Þjóðviljinn - 10.06.1982, Page 16

Þjóðviljinn - 10.06.1982, Page 16
DIODVIUINN Fimmtudagur 10. júni 1982 AbaUfani Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag tii föstudags. Utan þess tlma er hsgt að ná I biaöamenn og abra starfsmenn blabsins i þessum slmum: Ritstjórn 81382,81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aö ná 1 af greiðslu blabsins I slma 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blabamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 Flugóhappiö yfir fsafirði Ekki sprenging Fokker-vél Flugleiöa TF-FLM sem missti mótor yfir tsafiröi i marsmánuði er nú komin i gagniö aftur. Hefur fariö geypileg vinna i vélina og mur. láta nærri aö starfsmenn Fiugleiöa hafi eytt i hana 10 þúsund vinnustundum. Starfsmenn Rolls-Royce verk- smiöjanna sem komu hingað til lands eftir óhappiö, hafa enn ekki látið i té nákvæma greinargerð um hvað þarna raunverulega gerðist. A hinn bóginn vildi yfirverkstjóri flugvirkja á Reykjavikurflug- velli, Gunnar Valgeirsson, taka það fram er blm. Þjóðviljans hitti hann að máli i gær, að um enga sprengingu hefði verið að ræða i hreyflinum eins og látið var liggja að i fréttum af atburöinum. Gunnar sagði að forþjappan, sem óhappinu olli, hefði þrengt sér úr forþjöppuhúsinu og við það af ein- hverjum ástæðum rifið allt sem fyrir varð i sundur. Þess má geta að á vinstra hreyflinum var ný tegund for- þjöppu sem sett hafði verið i vélarhúsiö á verkstæðum i Hol- landi. Eftir óhappið yfir Isafirði hefðu allar þessar forþjöppur verið afturkallaðar. Með nauðsynlegum viðgerðum á flugvélinni var einnig unnið að öðrum endurbótum. T.d. væri nú veriðað koma fyrir nýjum sætum i vélinni og reyndar mörgum öðrum vélum Flugleiða. Sætin eru mun léttari en þau sem áður hafa verið i notkun og spara þvi verulegt magn af eldsneyti. Að sögn Sveins Sæmundssonar munu þau borga sig upp á u.þ.b. mánuði. Aætlað var að reynslufljúga TF—FLM i morgun og ætti vélin að vera komin i fullt gagn seinna i dag. — hól. Unnið aö frágangi hreyfilsins á TF-FLM i gær. Flugvélin kemst i gagniö I dag. Ljósm.: —k.v. Fyrsta verk leikhússins frá Vencsúela var aö þramma upp I Þjóðleikhús og skoöa þar aöstæður allar. Viö þaö tækifæri tók eik ljósmyndari Þjóöviljans þessa mynd. Frá vinstri: José Tejara, Magnús Þórar- insson, starfsmaöur Þjóöleikhússins, Edda Backman, starfsmaöur Listahátiðar, örnólfur Arnason, framkvæmdastjóri Listahátiöar, Gonzalo Velutini og Carlos Gimenez, leikstjóri beggja sýninga Raja- tabla-leikhópsins. Raj atabla-hópurinn kominn til landsins í gær kom hingaö til lands hinn lýðveldisins". Sýningarnðr verða í þekkti leikhópur Rajatabla frá Þjóðleikhúsinu föstudag, laugar- Venesúela. dag, mánudag og þriðjudag. Héðan Hópurinn flytur tvær sýningar á heldur Rajatabla leikhópurinn í Listahátíð „Bolivar" og „Forseta reisu um ellefu Evrópulönd. Kópavogur Horfur á vinstri meirihluta áf ram I Hér sjást sóknarleiðir tsraelshers, sem nú er kominn I námunda viö Beirút. t Bekkadal I austurhluta Llbanons er sýrlenskt stórskotaliö til varnar og nú er spurt hvort innrásin snúist upp i meiriháttar uppgjör israela og Sýrlendinga. ísraelar hafa tekið nær hálft Libanon Flest bendir nú til þess aö þaö takist aö mynda vinstri meiri- hluta I Kópavogi en málefna- samningur milli Alþýöubanda- lags, Alþýöuflokks og Fram- sóknarflokks liggur fyrir. Mál- efnasamningurinn var borinn undir félagsfund I Framsóknar- flokki og Alþýöuflokki I gærkvöldi og I kvöld veröur hann borinn undir fund hjá Alþýöubanda- laginu. Björn Ólafsson 1. maður á lista Alþýðubandalagsins i nýaf- stöönum kosningum sagði i sam- tali við Þjóöviljann að mestur tíminn hefði farið i að ná sam- komulagi um uppbyggingu og framtiö skólahúsnæðis i Kópa- vogi. Var ákveðið að ekki yrði gengið á grunnskólana til aukn- ingar á húsnæði fyrir framhalds- skóla i Kópavogi. Þá var samþykkt tillaga um að ráða nýjan bæjarstjóra, en núverandi bæjarstjóri, Bjarni Þ. Jónsson tók að sér stöðu bæjar- stjóra til bráöabirgða þegar Björgvin Sæmundsson féll frá. Fjölmörg atriöi eru i málefna- samningnum, s.s. aö hraða skuli gatnaframkvæmdum, bæöi veröi lagt bundið slitlag þar sem slikt vantar og einnig að endurbyggðir verði gamlir vegir sem farnir eru aðgefa sig. Hefur tæknideildinni i Kópavogi verið falið að flokka götur eftir mikilvægi. Þá verður lögð áhersla á uppbyggingu úti- vistarsvæða, og að bæjarbúum verði gert kleift að fylgjast með framkvæmdum i Kópavogi á að- gengilegan hátt. ólga vegna bæjarstjóra A bæjarskrifstofunum i Kópa- vogi er uppi mikil andstaða viö áform um að ráða nýjan bæjar- stjóra, og hafa flestir starfsmenn bæjarskrifstofunnar, 30 að tölu, sent frá sér álitsgerð um málið. Þar segir m.a., að þeir sem knúðu Bjarna Þór Jónsson til að taka við stöðu bæjarstjóra i Kópavogi við mjög erfiðar aðstæður, séu sið- feröilega skuldbundnir til að tryggja honum starfiö áfram, þar eð hann hafi gegnt þvi með sóma og áfallalaust, og aflað sér virð- ingar og trausts jafnt starfs- manna sem bæjarbúa almennt. ísraelski herinn heldur áfram sókn sinni í Líbanon og hefur nú lagt undir sig mestallan suðurhluta landsins. Margar helstu borgir og bæir sem Palestinumenn hafa getað haft stöðvar í hafa fallið í þeirra hendur— Beaufort- kastali, Nabatieh. Tyr og Saida (en þar segjast sveitir Palestínumanna enn veita mótspyrnu). tsraelski herinn er nú skammt fyrir sunnan Beirút, höfuðborg Libanons. Þegar hefur komið til bardaga milli israelsks herliðs og sýrlenskra sveita, sem sitja i landinu austanverðu og norðan- verðu. Eins og fyrri daginn ber aðilum ekki saman um flugvéla- tjón sem þeir hafi bakað hver öðrum. Sýrlendingar hafa næstliöinn sólarhring eflt herafla sinn i landinu og flutt til Libanon eld- flaugar og skotpalla. tsraelar hafa að sinu leyti eflt herafla sinn i Golanhæðum og sú spurning sem einna brýnust er nú er sú, að hvort innrásin i Libanon, sem tsraelar ætluðu að nota til að hrekja Palestinumenn lengra norður, snýst upp i meiriháttar uppgjör Israela og Sýrlendinga. Friðrik vann! Fjölskylda Kortsnojs fær fararleyfi t gær bárust þær fréttir frá Leningrad i Sovétrikjunum að fjölskylda Kortsnojs, Bella Kortsnoj og Igor sonur þeirra hefðu fengiö fararleyfi frá Sovétrikjunum. Bella ku hafa verið kvödd á útflytjenda- skrifstofu I Leningrad þar sem hún hefur búið æ siöan Korts- noj yfirgaf Sovétrlkin fyrir 6 árum síðan. Var Bellu þar tjáð að þau mæðgin yrðu að hafa sig á brott fyrir 27. þessa mánaðar. Með þessum tiðindum er einhverju erfiðasta máli sem Friðrik Ólafsson hefur oröið að spreyta sig á i sinni tlð sem forseti FIDE lokið. Hann hef- ur orðið að þola árásir úr ýms- um óvæntum áttum vegna meðferöar sinnar á málinu, en mikill er sigur hans þegar tillit er tekið til þess aö þetta mun vera i fyrsta sinn sem fjöl- skylda Sovétbúa er flúið hefur land fær slikt leyfi. Æði marg- ar fjölskyldur eru á biðlista i þeim efnum og óskandi væri að málalyktir þessar opnuðu leiðir fyrir aðra þar eystra sem svipað er ástatt fyrir. Þjóðviljinn átti stutt spjall við Friðrik þegar þessar frétt- ir lágu fyrir og sagðist hann fyrst og fremst vera ánægður meö að mál þetta væri úr sög- unni. Hann kvað málalyktir vera i samræmi við sam- komulag hans við þá Sovét- menn er hefðu með málið farið á fundum i Atlanta I Banda- rikjunum og I Amsterdam i Hollandi. —hól

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.