Þjóðviljinn - 26.03.1982, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 26.03.1982, Blaðsíða 3
Föstudagur 26. mars 1982 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 3 Listi vinstri manna og óháðra á Flateyri Listi vinstri manna og óháðra við hreppsnefndarkosningar á Flateyri hefur verið ákveðinn. Að listanum standa flokksfélög Al- þýðubandalagsins, Framsóknar- flokksins og Alþýðuflokksins ásamt óháðum. Listann skipa: t. Ægir E. Hafberg, sparisjóðs- stjóri 2. Steinar Guðmundsson, vélvirki 3. Guðvarður Kjartansson, skrif- stofumaður 4. Aslaug Armannsdóttir, kennari 5. Guðmundur Björgvinsson, bif- vélavirki 6. Böðvar Gislason, verkamaður 7. Hálfdán Kristjánsson, sjó- maður 8. Björn Ingi Bjarnason, formaður Verkalýðsfélagsins Skjaldar 9. Guðmundur Jónas Kristjáns- son, skrifstofumaður 10. Gróa G. Björnsdóttir, hús- móðir Og til sýslunefndar: Guð- mundur Jónsson, húsasmiða- meistari. Til vara Sigurður Sigur- dórsson, vélstjóri. Listi almennra horg- ara í Olafsvíkurhreppi Fjölmenni á ferðamálaráðstefnu. — Mynd: — gel Tveir listar buðu fram i siðustu kosningum, listi almennra borg- ara og listi Sjálfstæðismanna. í sveitarstjórnarkosningunum i vor verður fjölgað i sveitarstjórn úr 5 i 7 fulltrúa. Þá verður einnig kosið um hvort ólafsvikurhreppur skuli sækja um kaupstaðarréttindi. Listi almennra borgara hefur farið með meirihluta i sveitar- stjórn ólafsvikurhrepps i 20 ár. Listinn hefur ýmist veriö sjálf- kjörinn eða með 4 fulltrúa af 5. Fulltrúar þessa lista til sýslu- nefndar eru Viglundur Jónsson og Gréta Jóhannesdóttir. Listi almennra borgara við hreppsnefndarkosningarnar i Ólafsvikurhreppi er þannig skip- aður i 10 efstu sætunum: 1. Stefán Jóhann Sigurðsson, framkvæmdastjóri. 2. Gylfi Magnússon, verkstjóri. 3. Sigriður Þóra Eggertsdóttir, kaupkona. 4. Vigfús Kr. Vigfússon, húsa- smiðameistari. 5. Kagnheiður Þorgrimsdóttir, kennari. 6. Steinþór Guðlaugsson, skip- stjóri. 7. Ebba Jóhannesdóttir, verka- kona. 8. Pétur Jóhannsson, verkstjóri. 9. Ólafur Arnfjörð, verslunar- stjóri. 10. Jóhannes Ragnarsson, sjó- maður. Suðurland sökk Frh. af 1. síðu arvél héðan og einnig var haft samband við herinn á Keflavikur- flugvelli og beðið um leitarvél og Herkúles þyrlu ef á þyrfti að halda. Slysið í Mos- fellssveit Feðgarnir sem biðu bana af slysförum i Mosfellssveit s.l. þriðjudag hétu Sigurbjörn Guð- jónsson, fæddur 1922 til heimilis að Goðalandi 11, og Sigurkarl Sigurbjörnsson, fæddur 1947 til heimilis að Álftamýri 27. Samband náðist við björgunar- lið i Skotlandi og var þaðan send Seaking þyrla og Minrod þota til leitar á svæðið. Um kl. hálfþrjú i gærdag fann svo þyrla frá Hvid- björnen gúmbát á reki með skip- verjunum 10 innanborðs. Tók hún strax tvo þeirra og fór með þá til Vágey. Skömmu siðar kom Seak- ing þyrlan að gúmbátnum og tók þá átta sem eftir voru og flutti þá til Þórshafnar og var þangað komin kl. 17.43. Um þetta leyti kom tilkynning um að Suðurland- ið væri sokkið. Þegar siðast fréttist var verið að leita á slysstaðnum og gert ráð fyrir að halda þvi áfram fram i myrkur ef með þyrfti. Suðurlandið var i eigu Nesskips hf. og var 1760 dwtonn, en 1142 brúttótonn. Það var byggt 1964 en keypt hingað til lands 1974. Suður- landi hafði aldrei hlekkst á. Það var sérstaklega styrkt skip, með- al annars með tilliti til siglinga i is. Svkr. r. Stjörnumessa á Broadway í gær: Bubbi Morthens gagn- rýnir samkunduna Uppákoma varð á Stjörnu- I messu Dagblaðsins-Visis i gær- ' kvöldi er textahöfundur ársins I ’82, Bubbi Morthens, flutti I frumsaminn texta, við undirleik I MagnúsartrommaraiEgói, þar * sem hann gagnrýndi allt fyr- I irkomulag Stjörnumessunnar. 1 I niðurlagi textans segir svo: Krakkar sem þefa lim og J þekkja ekki ykkar veröld kusu I mig — .....Hvar eru þau i I kvöld? Ég stend hér í Mekka diskó- j iðnaöarins og reyni að sporna I við. Nánar á poppsiðu á morgun. — A. ! i> IBubbi Morthens ekki ánægður með snobbið á Stjörnumessu og . Broadway. — Ljósm.: gel. *£$?*** Ferðamálaráðstefna Landvernd, Félag landvarða og Félag leiðsögumanna. efndu til ráðstefnu á Hótel Loftleiðum I gær. Fyrir hádegi voru flutt sex erindi, siðan störfuðu umræðu- hópar og að lokum fóru fram um- ræður um erindin og niðurstöður starfshópanna. Elytjendur erindanna voru: Birgir Þorgilsson: „Ferðamál á Islandi”. Sigrún Helgadóttir: „Landvarsla, -fræðsla og upplýs- ingar”. Birna G. Bjarnleifsdóttir: „Landkynning og uppbygging ferðaþjónustu.” Tryggvi Jakobs- son: „Ferðamál og náttúru- vernd”. Gunnar Sveinsson: „Ferðaútgerð — erlendir og inn- lendir ferðamenn”. Páll Sig- urðsson: „Ferðamál og umhverf- islöggjöf”. Ráðstefna þessi var mjög fjölmenn svo sem nokkuð má marka af meðfylgjandi mynd. 25 erlendir aðilar stunda hópferðaakstur hérlendis Stór hópur ferðast án minnsta samráðs 25erlendir aðilar, einstaklingar og feröaskrifstofur stunda hóp- ferðarekstur hér á landi i at- vinnuskyni og eru þess dæmi að sami aðilinn hafi gert það i 21 ár samfellt. 3.500—5.000 ferðamenn koma hingað árlega á vegum þessara útlendu aðila og stór hópur, 1000—1500 manns ferðast hér um án minnsta samráðs við nokkra innlenda aðila, kemur með eigin fararskjóta, leiðsögu- menn, viðleguútbúnað og mat, og ferðast gjarnan utan alfaraleiða eftirlitslausir að mestu. Þetta eru helstu niðurstöður könnunar, sem nefnd á vegum Ferðamálaráðs hefurgertá ferðaútgerð erlendra manna hér á landi, en Gunnar Sveinsson forstjóri BSl gerði grein fyrir störfum nefndarinnar á ráðstefnu Landverndar i gær. Fjórir hópar 1 nefndinni sátu auk Gunnars þau Birna Bjarnleifsdóttir og Skarphéðinn D. Eyþórsson, og eru þau nú að ljúka skýrslu um þessi mál og tillögum til úrbóta. Gunnar Sveinsson sagði að flokka mætti ferðaútgerð erlendra manna i fernt og alls ekki væru allir hóparnir, hvað þá Fjöldi laga og reglugerða þverbrotinn á hverju sumri allir ferðamennirnir sem hingað koma með þessum hætti undir sömu sök seldir hvað varðar slæma umgengni um landið. Hinsvegar væri ljóst að fjöldi laga og reglugerða væri þverbrotinn hér á hverju sumri. 1 fyrsta flokknum eru hópar á eigin veg- um, sem koma hingað á eigin farartækjum með erlenda bil- stjóraog leiösögumenn. Þeir hafa ekkert samráð við innlenda aðila, feröast gjarnan fjarri alfara- leiðum, kaupa enga þjónustu en stunda t.d. torfæruakstur og svaðilfarir. 1 þessum hópi eru 4 aðilar sem flytja hingað árlega um 200 manns. „Safari” - ferðir 1 hópi nr. 2 og 3 eru aðilar sem flytja hingað áriega um 900 manns. Þeir koma á eigin vegum, en ferðastá islenskum farartækj- um, venjulega jeppum, sem teknir eru á leigu án bilstjóra hjá bilaleigum. Þeir eru að öðru leyti litt frábrugðnir þeim sem i fyrsta flokk falla, eru með eigin bil- stjóra, leiðsögumenn og matvæli og bjóða upp á ,,safari”-ferðir um hálendið. Þriðji hópurinn feröast með islenskum rútum með islenskum bilstjórum en eigin leiðsögu- mönnum. Venjulega eru þessar ferðir skipulagðar í samvinnu viö einhverja islenska aðila og dæmi eru um að islenskir fararstjórar fylgi þessum hópum. Mjög er misjafnt hvernig ferðum er háttað.ýmist farið um byggð eða óbyggðir, gist i tjöldum, skálum eða á hótelum, en i þessum hópi eru tiu aðilar sem flytja hingað um 2.300 manns árlega. .Rannsóknarleiðangrar” í fjórða hópnum eru siðan þeir sem koma her undir yfirskini rannsóknarleiðangra. Venju- legþ hafa þeir rannsóknarleyfi frá Rannsóknarráöi rikisins, en ferðir þeirra eru aö öðru leyti ldtnar afskiptalausar. Þó er i fersku minni atburðurinn frá i fyrra þegar 150 manns hópur breskra skólanema ætlaði illa út- búinn á Vatnajökul. 1 þessum Framhald á 14. siöu | Rauðsokka j hreyfingin:____________| ■Stórdansleikur j I með Grýlum I I* Rauðsokkahreyfingin heldur stórdansleik i 1 Hreyfilshúsinu i kvöld, föstu- I daginn 26. mars, frá kl. 21.00 1 til 03. Grýlurnar leika fyrir I dansi frá kl. 22-02. Allt I baráttuglatt fólk hvatt til að I Evrópumótið í skák: Englendingar lögðu Svíana Nú er ljóst orðið að keppni Is- lendinga og Englendinga i Evrópumeistaramótinu i skák verður hrein úrslitabarátta um sæti i úrslitum Evrópumótsins. Eins og kunnugt er þá unnu Is- lendingar Svia 9:7 þegar þjóðirn- ar leiddu saman hesta sina hér á landi eigi alls fyrir löngu. Sviar tefldu svo við Englendinga i Gautaborg fyrir nokkrum dögum og töpuðu aftur, nú 6 1/2:9 1/2. Sviar geta þvi hætt að hugsa um áframhaldandi þátttöku i keppni þessari en viðureign Englendinga og Islendinga, sem fer fram i London eða Birmingham i júli, sker úr um hvor þjóðin kemst áfram. Englendingum nægir jafntefli, en islendingum nægir að vinna með minnsta mun. —hól.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.