Þjóðviljinn - 25.06.1982, Blaðsíða 16
NOÐVIUINN
Föstudagur 25. júnl 1982
Aöalsfmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tlma er hegt aö ná I blaöamenn og aöra starfsmenn blaösins I þessum slmum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aö ná 1 af greiöslu blaösins I sima 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663
Verðlaunaveitingar hringormanefndar
Hafeminum
enn ógnað
„Viö höfum stundum verið aö
fá hingaö dauöa erni sem komist
hafa i hræ af hval og má segja aö
viö biöum bara eftir þvi að fá
fugla sem drepið hafa sig á sel-
kjöti. Mergurinn máisins er sá að
þegar hringorm anefnd tekur
þessa furðulegu stefnu að stofna
til seladráps um land allt, þá geta
byssuglaöir menn skotiö sel, rifiö
af kjammana og skiliö hræin eftir
sem úldna og veröa aö grút. l>ar
sem haförninn er hrææta þá er
þessi bráö ansi aögengileg fyrir
hann,” sagði Erling ólafsson
dýrafræðingur hjá Náttúrufræöi-
stofnun tslands þcgar hann var
spuröur um 'álit sitt á þeirri
ákvöröun hringormanefndar að
veita rifleg verölaun fyrir út- og
landselskjam ma.
1 máli Erlings kom iram aö nú
væri talið aö um 120 hafernir
væru á islandi, langstærsti hluli
þeirra viö Breiöafjörö og á Vest-
fjöröum þ.e. á þeim stööum þar
sem rösklegast er gengið fram I
þvi aö vega selinn.
Hjá Gisla Gislasyni hjá Nált-
úruverndarráöi íengust þær upp-
lýsingar að mjög í'ljótlega myndi
Náttúruverndarráö taka lorm-
lega afstööu til verölaunaveiting-
ar hringormaneindar. Gisli tæpti
ásömusjónarmiöumogErling og
sagði varla von á þvi aö menn
færu að hiröa selkjötiö þar sem
frystihúsin greiddu aöeins 50 aura
íyrir kilóíö af þvi. Sagöi hann aö
þessa dagana væru margir veiöi-
glaðir menn að taka fram hólk-
ana og talsverð brögö væru af þvi
að menn hreinl út sagt þverbrytu
lög og reglugeröir, læru inn á
friðuö svæöi og íretuöu þar út um
allar trissur.
Þess má aölokum geta aö Ævar
Petersen fuglai'ræðingur hefur að
undanlörnu veriö viö rannsóknir
viö Breiðafjörð þar sem hann hel-
ur m.a. athugað tengsl seladráps
og áhrif þess á íæðuöílun haf-
arnarins.
—hól.
Salka
Valka til
útlanda
A morgun fer áleiðis til Búlgar-
iu leikhópur Leikfélags Reykja-
vikur með sýninguna á Sölku
Völku. Verða tvær sýningar i
Sófiu, 29. og 30 júni á leikhúshátið
sem kennd er við Leikhús þjóð-
anna.
Hátið þessi er mikill viðburður,
hún er haldin árlega og ferðast
milli landa. Leikgerðina af Sölku
Völku gerðu þeir Stefán Baldurs-
son og borsteinn Gunnarsson en
sýningin var frumsýnd i Iðnó i
ársbyrjun i tilefni af áttræðisaf-
mæli Halldórs Laxness. Leik-
stjóri er Stefán Baldursson og
leikmynd og búninga gerði Þór-
unn Sigriður Þorgrimsdóttir. Með
aðalhlutverkin fara: Guðrún
Gisladóttir (Salka Valka),
Margrét Helga Jóhannsdóttir
(Sigurlina), Þorsteinn Gunnars-
son, (Steinþór) og Jóhann
Sigurðsson (Arnaldur).
AI
Deilur í stjóm Landvemdar:
Vafasöm vinnubrögð
segir formaðurinn um seladrápið
„Frá minum sjónarhóli séö,
eru þetta vaíasöm vinnubrögð.
Það eru margir sem vilja halda •
þvi fram að rannsóknir á sela-
stofninum og háltum hans séu
ekki komnar það langl aö tima-
bært sé aö boöa til selveiða um
land allt. 1 öllu falli höfum viö i
Landvernd ekki fengiö neinar
skýrslur um rannsóknir i hend-
urnar ", sagöi Þorleifur Einars-
son, jarðfræðingur, sem er lor-
maöur Landverndar.
Náttúruverndarmenn eru
eðlilega litt hrilnir aí þeim
verðlaunum sem nú hefur verið
heitið fyrir seladráp, ekki sist
þar sem samlök þeirra og
Náttúruverndarráö hala ekki
veriö höfð meö i ráöum. Þessi
mál komu til umræöu i stjórn
Landverndar fyrr i vikunni og
mun Björn Dagbjartsson, for-
maður hringormanefndar, sem
sæti á i stjórninni, þá hafa vikið
af fundi. Lyktaöi umræöunum
með þvi að hringormanefnd var
sent bréf en Þorleiíur Einarsson
vildi ekki tjá sig um innihald
þess i gær.
— hól.
Þorleifur Einarsson, formaður
Landverndar: Rannsóknir
vanlar.
Deilur í Fulltrúaráði verkalýðsfélaganna
Varaformaður Dagsbrúnar
gekk af fundl
Mikill ágreiningur kom upp i
fyrradag i stjórn Fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna i Reykjavik
er kosið var i Stjórn Verka-
mannabústaöa. Varal'ormaður
dagsbrúnar, Ilalldór Björnsson,
gekk af fundi og kvaðst ekki
mundu mæta á fleiri fundi þess-
arar stjórnar.
Stjórn Fulltrúaráðs verkalýðs-
félaganna kýs 2 menn i Stjórn
Verkamannabústaða og fór sú
kosning fram sl. miðvikudag.
Borgarstjórn kaus nýverið sina 3
fulltrúa: Hilmar Guðlaugsson,
Gunnar Helgason og Þórhildi
Þorleifsdóttur, og BSRB hefur 1
fulltrúa, sem nú er Kristján Thor-
lacius. Félagsmálaráðherra
skipar formanninn og mun gera
það á næstunni.
Guðmundur J. Guömundsson,
formaöur Dagsbrúnar, sem átt
hefur sæti i stjórn Verkamanna-
bústaða frá upphal'i, baðst undan
endurkjöri. Halldór Björnsson,
varaformaður Dagsbrúnar, bar
fram tillögu á fundinum um
Rögnu Bergmann, l'ormann
Verkakvennafélagsins Fram-
sóknar. Halldór kvaö eðlilegt, að
stærsta verkakvennafélag lands-
ins ætti fulltrúa i þessari stjórn.
Við kosningu hlaut Ragna Berg-
mann atkvæöi tveggja íulltrúa
Verkakvennafélagsins og Hall-
dórs, en Páll Magnússon, starfs-
maður Lifeyrissjóðs trésmiða,
hlaut atkvæði Benedikts Daviðs-
sonar, Þorbjarnar Guömunds-
sonar, Tryggva Benediktssonar,
Guðjóns Jónssonar, Bjarna
Jakobssonar og Hilmars Guð-
laugssonar. í Stjórn Verka-
mannabústaða i Reykjavik eiga
þvi sæti nú Páll Magnússon og
Guðmundur Þ. Jónsson, en ekki
var ágreiningur um þann siðar-
nefnda.
Þegar úrslit lágu fyrir gekk
varaformaður Dagsbrúnar af
fundi, eins og áður sagði, og
kvaðst ekki una þeirri valdniðslu,
að formaður láglaunafélagsins
Framsóknar væri útilokaður frá
Stjórn Verkamannabústaöa i
Reykjavik. Jafnframt kvaðst
hann ekki mæta á fleiri fundi
stjórnar Fulltrúaráðsins.
ast
Sumarfrí og sam-
vera á Laugarvatni
Örfá
pláss
hafa
losnað
JNIú er iólk sem oöast að
staðíesta pantanir sinar
á vikudvöl á Laugar-
vatni á vegum Alþýðu-
bandalagsins siöari
hluta júlimánaöar. Viö
nánari skoðun á pöntun-
um heiur komiö i ljós að
enn eru öriá pláss laus
báðar vikurnar og þeir
sem bregða skjott við
eiga enn möguleika á að
komast á Laugarvatn
annaðhvort vikuna 19. til
26. júli eða 26. til 31. júli.
Látið ekki happ úr hendi
sleppa. Haiið samband
við skriístoi'una i sima
17 500.
Alþýðubandalagið
UPPHAFLEGU KRÖFURNAR
ENNÞA I FULLU GILDI
segir Skúli Thoroddsen hjá Dagsbrún
„Það er auövitaö hrein ósvifni
af Vinnuveitendasambandinu
aö krefjast þess aö einhver
utanaökomandi áhrif eins og
hugsanleg aflabrögö, eigi aö
ráða því hvaö visitalan mæli”,
sagöi Skúli Thoroddsen hjá
Verkamannafélaginu Dagsbrún
i samtali við Þjóðviljann I gær.
Eins og kunnugt er siitnaði
með öllu upp úr samningavið-
ræðum Alþýðusambandsins og
Vinnuveitendasambandsins i
gær og horfir þunglega með
áframhald viðræðnanna. Vinnu-
veitendur geröu kröfur um stór-
aukna visitöluskerðingu og þar
með stórfellda kaupmáttar-
rýrnun. Asmundur Stefánsson
forseti ASI sagði i Þjóðviljanum
i gær að hugmynd VSÍ um að
skerða visitöluna sérstakiega
vegna minnkandi fiskafl? þýddi
i raun að sjálfvirku kaup-
lækkunarkerfi yrði komið á. A
slikt gætu verkalýðssamtökin
að sjálfsögöu aldrei fallist.
t frétt frá Vinnuveitendasam-
bandi Islands i gær segir að ein-
ungis 1% I kaupmætti skilji á
milli tilboðs þeirra vinnuveit-
enda og hugmynda ASl til
lausnar deilunni. Við spurðum
Skúla Thoroddsen lögfræðing
Dagsbrúnar hvaða skilning
hann legði i þetta álit VSÍ:
„Kröfur Alþýðusambandsins
og Verkamannasambandsins
voru lagðar fram i október i
fyrra. Allar þær kröfur eru að
minu mati enn i fullu gildi og
blaðaskrif um að samninga-
nefnd Alþýðusambandsins væri
á svipuðum nótum og viðræðu-
nefnd VSI hljóta að vera runnin
undan rifjum Þorsteins Páls-
sonar og félaga. Hitt er svo auö-
vitað ljóst að vinnuveitendur
hafa af þvi hag að slikar sögur
komist i hámæli en frá minum
bæjardyrum séð eru kröfur
verkalýðssamtakanna um veru-
lega hækkun grunnlauna enn i
fullu gildi”, sagði Skúli Thor-
oddsen hjá Verkamannafélag-
inu Dagsbrún i gær.
— v.
Kröfur VSI eru hrein ósvifni,
segir Skúli Thoroddsen.