Þjóðviljinn - 25.06.1982, Side 5
Föstudagur 25. júní 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
LEIKSKOLII FLOA
Þaö hefur færst í vöxt
aö foreldrar í sveitum
landsins taki sig saman
og stofni leikskóla fyrir
börn undir skólaaldri.
Foreldrafélag grunnskól-
ans í Villingaholtshreppi
gekkst á liðnum vetri
fyrir fundi um stofnun
leikskóia þar i sveit og
fékk sú hugmynd þegar
þaö góðan meðbyr að
starfsemi var komin af
stað undir lok marsmán-
aðar.
Stofnbúna6ur fékkst greiddur
úr sveitarsjóði en foreldrar
barnanna standa sjálfir undir
rekstrarkostnaði. Leikskólinn á
að starfa einu sinni i viku yfir
vetrarmánuðina, til að byrja
meö, frá kl. tvö til fimm siö-
degis. Húsnæði til þessarar
starfsemi var ekki til staðar en
fyrst i stað fær leikskólinn inni i
kjallara Viliingaholtsskóla og
hefur þar afnot af svokallaðri
fjölnýtisofu og handmennta-
kennslustofu.
Starfsemin fór vel af stað og
var almenn þátttaka, en alls
voru 16 börn á aldrinum 3ja til 6
ára i leikskólanum þau sjö
skipti sem iiann startaöi i vor.
Fóstra var ráðin Margrét Ólafs-
dóttir frá Skeiðháholti á
Skeiðum, en henni til aðstoðar
voru nokkrar af mæðrum barn-
anna sem skiptust á tvær i senn.
Myndirnar hér á siðunni sýna
börnin i leikskólanum, en þær
eru teknar þegar leikskólinn
hafði starfað nokkur skipti.
Það er greinilegt að augu
fólks viöa um land eru að opnast
fyrir þvi að dagvistunarstofn-
anir eiga ekki bara að vera
„geymslustaðir” fyrir börn
heldur gegna mikilvægu hlut-
verki i sambandi við uppeldi og
þroska barna. Börn i sveit eiga
þess siður kost en börn sem
alast upp i þéttbýli að kynnast
sjálfum sér i hópi jafningja að
aldri og þroska sem þau veröa
að taka tillit til á annan hátt en
ef þau væru i sömu fjölskyldu.
Leikskóli i sveit getur hér bætt
mikið úr.
Kristin Birna (lengst tilvinstri) meðpappirsgogg. Magnús fylgist með.
Kringum borðið sitja talið frá vinstri: Magnþóra, Brynja, Halla, Kristin Birna, Benedikt Hans og
Magnús sem snýr baki i myndavélina. Á bak við þau stendur Sigurður.
Rúnar og Sigurður i bilaleik á ganginum.
Ingvar Guðni stælir kraftana og reynir að skrúfa saman eins þétt og
liægt er.
Hér eru þær Hilda, Margrét Harpa og Briet aö raða saman i púsluspil.
Þórunn og Magnþóra með „börnin” sin i eldhúskróknum.