Þjóðviljinn - 25.03.1982, Síða 11

Þjóðviljinn - 25.03.1982, Síða 11
Fimmtudagur 25. mars 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 iþróttir [A] íþróttirg) íþróttir ^Öldunga- i m mót skíða- K v ennakna ttspyrna: manna öldungamót i skiðaiþrótt- um fara fram dagana 2. - 4. april nk. og verða haldin á Siglufirði og Isafirði. öld- ungamótið i norrænum greinum, göngu og stökki, verður haldið að Hóli við Siglufjörðlaugardaginn 3. og sunnudaginn 4. april. Keppt verður i tveimur flokkum, 35 - 45 ára og 46 ára og eldri, i karlaflokki i báöum aldurs- flokkum og er þátttaka öllum heimil nema þeim er tekið hafa þátt i Bikarkeppni SKÍ 1982. Þátttökutilkynningar með nöfnum, fæðingardegi og ári þurfa að berast As- grimi Sigurbjörnssyni i sima 96-71228 og 96-71755 fyrir 30. mars og veitir hann einnig allar nánari upplýsingar og fyrirgreiðslur i sambandi við ferðir og gistingu. öldungamótiö i alpagrein- um fer fram á Seljalandsdal við ísafjörð dagana 2. - 4. april og er þar einnig miðað við 35 ára aldur. Ferðaskrif- stofa Vestfjarða tekur við þátttökutilkynningum og veitir allar upplýsingar og aðstoð varðandi ferðir og gistingu i simum 3457 og 3557. Gífurleg þátttöku- aukning Sautján félög hafa til- kynnt þátttöku í Islands- mótiö í kvennaknattspyrnu í sumar og er það gifurleg aukning þar sem aðeins 8 lið voru með i fyrra. Til að mæta þessari f jölgun, hef- ur nú verið stof nuð 2. deild og verður hún tvískipt. Sex lið leika í 1. deild og ellefu í 2. deild. 1 1. deild leika eftirtalin félög: Akranes, Valur, Vikingur, Breiðablik, KR og FH. Keppni þar hefst 28. mai og þá fara fram þessir leikir: Akranes—FH Valur-KR Vikingur—Breiöablik önnur umferðin er síðan á dag- skrá 11. júni og þá mætast Akra- nes—Valur, KR—Vikingur og FH—Breiðablik. I 2. deild eru svo þessi félög: A-riðill: tsafjörður, Afturelding, Fram, IBV, Fylkir og Viðir Garöi. B-riöiil: Hveragerði, KA, — 17 félög taka þátt í íslands mótinu í stað 8 í fyrra og 2. deild hefur verið stofnuð. Kvennalandsliðið tekur þátt í Evrópukeppni landsliða Keflavik, Leiknir R. og Þór Akur- eyri. t fyrstu umferð, sem fram fer 29. mai mætast i A-riðli tsa- fjöröur—Viðir, Afturelding— Fylkir og Fram—tBV, og i B-riðli KA—Þór og Keflavik—Leiknir. tslandsmót i kvennaknatt- spyrnu var fyrst haldið árið 1972 og varö FH þá Islandsmeistari. Ariö eftir hlutu Armannsstúlk- urnar meistaratitilinn en siðan vann FH þrjú ár i röð. Áriö 1977 var komið að Breiðabliki og 1978 sigraði Valur. Þrjú siöustu árin hefur svo Breiðablik orðið ís- landsmeistari i kvennaflokki. Evrópukeppni landsliða tslenskt kvennalandsliö tekur i sumar þátt i Evrópukeppni lands- liða i fyrsta skipti. Stúlkurnar léku sinn fyrsta landsleik i september s.l. og töpuðu þá naumlega fyrir Skotum ytra, 3-2. Þann 31. mars n.k. veröur dregið i riöla i keppninni en 16 þjóöir hafa tilkynnt þátttöku. Þær eru: Belgia, Frakkland, Finnland, Sviþjóð, Holland, Noregur, ts- land, V-Þýskaland, Danmörk, Sviss, ttalia, trland, Portúgal, England, Skotland og Noröur-tr- land. Fróðlegt veröur að fylgjast með þessari frumraun islenskra knattspyrnukvenna og ekki er að efa að árangur þeirra i Skotlandi i fyrrahaust á sinn þátt i þessari ánægjulegu þróun i kvennaknatt- spyrnunni hér á landi. VS Stórsigur . xjrslitaleikir í bikariíeppnum KKÍ: FH-inga i FH vann léttan sigur á ! Fram i bikarkeppni HSl i | Laugardalshöllinni i gær- ■ kvöldi, 31-20. Einn leikur var I i bikarkeppni kvenna, Fram m sigraði Þrótt 23-15. ■ Víðavangs- ! hlaup ís- ) lands 1982 j Viðavangshlaup tslands ■ 1982 verður haldið sunnudag- | inn 4. aprilnk. og hefst kl. 14. B Að þessu sinni fer hlaupiö ■ framátúninuvið Vifilsstaði i J Garöabæ. Keppt verður i 7 - flokkum karla og kvenna I sem hér segir: kl. 13 stelpur ■ 1,5 km, kl. 14,15: strákar 1,5 | km, kl. 14,30: telpur 1,5 km, ■ kl. 14,45: piltar 1,5km,kl. 15: ■ konur3km,kl. 15,20: drengir | og sveinar 3 km, kl. 15,40: " karlar 8 km. Skorað er á alla sem ■ stundahlaup.hvortheldurer Z sér til heilsubótar eða með 1 keppni fyrir augum, að fjöl- ■ menna i hlaupið. t fyrra voru | yfir 200 keppendur i hlaup- . inu. Þátttökutilkynningar ■ ásamt 10 kr. þátttökugjaldi ■ skulu berast skrifstofu FRI . skriflega i siðasta lagi I mánudaginn 29. mars. Utan- ■ áskrift er: F.R.I., pósthólf | 1099, Reykjavik. . Minni-bolti { í Njarðvík j Islandsmót i „minni- Z bolta”, sem er smækkuð út- I gáfa af körfuknattleik fyrir ■ yngstu aldurshópana, verður | haldið i Njarðvik helgina 3. . og 4. april. Aö venju sjá Is- | 1 a n ds m ei s t a r a r n i r ij meistaraflokki, að þessu ■ sinni UMFN, um mótið. I Minni-bolti miðast við 11 ára ■ og yngri og er skipt i tvo | aldursflokka, 10-11 ára og 9 . ára og yngri. Þátttökutil- | kynningar berist KKt sem ■ allra fyrst. Vinnur KR tvöfalt? — mætir Fram í karlaflokki og ÍS í kvennaflokki i Laugardalshöll í kvöld KR og Fram leika til úrslita i bikarkeppni karia i körfuknatt- ieik i kvöid i Laugardalshöll og hefst leikurinn kl. 21. A undan, eða kl. 19, verður úrslitaleikurinn i bikarkeppni kvenna. KR og tS mætast, en þessi lið léku einmitt til úrslita um tslandsmeistara- titilinn um sfðustu heigi og þá sigruðu KR-stúlkurnar 52-47. Liö KR og Fram eru mjög áþekk að styrkleika. Fram kom upp úr 1. deildinni s.l. vor og náði öðru sæti úrvalsdeildarinnar i vetur auk þess sem liðið varð Reykjavikurmeistari i haust. I undanúrslitum keppninnar vann Fram Keflavtk i hörkuleik suður i Keflavik með 105 stigum gegn 98. KR gekk illa framan af vetri, enda lék liðið fyrstu leikina án Bandarik jamannsins Stewart Johnson. Síöan hefur leikur liðs- ins fariö stigandi en það varð þó að sætta sig viö fjórða sætiö i úr- valsdeildinni. 1 undanúrslitunum unnu KR-ingar Islandsmeistara Njarövikur með 72 stigum gegn 68 eftir að Njarövikingar höföu haft yfirhöndina nánast allan timann. Gifurleg barátta KR-inga i lokin færði þeim sætan sigur þar, og nú er aö sjá hvort hún dugir gegn sterku Framliði. vg Hariem Globetrotters á íslandi: Skemmtun fyrir alla fjölskylduna TWIGGY SANDERS—einn snill- inga Hariem Globctrotters, notar gjarnan þessa aðferö við körfu- skot. Körfuboltasnillingarnir heims- frægu, Ilarlem Globetrotters, eru væntanlegir hingað til iands sunnudaginn 18. aprii nk. Þeir ieika hér tvo leiki i Laugardals- höllinni 19. og 20. april og er þetta i fyrsta skipti sem liöið kemur hingað til lands en tsland er hundraöasta landið sem þeir heimsækja. Harlem Globetrotters koma hingað fyrir tilstilli landsliðs- nefndar körfuknattleikssam- bandsins og með aðstoð Flugleiða sem flytur þá til tslands og áfram til Evrópu. Andstæðingar Harlem Globe- trotters hér verða ekki islenskir, heldur koma þeir með lið með sér, Washington Generals, sem reyndar fylgir þeim á öllum ferð- um. The Generals hefur ekki tek- ist að sigra Globetrotters siðan árið 1971 þrátt fyrir nokkur þús- und tilrauna en liðið er mjög sterkt engu að siður. Globetrott- ers koma einnig með sina eigin dómara með sér. Harlem Globetrotters eiga að- sóknarmet i körfuknattleik. Arið 1950 komu 75.000 manns til að horfa á liðið leika i Berlin. Siðan félagið var stofnað árið 1927 hefur það tekið þátt i yfir 15,000 leikjum og talið er að yfir 100 miljón áhorfendur hafi séð leiki þeirra. Félagið hefur ferðast næstum 3 miljón milur sem samsvarar um 120 ferðium kringum hnöttinn. Hér er ekki um venjulegan körfuboltaleik að ræða heldur fjölbreytta skemmtun fyrir alla fjölskylduna og ekki er að efa að fjölmargir leggja leið sina i Laugardalshöllina til að sjá snill- ingana leika listir sinar. Forsala aðgöngumiða verður i ferðaskrif- stofu Flugleiða að Hótel Esju og hefstlaugardaginn 27. marskl. 13 og verður framhaldið á sunnu- dag. Einnig verður tekið á móti miðapöntunum utan af landi. VS „Okkar lélegasti leikur” sagði Keith j Burkinshaw i '1 ■ I i ■ I „Þetta var okkar lélegasti eikur I vetur”, sagði Keith Burkenshaw framkvæmda- tjóri Tottenham eftir að iið hans og Birmingham höfðu ;ert markalaust jafntefli á St. kndrews i Birmingham i yrrakvöld. Stigið flutti Tott- enham úr sjöunda sætinu i það jötta I 1. deild ensku knatt- spyrnunnar. Úrslit leikja i gærkvöldi og yrrakvöld: . deild Birmingham-Tottenham.. .0-0 W.B.A.-NottsCo........2-4 2. deitd 3arnsley-Grimsby ......3-21 C. Palace-Leicester ...0-2j 3. deild . 3rentford-Bristol R....l-0i Carlisle-Reading.......2-1™ Joncaster-Oxford.......1-1. Sxeter-Lincoln.........l-2l Muddersf.-Chesterfld...1-1™ Wimbledon-Southend.....3-0| 4. deild Crewe-Hereford.........l-o| Darlington-Hull........2-1. Balifax-Bradford C.....0-0| Sorthampton-York.......5-0 J Peterboro-Torquay......1-0. Scunthorpe-Aldershot...1-11 Stockport-Colchester...0-0" Sheff.Utd-Wigan .......1-0| Frakkar, án stórstirnisins" Michael Platini, unnu stórsig-| ur á Norður-lrum i landsleik i. Parls I gærkvöldi, 4-0. Wales-1 búar komu mjög á óvart erj| þeir náðu jafntefli gegn Spán-. verjum i Valencia, 1-1, og ekkil oóg með það, þeir voru mikið ? betri en Spánverjarnir.f Robbie James skoraöi mark. Wales á 52. min. en Satrus-I tegui hafði komið Spánverjum " yfir á 26. min. Fjölmennt j Islandsmót j 1 ■ 1 s ■ Fyrri hluti tslandsmótsins j i borðtennis var haldinn i . Laugardalshöllinni um sið- I ustu helgi. Skráðir keppend- ! ur voru tæplega 100 frá 9 fé- | lögum og héraöasambönd- • um. Sigurvegarar i einstök- I um flokkum urðu þessir: Einliðaleikur telpna 13 ára ■ og yngri: Fjóla Maria Lár- I usdóttir,UMSB. Einliðaleik- J ur meyja og stúlkna 13 - 17 ■ ára: Rannveig Harðardóttir, ■ UMSB. Tvfliðaleikur sveina í 15ára og yngri: Bergur Kon- | ráðsson og Friörik Bernd- ■ sen, Vikingi. Tviliðaleikur I drengja 15- 17 ára: Kristinn m Már Emilsson og Björgvin ■ Björgvinsson, KR. Tvennd- ■ arkeppni unglinga 17 ára og Z yngri: Gróa Sigurðardóttir I og Kristinn Már Emilsson, ■ KR. Einliðaleikur öldunga 30 f ára og eldri: Emil Pálsson, . Erninum. Tviliðaleikur öld- ■ unga: Jóhann örn Sigurjóns- ■ sonog Þórður Þorvarðarson, . Erninum. Einliðaleikur pilta I 13 ára og yngri: Kjartan ■ Briem, KR. Einliðaleikur f sveina 13 - 15 ára: Friðrik . Berndsen, Vikingi. Einliða- ■ leikur drengja 15 - 17 ára: J Einar Einarsson, Vikingi. . Mótinu verður haldið I áfram dagana 8. og 10. april J en þá verður keppt i flokkum | fullorðinna i Laugardalshöll. ■ Frestur til að skila þátttöku- | tilkynningum rennur út 31. * mars. í borð- tennis

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.