Þjóðviljinn - 22.05.1982, Blaðsíða 30

Þjóðviljinn - 22.05.1982, Blaðsíða 30
30 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN' Helgin 22.-23. mai 1982 Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins: Ávarp á kj ördegi Greinilegt er af undirtektum siðustu sólarhringa að Alþýðu- bandalagiö er að sækja á. Þrátt fyrir sterka stöðu ihaldsins bendir margt til þess aö Alþýðubandalagið geti stöðvað leiftursóknina i þessum kosningum eins og stundum áður. Úrslitin i dag velta á þinu starfi. Liösmenn G-listans hafa starfað vel hvarvetna. I höfuðborg- inni hafa hundruð manna undirbúið kjördaginn undanfarna sólar- hringa. Þetta fólk gerir sér ljóst aö kosningarnar eru alvarleg átök þar sem tekist er á um öll grundvallaratriði þjóðfélagsins — herinn, erlenda stóriöju, verkalýðshreyfinguna og sögu hennar. En hver minúta dagsins I dag, laugardagsins 22. mal, ákveöur úr- slitin. Starf allra er jafnmikilvægt. Alþýðubandalagið skorar á alla liðsmenn sina að starfa vel I dag. Minnt skal á að kosningar eru kostnaðarsamar og á þvl sviði — eins og öðrum — verður Alþýðu- bandalagið eingöngu að treysta á liðsmenn slna. Félagar! Nýtum tímann vel allttil þess að kjörstöð- unum er lokað. Vanræksla í dag getur komið niður á okkur — og börnunum okkar á morgun. Gerum börn- unum okkar þann greiða að verja Reykjavík árásum afturhaldsins. I síðasta Morgunblaði fyrir kjördag • • Orvœntingarfullar aðferðir íhaldsins „Alvarlegar rangfœrslur”, segir Ragnar Árnason um „frétt” Morgunblaðsins Einkarekstur heilsugæslustöðva yki aðhald að opinberum stöðvum - er samdóma álit nefndar Svavars Gestssonar um heilsugæslustöðvar ÁLITI ncfndar um heilsugædukerfl i ítejkjivík, aem skilaði áliti fjrr á >essu árí, kemnr meðal annara fram, að allir nefndarmenn eni aammála um komið verði á einkarekstri beilao- giesluatöðva. Athjgli vckur, að for- naður nefndarinnar er fulltrúi At- >jðubandalagsins, Ragnar Árnason ugfræðingur, skipaður af Svavari Gestasjni heilbriflðiaráðhcrra^ogjdj^^ lagsins. Um þetta segir m.a. svo I kafla ber jfirskriftina „Einkarekstur „Það skipulag, sem nefndinni líst best á í þessu efni, er, að hópur heilsugæslufólks taki sig saman um að reka heilsugæslustóð. Þessi hóp- ur og annaö heilsugæslustarfslið hið opinbera einungis fasta fjárhæð til almenns rekstrarkostnaðar þess- arar heilsugæslústððvar, td. sömu fjárhæð og það myndi leggja til sambærilegrar heilsugæslustöðvar í opinberum rekstri.- Nefndin telur að einkarekstrar- skipulag, eftir ofangreindum línum, geti orðið til þess að auka rekstrar- — Þar sem hér er um að ræða alvarlegar rangfærslur á efni I ó- útgefinni skýrslu opinberrar nefndar hef ég sem formaður samninganefndar heilsugæslu- kerfis i Reykjavik krafist leið- réttingar f Morgunblaðinu, sagði Ragnar Arnason vegna. „fréttar” Morgunblaðsins á baksiðu i fyrradag. Fátt sýnir betur en þetta barnalega skrök Morgun- blaðsins um óbirta skýrslu hversu átakanleg málefnafátækt Sjálf- stæðisflokksins er, sagði Ragnar enn fremur. — Þetta gerist I slöasta blaði fyrir kjördag og mér þykja þetta sannast sagna örvæntingarfullar aðferðir. Morgunblaöiö byggir þessa „frétt” sina á frumdrögum sem einn nefndarmanna lagði fram, en alls ekki á skýrslu nefndarinnar. — Þetta er enn undarlegra þar- sem efsti maður á framboðslista Sjálfstæðisflokksins I Reykjavlk á sæti I þessari nefnd. Hann minnt- ist aldrei aukateknu orði á hina nýju stefnu flokksins um einka- rekstur á heilsugæslustöðvum. Þvi slður lagði hann fram tillögur um þau efni. — Fullyrðingar Morgunblaðs- ins I „fréttinni” eru þar eftir al- rangar I öllum aðalatriöum. Það er meö öllu tilhæfulaust að fram komi I nefndaráliti aö nefndar- Ragnar Arnason: Með öliu til- hæfuiaust að nokkur kafli i skýrslunni beri yfirskriftina „einkarekstur heilsugæslu- stöðva”. menn séu sammála um aö komiö veröi á einkarekstri heilsugæslu- stöðva. Það er lika rangt að nokk- ur kafli I skýrslu nefndarinnar beri yfirskriftina: „einkarekstur heilsugæslustöðva” einsog Morg- unblaðið leyfir sér aö fullyröa. Það er einnig ósatt einsog Morg- unblaöiö fullyrðir I fyrirsögn þessarar „fréttar”, að það sé samdóma álit nefndarinnar aö, einkarekstur heilsugæslustöðva myndi auka aðhald að opinberum stöövum. — Heilsugæslukerfið er auðvit- aö félagslegur þáttur I samneyslu okkar og frá þeirri braut hefur ekki verið hvikað, hvorki I þessari nefnd né annars staöar, svo ég viti til. —óg Sögðu upp áskrift Þjóðviljanum bárust i gær simleiðis a.m.k. 15 uppsagnir á blaðinu frá helstu aðstandendum j Starfsfólk í veitingahúsum \Samkomu\ '■lagnáðist \ Félag starfsfólks i veitingahúsum hefur frestað boðuðu verk- falli en heildar- samningar hafa enn ekki tekist. Beðið er heildarsamninga ASl og Vinnuveit- endasambandsins. Félag starfsfólks I veit- ingahúsum mun hafa náð samkomulagi við gistihúsa- eigendur um nokkur sér- kjaramál, td. um hærra vaktaálag, vetrarfrl og nám- skeiðahald fyrir starfsfólk sem fengi þá tilsvarandi kauphækkun. En þar sem 'ekki náðist samkomulag milli félags framreiöslu- manna og veitingahúsaeig- enda verða veitingastaðir al- mennt ekki opnaðir i dag. —óg kvennaframboðs i Reykjavik. Eins og venja er til var innt eftir ástæðum uppsagnanna. Svörin voru mjög á einn veg og var því borið viö að ástæöan væru skrif Þjóðviljans um kvenna- framboðið. „Vegna rætinna skrifaf Þjóðviljanum um kvenna- framboðið”, „krossaprófið sem fór alveg með það”, „vegna of- boðslegrar skltafréttamennsku um kvennaframboðið”, „vegna rógsherferðar um kvennafram- boð — vil ekki sjá þennan snepil heima hjá mér”... Þetta voru nokkur sýnishorn af svörunum. Meðal þess efnis sem kvenna- frambjóðendur kunnu ekki við var viðtal við Þröst Ásmundsson starfsmann SINE oggreinar eftir Guðrúnu Helgadóttur og Árna Bergmann, þar sem þeim stað- hæfingum kvennaframbjóðenda var andmælt, aö átök um vinstri og hægri nú til dags væru karla- karp um keisarans skegg og skiptu næsta litlu máli. Svavar Geir Alþýðubandalagið, Kópavogi Kosninga- skrifstofa Þinghól, Hamraborg 11 Kosningaskrifstofan er opin allan dag- inn, simi 41746. A kjördag veröa kaffi- veitingar allan daginn, beint sjónvarp frá Wembley og dagskrá fyrir börnin. Svavar Gestsson formaður Alþýöu- bandalagsins og Geir Gunnarsson al- þingismaður koma I heimsókn. Bfia- simi er 41746. Stuðningsfólk — Herðum sóknina fyrir öflugu Alþýðubandalagi. Alþýðubandalagið i Kópa- vogi fylgist ekki með þvi hverjir kjósa á kjör- dag. Þjónaverkfall í dag „Það er ótrúlegt að árið 1982 skuium við þurfa að fara út I að- gerðir til þess að fá greiddan vinnutima fram yfir 40 stundir”, sagði Ólafur Sveinsson formaður samninganefndar þjóna við veit- ingahúsaeigendur f viðtali viö Þjv. í gær. Samkomulag hefur ekki tekist i þjónadeilunni þannig að boðað verkfall frá þvi klukkan átta I morgun til klukkan átta i fyrramáliö kemur til fram- kvæmda. En engu að siður náðist samkomulag á milli Félags starfsfólks i veitingahúsum. — Þaö er allt I strandi ennþá hjá okkur, sagði ólafur enn fremur. Veitingahúsaeigendur hafa hundsað kröfur okkar og eru jafnvel ekki til viðræðu um sjálf- sögð atriöi. Höfuökröfur okkar eru aukagreiðslur fyrir vinnu á fridögum þegar unnið er fram yfir 40 stundir. Aö veitingahúsa- eigendur taki þátt I launakostnaöi hjá aðstoðarfólki þjóna, sem þeir ráða nú upp á sinn reikning. 1 þessu sambandi vil ég geta þess, að veitingahúsaeigendur sömdu I gær við starfsfólk I veitinga- húsum og það er einmitt félagið sem aöstoðarfólk þjóna er I. Samt vilja þeir ekki taka þátt I neinum kostnaði vegna þeirra. Þá förum við fram á hærri kauptryggingu en viö erum nú meö 6270 krónur I lágmarkslaun, Bj ar ni Þórðar- son er látinn Bjarni Þórðarson ritstjóri Austurlands, málgagns Alþýðu- bandalagsins á Austurlandi, áður bæjarstjóri i Neskaupsstað, lést I gær 21. mai á Borgarspitalanum I Reykjavik. Bjarni fæddist 24. ! april 1914 að Kálfafelli I Suður- sveit og var þvi 68 ára að aldri er hann lést. Hann var löngu lands- kunnur fyrir störf sin að sveitar- stjórnarmálum og i fremstu for- ystusveit sóslalista á Austurlandi um áratugi. Fyrri kona Bjarna var Anna Eiríksdóttir sem lést 1975. Seinni kona hans Hlif Bjarnadóttir lifir mann sinn. I Bjarna Þórðarsonar verður 'minnst hér i blaðinu siðar. Hvíta stríðið Sýning í Lista- safni Alþýðu 1 dag veröur opnuð I Listasafni Alþýðu, sýning á vegum Sögu- safns Verkalýðshreyfingarinnar. Nefnist hún „Hvita strlðið — at- burðirnir I Reykjavík, nóvember 21”. En nú nýlega hefur Pétur Pétursson verið með þætti 1 út- varpinu um mál þetta og hafa þeir vakið mikla athygli. Hefur Pétur viðað aö sér miklu efni um þessa atburði og er sýningin byggð á þeim gögnum. Hvlta striðið kallast atburðir þeir, er áttu sér stað I Reykjavlk I nóvembermánuði 1921, þegar visa átti úr landi rússneskum dreng vegna augnsjúkdóms. En Ólafur Friðriksson, helsti for- ystumaður reykviskrar alþýðu á þessum árum, hafði komið með drenginn frá Rússlandi. Neitaði Ólafur að verða við kröfum yfir- valda og urðu átök mikil milli stuðningsmanna Ólafs og lög- regluyfirvalda sem höfðu boðið út mikið lið sér til aðstoðar. Mikil eftirmál uröu af máli þessu, fangelsanir og málaferli. Sýningin sýnir I myndum og texta gang mála, aðdraganda þeirra og eftirmála. Sýningin verður opin alla daga frá 14—22 til og með 30. mal. sem margir verða að láta sér lynda. Viðsemjendur okkar hafa haft átta mánuði til að skoða kröf- urnar, en samt hefur ekkert gerst. Fundi hjá sáttasemjara lauk I nótt án árangurs og ekkert hefur veriö ákveðiö um næsta fund. Þess vegna kemur boðað verkfall okkar til framkvæmda I dag (laugardag) og stendur til sunnudagsmorguns. Einnig bendir allt til þess aö verkfallið hefjist fyrir alvöru 28. eða 29. þessa mánaöar. — óg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.