Þjóðviljinn - 26.03.1982, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 26. mars 1982
MOBVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Otgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan
ólafsson.
Kréttastjóri: Þórunn Sigurðardóttír.
L'msjónarmaður sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson.
Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir.
Afgreiðslustjóri: Kilip W. Franksson.
Blaðamenn: Auöur Styrkársdó'tir, Helgi Ólafsson
Maenús H. Gislason, Olalur Gislason, Óskar Guðmundsson,
Sigurdór Sigurdórsson, Sveinn Kristinsson, Valþór Hlöðversson.
iþróttafréttaritari: Viöir Sigurðsson.
Cllit og hönnun: Andrea Jónsdóttir Guðjón Sveinbjörnsson.
Ljósmyndir:Einar Karlsson, Gunnar Elisson.
Ilandrita- og prófarkalestur: Elias Mar, Trausti Einarsson.
Vuglysingar: Hildur Kagnars, Sigriður H. Sigurbjörnsdóttir.
Skrifstofa: Guörún Guövarðardóttir, Jóhannes Haröarson.
Afgreiðsia: Bára Sigurðardóttir, Kristin Pétursdóttir.
Simavarsla: Sigriður Kristjánsdóttir, Sæunn óladóttir.
Húsmóöir: Bergljót Guöjónsdóttir.
Bflstjóri: Sigrún Báröardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar
Sigurmundsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen
Jónsdóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síöumúla 6,
Reykjavik, simi 8i:i23
Prentun: Blaðaprent hf.
Með þjóðarsamstöðu
• Hvort sem fundur Hjörleifs Guttormssonar og
Mullers frá Alusuisse skilar einhverjum árangri eða
ekki, þá skiptir höfuðmáli að sem allra f lestir geri sér
glögga grein fyrir því, hve rök okkar fyrir mjög
verulegri hækkun raforkuverðsins til álversins eru
sterk. Það eru sanngirnisrök, sem auðhringnum ber
að taka tillit tiLenda þótt samningsákvæði kveði á um
óbreytt raforkuverð til ársins 1994, eða í 12 ár enn, og
þá lítilli hækkun, en síðan bundnu orkuverði til ársins
2014.
• Hér í Þjóðviljanum var í gær gerð ýtarleg grein
fyrir því hvaða orkumagn hinir ýmsu orkunotendur í
landinu fá í sinn hlut, og hvað þeir hver um sig greiða
stóran hluta þess heildarverðs, sem hér er greitt f yrir
alla selda orku.
• Samkvæmt tölum Orkustofnunar sem Þjóðviljinn
kynnti í gær, þá fékk álverið í sinn hlut á árinu 1979 um
43% allrar seldrar orku, en greiddi hins vegar aðeins
rúm 8% þeirrar upphæðar sem inn kom fyrir orku-
söluna. Sfðan hef ur lítið breyst.
• Heimilin í landinu og þau íslensk atvinnufyr-
irtæki, sem ekki njóta sérsamninga, fengu hins vegar
i sinn hlut um 40% orkumagnsins (orka til húshitunar
meðtalin), en greiddu fyrir þessi 40% full 80% af inn-
komnum tekjum f yrir orkusölu.
• Það eru íslensk heimili og íslensk atvinnufyr-
irtæki, sem greiða niður orkuna f yrir Alusuisse. Orku-
verðið sem Alusuisse greiðir hér nú er 6,55 aurar á
kílówattstund. Orkuverðið sem almenningsrafveit-
urnar greiða landsvirkjun er 27 aurar, eða meira en
f jórfalt hærra. Verðmunurinn er 313% (ekki 413% eins
og misritaðist í blaðinu í gær). Þegar álverið tók til
starfa árið 1969 var þessi munur 81%, og þótti mikill
þá. Með þjóðarsamstöðu verður að knýja f ram breyt-
ingar á gömlu samningunum, með samkomulagi sé
það í boði, annars einhliða.
— k.
Fundur með Thompson
• A morgun,laugardag, efna Samtök herstöðvaand-
stæðinga til almenns f undar í Háskólabiói, undir kjör-
orðinu: Gegn helstefnu hernaðarbandalaga.
• Að undanförnu hefur starfsemi hvers kyns sam-
taka, sem berjast fyrir friði og afvopnun, eflst mjög f
f lestum okkar nágrannaríkja. Hið taumlausa vígbún-
aðarkapphlaup risaveldanna og sú vaxandi tortím-
ingarhætta sem því fylgir hefur kallað æ fleiri til
virkrar þátttöku í baráttu fyrir friði og takmörkun
vígbúnaðar.
• Meðal ræðumanna á fundi herstöðvaandstæðinga
í Háskólabíói á morgun verður breski sagnfræðingur-
inn Edward P. Thompson, kunnasti forystumaður
bresku f riðarhreyf ingarinnar.
• Flestir gera sér nú Ijóst að staðsetning meðal-
drægra kjarnorkueldf lauga í Austur- og Vest-
ur-Evrópu magnar styrjaldarhættuna, og alveg sér-
staklega þá hættu að Evrópa tortímist í átökum risa-
veldanna, sem að öðru leyti kynnu þó að verða tak-
mörkuð.
• Sú krafa verður æ háværari, að Evrópuríkin frá
Póllandi til Portúgal, frá (slandi til Grikklands, taki
frumkvæði í baráttu fyrir tryggingu friðar og tak-
mörkun vígbúnaðar, — óháð vilja risaveldanna í
austri og vestri.
• Alkunna er að Kremlverjar hafa þann hátt á, að
stimpla alla þá í Austur-Evrópu sem eitthvað hafa við
vígbúnaðaræði Varsjárbandalagsins að athuga, sem
handbendi Bandaríkjanna. Svipaðrar tilhneigingar
gætir mjög á Vesturlöndum, nema með öfugum for-
merkjum. Út úr þessum vftahring þurfa þjóðir
Evrópu að brjótast. Friðarhreyf ing, sem starfar sem
útibú frá Brésnef eða Reagan er einskis virði, en
friðarhreyfing sem byggir upp nýtt sjálfstætt afl í
stjórnmálum Évrópu og setur vígbúnaðaræði risa-
veldanna stólinn fyrir dyrnar — hennar er brýn þörf.
Það er slíka friðarhreyfingu, sem hinn breski sagn-
f ræðingur Thompson vill byggja upp. Þess vegna skal
komu hans fagnað hér.
— k.
Samanburðar-
fræði
„Það er hvorki hægt að
byggja sóslalisma né lýöræöi
á tilskipunum sem neytt er
ofan i fólk eöa á þvi aö hverfa
aftur til óréttlætis og fá-
mennisstjórna fortiöarinnar.
Alþjóöasamband sósialista
hefur slegið þvi föstu aö
sömu meginreglur gildi I
þessum efnum um Pólland
og Tyrkland, Afganistan og
E1 Salvador...”
„Annaö risaveldiö styður
sjálfsákvöröunarrétt pólsku
þjóöarinnar og baráttu
frjálsu verkalýðsfélaganna.
Þetta er lofsvert. En sama
risaveldi stuölar jafnframt
aö þvi aö haldi uppi stjórn
sem kúgar frelsi af verka-
mönnum og bændum I E1
Salvador. Stjórn Bandarikj-
anna felur sig á bak viö þaö
aö frelsisbaráttan í Mið-Am-
eriku sé á snærum Kúbu-
manna, Sovétrikjanna,
kommúnismans. Hitt risa-
veldiö styöur rétt þjóöar
Salvador til sjálfsákvöröun-
ar, baráttu þess gegn kúgun.
Þetta er lofsvert. En þaö
meinar um leiö pólsku þjóö-
inni og pólskri verkalýösstétt
rétt til sjálfsákvöröunar, rétt
til aö móta framtfö sina meö
sjálfstæöum hætti. Stjórn
Sovétrikjanna felur sig á bak
viö þær röksemdir aö frelsis-
baráttan í Póllandi sé á
snærum Bandarikjanna og
kapitalismans...
Refsingar
Um leiö og fordæming á
kúguninni I Tyrklandi fer
vaxandi hafa Bandarikin
aukiö efnahagslegan, hern-
aðarlegan og pólitiskan
stuöning sinn viö stjórnina
þar. Menn fordæma hers-
höföingjana i Varsjá en bera
lof á kollega þeirra i Ankara.
Þetta er hræsni. í fyrra
veittu Bandarikin Tyrklandi
547 miljón dollara aöstoö og I
ár hefur forseti Bandarikj-
anna beðiö um 700 miljónir
dollara til stjórnarinnar þar,
þar af fari 403 miljónir I
hernaðaraöstoð. Hér er svo
sannarlega ekki um aö ræöa
refsiaögeröir i nafni frelsis-
ins.”
ólöf Palme, fyrrum for-
sætisráöherra Sviþjóöar i
setningarræðu á ráöstefn-
unni „Frelsi allra þjóöa —
friöur I heimi öllum”.
klíppt
Fjölmiðlar
Viö lifum á timum þegar mik-
ill dugnaöur er sýndur viö aö
smiöa kenningar um fjölmiöla.
Lætur nærri aö hver og einn geti
fært rök aö þvi sem honum
hentar i þeim efnum og hljómi
allt tiltölulega sannfærandi.
Til dæmis höfum viö merkar
kenningar um þaö aö mikil sjón-
varpsneysla og þá myndbanda
hafi svipuö einkenni og neysla
fikniefna. A hinum endanum
standa svo þeir sem telja mann-
lifiö litils viröi og mannréttindi I
hættu ef menn hafi ekki svosem
fimm eöa tiu rásir aö leika sér
aö.
Á flótta
Ein kenning enn, mönnum til
fróöleiks.
Þessi kenning kemur frá Dan-
mörku. Þar segir frá þvi aö
aldrei hafi veriö jafn mikiö aö
gera i sjónvarpsbúðum og hjá
myndbandaleigum þar 1 landi
og nú. Þetta geti aö sönnu veriö
jákvætt svar I þrúgandi vand-
ræöum heimsins. En hún endar
á þvi, aö gera myndbandiö aö
taugalyfi, aö flótta undan
„flóknum heimi”, aö þvi sanna
ópiumi fyrir fólkiö sem oft og
lengi hefur veriö leitaö aö.
Jákvœtt
og neikvcgtt
Þaö sakar kannski ekki aö
geta þess, aö höfundur þessarar
fróölegu greinar er forstjóri
verslanakeðju i Dan-
mörku sem höndlar meö mynd-
bandatækni og sjónvarpstæki
ýmiskonar. En þótt undarlegt
megi virðast kemur hann að
nokkru leyti inn á sömu hluti og
talsmenn Austur-Evrópurikja
og margra rikja þriöja heimsins
hafa haft á lofti þegar deilt
hefur veriö á alþjóöavettvangi
um ástand fjölmiöla.
Austanmenn og Þriöjaheims-
menn hafa viljað koma á ný-
skipan i fjölmiölamálum, sem
tryggöi „jákvæöari” fregnir af
þessum heimshlutum. Sá sann-
tengt þvi, aö i kreppunni spari
menn feröir, bensfn og fleira
meö þvi aö fjölskyldan situr
saman og horfir á lifandi
myndir. En greinarhöfundur
hallast þó fremur aö þeirri
skoöun aö myndbandaneyslan
sé svar fólksins viö hinni nei-
kvæöu mynd af heiminum og
dönsku samfélagi sem útvarp,
venjulegt sjónvarp og forsiöur
dagblaöanna miöla. Þar eru,
segir hann, ekkert nema vanda-
mál, strið, morö, slys og ógæfa.
Kreppa i hverju horni. Hann
segir ennfremur:
„Fjölmiölar hafa gefiö okkur
þvilika hrossaskammta af nei-
kvæðu fóöri á undanförnum
árum, aö þeir hlutu aö brjóta
niöur alla trú okkar á framtiö-
ina og allan baráttuvilja, sem
viö þurfum svo mjög á aö halda.
1 sjálfsvörn og til aö mótmæla
velur fólkið i stórum stil video
fremur en allt þetta neikvæöi
sem birtist á forsiöum blaöa og
á fréttaskerminum. Heimurinn
er orðinn of flókinn til aö skilja
°g fylgjast meö. Og menn berj-
ast viö þetta neikvæöi meö
video”.
Kenningin fer af staö meö
þeim hætti aö hún sýnist boöa
leikskjarni er i þeirra gagnrýni,
aö fréttamat er oftast á þá leiö,
aö engar fregnir eru sagöar
nema illar (hamfarir, slys,
striö, spilling, morö) Af ein-
hverjum merkilegum ástæöum
heyra neytendur ekki aörar „já-
kvæöar fregnir” en úr sinni
heimabyggö (nýr skóli, ný brú,
framlög til félagsmála). Þaö er
ekki gott viö þessu aö
gjöra — þvi þetta lögmál gildir
nefnilega nokkurnveginn um
allan heim. Þessvegna hafa lika
lönd sem búa viö þokkalegt
prentfrelsi veriö treg á aö sam-
þykkja hugmyndir ritskoöunar-
landa, sem i nafni „jákvæöis”
vilja i raun lauma aö ýmsum
ritskoöunaraöferöum til aö
ýmiskonar einræöisstjórnir fái
þokkalegra umtal erlendis en
ella.
Meö sérstæöum hætti eru
myndbandasalinn og ritskoöar-
inn komnir i svipaöar buxur.
Annar býöur aö visu létta af-
þreyingu eins og þaö heitir, en
hinn fegraöa (og sjálfsagt
leiöinlega) mynd af vissum
heimshlutum. En báöir eru þeir
á flótta undan óþægilegum staö-
reyndum.
AB
og skorið