
Menningar og fræðslusamband-
ið hefur i' fórum sinum allmikið
efni og eins hefur Vinnueftirlit
rikisins boðist til að veita okkur
aðstóð. Við höfum i þessu sam-
bandi snúið okkur til bræðra-
samtaka á Norðurlöndum og i
Bandarikjunum og eins hefur
verið beðið um upplýsingar frá
Alþjóða vinnumálastofnuninni i
Genf, ILO. Við erum með i und-
irbúningi gerð veggspjalda, 10
að tölu, sem ætlunin er að
prenta og dreifa á sem flesta
vinnustaði. Þá erverið að vinna
i gerð einblöðunga og bæklinga
um margvi'sleg mál eins og um
húðsjúkdóma á vinnustöðum,
likamsbeitingu við vinnu, upp-
lausnarefni ýmiss konar o.fl.
o.fl.
Siðan er ætlun okkar að fara á
vinnustaðina og ræða við menn
um vinnuvernd i viðasta skiln-
ingi orðsins. Það starf hefst i
haust af fullum þunga, en að
sjálfsögðu erum við þegar til-
búnir að koma i heimsókn ef
menn óska.”
Öldungar á flakki
Myndasaga eftir
EMIL & HALLGRÍM
OGSVO SEGIR OÚLlUS ÞAÐ SEI1
FYRlR Þ(\ HAfOI KöM®.....0G .
— Hvernig er ástand vinnu-
verndarmála á tslandi miðaö
við nágrannalöndin?
„Það er með þennan mála-
flokk eins og svo marga aðra að
við erum 10 - 15 ár á eftir ná-
grannaþjóðunum i þróuninni á
sviði atvinnumála. Á t.d. Norð-
urlöndunum hafa rannsóknir á
þessum málum staðið yfir i ára-
tugi og þvi er ekki að leyna að
upplýsingar um vinnustaði, at-
vinnuþróun, framleiðslu og
framleiðni er á mun hærra
sviði. Sviar hafa unnið skipu-
lega að vinnuvemdarmálum i
hálfa öld og það er ljóst að við
höfum margt þangaðað sækja.”
— Þið hafið gott samband við
Vinnueftirlit rikisins?
,,Já, og mérer óhætt að segja
að miklar vonir eru bundnar við
þá ágætu stofnun.Nýju lögin um
vinnueftirlit voru geysileg bót
og með þeimvar ótvirættkveðið
á um myndugleika stofnunar-
innar, trúnaðarm anna og ör-
yggisvaröa á vinnustöðunum til
að stöðva vinnu þar sem bráð
hætta er. Þær opinberu stofnan-
ir sem fyrir voru höfðu ekki
þetta vald og höfðu raunar ein-
ungis eftirlitsskyldu með hönd-
um. Hins vegar er hætta á að
Vinnueftirlitið uppfylli ekki þær
vonir, sem við það eru bundnar,
vegna fjársveltis sem stofnun-
inni er haldið i. Hið svokallaða
vinnueftirlitsgjald rennur beint
i rikisfjárhirslurnar og kemur
ekki allttil baka aftur. Þá sýnist
mér að á fjárlögum núna sé
Vinnueftirlitinu sniðinn allt of
þröngur stakkur og þvi er stór-
hætta á að það sinni engan veg-
innþvimikilvæga hlutverki sem
þvi er ætlað.”
— Aö lokum, Asmundur?
„Ég vil að lokum undirstrika
það að gott samband við fjöl-
miðla er okkur nauðsynlegt i
þessu starfi. Það þarf að vekja
tq)p það viöhorf að vinnustaður-
inn þurfi ekki að vera lakari
staður en heimili manna og að
menn eigi ekki að láta bjóða sér
slæman aðbúnað i vinnu. Við
eyðum oft meiri tima á vinnu-
staðnum en á heimilinum i
vökutimanum og þvi hljóta allir
að skilja mikilvægi þess að vel
séað okkurbúið þar. Tilgangur-
inn með Vinnuverndarárinu er
einmitt að skapa hér ný við-
horf. ”
Enda þótt þaö sé orðið leiðin-
legra aö lifa, er ekkert
skemmtilegra aö deyja nú en
áöur.
1122 bóka-
titlar á
árinu 1980
Landsbókasafnið hefur gefið
út islenska bókaskrá 1980 og
kemur þar fram að enn er bóka-
útgáfa i vexti hér á landi. A ár-
inu komu út 1122 rit og bækling-
ar og hefur útgáfan þá aukist
um 62% . Af þessari tölu eru 332
þýðingar og lætur þá nærri að
tvær bækur af hverjum þrem
sem út koma séu frumsamdar.
Barnabækur eru um 17% útgáf-
unnar eða 187 árið 1980.
Landsbókasafnið hefur lika
gefið út tslenska hljóðritaskrá
og kemur þar fram að á árinu
hafa komið á hljómplötum og
snældum 52 útgáfur og er það
svipuð tala og á árinu áður.
Stærstur flokkur bóka er
skáldsögur, alls 263 titlar, þar af
90baádingar og er þá átt við litl-
ar barnabækur sem ekki ná
bókarstærð (88 talsins).
Fimmtiu og þrjárbækur og rit -
lingar eru frumsamdir en 210
þýddar, flestar úr ensku eða 95.
Ljóðabækur eru ails 59 og svo til
allar frumsamdar á islensku.