Þjóðviljinn - 22.04.1982, Síða 21
Fimmtudagur 22. april 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 21
[" Framboðslisti
\ AB í Borgarnesi
* Alþýðubandalagið i Borgarnesi hefur nú ákveðið framboðslista
I sinn til sveitarstjórnakosninganna i næsta mánuði. Listann skipa
I eftirtaldir: 1. Halldór Brynjúlfsson framkvæmdastjóri, 2. Margrét
I Tryggvadóttir kennari, 3. Grétar Sigurðarson mjólkurfræðingur, 4.
■ Aslaug Þorvaldsdóttir húsmóðir, 5. Baldur Jónsson bifreiðastjóri, 6.
I Ingvi Árnason trésmiður, 7. Ósk Axelsdóttir kennari, 8. Jónina B.
I óskarsdóttir húsmóðir, 9. Rúnar Viktorsson trésmiður, 10. Hólm-
I friöur Héðinsdóttir húsmóðir, 11. Veturliði Rúnar Kristjánsson bif-
* reiðastjóri, 12. Aslaug Benediktsdóttir húsmóðir, 13. Sigrún
I Stefánsdóttir talsimavörður, 14. Guðmundur V. Sigurðsson bif-
I reiðastjóri.
Jafnframt hefur Alþýðubandalagið i Borgarnesi opnað kosninga-
* skrifstofu að Brákarbraut 3. Verðurhún opin á næstunni frá kl. 20-22
I á kvöldin, og eru félagar hvattir til þess að hafa samband við skrif-
I stofuna.
Halldór Brynjúlfss
framkvæmdastj
Áslaug Þorvaldsd
húsmóðir
Margrét Tryggvad Grétar Sigurðarson
kennari mjólkurfræðingur
Baldur Jónsson Ingvi Árnason
bifreiðastjóri trésmiður
Framboðslisti
AB á ísafirði
Birtur hefur verið framboðslisti Alþýöubandalagsins á ísafirði.
Þessir skipa listann: 1. Hallur Páll Jónsson, 2. Þuriður Pétursdóttir,
3. Hallgrimur Axelsson, 4. Tryggvi Guðmundsson, 5. Svanhildur
Þórðardóttir, 6. Jón Baldvin Hannesson, 7. Elin Magnfreðsdóttir, 8.
Guömundur Skúli Bragason, 9. Gisli Skarphéðinsson, 10. Herdis
Híibner, 11. Einar Bragason, 12. Aslaug Jóhannsdóttir, 13. Reynir
Torfason, 14. Ragna Sólberg, 15. Már Óskarsson, 16. Þorsteinn
Magnfreðsson, 17. Margrét óskarsdóttir, 18. Aage Steinsson.
Aage Steinsson, sem starfað hefur að bæjarmálum á Isafirði i 16
ár, gaf ekki kost á sér i efstu sætin a ð þessu sinni.
1. Hallur Páll
Jónsson
s.
4. Tryggvi
Guðmundsson
2. Þuriöur
Pétursdóttir
5. Svanhildur
Þórðardóttir
3. Hallgrimur
Axelsson
6. Jón Baldvin
Hannesson
L
7. Elin
Magnfreðsdóttir
8. Guömundur
Skúli Bragason
9. GIsli
Skarphéðinsson
Nokkur hluti þátttakenda á ráöstefnunni. — Mynd: Ketitl.
Sveitarstjórnarráðstefna AB á Akureyri
Valið mun standa
á milli stefnumiða
AB og íhaldsins
Alþýðubandalagið i
Norðurlandskjördæmi
eystra efndi til ráðstefnu
á Akureyri um siðustu
helgi, þar sem rætt var
um sveitarstjórnarmál.
Sat hana um 30 manns.
Ráðstefnan hófst upp úr
hádegi á laugardag og
lauk á sunnudag. Helgi
Guðmundsson setti
hana, Katrin Jónsdóttir
stjórnaði, en Gisli ólafs-
son ritaði fundargerð. —
Svavar Gestsson, fél-
agsmálaráðherra, flutti
erindi á ráðstefnunni um
verkasliptingu rikis og
sveitarfélaga, en siðan
hófust almennar um-
ræður, sem allir ráð-
stefnugestir tóku meiri
og minni þátt i.
Svavar Gestsson, ráðherra,
sagði þess vænst, að nefnd, sem
fjallaði um fjármagns- og verka-
skiptingu milli rikis og sveitar-
félaga, lyki störfum það fljótt, að
unnt yrði að leggja tillögur
hennar fyrir Alþingi i haust.
Nefnd þessi er öðrum þræði skip-
uð af rikisstjórninni, en að hinu
leytinu af Sambandi islenskra
sveitarfélaga. Sum verkefni væru
of viðamikil fyrir hin smærri
sveitarfélög, eins og varanleg
gatnagerð og holræsagerð. Þyrfti
að stofna sérstakan fram-
kvæmdasjóð, sem hlypi undir
bagga með þeim. Gæti það haft
alvarlegar afleiðingar fyrir mat-
vælaframleiðsluþjóð eins og
Islendinga að hafa holræsamálin i
ólagi. En til þess að koma þeim i
lag þyrfti 600—800 milj. kr. og
helming þeirrar upphæðar i
Reykjavik.
Ræðumaður minnti á, að við
siöustu bæja- og sveitastjórnar-
kosningar hefði Alþýðubanda-
lagið bætt viðsig 50% atkvæða frá
næstu kosningum á undan og
stæði að meirihlutasamstarfi eða
hefði forystu i mörgum bæjar-
félögum. Væri það undantekn-
ingarlaus regla, að þar sem
Alþýöubandalagið hefði haft mest
áhrif, hefði þátttaka bæjanna i
atvinnurekstri farið vaxandi og
fjármálum betur stjórnað, mun
meira sinnt skipulags- og um-
hverfismálum og hverskonar
félagslegri þjónustu. Allt hefur
þetta tekið gagngerum stakka-
skiptum þar sem Alþýðubanda-
lagið hefur tekið við forystu af
ihaldinu. 1 komandi sveitar-
stjórnarkosningum er þvi valið
um stefnumið Alþýðubanda-
lagsins annars vegar og ihaldsins
hinsvegar.
Ræðumaður vék að sameiningu
sveitarfélaga og kvaðst andvigur
þvi, að hún yröi þvinguð fram
með valdboði, heldur gerðist fyrir
þær sakir, að sveitartélögin lyndu
sjálf þörfina.
Klukkan 4 var ráðstefnunni
frestað til næsta dags, þar sem
Alþýðubandalagið hal'ði boðið til
opinbers fundar i Alþýðuhúsinu,
svo sem skýrt hefur veriö frá hér i
blaðinu.
Klukkan 10 á sunnudags-
morgun var ráðstefnunni siðan
haldið áfram og mættu menn vel
og stundvislega þótt kvöldið áður
hefði verið vakað frameftir við
gleðskap og gamanmál.
Siðan var þyrpst á friðar-
fundinn. —mhg.
Helgi Seljan:
VOR
Kliömjúkt er hið káta Ijóð vorsins
með kvak í íugli, ilmi úr mold,
angan frá blómi, undraþyt í laufi.
Hið unga líf kviknar hvarvetna
og kveikir þessa undarlegu barnslegu þrá,
sem blundaði allan veturinn bak við héluna.
Og tilveran tekur kollhnís
og titrandi af fögnuði hjartans,
gengurðu mót geislum sólarinnar
mót gróanda vors og lífs.
Gengur á vit hinnar eilifu æsku
en aðeins svipula örskotsstund.
Því mitt í þessari undursamlegu upplifan
innst í kviku hins ólgandi lifs,
sem alls staðar tekur völdin.
Þá grætur eitthvað innra með þér
yfir fótmálum fullorðinsáranna,
sem færa þig nær einstigi ellinnar.
Harmræn verður hrynjandi vorsins
og húmið eitt situr eftir
með rökkurtjöld þagnar og trega,
mitt í angandi vordý-rð allrar veraldar.
Og þó er sól hæst i hádegisstað
hljómar vorgyðjunnar ymja,
sem lofgjörð yfir lífinu
en Ijósta þig óbærilegum harml þess, sem veit,
að hann á aldrei afturkvæmt.