Þjóðviljinn - 26.03.1982, Page 1
MOBVIUINN
Föstudagur 26. mars — 70. tbl. 47. árg.
Svavar Gestsson, félagsmálaráðherra:
Sveitarfélög taki
verkefni af ríkinu
Fái jafnframt
viðbótartekjur til að
standa undir aukn-
um framkvæmdum
Svavar Gestsson félagsmála-
ráðhcrra hefur lagt fram tillögu I
. rikisstjörninni þess efnis að frá og
með næstu áramótum yfirtaki
sveitarfélögin i landinu verkefni
af rikinu eftir sérstökum samn-
ingi. i þessu skyni verði tekju-
stofnar sveitarféiaganna veru-
legá efidir til að sveitarfélögin fái
viðbótartekjur tii að standa undir
nýjum verkefnum.
Þetta kom fram i ávarpi
Svavars Gestssonar félagsmála-
ráðherra á fulltrúaráðsfundi
Sambands islenskra sveitar-
félaga i gær. Svavar sagði enn-
fremur:
„Til að vinna að samningum
um þessi efni verði skipuð sérstök
samninganefnd á vegum rikisins
og Sambands islenskra sveitar-
félaga.
Svavar Gestsson félagsmálaráð-
herra: tekjustofnar sveitarfélag-
anna verði verulega efldir.
f tillögunni er gert ráð fyrir þvi
að nefndin ljúki störfum svo
snemma að unnt verði að taka til-
lit til niðurstöðu hennar við fram-
lagningu f járlagafrumvarps fyrir
haustið 1982. Tillagan gerir einnig
ráð fyrir þvi að nefndin kanni
með hvaða hætti er unnt að
tryggja sveitarfélögum i þéttbýli
betri möguleika til að leggja
varanlegtslitlag á götur.t.d. með
þvi að myndaður verði sjóður i
þvi skyni. Skal tekið tillit til þessa
við uppgjör á verkefnum rikisins
og sveitarfélaganna '.
I lok ávarps Svavars Gests-
sonar komst hann svo að orði:
„Eins og ég sagði i upphafi hef
ég þá tilfinningu að umræða
undanfarinna ára um stöðu
sveitarfélaganna sé að skila þeim
árangri að menn séu almennt i
stakkbúnir til þess að hefja fram-
kvæmdir af alvöru. Eins og til-
laga min fyrir rikisstjórninni ber
með sér tel ég grundvallaratriði
að aðilar þessara mála setjist
niður og semji um markmið og
leiðir i sókn okkar til aukins lýð-
ræðis, valddreifingar og sjálf-
stjórnar sveitarfélaga. En loka-
takmarkið er jöfnuður og félags-
legt öryggi fyrir alla þegna þessa
lands, hvar sem þeir búa”.
— v.
[Sjóherinn a\
Mulanhahli
■
i
■
i
Samþykkir skilyrðin!
Sú tilkynning barst
hingað til lands í gær, að
bandaríski sjóherinn
hefði nú ákveðið að
hlaupa frá fyrri hótunum
um að taka jarðvegs-
rannsóknir á Suður-
nesjum í sínar eigin hend-
ur.
Sjóherinn hefur þar
með fallist á þær for-
sendur samninga við
Orkustofnun, sem Hjör-
leifur Guttormsson
iðnaðarráðherra gerði
kröfur um.
1 bréfi Orkustofnunar, sem
sjóherinn hefur nú samþykkt
var tekið fram að greiðslur fyrir
rannsóknir Orkustofnunar
skyldu fara fram i islenskri
mynt, aö undirverktaki hersins
skuli afla tilskilinna leyfa réttra
umráðaaðila til umferðar,
rannsókna og borana á þvi land-
svæöi sem um ræðir, og i þriðja
lagi er sjóhernum tilkynnt, að
Orkustofnun sé kunnugt um
mismunandi sjónarmiö innan
rikisstjórnarinnar varöandi
landnotkun og skipulagsmál á
umræddu svæði, og þvi feli
samningur um rannsóknir ekki i
sér neina heimild til
framkvæmda aö rannsókn lok-
inni af hálfu þeirra stjórnvalda
islenskra, sem Orkustofnun
heyri undir.
1 bréfi Orkustofnunar kemur
ennfremur fram að hún sé
tilbúin til að hefja framkvæmdir
og ljúka verkinu á tilsettum
tima.
Þaö var fimmtudaginn 18.
mars, sem hingaö barst tilkynn-
ing bandariska sjóhersins um
að herinn tæki verkþátt Orku-
stofnunar i eigin hendur, ef iðn-
aöarráöherra féllist ekki
skilyröislaust á óbreyttan
samning fyrir klukkan fjögur
næsta dag. Það var hins vegar
fyrstmánudaginn22. mars, sem
iönaðarráðherra lét Orkustofn-
un i té niðurstööur af könnun
ráöuneytisins, og setti þá
ákveðin skilyrði fyrir þátttöku
Orkustofnunar i viðkomandi
rannsóknum. Næsta dag,
þriðjudaginn 23. mars tilkynnti
bandariski sjóherinn svo, aö
samningum við Orkustofnun
hefði veriö riftað, en i gær,
tveimdögum siöar, kemur ný til-
kynning frá sjóhernum, og er þá
fallist á skilyrði iðnaðarráðu-
neytisins!
I
Landbúnaðarráðuneytið:
Bannar innflutning
fóðurvara frá Danm.
Álviðræður áfram í dag
Ekkert látið uppi
um gang mála
Klukkan 10.30 I gærmorgun hóf-
ust viðræöur þeirra Hjörleifs
Guttormssonar, iönaöarráðherra
og dr. Paul Míiller, formanns
framkvæmdastjórnar Alusuisse
um deilumál fslenskra stjórn-
valda og Alusuisse.
Fyrst ræddust þeir Hjörleifur
og Miiller við einir I um það bil
klukkutima, en siðan hófust fund-
ir með þátttöku ráðgjafa á báðar
hliöar. Með Hjörleifi Guttorms-
syni mættu þá Vilhjálmur Lúð-
viksson og Ingi R. Helgason, sem
báðir eiga sæti I islensku álvið-
ræðunefndinni og einnig Halldór
Kristjánsson, lögfræöingur i iðn-
aðarráðuneytinu sem ritari. Með
Muller mættu Wolfensberger,
Halldór Jónsson, stjórnarformað-
ur Isal og Ragnar Halldórsson,
forstjóri ísal.
Fundir þessara aðila stóðu bæði
fyrir og eftir hádegi i gær og
halda áfram i dag.
Hádegisverð snæddi Miiller i
gær með þremur ráðherrum úr
islensku rikisstjórninni, iönaðar-
ráðherra, forsætisráðherra og
sjávarútvegsráðherra.
Hjörleifur Guttormsson, iðnaöarráöherra og dr. Paul Múller, formaöur framkvæmdastjórnar Alusuisse
viö upphaf viöræöna i Ráöherrabústaönum I gær. — Ljósm. gel.
Landbúnaðarráðuneytið hefur
bannað innflutning á hvers konar
fóðurvörum, dýraafurðum,
jarðávöxtum og blómum frá Dan-
mörku hingað til lands.
1 tilkynningu fra landbúnaðar-
ráöuneytinu segir að þetta sé gert
vegna þess að upp sé komin gin-
og klaufaveiki i Danmörku. Enn-
fremur beinir ráðuneytið þvi til
feröafólks að það heimsæki ekki
sveitabæi á Fjóni og þeir sem
dvaliö hafi þar á sveitaheimilum
taki ekki með sér hingað til lands
óhrein vinnuföt eða skó.
— Svkr.
Málefni E1 Salva-
dor á Alþingi
Hvcr er mælikvaröi Sjálfstæö-
isflokksins á mannréttindi?
SJA 6. stnu.
^Miðstjórn^1
I arfundur !
I Fundur verður haldinn i I
miðstjórn Alþýðubandalags- I
I ins föstudaginn 2. og laúgar- J
• daginn 3. april n.k. og hefst .
I hann fyrri daginn kl. 17.00 i I
I sal starfsmannafélagsins I
| Sóknar að Freyjugötu 27.
■ Dagskrá:
I 1. Stjómmálaviöhorfið.
2. Skýrsla flokksstarfsnefnd- I
I ar.
■ 3. önnur mál.
Flutningaskipið Suðurland sökk við Færeyjar 1 gær:
Tiú skipverjum bjargað, eins saknað
Flutningaskipiö Suöurland sökk
30 - 40 sjómilur noröur af Myki-
nesi I Færeyjum í gærdag. Giftu-
samlega tókst aö bjarga 10 mönn-
um af áhöfn skipsins, en cins
manns var saknaö.
Suðurlandiö var að koma frá
Færeyjum með saltfarm, sem
skipa átti á land á Austurlandi.
Um eitt leytið i gærdag hafði Suð-
urlandið samband við radióið á
Hornafirði og tilkynnti að skipiö
væri lagst á hliðina, en vindur
væri suð-suðvestanstæður 7 til 8
vindstig og mikill sjór. Stuttu
seinna var tilkynnt að einn maður
hefði lent fyrir borð og væru hinir
10 að yfirgefa skipið.
Fljótlega náðist samband við
dönsku flotastöðina i Færeyjum,
en danska varðskipiö Hvidbjörn-
en var i um einnar klukkustundar
siglingar f jarlægð. Þar var þyrla
um borð en illa gekk að koma
henni á loft vegna veöurs. Land-
helgisgæslan hér gerði þegar i
stað ráðstafanir til að senda leit-
Frh á 3. síðu