Þjóðviljinn - 25.06.1982, Page 3
Föstudagur 25. júnl 1982 ÞJ6ÐV1LJINN — StÐA 3
t fyrrinótt, Jónsmessunótt, efndi Alþýöubandalagiö í Hafnarfiröi til
næturvöku við Urriðakotsvatn'ofan viö Hafnarfjörö.
Hlaöinn var myndarlegur bálköstur, útbúiö heíjarmikiö grill og
sungið og dansað fram eftir nóttu.
Fjöldi félagsmanna annarra stuðningsmanna og vina tóku þátt i
skemmtuninni sem tókst hið besta, enda veörið eindæma gott, hlýtt og
algert logn. •
Þessi mynd var tekin við upphaf gleöskaparins i fyrrakvöld, þegar
verið var aö hlaða bálköstinn. Aðeins sér i hluta þátttakenda á mynd-
inni, aðrir útúr inyndinni aö berá við á köstinn.
— lg./Mynd —Margrét.
I------------------------------
Saltfiskgallamir í Portúgal:
Farmurinn lækkaði
I um 2 miljónir
Samkomulag hefur náöst við
Portúgalska kaupendur um
bætur vegna þeirra galla sem
voru i saltfiskfarmi héöan sem
skipaö var upp i Portúgal fyrr i
mánuðinum.
5% farmsins voru felld i verði
um einn flokk sem þýöir um
tveggja miljón króna tap á áður
umsömdu kaupverði.
Fulltrúar frá Sölusambandi
islenskra fiskframleiöenda sem
veriö hafa i Portúgal siöustu
vikur vegna þessa máls, og
munu verða þar enn um sinn,
þar sem enn frekari gallar á
saltfiski hafa komið fram i
farmi sem verið er að skipa upp
úr Eldvík þessa dagana i Portú-
gal.
Að sögn Sigurðar Haralds-
sonar skrifstofustjóra SIF eru
gallarnir þeir sömu i Eldvikinni
og Verde nema hvað þeir eru i
mun minna mæli. Farmurinn i
Eldvikinni er frá verstöðvum á
vertiðarsvæðinu sunnan og
vestanlands.
j Búið er að selja alla saltfisk-
íframleiðslu vertiðarinnar,um 40
þús. tonn, og skipa út rúmlega
helming, en langstærsti hlutinn
fer á markað i Portúgal.
Að sögn fulltrúa StF sem eru i
Portúgal má rekja þá galla sem
komið hafa fram i saltfisks-
förmunum til þessa, til mistaka
i mati, og eins hafi fiskinum
verið pakkað svo illa stöðnum,
að hann hefur ekki þolað hið
minnsta hnjask.
Aðspurður hvort SIF teldi sig
hafa tryggt að mistök sem þessi
kæmu ekki uppá aftur, sagði
Sigurður að hann vildi ekki taka
svo djúpt i árinni að búið væri að
komast fyrir þessa galla, en þó
væri búið að gera ráðstafanir til
að reyna að fyrirbyggja að
svona lagað kæmi upp aftur.
M.a. hefði aðalfundur SIF fjall-
að um þetta mál og beint þeim
tilmælum til stjórnar að sam-
tökin sjálf taki að sér allt gæða-
mat á saltfiski. Það er nú i
höndum framleiðslueftirlits
sjávarafurða. — lg-
19. júní
kominn
Arsrit K venréttindaf élags
islands, 19. júni er komið út og er
blaðiö að þessu sinni helgað at-
vinnumálum kvenna.
1 grein, sem ber yfirskriftina
Kvenþjóð — karlþjóö, er skoðað
hvaða áhrif það hefur á launakjör
starfsstétta að konur séu þar i
miklum meirihluta. Við þá at-
hugun kemur i ljós, að vinnu-
markaðurinn er i raun tviskiptur
og i launamálunum er þyngra á
metunum hvort um er að ræða
kvenna- eða karlastéttir en hvaða
menntunar og ábyrgðar starfið
krefst.
Einnig eru i blaðinu hring-
borðsumræður undir stjórn
Gunnars E.Kvarans og Guðrúnar
Egilson, þar sem þrjár konur og
einn karl ræða vitt og breitt um
heimilisstörf. Þá er fjallað um
vinnuframlag húsmæðra og það
hvernig konum gangi að koma
aftur út á vinnumarkaðinn eftir
að hafa starfað um árabil að
heimilisstörfum. t þvi efni eru
* SPENNUM
Zi BELTIN
... alltaf
iJUMFERÐAR
fjölmargir aöilar spurðir álits,
m.a. forsvarsmenn verkalýðs-
félaga, vinnuveitendur, stjórn-
endur fullorðinsfræðslu og konur,
sem geta talaö af eigin reynslu.
Ennfremur er fjallað um
fæðingarorlof og dagvistunarmál
og rætt við einstæða foreldra um
aðstæður þeirra á vinnumarkað-
inum.
Að öðru efni má nefna viðtöl við
þá Helga H. Jónsson og Gisla
Jónsson, félaga i Kvenréttindafé-
laginu, greinar um kvennafram-
boð og kvennaathvarf og viötal
við Þuriöi J. Jónsdóttur, félags-
ráðgjafa um sérstök vandamál
drykkjusjúkra kvenna. Og loks er
i blaðinu fjallað um bókmenntir
og listir.
19. júni er að venju prýddur
fjölda mynda og vandaður að
öllum frágangi. Ritstjóri blaðsins
er Jónina Margrét Guðnadóttir.
Blaðið er til sölu i bókaverslunum
um land allt og auk þess er þvi
dreift til aöildarfélaga KRFl.
Sjálfstæðisflokkurinn og aðalskipulagið:
Eðlilegt að hundsa
skipulagsnefndina
Tillögur Sjálfstæðisflokksins
um nýtt aðalskipulag komu til
umræðu i skipulagsnefnd s.l.
mánudag, að ósk Sigurðar Harð-
arsonar, fulltrúa Alþýðubanda-
lagsins. Lagði hann til aö umíjöll-
un borgarstjórnar um málið yrði
frestað þar til fyrir lægju fag-
legar umsagnir skipulagsnefndar
og Borgarskipulags en það var
fellt af fulltrúum Sjálfstæðis-
flokksins. Aðeins l'ulltrúi kvenna-
framboðsins studdi tillögu
Sigurðar.
A fundinum lélu Sjálfstæðis-
menn bóka þá skoðun sina aö það
væri i hæsta máta „eðlileg”
málsmeðferð að ganga fram hjá
skipulagsnefnd og Borgarskipu-
lagi við gerð þessara tillagna.
Sagði Sigurður að það heföi ber-
lega komið i ljós á fundinum aö
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins i
skipulagsnefnd heföu alls ekki
verið tilbúnir til þess aö ræða
málið efnislega og sér hefði virst
að þeir hefðu litið fylgst meö til-
lögugerðinni sjálfri.
Borgarstjórn fjallar um málið
1. júli n.k. — AI
Leiðrétting
vegna fréttar um skipasmíði
Gunnar Ragnars forstjóri
Slippstöðvarinnar hafði sam-
band við Þjóöviljann i gær og
vildi koma á framfæri leið-
réttingu vegna viðtals sem
birtist við hann i blaöinu.
Hann kvað fyrirsögn viðtals-
ins vera villandi þar sem segir
að Fiskveiðasjóður hafi
brugðist innlendum skipa-
smiðastöðvum. „Astæður
fyrir erfiðleikunum i skipa-
smiðinni hér eru miklu marg-
brotnari en svo að hægt sé að
skella skuldinni eingöngu á
þennan eina sjóð, eins og
fyrirsögn viðtalsins gefur þó
til kynna”, sagði Gunnar.
„Við höfum alltaf átt góð sam-
skipti við Fiskveiðasjóðinn en
okkar vandi stafar af þvi að
stjórnvöld almennt hafa ekki
tryggt lánsf jármagn og aðstoð
til að við getum staðist er-
lenda samkeppni varðandi lán
til okkar viðskiptavina”, sagði
Gunnar aö lokum.
— v.
Allir út að
iin
sunmidagmn
27. júní
Trimmdagur ISl er á sunnu-
daginn kemur, 27. júni. Skorað er
á alla sem geta aö taka þátt i ein-
hverri iþróttagrein þann dag,
synda 200 metra, skokka 2000
metra, ganga 500 metra, skokka
2000 metra, ganga 5000 metra,
hjóla 10000 metra eöa taka þátt i
iþróttaæfingu i 30—40 minútur
eða meira. Þá geta fatlaðir tekiö
þátt i þeim iþróttagreinum sem
þeim eru sérstaklega ætlaðar.
Með þátttöku, færir hver ein-
staklingur sinu héraði eða
iþróttasambandi stig i innbyrðis
keppni þessara aðila, stuðlar að
eigin heilbrigöi og hreysti, hvetur
aðra til að gera slikt hið sama og
hjálpar til við að sýna styrk og
kraft iþróttahreyfingarinnar i
landinu. Enginn situr heima á
sunnudaginn. Förum öll út að
trimma.
— vs
Selfoss
seldur
Þann 18. júni s.l. var gengið frá
sölu ms. Selfoss elsta skips Eim-
skipafélags Islands, og var skipið
afhent nýjum eigendum þann
sama dag. Selfoss er frystiskip,
smiðað i Danmörku 1958 og hefur
lengst af verið i siglingum til
Bandarikjanna og Rússlands.
Vegna nýrrar flutningatækni var
Selfoss orðið óhentugt til þessara
flutninga. Skipið er nú skráð i
Panama og heitir Elfo.
Guniiar Thor
í Danaveldi
Gunnar Thoroddsen, forsætis-
ráðherra hélt i gær til Dan-
merkur, þar sem hann situr fund
forsætisráðherra Norðurlanda. I
framhaldi al' l'undinum munu ráð-
herrarnir fimm i'ara til Kilar i til-
efni af 100 ára afmæli Kilarvik-
unnar. Forsætisráðherra kemur
afturheim n.k. mánudag, 28. þ.m.