Þjóðviljinn - 25.06.1982, Síða 10

Þjóðviljinn - 25.06.1982, Síða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 25. júnl 1982 BÓKA HILLUR ÚR FURU, EIK TEKKI0G HNOTU Verð frá kr. 1320,00 Stærðir: Breidd hæð dýpt 60 cm 190 cm 27 cm 90- 190 - 27 - 120- 190 - 27 - Munið ohkar hagstæðu greiðslushilmáía jm Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Sími 10600 HúsgagnadeiM - Sími 28601 Bændaskólinn Hólum auglýsir Þeir nemendur sem ætla að sækja um skólavist næsta vetur eru vinsamlegast beðnir um að senda inn umsóknir hið allra fyrsta. Umsóknarfrestur er til 1. ágúst. Umsókn- areyðublöð fást hjá skólanum, simi um Sauðárkrók. Nemendur á fyrstu námsönn hefja nám 1. nóvember n.k. Skólastjóri Blikkiðjan Ásgarði 7, Garöabæ Önnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmiði. Gerum föst verðtilboð SIMI 53468 Sildveiðar í reknet og lagnet Sjávárútvegsráðuneytið vekur athygli út- gerðarmanna á, að umsóknarfrestur um leyfi til sildveiða i reknet rennur út 5. júli n.k. Umsóknarírestur um leyfi til sildveiða i lagnet rennur út 31. júli n.k. Sjávarútvegsráðuneytið, 22. júni 1982. Innilegar þakkir færum viö öllum þeim sem auðsýndu okkur vináttuog samúð við andlát móður okkar og dóttur, Renötu Kristjánsdóttur, er lést hinn 3. júni s.l. Sérstakar þakkir færum við starfs- fólki Landspitalans, hjúkrunarkonum og læknum. Þakk- arbréf verða ekki send, en andvirði þeirra afhent Krabba- meinsfélagi íslands. Ragnhildur Blöndal Kristjana Blöndal Haraldur Friðgeirsson Úrsúla og Kristján P. Guömundsson. Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins Það er sjálfstæðismál Ungmennafélag íslands efnir nú til herferðar undir kjöroröinu „Eflum islenskt”. Allir skilja hvað við er átl með þessu kjör- orði: Að landsmenn eigi aö sam- einast undir merki þess um að efla islenskan iðnað meö þvi að velja jafnan fremur það sem is- lenskt er en erlent ef þess er nokkur kostur. Þessari heríerð ber þvi að fagna; mættu önnur samtök i landinu taka sér Ung- mennafélag islands til fyrir- myndar i þessu eíni. Alþýöu- bandalaginu er þetta átak sér- stakt fagnaðarefni þar sem Al- þýðubandalagsmaöur hefur farið með iðnaðarmál i rikisstjórn ís- lands um nokkurt skeið. í at- vinnumálum fylgir Alþýðubanda- lagið islenskri atvinnustefnu. Við leggjum áherslu á forræði lands- manna sjálfra yíir atvinnuveg- unum enda er sjállslæði þjóðar- innar aðeins innantóml lorm ef atvinnugrundvöllinn skortir. Átökin i islenskum stjórn- málum á undaníörnum árum hafa einmitt snúist um það hvort efla eigi islenskt eöa erlent fram- tak til vegs hér á landi. Þannig hafa talsmenn ihaldsins lýst þvi yfir að eðlilegt sé aö útlendingar eigi fyrirtæki hér á landi i stór- auknum mæli. Meö þeim hætti værum við vissulega ekki að efla þaðsem islenskter. 1 baráttu iðn- aðarráðherra l'yrir þvi að fá sanngjarnt orkuverö frá álverinu til handa islenskum raforkufyrir- tækjum er gott aö vita al hug eins og þeim sem er á bak við herferð Ungmennafélags islands; i bar- áttunni við ægivald hins erlenda auðhrings þarl' þjóöin öll að standa saman. Þá,og aðeins þá.er von um að vinna sigur með þá sanngjörnu kröfu sem iðnaðar- ráðherra hefur borið fram fyrir hönd þjóðarinnar. Á siðasta og næstsiðasta þingi urðu miklar umræður um iðn- aðarmál á alþingi. Iönaðarráð- herra beitti sér fyrir samþykkt margra frumvarpa um islensk iðjuver — steinull, sykur, salt, stál. Fleira mætti nefna. Það brást varla, þegar þessi lrum- vörp voru til umræðu, að þar bæri að garði alþingishússins menn Svavar Gestsson sem vildu stöðva þessi mál vegna þess að það væri alltoí dýrt að framleiða vöruna hér i landinu. Stundum kom i ljós að þessir sömu menn höfðu umboð fyrir sykur eða salt eða annað sem út- lendingar seldu hér á landi. Þessir úrtölumenn voruekki á þvi að „efla islenskt”. En það er at- hyglisvert að ályktanir þessara manna og viðtöl við þá fengu þjóðhöfðingjameðíerö i fjöl- miðlum rikisins jafnt sem dag- blöðunum. Enginn sá sóma sinn i þvi að spyrja hvað þessum sendi- sveinum gengi til aö ráðast þannig að þvi sem þó er reynt að gera til þess að styrkja sem mest grundvöll islensks atvinnulifs og þar með islenskrar menningar. Vissulega ber að fara með gát þegar ákveðin er stofnun fyrir- tækja — en hitt má verða um- hugsunarefni hvernig umboðs- menn erlendra hagsmuna reyna að grafa undan islensku framtaki og frumkvæði. Vonandi verður herferð Ung- mennafélags islands til þess að Islendingar leggi kapp á aö hlúa jafnan markvisst að Islenskum forsendum þjóðlifsins og að standast ásælni erlendra afla og umboðsmanna þeirra. Það er ekki bióðremba að efla islenskt framtak og frumkvæði, það er sjálfstæðismál. Og þvi aðeins nær það frumkvæði tilætluðum ár- angri að það byggi á félagslegum grundvelli. Sameining og sam- vinna verður að einkenna allt starf þessarar þjóðar, hún er svo fámenn að hún hefur ekki efni á þeirri sóun sem felst i sundur- virkni gróðahyggjunnar. Ég endurtek þakkir Álþýðu- bandalagsins til Ungmennafélags Islands fyrir þá þörfu áminningu sem felst i herferð þess „eflum islenskt” Ungmennafélag íslands: Eflum islenskt Hjólað um allt land í dag Ungmennafélag islands hef- ur gefið út blað sem dreift er um allt land i 50 þúsund ein- tökum. Blaðiö ber nafnið „Efl- um islenskt” og er liður i átaki ungmennafélaganna til að fá fólk til aö styðja islenska framleiðslu. 1 blaðinu er m.a. að finna á- varp frá Hjörleifi Guttorms- syni, iðnaðarráðherra, grein eftir Viglund Þorsteinsson, formann Iðnrekenda og grein eftir Pálma Gislason, for- mann UMFt, sem nefnist „Stöndum vörð um unga fólk- ið”. Þá er i blaðinu að finna upplýsingar um starf og stefnu UMFt. Þann 25. júni til 11. júli gengst UMFt fyrir hjólreiðum um allt land undir yfirskrift- inni „Hjólum i þágu islenskrar framleiðslu”. Áskorun frá landlækni: Vlrka þátttöku í trimmdegi I.S.I. Næstkomandi sunnudagur 27. júni er svonefndur Trimmdagur ÍSÍ. Þá skorar iþróttahreyfingin á alla landsmenn að taka þátt I ein- hvers konar trimmi eða íþrótta- æfingum og færa með því sinu héraði eða iþróttasambandi stig i innbyrgðis keppni héraðs- og iþróttasambandanna, og sjálfum sér holla hreyfingu og ánægju. Blaðinu hefur borist pistill frá landlækni varðandi likamsrækt og heilbrigði og fer hann hér á eft- ir. „Ahugi er vaxandi á almenn- ingsiþróttum og er það vel. Ekki leikur vafi á að reglubundin lik- amsrækt bætir og viöheldur lik- amlegu og andlegu heilbrigði. 1 fræðslubæklingi sem landlæknis- embættið undirbýr nú útgáfu á i samvinnu við heilbrigðisráð ISl er leitast við að svara nokkrum algengum spurningum um lik- amsþjálfun og heilbrigði. Kemur þar m.a. fram að öll skynsamlega stunduð likamsþjálfun er til bóta. Mikilvægast er aö >. gera æfingar er reyna á blóðrásar- og öndunar- kerfi i nokkurn tima. Með þvi er átt við t.d. göngu, skokk og hlaup, skiðagöngu, hjólreiðar og knatt- leiki. Ahersla er lögð á að likams- þjálfunin fari fram reglulega og til að fá betra úthald þarf að reyna á sig tvisvar til þrisvar i viku. Þeir sem eru mjög feitir, með of háan blóðþrýsting eða ein- kenni frá hjarta eiga að leita ráða hjá lækni áður en þeir hefja lik- amsæfingar er valda þeirri á- reynslu sem nauðsynleg er til að fá betra þol. Við þurfum að auka heilsu- vernd. Þá sjúkdóma er valda okkur þyngstum búsifjum i dag, má að verulegu leyti rekja til okkar eigin lifernis, ekki sist kyrrsetu, offitu, tóbaks- og áfeng- isneyslu. Ef árangur á að nást i baráttunni við þessa sjúkdóma nægir ekki að eiga kost á góöri heilbrigðisþjónustu. Það þarf meira til. Með þvi að auka hreyf- ingu og ástunda reglubundna lik- amsþjálfun leggjum við okkar skerf að mörkum til að fyrir- byggja þessa sjúkdóma. Jafn- framt getur betra þol bætt liöan. Þvi ber að fagna framtaki ISI að efna til trimmdags og ég hvet alla sem það geta til virkrar þátttöku á Trimmdegi ISl sunnudaginn 27. júni nk.” Við tökum undir þessi orð land- læknis og hvetjum alla þá sem eiga þess kost að láta sitt ekki eft- ir liggja á sunnudaginn, og stuðla að þvi að trimmdagurinn verði eftirminnilegur og landsmönnum til sóma. — vs

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.