Þjóðviljinn - 10.06.1982, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 10.06.1982, Qupperneq 15
|53?| Hringið í síma 81333 kl. 9-5 alla y N virka daga, eða skrifið Þjóðvíljanum Sýndarmennska íhaldsins Lóðarumsækjandi hringdi Þeir voru ótrúlega margir sem kusu ihaldið vegna alls rembingsins hjá þvi um að fjölga lóðum til úthlutunar. En hvað er svo fyrsta verk þessa lika þokka meirihluta? Akveöa að fækka lóðum, 120 lóöum i Sogamýrinni, til að þóknast fá- mennum hópi andlóðamanna. Engin lóð er boðin i staðinn. Það var lika eftir þessum amlóðum að „falla frá hugmyndum um ibúðabyggð i Laugardal”. Þetta voru nefnilega hugmyndir, sem aldrei hafa verið samþykktar af einum eða neinum. Með öðrum orðun\ það er verið að falla formlega frá hugmyndum sem aldrei hafa fengið formlega meðferð hvað þá heldur sam- þykkt af borgarstjórn. Hvað á þessi sýndarmennska hjá ihald- inu að þýða? Máske eigum við von á þvi að ihaldið i borgar- stjórn samþykki að falla frá hugmyndum um valddreifingu og atvinnulýðræði i borginni? Sammála um skærulokanir Bindindismaöur hringdi Það var aldeilis ágæt hug- mynd sem fram kom frá Har- aldi Birni á lesendasiðunni á þriðjudaginn um skærulokanir hjá rikinu. Þetta gæti vel orðið liöur i baráttunni gegn áfengis- bölinu. En vel þyrfti að gæta þess að enginn hefði spurnir af lokunum rikisins fyrirfram. Ég hvet alla til að ihuga þetta úr- ræði vel. En það þarf auðvitað fleira að koma til hjálpar. Hj&' Fo&ZTjtón Ofuur-u»p*r) 'L)aCp! '?> 81 ía^ ve^a v/AÞPifik <23 liSL Þessi ágæta myndasaga er eftir Bjarka K. Pétursson níu ára gamlan Seltirning sem á heima á Skerjabraut9. Vilja ekki f leiri rreyna fyrir sér? Kattahom Kettir þurfa mjólk, segja sumir. Þetta er rangt. Þótt mörgum kött- um þyki mjólkin góð þarfnast þeir hennar ekki í fæðunni. AAargir full- orðnir kettir verða veikir af mjólk. AAjólk kemur ekki í stað vatns. Barnahornið Lausn á eldspýtnaþraut sem birtist í blaðinu í fyrradag Fimmtudagur 10. júni 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 Nýtt fólk með morgunorð • Útvarp kl. 8.10 i dag flytur Guðrún Brodda- dóttir morgunoröin i útvarp- inu. i þessum mánuði hefur nýtt fólk tekið við þessum þætti og verður Guðrún með morgunorðin á fimmtudögum i sumar. Annars er skiptingin þannig: Mánudagar: Erlendur Jó- hannsson bóndi að Hamars- heiði i Gnúpverjahreppi, þriðjudagar: Sólveig Anna Bóasdóttir, guðfræðinemi i Reykjavik, miðvikudagar: Guðmundur Ingi Leifsson skólastjóri á Hofsósi, fimmtu- dagar: Guðrún Broddadóttir, hjúkrunarfræðingur, Borgar- nesi, föstudagar: Gunnar As- geirsson, stórkaupmaður, Reykjavik, laugardagar: sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, Þykkvabæ. j|W%. Útvarp kl. 14.00 Hljóð úr horni Guðrún Þ. Stephensen er leik- stjóri i kvöld Þórhallur Sigurðsson er einn aðalleikenda i Þurrkasumri. Tyrkneskt leiknt Þurrkasumar • Útvarp kl. 20.30 i kvöld kl. 20.20 verður flutt leikritið „Þurrkasumar” eftir Necati Cumali i þýðingu Jó- hönnu Jóhannsdóttur. Arnljót Eggen bjó til flutnings i út- varp. Leikstjóri er Guðrún Þ. Stephenscn, og með stærstu hlutvcrkin fara Siguröur Karlsson, Þórhaliur Sigurðs- son og Anna Kristin Arn- grimsdóttir. Siguröur Rúnar Jónsson annast hljóöfæraleik. Leikritið er 90 minútur i flutn- ingi. Tæknimenn: Georg Magnússon og Þórir Stein- grimsson. Leikurinn gerist i tyrknesku sveitaþorpi á hásléttu Ana- toliu, en þar er oft vatnsskort- ur. Þeir sem hafa nóg vatn ráða öllu, velmegun þeirra er meiri en annarra. Vatnsupp- spretta finnst á landi tveggja bræðra.og eftir venju eiga all- ir þorpsbúar rétt á að nota hana. Eidri bróðirinn er nisk- ur og harðlyndur og neitar öðrum um vatnið. Það veldur miklum deilum. Og ekki bætir úr skák að hann kemur nið- ingslega fram við bróður sinn. Þetta er fyrsta tyrkneska leikritið sem flutt er i útvarp- inu. llijóð úr horni heitir þáttur- inn sem nú er i umsjá Hjalta Jóns Sveinssonar. lljalti verður með þáttinn annan hvern fimmtudag á móti Stef- áni Jökuissyni. Við ætlum að hafa eitthvert samstarf sagði Hjalti Jón þegar við slóum á þráðinn til hans til að forvitnast um þennan þátt. „Þátturinn er á vegum dagskrárdeildar og verður aðallega tileinkaður sumrinu, og tómstundum fólks að sumarlagi. Ég mun ræða um ferðamennsku almennt og veita ýmsar gagnlegar upp- lýsingar þar að lútandi”. 1 þættinum i dag verður Hjalti Sigurður Rúnar Jónsson, Diddi fiðla. sér um hijóðfæra- leikinn i kvöid. Hjalti Jón Sveinsson sér um vikulegan sumarþátt á móti Stefáni Jökulssyni. með kynningu á náttúruvernd og mun tala við fulltrúa náttúruverndarsamtaka. Þá verður leikin tónlist I þætt- inum að eigin geðþótta, sagði Hjalti Jón Sveinsson Anna Kristin Arngrimsdóttir leikur i einnig i Þurrkasumri sem er fyrsta tyrkneska ieik- ritið scm útvarpið flytur.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.