Þjóðviljinn - 10.06.1982, Page 10

Þjóðviljinn - 10.06.1982, Page 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 10. júni 1982 Fyrri hluti 15. formannafundur K.l. var haldinn í Nýja Hjúkr- unarskólanum og að Hall- veigarstöðum dagana 16. — 18. apríl sl. K.l. hefur þann hátt á, að halda Landsþing annað hvert ár, skipað fulltrúum hinna ýmsu héraðasambanda, mismörgum eftir félaga- tölu hvers sambands. Hitt árið er haldinn fundur með formönnum héraðasam- bandanna. Að þessu sinni sóttu fundinn formenn eða varaformenn allra sam- bandanna nema tveggja. Formaöur K.I. Maria Péturs- dóttir setti fundinn, bauð fulltrúa og gesti velkomna og minntist góðra samverustunda á siðasta ári á Laugarvatni, en þar var sið- asta landsþing haldiö, og á Hvanneyri i Norræna húsmæðra- orlofinu. Frá v.: Maria Pétursdóttir, form. K.I., Guðrún Lára Agústsdóttir, Mælifelii, Sigurhanna Gunnarsdóttir, Læk, Sigriður Hafstað, Tjörn, Sólveig Alda Pétursdóttir. Reykjavlk, Sigrún Sturludóttir, Reykjavik, Unnur Schram, Reykjavlk, (standandi) Sigurveig Sigurðardóttir, Selfossi, Magðalena Ingimundar- dóttir, Akranesi, Halla Aðalsteinsdóttir, Kolsholti, Ingibjörg Bergsveinsdóttir og Sigriður Kristjáns- dóttir. Og enn þinga þær Þórunn Eiríksdóttir á Kaðalstöðum segir frá 15. formannafundi Kvenfélaga- sambands Islands Frá v.: Arndis Þorbjarnardóttir, Sigrlður Thorlacius, Unnur Agústs- dóttir Schram, Maria Pétursdóttir Formaður minntist merkiskon- unnar Halldóru Bjarnadóttur, sem landskunn er fyrir forystu- störf og umsvif i kvenfélagsmál- um. Halldóra lést á sl. ári. Lauk hún máli sinu með þvi að vitna til orða, sem áður hafa verið viðhöfð um Halldóru: ,,Lif hennar og starf sanna, hversu miklu ein- stakir hæfileikar og vilji til góðra verka fá áorkað, bæði fyrir sam- tiö og framtið”. Þá óskaði hún for mannafundinum „vits, starfs- gleði og hófsemi i athöfnum”. Skýrsla stjórnar, starfslið o.fl. 1 skyrslu stjórnarinnar kom fram, að 11 stjórnarfundir hafa verið haldnir siöan Landsþing kom saman. Núverandi stjórn K.l. skipa Maria Pétursdóttir for- maður, Sigurveig Sigurðardóttir varaformaður og Sólveig Alda Pétursdóttir ritari. I varastjórn eru Helga Guðmundsdóttir, Sig- urhanna Gunnarsdóttir og Þór- unn Eiriksdóttir. Sigriður Kristj- ánsdóttir húsmæðrakennari er i hálfu starfi hjá K.I. fyrst og fremst við Leiðbeiningastöð hús- mæðra, og hefur ærið nóg að starfa þar. Soffia Káradóttir vinnur á skrifstofu K.l. tvo hálfa daga vikulega við bókhald og önnur skrifstofustörf. Ritstjórar Húsfreyjunnar eru Sigriður Thorlacius og Ingibjörg Bergsveinsdóttir. Gjaldkeri er Guðbjörg Petersen, og þær Ingi- björg og Guðbjörg annast af- greiðslu og innheimtu. Tímaritið Húsfreyjan hefur nú flutt I ný húsakynni i kjallara Hallveigar- staða. Endurbætur hafa verið gerðar á skrifstofu K.I., en þar haföi Húsfreyjan áöur bækistöðv- ar. Sagt var frá afgreiðslu tillagna, sem samþykktar voru á siðasta landsþingi, en „allar munum viö vera sammála um, að landsþing- ið á Laugarvatni hafi tekist með ágætum og gestrisni Sambands sunnlesnrka kvenna og samherja sambandsins orðið okkur ógieymanleg, og það þótt okkur hafi ekki tekist að smita svo frá okkur af baráttu- og frásagnar- gleði, að fjölmiðlar fáist til að endurspegla lifandi og góða mynd af starfi K.I.”. Ennfremur var sagt frá Sumarorlofi Norræna Húsmæðrasambandsins að Hvanneyri sl. sumar, en þar sem þvi hafa áður verið gerö skil I Þjóðviljanum, veröur ekki farið nánar út i þá sálma hér. Jafnréttismál Formaður K.l. á sæti i nefnd, sem félagsmálaráðherra skipaði snemma á sl. ári til að gera m.a. könnun á jafnréttismálum i fram- kvæmd. Nefndin á að miða starfs- svið sitt við hálfnaðan kvenna- áratug, þ.e. 1975 - 1985, og kanna hvort eitthvað, og þá hvað, hafi breyst á þeim tima, hvað hafi verið gert og hvað hamli jafn- rétti. Nefndin hefur haldiö 14 fundi og sent frá sér bréf með ýmsum spurningum um jafnrétt- ismál. s.s. hlutfall karla og kvenna í stjórnunarstöðum, áhrif jafnréttislaganna, hlutverk jafn- réttisráðs o.fl. Bréfin voru send 27 jafnréttisnefndum um land allt, stéttarsamböndum, vinnuveit- enda- og verkalýössamböndum, stjórnmálaflokkum og kvenna- samtökum. Hafa allmörg svar- bréf borist, en eftir er að vinna úr upplýsingum, sem þau hafa að geyma. Norræna jafnréttisnefndin efnir árlega til fundar með fulltrúum frá kvennasamtökum, aðilum vinnumarkaðarins og þeim aðil- um öðrum, er starfa að jafnréttis- málum. Var óskað eftir tillögum og ábendingum frá K.I. um fund- arefni 1982. Lagði K.l. til, að fjall- að yrði um heimilisstörf og gerði nánari grein fyrir þeirri tillögu. Það varð þó úr, að fundurinn tók til meðferðar efnin: Fjölmiðlar og jafnrétti, og kynskipta vinnu- markaðinn. K.I. tilnefnir fuiltrúa i ráögjafanefnd Jafnréttisráös. Þar á sæti Margrét Einarsdóttir. Hlutverk nefndarinnar er að vinna að þeim málum sem Jafn- réttisráð felur henni hverju sinni, svo og að gera tillögur til ráðsins að nýjum verkefnum og fram- kvæmd þeirra. / Ar aldraðra — Öldrunarráð 1 okt. sl. barst K.l. bréf þar sem tilkynnt var, aö heilbrigðisráð- herra heföi skipað nefnd um mál- efni aldraðra. Nefndin fékk tvi- þætt hlutverk, annars vegar að undirbúa löggjöf um málefni aldraðra og hins vegar að annast skipulag „Ars aldraðra”. Var K.l. boðið til samvinnu um þetta málefni og var það auðsótt mál. I svarbréfi til nefndarinnar var vakin athygii á ályktun frá síð- asta landsþingi K.I. þar sem bent var á, að bygging þjónustuhúsa fyrir aldraða, þar sem fólk getur eignast eða leigt ibúðir og notið þjónustu eftir þörfum sinum, séu mikilvægur þáttur I að búa öldr- uöum borgurum sem best skil- yrði. Hvatti landsþingið bæjar- og sveitarfélög til að koma sem fyrst upp slikum húsakynnum og hjúkrunar- og þjónustudeildum fyrir aldraöa. Ennfremur hvatti iandsþingið til að aukin yrði heimahjúkrun og heimilishjálp, svo að fólki gefist kostur á að dveljast i heimahúsum meðan mögulegt er. K.l. gerðist aðili að Oldrunarráði Islands á stofnfundi ráðsins 21. okt. sl. Markmið Oldr- unarráðs er að bæta lifsaöstöðu aldraðra. / Islenskir búningar K.l. er aðili að Samstarfsnefnd um islenska þjóöbúninga, sem starfað hefur frá árinu 1970. Á vegum nefndarinnar er tekin til starfa Leiðbeiningastöð um gerð islenskra þjóöbúninga. Er hún til húsa á Laufásvegi 2, Reykjavik, i húsakynnum Heimilisiðnaðar- skólans á annarri hæð. Friður ólafsdóttir fatahönnuður er starfsmaður leiðbeiningastöðvar- innar. Hún veitir leiðsögn um eldri og yngri geröir þjóðbúninga, æskilegt efnisvai, snið og mynst- ur og safnar og skrásetur heim- ildir um Islenska þjóðbúninga. Þjóðhátiðarsjóður veitti styrk til að hefja starfsemi leiðbeininga- stöövarinnar, en þvi miður berst þessi starfsemi i bökkum fjár- hagslega. K.I. styrkir hana á þessu ári með kr. 10.000.-. U tgáf ustarf semi A sl. ári gaf K.I.út 50 ára afmæl- isrit sitt, bókina „Margar hlýjar hendur” eftir Sigriöi Thorlacius. Þetta er saga K.I., aðildarfélag- anna og héraðasambandanna, bók sem geymir mikinn fróöleik um hið liöna og samtið okkar. Bókin er ómetanlegt uppsláttar- rit, og hefur Sigriður Thorlacius unnið mikið afrek með þvi að safna saman öllum þessum heim- ildum og vinna úr þeim. „Margar hlýjar hendur” er eiguleg bók, myndskreyttog vel úr garði gerð. Hún fæst enn á skrifstofu K.l. og viðar. Þá er að nefna bæklinginn „Jólakveðjur”, sem K.I. gaf út fyrir siðustu jól. Forsaga þess máls er sú, að félagsmálaráð- herra fól formanni K.I. að hafa forgöngu um að afla tekna i sjóð til styrktar konum i þróunarlönd- um, en þennan sjóð stofnaði Helvi SipilS'á frá Finnlandi, fyrrum að- stoðarframkvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna. Kom hún hingað til lands sl. sumar m.a. til þess að leita eftir stuðningi við sjóðinn. Allur ágóðinn af sölu „Jóla- kveðja” rennur til þessa málefn- is. Þar sem bæklingurinn varð nokkuð siðbúinn, tókst ekki að selja hann allan , en áfram verður haldið með söluna fyrir næstu jól. Fleiri fjáröflunarleiðir fyrir sjóðinn eru i athugun og allar ábendingar þar að lútandi vel þegnar. Endurprentaöir voru fræðslubæklingar K.I. „Félags- mál og fundarstjórn” og „Nútima mataræði”. Endurprentun á bæk- lingnum „Glóðarsteiking” er fyrirhuguð, með viðbót frá höf- undi. Sitt af hverju A sl. ári gerðist K.l. aðili að Landvernd, landgræðslu- og nátt- úruverndarsamtökum Islands. K.I. fékk ýmis lagafrumvörp til umsagnar, s.s. um reykingavarn- ir, um fjármál hjóna, um breyt- ingu á lögum um Framleiðsluráð landbúnaðarins, verðskráningu, verðmiðun og sölu á landbúnað- arafurðum o.fl. Stjórn K.I. fjall- aði um þessi frumvörp, gaf um- sagnir um þau og gerði athuga- semdir, þar sem talin var þörf á. K.I. er aöili að Alþjóðasambandi húsmæöra (ACWW) og Hús- mæðrasambandi Norðurlanda (NHF) og sendir fulltrúa á fundi þessara samtaka eftir þvi sem fjarlægðir og þröngur fjárhagur leyfa. Sigurveig Sigurðardóttir er fulltrúi K.l. i skólanefnd Skál- holtsskóla. K.l. er aðili að Bréfa- skólanum, og er Marig Péturs- dóttir fulltrúi sambandsins i skólastjórn þess skóla. Hefur þess verið farið á leit við menntamála- ráðherra, aö hann hlutist til um aö sett verði löggjöf um Bréfa- skólann, þannig að tryggja megi tilveru hans og stöðu. A sl. ári kom út nýtt kynningar- rit um námsefni Bréfaskólans, námsfyrirkomulag, námsmat o.fl. Fyrir tilstilli K.I. voru gefin út ný verkefni, annars vegar um bókmenntir og listir, og hins veg- ar um manneldismál. Sigriður Thorlacius leiðbeindi á félags- málanámskeiðum hjá alimörgum kvenfélögum sl. vetur og flutti er- indi á vegum K.I. hjá nokkrum kvennasamtökum. Formaður K.l. og aðrar stjórnarkonur sækja aðalfundi héraðasambandanna eftir þvi sem tök eru á. / ' Ursagnir úr KI Þau tiðindi gerðust á sl. ári að tvö af aðildarfélögum K.I., Hjúkrunarfélag íslands og Styrktarfélag lamaðra og fatl- aðra, sögðu sig úr Bandalagi kvenna i Reykjavik og þar með úr K.I. Þykja þeim, sem eftir sitja, þessar úrsagnir koma úr óvænt- ustu og ómaklegustu átt, þar sem kvenfélögin i landinu hafa frá upphafi beint kröftum sinum og fjármunum að þvi að styrkja heil- brigðisþjónustuna og bæta starfs- aðstöðu heilbrigðisstéttanna á margvislegan hátt. Kvenfélögin hafa lagt stærri skerf af mörkum til þessara mála en svo, að það verði nokkurn tima i tölum talið. „Það er áreiðanlegt, að við eig- um margt ólært um fréttamiðlun, þvi það er næsta ótrúlegt, hvað mætir manni iöulega mikil fá- fræði um störf kvennasamtaka, og veldur það oft sinnuleysi um stuðning við góðan málstað, eins og glöggt sést á afstöðu þeirra tveggja félaga, er á sl. ári sögöu sig úr Bandalagi kvenna i Reykjavik.En það er enginn leikur að ná eyrum þeirra heidur. — Nú hafa borist á skrifstofu K.l. 105 svarbréf við bréfi okkar frá april 1981, þar sem óskað var eftir upp- lýsingum um, hvaö félögin hafi lagt af mörkum til heilbrigðis- þjónustunnar, s.s. meö tækja- kaupum, fjárstuöningi til bygg- ingaframkvæmda o.fl. o.fl. Þessi tvö fyrrnefndu félög heföu mátt minnast þessa og átt að vera áfram styrkir liðsmenn”.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.