Þjóðviljinn - 22.05.1982, Qupperneq 17
Helgin 22.-23. maí 1982’ ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17
„Þaö er svo erfitt að vera alþýð-
leg”. Sigrún Björnsdóttir sem
fulltrúi A listans. Með henni er
Þórunn Sigurðardóttir i hlutverki
spyrils og á milli þeirra er Alli,
fulltrúi G listans i leikþættinum
„Flokkaleikskólinn” sem Þór-
hallur Sigurðsson leikstýrði.
„Ég vil bara vera með stelpum.”
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir sem
fulltrúi V listans.
„Ég verð llka maddama þegar ég
er orðin stór”. Asa Hagnars-
dóttir, fulltrúi B-lista.
„Ég ætla að verða ofsalega fynd-
inn og líka góður viö aumingja,
eins og Albert”. Karl Agúst Glfs-
son sem fulltrúi D iistans.
Elísabet Þorgeirsdóttir:
Borgin sem við
megum ekki missa
Það var komin sól
og við áttum borgina,
úrvinda, hissa og glöð
alltieinu höfðum við
losnað undan járnbentum greipum auðvaldsins
lagt að velli höfuðvigi einkaframtaksins.
Það er enn sól
en nú syrtir i lofti
dökkir skýjabólstrar hrannast upp
færast óðfluga nær
geta dregið fyrir sólina
svo dimmviðri taki við af vorinu
vorinu sem við skópum sjálf
og vildum gera að sumri.
Eigum við að beygja okkur aftur
undir ofurvald auðhyggjunnar
og frelsisins að niðast á öðrum
sé f jármagnið til fulltingis?
Eigum við að láta heildsalatöskuna
taka við af sókn okkar til samhjálpar
sundrast aftur, sitt i hverju horni,
bera hönd fyrir höfuð okkar,
hvert i sinu lagi
gegn hnefa hins fr jálsa framtaks?
Eða eigum við að takast i hendur
þéttingsfast
þú i mina og ég i þina
eigum við að láta hendur okkar
ungar og gamlar
sterkar, vinnusamar og veikburða
sameinast
svo svört skýin hverfi á braut
og nýkviknuð frelsissól okkar
styrkist
og nái áfram
að lýsa upp framtið okkar,
framtið mina og þina
og framtið barnanna
barnanna sem þurfa jafnrétti og samhjálp
ekki strið hinnar fr jálsu samkeppni
barnanna sem nærast á sól, ekki svartnætti.
Látum hendur okkar sameinast
og hlúum siðan enn meir
að fræjunum sem lif vort byggist á
fræjunum sem b jartsýn uxu upp
vorið sem sólin skein á borgina.
Borgina sem hendur okkar byggðu
hendur okkar ræsta
hendur okkar likna og hjörtu okkar gleðjast.
Borgin sem lifnar i sól
en gránariskugga.
Borgin sem við megum ekki missa.
Anna Júliana Sveinsdóttir söng nokkur lög við undirleik Láru
Rafnsdóttur. Kynnirinn Kristin ólafsdóttir hvilir lúin bein.
Sönghópur undir stjórn Sigursveins Magnússonar syngur nokkra
verkalýðssöngva.
„Grýlurnar” taka lagiö
Gestir á Baráttugieði nni I Laugardalshöll voru á ýmsum aldri.