Þjóðviljinn - 25.06.1982, Side 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 25. júní 1982
um helgina
Mynd þessi var tekin af kórnum og stjórnanda hans fyrir utan
Hrafnistu i Reykjavík á miðvikudag.
(Ljósm. — eik -
Norskur stúlknakór
Hér á landi er nú staddur
stúlknakór frá Glotten I N-Noregi
og skólahijómsveitin Reipð frá
Bodö í Noregi.
Stúiknakórinn söng fyrir ibúa i
Noröurbrún og ibúa að Hrafnistu i
fyrradag við góðar undirtektir.
Kórinn skemmti Reykvikingum i
gær með söng i miðbænum milli
klukkan tólf og eitt.
Kórinn og hljómsveitin koma
fram saman i Bústaðakirkju
laugardaginn 26. júni kl.tvö og i
Selfosskirkju sunnudaginn 27.
júni kl.fjögur.
Samkór Trésmiöafélags Reykjavikur. Tónleikar á laugardaginn i
Gamia Biói. t mánaðarlokin hcldur kórinn utan til að taka þátt i
alþýðutðnlistarmóti i Finnlandi.
Trésmiðakórinn með tónleika
Söngför framundan
Samkór Trésmiðafélags
Reykjavikur heldur tónleika i
Gamia Biói iaugardaginn 26. júni
kl. 14.00. Þessir tónleikar eru
lokaáfangi i undirbúningi kórsins
undir utanlandsferð sem hann fer
i 29. júni til Finnlands, þar sem
hann mun taka þátt i alþýðutón-
listarmóti ásamt Alafosskórnum.
Þetta er i annað sinn sem kór-
inn tekur þátt i alþýðutónlistar-
móti af þessu tagi. Aður fór hann i
slika ferð með Lúðrasveit verka-
lýösins til Osló 1977. Kórfélagar
eru 55. Formaður kórsins er örn
Erlendsson og söngstjóri er Guð-
jón Böðvar Jónsson. Gestir á tón-
leikunum i Gamla Biói verða Ála-
fosskórinn úr Mosfellssveit. Ein-
söng syngur Svanhildur Svein-
björnsdóttir en undirleikari verð-
ur Lára Rafnsdóttir.
Prestastefnan eftir helgina
Friður á jörðu
Biskupsvigsla á sunnudaginn
Aðalefni prestastefnunnar að
Hólum sem Pétur Sigurgeirsson
biskup setur á mánudaginn verð-
ur Friður á jörðu. Prestastefn-
unni verður slitið á miðvikudags-
kvöldið. A sunnudaginn vigir
biskupinn sr. Sigurö Guðmunds-
son vfgslubiskup Hólastiftis hins
forna i dómkirkjunni að Hólum.
Sr. Siguröur var vigður til prests
á lýðveldishátiðinni 1944 en hefur
þjónað Grenjaðarstaðarpresta-
kalli siðan.
Herra Pétur Sigurgeirsson set-
ur fyrstu prestastefnu sem biskup
Islands, að Hólum mánudaginn
28. júni kl.13.30.
Flytur biskup yfirlitsskýrslu
sina i Hóladómkirkju. Þar flytur
og Friðjón Þórðarson kirkju-
málaráðherra ávarp.
Fundir Prestastefnunnar fara
annars fram i fundarsal Bænda-
skóians, en aðstaða til ráðstefnu-
halds er nú mjög góð á Hólum.
Aðalefni Prestastefnunnar i ár
j er: Friður á jörðu, og eru fram-
sögumenn þeir dr. Þórir Kr.
Þórðarson, séra Sváfnir Svein-
bjarnarson prófastur og dr.
i Gunnar Kristjánsson.
Prestastefnunni verður slitið i
! Sauðárkrókskirkju að kvöldi 30.
1 júni.
Ef veður leyfir munu margir
I prestanna fara til Drangeyjar
l næsta dag.
Nýkominn er til landsins sænski
leikhópurinn Teater Sargasso. og
mun hann dveljast hér i tæpan
mánuð og fara víöa um land með
leiksýningu,semnefnist ,,Pa flykt
fran den tid” sem mætti útleggja
á islensku sem ,,A flótta frá fyrri
tima”. Verkið hefur orðið til i
samvinnu hópsins sjálfs, og er
hann á fcrð með það um Noreg og
Færeyjar, auk islands, en hingaö
kemur Teatcr Sargasso á eigin
vegum.
Leikhópurinn sýndi i gærkvöldi
i Valaskjálí á Egilsstöðum, en
sýningar hans veröa aö öðru leyti
sem hér segir:
25.6. Félagsheimiliö, Húsavik.
26.6 Iþróttahús Glerárskóla, Ak-
ureyri
27.6. tþróttahús Glerárskóla, Ak-
ureyri.
28.6. Félagsheimilið Bifröst,
Sauðárkróki
30.6. Félagsheimilið, Stykkis-
hólmi.
2.7. Félagsheimilið Röst, Hellis-
sandi.
4.7. Logaland, Borgarlirði.
7.7. Tónabær, Reykjavik.
8.7. Tónabær, Reykjavik.
9.7. Vinnuhælið að Litla-Hrauni.
11.7. Festi Grindavik.
18.7. Félagsheimilið Sindrabær,
Höfn i Hornafirði.
Sýningarnar hefjast ki. 20.00 á
öllum stöðum.
Leikritið f jallar um það, hvern-
ig manneskjurnar flýja eöa reyna
að komast hjá þvi að takast á við
aðsteðjandi deilur og vandamál
og varpa af sér ábyrgð og skella
skuldinni á aðra, segir i kynningu
Teater Sargasso á leikverkinu.
Notast er við atburði úr mann-
kynssögunni aftur að miðöldum,
og til að flétta þá atburði saman,
ferðast hópurinn eins og farand-
leikhús f rá einum staö til annars i
tima og rúmi og reynir þannig að
spegla þau vandamál sem upp
koma.
Teater Sargasso leggur áherslu
á likamlega tjáningarmöguleika
leiklistarinnar, eins og segir i til-
kynningu frá leikhópnum, og hef-
ur fundið sér form með þvi að
blanda saman látbragðsleik,
reviuforminu, sirkusforminu, nú-
timadansi og hefðbundnum leik-
stil.
— jsj.
arafélagið
á
Kjarvals-
stöðum
Listmálarafélagið efnir til sýn-
ingar að Kjarvalsstöðum frá
laugardegi 26. júni til sunnudags-
ins II. júli.
Þessir listamenn taka þátt i
sýningunni:
Agúst Petersen, Bragi Asgeirs-
son, Einar Baldvinsson, Einar
Hákonarson, Einar Þorláksson,
Elias B. Halldórsson, Guðmunda
Andrésdóttir, Gunnar örn, Haf-
steinn Austmann, Hrólfur Sig-
urösson, Jóhannes Jóhannesson,
Karl Kvaran, Kjartan Guðjóns-
son, Sigurður Sigurðsson, Sigurð-
ur örlygsson, Steinþór Sigurðs-
son, Svavar Guðnason, Valtýr
Pétursson, Vilhjálmur Bergsson,
Þorvaldur Skúlason.
Lelkárínu lýkur
með Meyjar-
skemmunni
Nú um helgina lýkur leikári
Þjóöleikhússins með sýningu á
sönglciknum Meýjaskemmunni
eftir þá Schubert og Berté. Þetta
er siðasta tækifæri til að sjá
Meyjaskemmuna, þvi sýningar
veröa ekki teknar upp i haust.
Sýningin er á laugardagskvöldið.
Meyjaskemman var fyrst sett
á svið I Vinarborg árið 1916 og
naut fádæma vinsælda. Hér á
landi kom Meyjaskemman fyrst á
svið árið 1934 i Iðnó á vegum
Hljómsveitar Reykjavikur og var
dr. Franz Mixa hljómsveitar-
stjóri, en núverandi sýning Þjóö-
leikhússins er sjöunda uppfærsla
verksins hér á landi.
Mikill fjöldi söngvara og leik-
ara kemur fram i sýningunni —
alls um fimmtiu manns — og
margir nýir kraftar á ferðinni.
Sigurður Björnsson fer með hlut-
verk Schuberts, Július Vifill
Ingvarsson fer með hlutverk
Schober vinar hans og Katrin Sig-
urðardóttir fer með hlutverk
'Hönnu. Þá koma fram i sýning-
unni Kristin Sædal Sigtryggsdótt-
ir, Elisabet F. Eiriksdóttir, Guð-
mundur Jónsson, Þuriður Páls-
dóttir, Kristinn Hallsson, Halldór
Vilhelmsson, Bergþór Pálsson og
Anna Júliana Sveinsdóttir. Með
stærstu leikhlutverkin fara Jón S.
Gunnarsson, Kristján Viggósson,
Arni Tryggvason, Erlingur Gisla-
son og Herdis Þorvaldsdóttir. —
Leikstjóri er Wilfried Steiner og
hljómsveitarstjóri er Páll P.
Pálsson.
Helgarjazz í
Stúdentakjallaranum
Um helgina verður ieikinn jazz
i Stúdentakjallaranum við Hring-
braut, föstudags- og sunnudags-
kvöld, frá klukkan 21 til 23.30.
A föstudagskvöld, leikur trió
skipað Friðrik Karlssyni, gitar,
Tómasi R. Einarssyni, kontra-
bassa, og Sigurði Valgeirssyni
trommur.
A sunnudagskvöldið leika einn-
ig þeir Friðrik og Tómas, en þá
verður Alfreð Alfreðsson við
trommurnar.
Menn eru hvattir til að mæta á
rauðvinssveifluna!
V',
Glaðbeittir sveinar með nýútkomna plötu, Magnús Kjartansson og
Jónas R. Jónsson. Ljósm.:_k.v.
Samkvæmt læknisráði
Nýútkomin plata hljómsveitar
Magnúsar Kjartanssonar
Samkvæmt læknisráði, heitir
nýútkomin plata. Það er hljóm-
sveit Magnúsar Kjartanssonar,
sem sér um tónlistarflutning, en
hún var stofnuð til að vinna þessa
piötu. A plötunni eru 11 lög, öll
þeirra landsmönnum vcl kunn.
Má þar nefna Þú og ég, Iag Gunn-
ars Þórðarsonar, Sölvi Helgason
og Lítill drengur. Hljómsveit
Magnúsar sem vann plötuna
skipa fjölmargir af þekktustu
popp-tónlistarmönnuin þjóðar-
innar s.s. Björgvin Ilalldórsson,
Björgvin Gislason, Pálini Gunn-
arsson og margir fleiri sem hafa
hallað sér að annarskonar músik,
s.s. Manuela Wicsler.
Platan er unnin hjá Hljóðrita
hf. i Hafnarfiröi, Skifan hefur
annast dreilingu. Mynd á plölu-
albúmi er sótt alla leiöina olan i
sundlaug i Los Angeles.
Þeir Jónas R. Jónsson og
Magnús Kjarlansson komu brun-
andi upp á Þjóðvilja og sögðu að
músikina mætti telja róandi fyrir
aliflesta, a.m.k. væru lögin róleg.
Þó væri þvi svo lariö meö suma
að þeir æstust írekar upp en hitt
viöað hlusta á rólega músik. Þeir
félagar vildu koma þvi á iram-
færi að tónlistin væri einnig fáan-
leg á snæidum, eöa kassettum
eins og sumir vilja kalla þær.
— hól.
Sænskur
leikhópur
sýnir hér
í sumar