Þjóðviljinn - 22.04.1982, Side 20
20 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 22. april 1982
Ríkisendurskoðun
óskar að ráða i starf við endurskoðun
tollskjala.
Laun samkv. launafl. 009 (BSRB).
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur
menntun og fyrri störf óskast sendar
rikisendurskoðun, Laugavegi 105, fyrir 30.
apriln.k..
Laus staða
Staða aðstoðarskólastjóra við Menntaskólann við Hamra-
hlið er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Samkvæmt reglugerð er gert ráð fyrir að aðstoðarskóla-
stjóri sé ráðinn til fimm ára i senn úr hópi fastra kennara
á framhaldsskólastigi.
Umsóknir, meö ýtarlegum upplýsingum um námsferil og
störf, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6, 101 Reykjavik, fyrir 21. mai 1982. Umsóknareyðu-
blöð fást i ráðuneytinu.
Menntamáiaráðuneytið,
21. aprii 1982.
Lausar stöður
Við Menntaskólann á Akureyri eru lausar til umsóknar
fjórar kennarastöður. Kennslugreinar: isienska, saga,
efnafræði, eðlisfræði, liffræði og stærðfræði.
Launsamkvæmt launakerfistarfsmanna rikisins.
Umsóknir, ásamt ytarlegum upplýsingum um námsferil
og störf skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, fyrir 21. mai n.k. —
Umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
21. april 1982.
Unglingameistaramót
Norðurlanda í fimleikum
verður haldið i fyrsta skipti á íslandi dag-
ana 24. — 25. april i Laugardalshöll. Mótið
hefst kl. 14.30 báða dagana.
Fimleikasamband íslands
Halló krakkar!
Ef þið hafið áhuga á að bera út blöð i sum-
ar, þá vinsamlegast hafið samband við af-
greiðslu Þjóðviljans, Siðumúla 6, siminn
er 81333.
Útför eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa
Þórðar Benediktssonar
Hátúni 8,
Rcykjavik
verður gerð frá Dómkirkjunni föstudaginn 23. april kl. 15.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast
hins látna er bent á Hlifarsjóð Sambands islenskra
berklasjúklinga.
Anna Benediktsson
Sveinn Þörðarson Martha Sigurðardóttir
Asta B. Þórðardóttir Borgþór Gunnarsson
Björn V. Þórðarson Guðmunda Guðmundsdóttir
Baldur Þórðarson Gabriella Þórðardóttir
Barnabörn og barnabarnabörn
Móðir okkar,
Guðbjörg Guðbrandsdóttir,
Langholtsvegi 24,
verður jarðsett frá Fossvogskirkju föstudaginn 23. apríl
kl. 13.30.
Hulda Pétursdóttir
Þórdis Sigurðardóttir
Halldóra Sigurðardóttir
ólafur Jens Sigurðsson
Ingibjörg Sigurðardóttir
Sigurður Randver Sigurðsson
Iðnskólanum hefur borist ágæt gjöf nýlega. Fyrirtækiö G. Heinriksson h/f gaf hjólastillibúnað, sem
notaður er við kennslu i bifvélavirkjun. A myndinni sést Sigurður Kr. Sigurðsson framkvmstj. G.
Hinriksson ásamt nemendum og kennurum skólans.
13 sóttu um sýslumannsembætti Árnessýslu:
Islandsmet í umsóknaf jölda
Þrettán sóttu um sýslumanns-
embættið i Arnessýslu, en Páll
Hallgrimsson fær lausn frá þvi
embætti hinn 1. júli n.k. Þess má
geta, að þá hættir um leið siðasti
konungsskipaði embættismaður
landsins, en Páll var skipaður i
embættið hinn 1. janúar árið 1937.
Umsækjendur um embættið
voruþessir: Alan V. Magnússon,
fulltrúi, Selfossi, Andrés Valdi
marsson, sýslumaður Stykkis-
hólmi, Bogi Nilsson, sýslumaður,
Eskifirði, Einar Oddsson, sýslu-
maður, Vik, Halldór Kristjáns-
son, bæjarfógeti, Bolungarvik,
Jakob J. Havsteen, hdl, Selfossi,
Jóhannes Arnason, sýslumaður,
Patreksfirði Jón A. Ólafsson
sakadómari, Reykjavik, Jón E.
Itagnarsson, hdl. Reykjavik,
Kristján Torfason bæjarfógeti
Vestmannaeyjum, Pétur Kr.
Ilafstein, fuiltrúi, Reykjavik
Sigurður Gizurarson.sýslumaður
og "bæjarfógeti, Húsavik og
Sverrir Einarsson, sakadómari,
Reykjavik.
Verðkönnun Verðlagsstofnunar
í Eyjafjarðar- og Skagafjarðarsýslum:r
Munurinn 17,6% í dýrustu
og ódýrustu versluninni
I verðkönnun Verðlagsstofnun-
ará nýlenduvörum i Eyjafjarðar-
og Skagaf jarðarsýslum, sem
framkvæmd var f mars sl., kom f
Ijós, að þar sem verðið reyndist
hagkvæmast, kostuðu 12 valdar
vörutegundir 154,30 kr. en kr.
181,50 i þeirri verslun, sem reynd-
ist hafa hæsta verðið. Þess má
geta, að lægsta verðið á þessum
12 tegundum bauð Hagkaup, Ak-
ureyri, en hið hæsta Valberg,
Ólafsfirði.
1 könnuninni kom fram allmik-
ill verðmunur i einstökum versl-
unum. 1 kynningu Verðlagsstofn-
unar er þó ekki birt nema brot af
vöruúrvali verslananna og þvi
nauðsynlegt að setja vissa fyrir-
vara. I könnuninni eru einkum
vörutegundir, sem vænta má
nokkurra frávika i verði vegna
m.a. hárrar heimilaðrar álagning-
ar. Hins vegar voru landbúnaðar-
vörur ekki i könnuninni, en verð á
þieim er yfirleitt það sama i versl-
unum.
Þá segir einnig i verðkynning-
unni, að ef þær 50 vörutegundir,
sem teknar voru fyrir, hefðu ver-
ið keyptar þar sem þær voru
ódýrastar, hefði þurft að greiða
fyrir þær kr. 515,30. Ef þær hins
vegar hefðu verið keyptar þar
sem þær reyndust dýrasta, hefði
þurft að greiða fyrir þær 735,65
kr., eða 42,8% hærri upphæð. Við
viljum bæta þvi við, að i þessu til-
viki hefði þurft að hendast búð úr
búð milli Akureyrar, Ólafsvikur,
Dalvikur o.s.frv. til þess að
„spar'a”. Sparnaðurinn hefði þvi
enginn orðið.
Hitt stendur eftir, að taflan hér
að neðan sýnir mikinn mun milli
verslana i Eyjafjarðar- og Skaga-
fjarðarsýslum.
1 Samtals verð-þeirra 12 vörutegunda sem til voru í öllum verslunum Hlutfallslegur samanburður, meðalverð = 100
L/EGSTA VERÐ 144.05 85.0
Hagkaup, Akureyri 154.30 91.1
Kjörmarkaður KEA, Akureyri 157.15 92.7
Garðshorn, Akureyri 163.60 96.5
Kaupfélag Skagfirðinga, Hofsósi 163.85 96.7
KEA, Ólafsfirði 164.10 96.8
Hafnarbúðin, Akureyri 166.70 98.4
KEA, Siglufirði 168.35 99.4
KEA, Strandgötu, Akureyri 168.75 99.6
MEÐALVERÐ 169.45 100.0
KEA, Höfðahlíð, Akureyri 169.70 100.1
KEA, Dalvík 170.15 100.4
Gestur Fanndal, Siglufirði 170.80 100.8
Kaupfélag Skagfirðinga, Varmahlíð 171.45 101.2
Tindastóll, Sauðárkróki 172.10 101.6
KEA, Byggðavegi, Akureyri 172.40 101.7
Matvörubúðin, Sauðárkróki 172.65 101.9
Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki 173.55 102.4
KEA, Hafnarstræti, Akureyri 175.15 103.4
KEA, Brekkugötu, Akureyri 175.85 103.8
Verslunarfélag Siglufjarðar 177.10 104.5
Valberg, Ólafsfirði 181.50 107.1
HÆSTAVERÐ 186.15 109.9