Þjóðviljinn - 22.04.1982, Síða 29
Fimmtudagur 22. april 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 29
leiklist
tónlist
myndlist
Þetta eru nemendur 3. bekkjar i Leiklistarskóla tslands, sem flytja
Ijóð Halldórs Laxness I Norræna liúsinu. Ljósm. gel —
Endurtekið vegna mikillar aðsóknar:
Ó, hve létt er þitt skóhljóð
Vegna mikillar aðsóknar
verður dagskráin úr ljóðum
Halldórs Laxness, ,,Ó, hve létt
er þitt skóhljóð”, sem nem-
endur3. bekkjar Leiklistarskóla
íslands trumfluttu sl. sunnudag,
endurtekin í þriðja sinn á
morgun, föstudag 23. april, kl.
20.30 f Norræna húsinu.
Fyrirhuguð er fjórða sýning i
Norræna húsinu laugardaginn 1.
mai kl. 17.00.
Aðgöngumiðar á dagskrána
eru seldir i Norræna húsinu og
kosta kr. 50.
Don
Kíkóti
Don Kikóti hefur undanfarið
verið sýndur i Alþýðuleikhúsinu
við mjög góðar undirtektir
áhorfenda, svo og einróma lof
gagnrýnenda. En nú fækkar
sýningum og eru aðeins ráð-
gerðar tvær sýningarhelgar i
viðbót sökum leikferðar
Alþýðuleikhússins með sýning-
una „Elskaðu mig”, en sama
fólk vinnur að miklu leyti við
báðar þessar sýningar.
Næstu sýningar á Don Kikóta
verða i dag, sumardaginn
fyrsta, og n.k. laugardag, 24.
april. Báðar sýningarnar
hefjast klukkan hálf niu.
Arnar Jónsson leikur Uon
Kikóta — snilldarlega segja
allir gagnrýnendur. Hér er hann
i hlutverki sinu ásamt Sif Ragn-
hildardóttur.
Súrmjólk með sultu í dag
Alþýðuleikhúsið sýnir barnaleikritið „Súrmjólk með sultu” i
Hafnarbiói i dag, sumardaginn fyrsta 1982. Sýningin hefst kl. fimm
siðdegis.
Aukasýning á Elskaðu mig
Alþýðuleikhúsið sýnir „Elskaðu mig” eftir dönsku skáldkonuna
Vitu Andersen á morgun föstudag kl. 20.30 vegna fjölda áskorana.
Annars er leikhúsfólkið að fara i ferðalag um landið með þá
sýningu.
Arnaldur Björnsson stofnar verkalýðsfélag á Óseyri við Axarfjörð.
(Ljósm. Jóhann Sigurösson).
SALKA VALKA í Iðnó
1 kvöld er SALKA VALKA —
leikgerð Stefáns Baldurssonar
og Þorsteins Gunnarssonar á
samnefndri sögu Halldórs
Kiljan Laxness — á fjölunum i
Iðnó. Segja má, að þetta sé
afmælissýning, þvi með svið-
setningu þessa verks vilf Leik-
félag Reykjavikur heiðra
höfundinn á áttræðisafmælinu.
bað skal tekið fram, að upp-
selt er á sýninguna i kvöld.
Næsta sýning verður á sunnu-
dagskvöldið.
Fjölskyldu-
sýning á
Sígauna-
baróninum
Sérstök fjölskyldusýning
verður á „Sigaunabaróninum”
eftir Jóhann Strauss i dag,
sumardaginn fyrsta. Hefst
sýningin klukkan fimm, en hún
er til komin vegna mikillar
eftirspurnar um eftirmiðdags-
sýningu.
„Sigaunabaróninn” hefur nú
verið sýndur 40 sinnum og nær
alltaf fyrir fullu húsi. Með
helstu hlutverk i sýningunni
fara Ólöf Kolbrún Harðardóttir,
Garðar Cortes, Anna Júliana
Sveinsdóttir og Halldór Vil-
helmsson. Hljómsveitarstjóri
er Páll P. Pálsson og Kór
islensku óperunnar gegnir
miklu hlutverki. Þórhildur
Þorleifsdóttir leikstýrði verk-
inu.
hljómlist
Anna Guðný og
Freyr í Norræna
I kvöld (22. april) halda Freyr
Sigurjónsson og Anna Guðný
Guðmundsdóttir, tónleika i
Norræna húsinu kl. 20.30.
Anna Guðný og Freyr luku
prófi frá Tónlistarskólanum i
Reykjavik og héldu að þvi loknu
bæði til frekara náms i Bret-
landi. Anna Guðný nam pianó-
leik við Guildhall School of-
Music and Drama i London og
Freyr nam flautuleik við Royal
Northern College of Music i
Manchester.
A efnisskránni eru verk eftir
tónskáldin Couperin, Pixis,
Widor, Martinu og Jolivet.
myndlist
Listamaðurinn viö verk sitt: „Timinn er eins og vatnið”, en
þaö er málaö viö stef úr „Timanum og vatninu” eftir Stein
Steinarr.
Gísli Sigurðsson á Kjarvalsstöðum:
„Myndir úr ljóðheimi”
Svo heitir sýning sem Gisli
Sigurðsson opnar i dag, sumar-
daginn fyrsta, að Kjarvals-
stöðum i Reykjavik. bar sækir
Gisli fanga i 60 ljóð og málar
þær stemmningar, sem honum
virðist búa i ljóðunum.
Gisli segir svo i sýningarskrá:
„Yfirbragð sýningar af þessu
tagi fer að nokkru leyti eftir þvi,
hvar leitað er fanga. Þegar
grannt er skoðað verður að telja
að hér hafi öllu fremur verið
leitað fanga i þeim ljóðum, sem
gætu talist af rómantiskum toga
spunnin. Þóerviða farið út fyrir
þann ramma. En hvers eðlis,
sem sá kveðskapur er, og þau
föng, sem þar er að hafa, hef ég
reynt að túlka á frjálslegan hátt
innsta kjarnann eins og hann
kemur mér fyrir sjónir.”
Sýning Gisla Sigurðssonar
stendur yfir til 10. mai.
Tíbrá á Borginni
Hljómsveitin Tibrá frá Akra-
nesi bregður sér i bæinn á
sumardaginn fyrstá og heldur
tónleika á Hótel Borg þá um
kvöldið.
I tilleggi frá hljómsveitar-
meðlimum kemur fram, að
hljómsveitin muni bera á borö
fyrir áheyrendur tónlist sem er
á margan hátt rokkuð en samt
sem áður blönduð nýrri
tónlistarstefnum.
Hljómsveitina Tibrá skipa
þeir Finnur Jóhannsson,
Eðvarð Lárusson, Flosi Einars-
son, Valgerir Skagfjörð^ Jakob
Garðarsson og Eirikur
Guðmundsson.
Auk þeirra mun Hjörtur
Geirsson leika á gitar og syngja.
Tónleikarnir standa til kl. 00.01.
Árnesingakórinn
Árnesingakórinn i Reykjavik
verður i söngferðalagi þessa
helgi og þá næstu, en hann hefur
starfað af krafti i vetur undir
stjórn Guömundar Ömars
Öskarssonar.
Fyrri tónleikarnir verða i
félagsheimilinu Logalandi i
Borgarfirði föstudagskvöld kl.
21. Hinir siðari veröa laugar-
daginn 24. april kl. 21 i Dalabúð i
Búðardal. Efnisskrá er fjöl-
breytt og má nefna þjóölög frá
ýmsum löndum og lög eftir Ar-
nesinga, m.a. nýlegt verk eftir
Sigurö Agústsson, Jörfagleði,
við ljóö Daviðs Stefánssonar.
Þykir kórnum vel við hæfi að
flytja það Dalamönnum, sem
einir landsmanna halda þeirri
gleði til haga.
Eftir tónieikana i Dalabúð
mun kórinn standa fyrir dans-
leik. Þar leikur fyrir dansi trió
Hreiðars Guðjónssonar
blandaða dansmúsik.
ýrr.islegt
Kaffiveitingar og
Hlégarðsför Fáks
Ýmislcgt er framundan hjá
Hestamannafélaginu Fáki. En
þaö, sem allra næst er á dag-
skrá eru kaffiveitingar i Fáks-
heimilinu i dag, (sumardaginn
fyrsta), fyrir þaö fólk, sem
gegnt hefur stjórnarstörfum i
félaginu á 60 ára ferli þess og
enn er hérna megin landamær-
anna. Og þó aö ýmsir hinna
eldri forvigismanna félagsins
séu nú fallnir frá ásamt
gæöingum sinum, mun þaö þó
trúlega veröa álitlegur hópur,
sem mætir i Fáksheimilinu I
dag.
Næstkomandi laugardag
munu svo Fáksmenn fjölmenna
upp i Hlégarð og auðvitað á
hestum. Þar verða flutt
skemmtiatriði ýmiss konar en
síðan riöið til borgarinnar aftur.
Um kvöldið heldur svo Fákur
dansleik i Hlégarði og verða
bflar til reiðu að flytja Fáks-
félaga og gesti þeirra að heiman
og heim.
— mhg