Þjóðviljinn - 25.06.1982, Qupperneq 14
14 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Föstudagur 25. júnl 1982
Sigurður Sigurðsson, sjómaður á Vopnafirði:
„Ársgrundvöllurinn er notaður sem
1____1_1_/£_ /__J_1/X_1__C?____W
þumakkrúfa á verkaíýðslireyfinguna
,,Þaö viröist vera orðin almenn Einhvcrjir hafa bent á, aö miðaö að best væri að reikna uæmið út ÍM i r ; i tima. Okkur hefur
stefna i okkar kjaramálum, að
ekki sé hægt að hækka kaup hjá
neinum stéttum, ef ekki fiskast
um einhvern tfma, eins og hefur
t.d. núna mátt heyra i fréttum.
við það, hvað fiskastlitið núna, þá
hafi þjóðartekjurnar minnkað
þetta mikið miðað við ársgrund-
völl — en það er nú ekki liðið
nema hálft árið ennþá, og ég held
Suðumesjamenii athugið
Jón Böðvarsson
" Alþýöubandalagiö
mun efna til fjöl-
skylduferðar um
Hvalfjörð laugardag-
inn 26. júni. Boðiö
verBur upp á styttri
sem lengri gönguferB-
ir. GengiB verBur upp
aö Glym og farin verö-
ur Sildarmannagata
fyrir þá sem vilja
lengri gönguferö.
Glymur
Fjöröurinn veröur skoöaöur beggja handa undir öruggri leiösögn
Jóns Böövarssonar, skólameistara. Sameiginleg grillveisla
veröur ef veöur leyfir um miöjan dag i Brynjudal, þar sem tóm
gefst til leikja og almennrar útiveru. Lagt veröur upp frá biö-
stöövum S.B.K. kl. 8.00. Nánari upplýsingar og skráning eru i
sima 92-1948 (Sólveig) sima 92-3096 (Bjargey) og 92-3191 (Alma).
Pantiö timanlega, þaö auöveldar allan undirbúning.
Alþýðubandalagsfélag Keflavikur.
þegar árinu er lokið”, sagði
Sigurður Sigurðsson, sjómaður á
Vopnafirði, þegar Þjóðviljinn
ræddi við hann um kjaramál sjó-
manna fyrir skemmstu.
Skömmu eftir áramót voru sjó-
menn i sextán daga stoppi, vegna
þess að ekki hafði samist um fisk-
verð, og eins og Sigurður benti á,
getur enginn maður liöiö, að vita
ekki upp á hvaða kaup hann er að
vinna. Fiskverð á að koma 1. jan-
úar en Sigurður sagði, að þess
væru dæmi, að dregist hefði allt
upp i tvo mánuði að semja um
fiskverð.
Aðspurður sagði Siguröur, aö
hann væri i sjálfu sér ánægður
með það fiskverð, sem samist
hefði um. ,,En mér fannst ekki
rétt stefna tekin i þessum samn-
ingum, sem var sú, aö hækka óað-
gerðan fisk. Þarna var verið að
hækka verð á þeim fiski, sem
kostar minni vinnu en t.d. aðgerð-
ur fiskur. Það helði þurft að rétta
hlut bátasjómannanna á annan
hátt”, sagði Sigurður.
Fiskverðshækkunin nam um
20%, en eins og Siguröur sagði,
fer það fyrst og fremst eítir afla-
brögðum, hverjar tekjurnar
verðairaun.
„1 rauninni hafa tekjur okkar
sjómanna staðið i stað, ef miðað
er við árið i íyrra, vegna þess hve
aflinn hefur minnkað — en það
þýðir um leið, að launin hafa
lækkað um 40 eða jafnvel 50%,
miðað við verðbólgu og verð-
hækkanir” sagðiSigurður.
Sigurður var þessu næst spurð-
ur hvers vegna illa hefði íiskast,
hvort verið væri að sækja á röng
mið, eða hvort aílinn væri nú að
Þórsmerkurferð 25.-27. júní
Ungir sósíalistar
Æskulýðsnefnd Alþýðu-
bandalagsins stendur fyrir
skemmtiferð i Þórsmörk um
næstu helgi. Lagt verður af
stað frá Umferðarmiðstöð-
inni á föstudagskvöld 25. kl.
21.00 og laugardagsmorgun
26. kl. 10.00 ef næg þátttaka
fæst.
Föstudagur:
Tjaldað i rómantiskum
trjálundum i skjóli nætur.
Laugardagur:
Farið snemma á fætur.
Hópefli og önnur visinda-
fræði. Gönguferðir á vit
náttúrunnar undir leiðsögn
fróðra manna. Þegar kvölda
tekur verður.kveiktur eldur
og haldin skemmtileg kvöld-
vaka i anda Karls Marx við
undirspil Engels meö söng,
leikjum og manntafli.
Sunnudagur:
Pólitisk morgunandakt.
Arthur Morthens formaður
ABR predikar. útivera og
annaðheilbrigðiaðeigin vali.
Mörkin kvödd seinni part
dags.
Skráið þátttöku sem allra
fyrstisima 17500.Notið þetta
kjörna tækifæri til að efla
samstöðuna. Allur ferða-
kostnaður i algjöru lágmarki.
Ferðahópur.
Æskulýðsnefndar.
Munið:
góða skapið
Tjaldið
svefnpoka
góða skó
næringarríka
fæðu
Mætið við Umferðamiðstöðina
í kvöld kl. 21.00
Sigurður Sigurðsson, háseti á
Brettingi NS 50 frá Vopnafirði:
„Það hefði þurft að rétta hlut
bátasjómanna á annan hátt en
gert var i siðustu samningum. <
Ljósm.: — jsj.
nálgast eðlilegt mark miðað við
góðaflaár aðundanförnu.
„Ég er nú einn af þessum bjart-
sýnismönnum og ég tel, að þorsk-
veiðarnar gangi illa nú fyrst og
fremst af þvi að loðnustofninn er i
lágmarki”, svaraði Sigurður.
„Sjórinn hefur verið kaldur hér
fyrir norðan og austan landið, og
það veldur þvi, að loönan er ekki
til staðar, þegar þorskurinn sækir
á hefðbundin mið seinnipart vetr-
ar. En við vorum að koma úr túr
um daginn og höfðum verið fyrir
austan landið. Sjórinn hafði þá
hlýnað verulega, og við urðum
varir við þorsk, og það stóran
þorsk, i fyrsta skipti i langan
tima. Okkur hefur einmitt skilist
á fréttunum, að hann ætti að vera
horfinn úr sjónum”.
„Ég tel það alls ekki réttan
hugsunarhátt, þegar sagt er, aö
sagt er, að allt sé komið i kalda
kol þótt veiðarnar bregðist um
allt sé komið i kalda kol þótt veið-
arnar bregðist um tima. En það
er einmitt það sem gert er, þegar
tekinn er kannski ekki nema
mánuður og hann miðaður við
ársgrundvöllinn. Þetta er notaö
einsog þumalskrúfa á verkalýðs-
hreyfinguna”, sagðiSigúrður.
Kauptrygging togarasjómanna
er nú á bilinu 9—10.000 krónur og
Sigurður sagði, að það væri fátitt,
að ekki fiskaðist a.m.k. eitthvað
meira en sem næmi kauptrygg-
ingunni i hverjum túr. „Við höf-
um yfirleitt veriö ofar en sem
nemur kauptryggingunni” sagði
hann, ,, og ég held að menn séu
það almennt á togaraflotanum.
Það er varla merkilegur afli, sem
nær ekkiupp i kauptrygginguna”,
sagði Sigurður að lokum. —jsj
Leiðrétting
1 greininni um Trúnaðar-
mál var halt rangt nafn
undir einum myndatexta. í
stað nafnsins Helgu Möller
átti aö vera Helga Ragn-
heiður óskarsdóttir. Eru
hlutaðeigendur beðnir vel-
virðingar á þessum mis-
tökum.
Mishermi
Sú villa slæddist inn i við-
tal við Onnu Norðmann á 2.
siðunni i gær, að hún var
sögð ætla að kenna pianóleik
við Tónlistarskólann i
Reykjavik næsta haust, sem
er ekki rétt. Anna ætlar að
kenna við Tónskóla Sigur-
sveins.
Jóhannes
*
Arnason
skipaður
sýslumaður
Jóhannes Árnason sýslumaður
hefur verið skipaður sýslumaður
Snæfellsness- og Hnappadals-
sýslu frá 15. ágúst n.k. Auk hans
sóttu um embættið:
Barði Þórhallsson, bæjarfógeti,
Finnbogi H. Alexandersson,
dómarafulltrúi, Guðmundur
Kristjánsson, aðalfulltrúi, Jón E.
Ragnarsson, hrl, Pétur Kr. Haf-
stein, stjórnarráðsfuiltrúi, Rik-
harður Másson, dómarafulltrúi
og Sigmundur Böðvarsson, hdl.
Viðeyjarferð
Samhygðar
í kvöld
! Félagsskapurinn Samhygð
I (fyrir jaínvægi og þróun manns-
ins) eínir til Viöeyjarferöar i
kvöld. Allir eru velkomnir og
hvattir til að hafa með sér hljóð-
færi, bolta og eitthvað matar-
kyns. Kveiktur veröur varðeldur
og grillað. Farið verður frá
gamla Hafnarhúsinu kl. 21 i
kvöld.
Blaðbera vantar
vantar i eftirtalin hverfi:
Lynghaga
Starhaga
Ægissiðu
Fálkagötu
UÚmiUIMM
Siðumúla 6, simi 81333.
Blaðberabíó
i Regnboganum
laugardag kl. 1.00
Bátarallýið
Mynd I litum
Isl. texti
Miðinn gildir fyrir tvo
DJÚÐVIUINN
M íbúð óskast
Tveggja herbergja ibúð óskast.
Guðrún Hjartardóttir, simi 26687